Morgunblaðið - 27.08.1991, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 1991
B 3
FRJALSIÞROTTIR / HEIMSMEISTARAMOTIÐ
Viðeigandi að tapa fyrir
mesta hlaupara sögunnar
- sagði Leroy Burreli sem bætti eigið heimsmet en sá á eftir þvítil Carls Lewis á sama tíma!
FRÁBÆRT100 m hlaup karla var hápunktur keppninnar í Japan
á sunnudag. Sex af átta keppendum í úrslitariðlinum hlupu á
9,96 sek. eða skemur, tíma sem aðeins fimm manns höfðu náð
áður í sögunni! Og allir bættu eigin árangur, í þessu stórkostleg-
asta 100 m hlaupi sögunnar. Bandaríkjamaðurinn Carl Lewis
setti heimsmet og landi hans Leroy Burrell, sem átti metið,
bætti sig einnig! Hreint ótrúlegt, enda sagði Burrell: „Ég bætti
eigið heimsmet, en tapaði því á sömu stundu. Hve margir geta
sagt það?“ sagði hann, og bætti síðan við: „Það er viðeigandi
að hafa tapað fyrir mesta hlaupara frjálsíþróttasögunnar."
Heimsmet lá í loftinu eftir und-
anúrslitin. Lewis hljóp þá á
9,93 sek. en einungis hann sjálfur
og Burrell hafa áður náð betri lög-
legum tíma. Burrell hljóp í næsta
riðli á eftir Lewis í undanúrslitunum
og svaraði honum með því að hlaupa
á 9,94 sek.
„Þið hafið reynt að afskrifa mig
allt þetta ár, en ég hef enn ekki
náð besta árangri mínum,“ sagði
Lewis við fréttamenn eftir undan-
rásir á laugardag — og stóð heldur
betur við stóru orðin daginn eftir!
Lewis var vitanlega himinlifandi
að úrslitahlaupinu loknu. vEg hef
aldrei hlaupið betur — hef aldrei
verið í betri æfingu,“ sagði hann.
Hann var síðastur upp úr start-
blokkunum, var síðastur fyrstu
metrana en sigraði glæsilega með
frábærum endaspretti, eins og hann
er einmitt svo þekktur fyrir. Þegar
sjötíu metrar voru að baki var eins
og hann skipti um gír og tók svo
forystuna þegar fimm metrar voru
eftir. Og þó hann hafi oft náð góð-
um endaspretti hefur hann senni-
lega aldrei hlaupið jafn vel seinni
hlutann heldur en nú. Það var eins
og hann flygi fram úr keppinautum
sínum. Sannaði svo ekki verður um
villst að hann er sá besti.
Burrell hljóp einnig undir gamla
heimsmetinu, sem fyrr segir (á 9,88
sek.) og þriðji Bandaríkjamaðurinn,
Dennis Mitchell, hreppti bronsið á
9,91 sek. Fótfráasti Evrópubúinn,
Bretinn Linford Christie, bætti eig-
ið Evrópumet um hálfa sekúndu —
hljóp á 9,92 sek. — en það nægði
einungis til fjórða sætis.
Lewis sagði startið hjá sér hafa
virst algjörlega misheppnað, en svo
hefði ekki verið. „Þjálfari minn
sagði að ég hefði náð góðu starti.
Og þar sem svo margir hlupu undir
tíu sekúndum hafa hinir strákarnir
augljóslega náð að byrja hreint
ótrúlega vel.“
Lewis sagðist þora að veðja að
fimm eða sex hafi verið undir
heimsmetstímánum eftir 60 metra,
því h'ann hafi hlaupið vel en engu
að síður aðeins verið fimmti eða
sjötti.
