Morgunblaðið - 23.06.1991, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 23.06.1991, Blaðsíða 25
einmitt í næsta blaði, sem kemur út eftir fáeina daga birtist umrædd Morgunblaðsgrein hans. Stjórn Landssamtaka hjartasjúklinga þakkar af heilum hug fyrir störf séra Emils að félagsmálum okkar, áhuga hans og hvatningu á undan- förnum árum, og vottum við eftirlif- andi eiginkonu hans, Álfheiði Guð- mundsdóttur og fjölskyldu, innilega samúð. F.h. LHS Hallur Hermannsson. Sr. Emil Björnsson var einn þeirra manna sem áttu hvað ríkast- an þátt í mótun fréttaflutnings og fjölmiðlunar nútímans. Hann var fréttastjóri Sjónvarps tvo fyrstu áratugina sem Sjónvarpið starfaði og mótaði ásamt samstarfsfólki sínu þá stefnu vandvirkni og heiðar- leika sem enn er reynt að fylgja. Það hlýtur að hafa verið mikið vandaverk að bera ábyrgð á braut- lyðjendastarfinu á fréttastofu Sjón- varps á fyrstu árum þess, ekki síst þegar nokkuð gustaði um frétta- stofuna eins og oft gerðist. Þó að ég væri þá sjálfur unglingur eru mér í fersku minni þær nýjungar í fréttamennsku sem Sjónvarpinu fylgdu. Þar var tekið á málum af meiri áræðni og festu, en þekkst hafði áður. En það var hvergi pláss fyrir lausung eða léttúð á frétta- stofu séra Emils. Hann lagði mikla áherslu á að almenningur gæti tre- yst fréttaflutningi Sjónvarpsins. Hann hafði mikinn metnað fyrir hönd fréttadeildar Sjónvarpsins. Honum tókst að færa fréttastofuna í öndvegi íslenskra fjölrniðla, en hann lét jafnan lítið á sjálfum sér bera. Ég réðst til starfa á fréttastofu Sjónvarpsins er hún hafði starfað í rúman áratug. Þá kynntist ég þeirri vandvirkni og alúð sem séra Emil lagði í starf sitt. Hann var öllum stundum í vinnunni, hann fylgdist með öllu og ekkert var flutt í sjón- varpsfréttum, nema að hann hefði fyrst lesið handritið. Þar naut reynslulaus fréttamaður, sem kom beint úr Háskólanum á fréttastof- una, þekkingar séra Emils á mönn- um og málefnum og ekki síst yfir- burða íslenskukunnáttu hans. Fáir menn, sem ég hef kynnst, hafa búið yfir jafn mikilli þekkingu á íslenskri tungu, bókmenntum og menningu. Það voru ómetanlegar lærdómsstundir að vinna fyrir séra Emil og ég veit fyrir víst að ég er ekki einn um að þakka honum kennsluna. Reynslan af því að starfa undir stjórn séra Emils hefur verið mörgum fréttamanna hans ærið notadrjúg síðar í lífinu og hún hefur komið mönnum að notum þó að starfsvettvangurinn hafi orðið annar en fréttamennska. Eins og margir góðir lærimeist- arar var séra Emil harður hús- bóndi, hann þoldi mönnum ekki að kasta höndum til verka og það gat gustað af honum þegar honum þótti ástæða til að lesa einhveijum pist- ilinn. Enda fór ekki hjá því að sum- um stæði ofurlítill beygur af frétta- stjóranum. Sjálfum lærðist mér fljótt að honum var það ekki á móti skapi að menn tækju á móti og verðu sitt mál, ef nokkra vörn var að finna. Hann var kröfuharður maður, en ég reyndi hann sjálfur aldrei að öðru en réttsýni. Síðustu árin í embætti neyddist séra Emil til að minnka viðveru sína vegna heilsubrests, en hann slakaði aldrei á kröfum sínum um að ekki yrði flutt annað en lýtalaus íslenska í fréttum Sjónvarps og áreiðanleg og heiðarleg fréttamennska við- höfð. Á þessari kveðjustund er mér efst í huga þakklæti séra Emils fyrir lærdóminn, sem ég nam af honufn á fyrstu árunum mínum á fréttastofunni, traustið, sem hann sýndi mér síðar, og fyrir vináttuna og holl ráð er ég var sestur við stýr- ið á þeirri skútu, sem hann stýrði svo farsællega í tvo áratugi. Hann kunni þá list að ráða heilt þegar með þurfti, án þess að vera með óþarfa afskipti. Frú Álfheiði Guðmundsdóttur og öðrum ástvinum votta ég innileg- ustu samúð. Hvíl í friði, séra Emil Björnsson. Bogi Ágústsson MÓRGUNBLAÐIÐ Klara Guðjónsdóttir frá Þórshöfn - Minning Fædd 23. desember 1914 Dáin 16. júní 1991 Fögur sál er alltaf ung, undir silfurhærum. Það er ekki vandalaust að minn- ast Klöru með nokkram orðum svo einstök manneskja sem hún var. Hún var slík perla hversdagslífsins, þeirra sem eru stórir en lítið ber á. Hennar skólaganga var ekki löng, en hún kunni og vissi margt sem enginn skóli getur gefið. Hún var mikið náttúrubarn og kunni góð skil á ýmsu sem þar er að gerast, alveg til þess allra minnsta. Mjög bókhneigð og mjög víðlesin og svo vel heima hvort heldur