Morgunblaðið - 10.11.1991, Side 1

Morgunblaðið - 10.11.1991, Side 1
104 SIÐUR B/C 257. tbl. 79. árg.__________________SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1991_________ PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Víetnamskt bátafólk flutt nauðugt aftur til Hanoi Lögreglusveitir urðu að draga suma flóttamennina uin borð í flugvélina Hanoi, Hong Kong. Reuter. NAUÐUNGARFLUTNINGAR hófust í gær á víetnömsku bátafólki frá Hong Kong til heimalands þess. Með fyrstu flugvélinni voru 59 manns, karlar, konur og börn, og tafðist brottför flugvélinnar vegna mikils mótþróa karlmanna í hópn- um er koma átti þeim um borð í flugvélina. Ofbauð kapital- ismi Rússanna DOUGLAS Smith, bandarískur fulltrúi rússneskra siglingasamtaka, sem ætla að taka þátt í keppninni um Ameríku- bikarinn, mestu siglingakeppni, sem haldin er, hefur sagt af sér vegna þess, sem hann kallar óseðjandi græðgi Rúss- anna. Segir hann, að þeir séu „heltekn- ir kapitalískri gróðafíkn án tillits til leikreglnanna”. Lögðu þeir meðal ann- ars hart að Douglas að fá framleiðend- ur til að leggja þeim til rá og reiða og annan búnað með þeim orðum einum, að þeir fengju greiðsluna síðar. Með krakkana á hælum sér MAÐUR nokkur í Exeter á Englandi var á dögunum dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir tilraun til að ræna póst- hús þar í borg. Þykir sumum dómurinn reyndar fullharður miðað við mála- vexti því að maðurinn hafði setið að sumbli allan daginn áður en hann lagði af stað í sínum ófrómu hugleiðingum. Var hann þá með gerviskammbyssu í hendi, á höfðinu hvítan sokk, sem hann gerði á göt fyrir þykk ho'rnspangar- gleraugun, og svo kyndugur, að þegar í pósthúsið kom var hann með krakka- skarann á hælunum. Þar var hann svo „afgreiddur” með viðeigandi hætti. Miðlaði fyrir- tæki Maxwells Rússagulli? SOVÉSKI kommúnistaflokkurinn skuldaði útgáfufyrirtækinu Pergamon Press, sem var lengi í eigu Roberts heitins Maxwells mikið fé að því er fram kom í breska dagblaðinu The Independent í gær. Samkvæmt gögn- um, sem fundust í aðalstöðvum komm- únistaflokksins var Pergamon Press á skrá yfir „vinveitt fyrirtæki”, sem not- uð voru „sem farvegur fyrir peninga til kommúnistaflokka og annarra sam- taka erlendis”. The Times skýrði einn- ig frá þessu en nefndi aðeins, að Perg- amon Press hefði verið á skrá yfir „vin- veitt fyrirtæki”. Var sovéska blaðið Nezavísimaja Gazeta borið fyrir frétt- inni. Fyrirtækið gaf út vísindatímarit og einnig sovéskar bækur. Maxwell seldi það í mars sl, til hollensku útgáfu- samsteypunnar Elsevier. Þá kemur einnig fram, að Morning Star, málgagn breska kommúnistaflokksins, hafa ver- ið á listanum yfir vinveitt fyrirtæki. Til ryskinga kom á flugvellinum í Hong Kong þegar setja átti bátafólkið um borð í Herkúles-flugvélina sem flytja átti það til Hanoi í Víetnam. Börðust sumir Víetna- manna um á hæl og hnakka gegn því að verða fluttir til heimalandsins nauðugir og varð sveit lögreglumanna ýmist að draga þá inn í flugvélina um vörurampinn eða bera þá um borð. í tilefni flutninganna efndi bátafólk í Whitehead-búðunum, stærstu flótta- mannabúðum Hong Kong, til háværra en að öðru leyti friðsamlegra mótmæla. Háttsettur embættismaður í Hong Kong sagði að bátafólkið yrði betur sett heima fyrir en í flóttamannabúðum ævilangt í bresku nýlendunni. Mikil aukning varð á komu bátafólks til Hong Kong á þessu ári og um tíma voru 64.000 Víetnamar í búðum þar. Ein- ungis lítill hluti þeirra, eða innan við 5.000 manns, hefur verið flokkaður sem raun- verulegir pólitískir flóttamenn og fengið að flytjast til Vesturlanda sem hafa harð- neitað að taka við bátafólki sem flúði Víet- nam eingöngu vegna fátæktar heima fyr- ir. Þeir sem þannig eru komnir tii Hong Kong hafa orðið að dúsa í rammgerðum búðum sem minna mest á fangelsi. Nauðungarflutningarnir eru í samræmi við nýlegt samkomulag yfírvalda í Hong Kong og Víetnam en það á að tryggja að bátafólkið verði látið óáreitt eftir heim- komuna og það fái að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið. Hefja átti nauðungarflutninga af þessu tagi í desember 1989 en þeim var nær samstundis hætt vegna alþjóðlegrar for- dæmingar þar sem Bandaríkjastjórn var í fylkingarbijósti. HEIMSMEISTARA- KEPPNIN í HNÚT FJÖLMjDLAJÖFUR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.