Lewis er eini íþróttamaðurinn
sem unnið hefur sex heimsmeist-
aratitla og sex gullverðlaun á
Ólympíuleikum. Hann vann fern
gullverðlaun á Ólympíuleikunum í
Los Angeles 1984 og tvenn í Seoul
1988. Og heimsmeistaratitlarnir
gætu orðið fleiri því keppni í lang-
stökki er enn eftir í Tókýó, og
ólympíugullin einnig, því Lewis
verður án efa enn meðal þeirra
bestu í Barcelona á næsta ári, þó
hann sé orðinn þrítugur.
Og keppinautar Bandaríkja-
mannsins fótfráa kepptust við að
lofa hann eftir hlaupið á sunnudag.
■Mithcell, sem varð þriðji, sagði t.d.:
„Hann er einfaldlega besti hlaupari
heims og ég er stoltur af því að
hafa verið með í hlaupinu í dag.“
Reuter
Carl Lewis kemur fagnandi í markið á sunnudaginn eftir mesta-100 m hlaup sögunnar. Lewis setti heimsmet — 9,86
sek — og fimm aðrir hlupu undir 10 sek. í baksýn má sjá Dennis Mitchell sem varð þriðji.
Söguleg enda-„sprettur“
LOKAKAFLI fyrstu keppnisgreinar heimsmeist-
aramótsins, 20 km göngu karla, var all söguleg.
Sigurvegari varð ítalinn Maurizio Damilano, 34
ára, sem varð Ólympfumeistari 1980 í Moskvu.
Damilano og keppinautur hans um gullverðlaun, Sov-
étmaðurinn Míkhaíl Stsjenníkov komu starfsmönn-
um mótsins á óvart er þeir komu inn á leikvanginn, en
þá voru keppendur í tíunda og síðastajnðli fyrstu umferð-
ar 100 m hlaupsins að taka sér stöðu. Damilano kom
fyrstur inn, með bros á vör, en brosið stirðnaði þegar
hann hrasaði um startblokk á brautinni. Sovétmaðurinn
komst þá fram úr honum og skundaði að markinu en
það sannaðist að sá hlær best sem síðasta hlær. Sá so-
véski gerði sér nefnilega ekki grein fyrir því að einn
hringur var eftir á vellinum. Hann stoppaði og horfði
furðu lostinn á eftir ítalanum, sem skaust fram úr honum
í markinu og hélt áfram. Stsjenníkov flýtti sér þá af stað
á ný, en ítalinn gaf ekkert eftir.
Þróun heimsmetsins í 100
m hlaupi
10,6 sek.Donald Lippincott (Bandar.) 6. júlí 1912
10,4 sek..Charles Paddock (Bandar.) 23. apríl ’21
10,3 sek. .Percy Williams (Kanada) 9. ágúst 1930
10,2 sek..Jesse Owens (Bandar.) 20. júní 1936
10,1 sek. Willie Williams (Bandaríkj.) 3. ágúst ’56
10,0 sek. ...Armin Hary (V-Þýskal.) 21. júní 1960
9,95 sek..Jim Hines (Bandaríkj.) 14. okt. 1968
9,93 sek...Calvin Smith (Bandar.) 3. júlí 1983
9,92 sek..Carl Lewis (Bandar.) 24. sept. 1988
9,90 sek. ..Leroy Burrell (Bandar.) 14. júní 1991
9,86 sek..............Lewis 25. ágúst 1991
■Ben Johnson setti tvívegis heimsmet — hljóp
á 9,83 sek. á HM í Róm 1987 og 9,79 sek. á
Ólympíuleikunum í Seoul 1988. Bæði metin voru
hins vegar ógilt eftir að upp komst upp lyfja-
neyslu Johnsons..
ÍÞRÚmR
FOLK
■ CARL Lewis hljóp 100 m á
9,80 sek. í undanrásum á laugar-
dag. Þetta er þriðji besti tími sem
mælst hefur, en vindur var of mik-
ill til að hann yrði gildur.