var um fornbókmenntir að ræða eða það sem er að gerast í dag. Hún hafði mikla kímnigáfu og kunni vel að sjá léttu hliðarnar og spaugið í hlutunum og koma því skemmtilega frá sér, en aldrei kom það fyrir að hún særði nokkurn mann með sínu gamni. Hún kunni að fara vel með það sem henni var gefið. Ég sem yngri systir lærði svo margt af henni eins og aðrir samferðamenn hennar, það er auður sem aldrei verður frá okkur tekið. Við erum svo rík að hafa átt hana fyrir mömmu, systur og fé- laga. Hún var gimsteinninn sem alltaf glóði. Hafi hún þökk fyrir allt og allt. Una Guðjónsdóttir t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, DR. ODDUR GUÐJÓNSSON fyrrverandi sendiherra, Flókagötu 55, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 26. júní kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans er bent á Styrktarsjóð Landakotsspítala eða aðrar líknarstofnanir. Lieselotte Guðjónsson, Mari'a Bertrand, Lieselotte Singer, Heinz Singer, Þórir Oddsson, Jóhanna Ottesen og barnabörn. t Faðir okkar, tengdafaðir, stjúpfaðir og afi, HALLSTEINN TÓMASSON, Hraunbæ 156, verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju þriðjudaginn 25. júní kl. 13.30. Trausti Hallsteinsson, Björk Ingvarsdóttir, Guðmundur Hallsteinsson, Guðrún Guðmundsdóttir, Ellen Guðrún Karlsdóttir og barnabörn. t Faðir okkar, sonur og bróðir, GUNNAR INGÓLFSSON, Týsgötu 5, Reykjavík, sem lést 18. júní sl., verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju.föstu- daginn 28. júní kl. 13.30. Ingibjörg Gunnarsdóttir, Sveinbjörg Gunnarsdóttir, Guðbjörg Gunnarsdóttir, Guðrún Gunnarsdóttir, Oddfríður Sæmundsdóttir, > Sæmundur Ingólfsson, Guðmundur Ingólfsson. LEC Mi Hamars JSTEINAR OSAIKH.F. höfða 4 — sími 681960 Legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf um gerð og val legsteina. i IS.HELGASONHF 1STEINSMIÐJA M SKEMMUVEGI 48-SlMI 76677 t Móðir mín, MARGRÉT EINARSDÓTTIR, Hrafnistu, Hafnarfirði, er andaðist 17. júní sl., verður jarðsungin-frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði miðvikudaginn 26. júní kl. 13.30. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Guðbjörg Helgadóttir. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, KLARA GUÐJÓNSDÓTTIR frá Þórshöfn Sólvallagötu 30, Keflavík, sem andaðist 16. júní, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju mánu- daginn 24. júní kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vildu minnast hennar vinsamlega látið Hjartavernd njóta þess. Börn, tengdabörn og barnabörn. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og tengdamóðir, SIGURLAUG GUÐMUNDSDÓTTIR, Sólheimum 32, Reykjavik, verður jarðsungin frá Frikirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 25. júní kl. 15.00. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á heimahlynningu Krabbameinsfélags Islands. Hermann Helgason, Jóna Hermannsdóttir, Haraldur Árnason, Sigurður Hermannsson, Vilborg Sigurðardóttir, Jón Óli Ólason, Ingibjörg Helgadóttir, Soffía Jóhannesdóttir. t Ástkæri sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÓLAFUR M. MAGNÚSSON húsgagnasmíðameistari, Grænuhlíð 18, Reykjavík, sem lést þriðjudaginn 18. júní sl., verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju mánudaginn 24. júní kl. 15.00. Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Magnús Olafsson, Jafet S. Ólafsson, Huld Magnúsdóttir, Ólafur M. Magnússon, Ari Hermóður Jafétsson, Edda Arnadóttir, Hildur Hermóðsdóttir, Hjalti Már Bjarnason, Jóhanna S. Jafetsdóttir, Sigríður Þ. Jafetsdóttir. t Minningarathöfn urh móður okkar, tengdamóður, fósturmóður, ömmu og langömmu, MARSELÍU INGIBJÖRGU BESSADÓTTUR frá Höskuldsstaðaseli, Breiðdal, Rjúpufelli 46, Reykjavík, verður gerð frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 25. júní kl. 13.30. Börn tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför GUÐMUNDAR BJARNASONAR frá Innri-Lambadal. Þórlaug Finnbogadóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Hjartans þakkir fyrir hlýhug og samúð við andlát og jarðarför BENEDIKTS BLÖNDALS, og virðingu sýnda minningu hans. Guðrún Karlsdóttir, Anna Blöndal, Einar Þorvaldsson, Lárus Blöndal, Anna Kristín Jónsdóttir, Karl Blöndal, Stefanía Þorgeirsdóttir, Lárus H. Blöndal.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.