■ ROSA Mota frá Portúgal, sem
átti heimsmeistaratitil að veija,
hætti eftir 26 km í maraþonhlaup-
inu. Hún hljóp vel framan af og var
meðal fyrstu keppenda, en var orð-
in um 100 m á eftir þeim fyrstu
þegar hun gafst upp.
■ WANDA Panfil frá Póllandi
sigraði örugglega í maraþonhlaup-
inu á 2:29,53 klst.
■ PANFIL hefur aðeins sjö sinn-
um keppt í maraþoni og unnið fimm
þau síðustu — þ.á m. Boston mara-
þonið í ár. Hún býr í Mexíkó. Eigin-
maður hennar, Mauricio Gonzalez,
keppir í 5.000 m hlaupi í Tókýó.
„Eiginmaður minn sagði okkur ekki
hafa áhuga á neinu nema gullverð-
launum. Og ég verð að gegna eigin-
manninum,“ sagði Panfil.
■ IMRICH Bugar frá Tékkósló-
vakíu, sem varð heimsmeistari í
kringlukasti 1983, komst ekki í
úrslit að þessu sinni.
■ HRISTO Markov frá Búlg-
aríu, sem hefur verið nær ósigr-
andi í nokkum tíma í þrístökki,
hefur verið meiddur upp á síðkastið
og komst ekki í úrslit. Hann á
mótsmetið, 17,92 m.
Reuter
Jackie Joyner-Kersee liggur kvalin á hlaupabrautinni eftir að hún hné niður
í 200 m hlaupinu á sunnudag.
Joyner-Kersee úr leik
JACKIE Joyner-Kersee, heims-
methafi og heims- og ólympíu-
meistari í sjöþraut, meiddist í
gær og varð að hætta keppni.
Daginn áður hafði hún tryggt
sér gullverðlaun ílangstökks-
keppni heimsmeistaramótsins.
Bandaríska stúlkan meiddist í
langstökkinu á sunnudag,
snéri sig þá á ökkla, en hafði áður
náð sigurstökkinu. I gær meiddist
hún svo í sjöþrautinni — í 200 m
hlaupinu. Hafði þá góða forystu
eftir 100 m en hægði skyndilega á
sér, hökti nokkra metra og lagðist
niður, greinilega mikið kvalin. Jap-
anskur læknir sem skoðaði Joyner-
Kersee sagði að sin í hægri hnésbót
hefði tognað.
Hún hafði þegar náð öruggri for-
ystu eftir þijár greinar af fjórum á
fyrri keppnisdegi í sjöþrautinni. Var
með 3.130 stig eftir keppni í 100
m hlaupi, hástökki og kúluvarpi,
165 stigum meira en næsti kepp-
andi. Síðustu þijár greinarnar fara
fram í dag.
Al Joyner, fyrrum ólympíumeist-
ari í þrístökki, bróðir Joyner-
Kersee, sagðist aldrei hafa séð hana
hlaupa eins vel og þegar hún kom
í beygjuna. „Ég hélt hún myndi
bæta heimsmet Florence [Griffith-
Joyner]“ sagði Al, en hann er ein-
mitt giftur „Flo-Jo“.
Top Seven
Frábærir innanhússskór frá dSÍO*^
komnir - nýjar gerðir
Útsölustaðir asiö^:
Bíkarinn, Skólavörðustíg, Reykjavík. Útilíf,
Glæsibæ, Reykjavík. Gísli Ferdinandsson,
Lækjargötu, Reykjavík. Sportbúð Kópavogs,
Hamraborg, Kópavogi. Stoð, Hafnarfirði.
Sportbær, Selfossi. Óðinn, Akranesi. Kaupfélag
Borgfirðinga, Borgarnesi. Kaupfélag
Húnvetninga, Blönduósi. Tindastóll, Sauðárkróki.
Sportvík, Dalvík. Studíó Dan, (safirði. Litlibær,
Stykkishólmi. Við Lækinn, Neskaupstað.
aacs^iM-