Morgunblaðið - 10.11.1991, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 10.11.1991, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1991 29 ATVINNU AUGL YSINGAR Heilsuverndarstöð Reykjavíkur óskar eftir: Hjúkrunarfræðingi í fullt starf til afleysinga við Atvinnusjúkdómadeild Heilsuverndarstöðv- arinnar. Upplýsingar gefur yfirlæknir í síma 22400 milli kl. 12.30 og 13.30. Hjúkrunarfræðingi ífulltstarf við heimahjúkrun. Upplýsingar gefur hjúkrunarframkvæmda- stjóri í síma 22400. Umsóknareyðublöð liggja frammi á af- greiðslu Heilsuverndarstöðvarinnar, Barónsstíg 47. Umsóknum skal skila til starfsmannastjóra fyrir kl. 16 föstudaginn 15. nóv. nk. Innanhússhönnuður Verslunin Brunás innréttingar, Ármúla 17a, Reykjavík, óskar að ráða innanhússhönnuð til starfa sem fyrst. Verslunin selur Brúnás- innréttingar, auk þess að hafa í umboðssölu innihurðir, stiga o.fl. fyrir aðra framleiðend- ur. Vinnutími frá kl. 9-18. Við leitum að innanhússhönnuði til að ann- ast ráðgjöf, sölu, tilboðsgerð, ýmsa hönnun- arvinnu og aðra þjónustu við viðskiptavini. Viðkomandi þarf að hafa söluhæfileika og ánægju af mannlegum samskiptum. í boði er framtíðarstarf hjá vaxandi fyrirtæki. Upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu- blöðum, sem liggja frammi á skrifstofu okk- ar, merktar: „I - 563” fyrir 12. nóvember nk. Hagva ngurhf Grensásvegi 13 Reykjavík [ Sími 813666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir \LEFNA FATLAÐKA REYKJANESSVÆÐI Hefur þú metnað í starfi? Hjá Svæðisstjórn á Reykjanesi er starfandi hópur af fóiki, sem hefur metnað og áhuga á að þroskast í starfi, svo og vaxa sem ein- staklingar. Við leggjum ríka áherslu á upp- byggjandi samkskipti og árangursríkt sam- starf. Við bjóðum upp á skemmtileg og fjölbreytt störf með fötluðum á sambýlum, skammtímavistun og á æfingastöð. Hjá okkur verður þú ekki ein/einn í starfi, því við getum boðið þér upp á stuðning og/eða handleiðslu. Starfið er í sífelldri þróun og lögð er rík áhersla á að þörfum skjólstæðinga og starfs- manna sé mætt sem best hverju sinni. í okkar hóp vantar bæði þroskaþjálfa og annað fagfólk og ennfremur aðra starfs- menn. Ef þú hefur áhuga, þá getum við gefið þér nánari upplýsingar í síma 641822 milli kl. 11 og 12 virka daga. Kær kveðja. Starfsfólk Svæðisstjórnar Reykjanessvæðis. Málmiðnaður Fyrsta flokks alhliða málmiðnaðarmaður með meistararéttindi óskar eftir atvinnu, helst utan Reykjavíkursvæðinsins. Ýmislegt kemur til greina. Áhugasamir vinsamlegast hringið í síma 98-22917 eftir kl. 19.00. jRIKISSPITALAR Reyklaus vinnustaður Aðstoðardeildar- stjóri - geðdeild Landspítala Staða aðstoðardeildarstjóra á deild 26, Flókagötu 29, er laus til umsóknar. Áskilin er menntun hjúkrunarfræðings. Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert hjúkrunarstarf á meðferðar- og endurhæfingadeild. Frekari upplýsingar veitir Jónína Guðmunds- dóttir, hjúkrunardeildarstjóri, í síma 602636 eða Nanna Jónasdóttir, hjúkrunarfram- kvæmdarstjói, í síma 602600. Hjúkrunarfræðingar - geðdeild Hjúkrunarfræðing vantar á kvöldvaktir á deild 16, sem er endurhæfingardeild á Vífilstaða- lóð. Einnig vantar hjúkrunarfræðing á deild 33-A, sem er deild fyrir vímuefnasjúklinga. Vinnutími eftir samkomulagi. Upplýsingar gefur Jóhanna Stefánsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 601750 eða 602890. Kópavogshæli - deildarstjóri Staða deildarstjóra á deild 8, sem er elli- og hjúkrunardeild, er nú þegar laus til umsókn- ar. Áskilin er menntun þroskaþjálfa eða hjúk- runarfræðings. Æskilegt starfshlutfall 80%-100%. Á Kópavogshæli er í boði frábær aðstaða til líkamsræktar fyrir starfsfólk. Nánari upplýsingar gefa Hulda Harðardóttir, yfírþroskaþjálfi, og Sigríður Harðardóttir, hjúkrunarforstjóri, Kópavogshæli, sími 602700 frá kl. 9.00-12.00 virka daga. íslenskar getraunir Markaðsstjóri Vegna aukinna umsvifa íslenskra getrauna með samstarfi við Svía um sameiginlegan „getraunapott”, er leitað að markaðsstjóra sem hafið getur störf sem fyrst. Starfið felst í markaðsstjórn og vöruþróun ásamt samskiptum og samvinnu við félög og söluaðila um skipulagningu og uppsetn- ingu sölukerfa. Um er að ræða mikla vinnu, þ.m.t. á laugardögum, og ferðir út á land fylgja starfinu. Hæfniskröfur eru að umsækjendur hafi hald- góða þekkingu og reynslu af tölvunotkun og eigi auðvelt með að vinna með og hafa sam- skipti við fólk. Reynsla af markaðsstörfum og þekking á íþróttastarfi æskileg. Nauðsyn- legt er að viðkomandi hafi bíl til umráða. Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvem- ber 1991. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á skrifstofunni frá kl. 9-15. Afleysinga- og ráðningaþjónusta Lidsauki hf. Skólavördustig 1 a - 101 Reykjavík - Sími 621355 Úra- og skartgripaverslun óskar eftir afgreiðslustúlku eftir hádegi. Ekki yngri en 30 ára. Upplýsingar aðeins á staðnum mánud. og þriðjud. 11. og 12. nóv. milli kl. 13.00 og 16.00. Franch Michelsen, úrsmíðameistari, Laugavegi 39. Fjölbreytt starf einkaritara, tengt ferðaþjónustu, verður laust á næstunni. Góð almenn menntun, þ.m.t. tungumálakunnátta og reynsla af tölvu- vinnslu ásamt aðlaðandi framkomu, eru skil- yrði,. reynsla af ferðaþjónustu og almanna- tengslum æskileg. Um ábyrgðarstarf er að ræða og laun í samræmi við það. Hálfsdagsstarf kemur til greina. Greinargóðar upplýsingar ásamt mynd sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 24. nóv- ember merktar: „Fremst - 9202”. Umsóknir eru trúnaðarmál og verður öllum svarað. Yfirþjónn - veitingastjóri Veitinga- og skemmtistaður í miðbænum leitar að metnaðarfullum starfsmanni í stöðu yfirþjóns/veitingastjóra. Leitað er að einstaklingi með reynslu af sam- bærilegu starfi, ervel skipulagður, reglusam- ur, ásamt því að hafa leiðtogahæfileika til að laða það besta fram hjá öðru starfsfólki veitingastaðarins til að veita þá bestu þjón- ustu sem völ er á. í boði er krefjandi starf ásamt góðum launum fyrir réttan aðila. Allar nánari upplýsingar um starf þetta ásamt umsóknareyðublöðum fást á skrifstofu minni. STARFSMANNAÞJÓNUSTA hf. HAFNARSTRÆTI20, VIÐ LÆKJARTORG, 101 REYKJAVÍK, SÍMI624550. Framkvæmdastjóri Laust er til umsóknar starf framkvæmda- stjóra hjá Árnesi hf. Árnes hf. er nýstofnað fyrirtæki í sjávarútvegi, sem varð til við sam- runa Glettings hf. í Þorlákshöfn og Hrað- frystihúss Stokkseyrar hf. Fyrirtækið mun hefja starfrækslu um nk. áramót. Fyrirtækið á sjö báta og einn togara. Afla- heimildir þess eru 5.500 ÞÍG, auk þess sem þátar félagsins veiða árlega allt að 3000 tonn af flatfiski o.fl. tegundum utan kvóta. Tveir bátanna frysta aflan um borð. Fyrirtæk- ið starfrækir hraðfrystihús á Stokkseyri og fiskvinnslu í Þorlákshöfn. Verkefni framkvæmdastjóra verður að byggja upp nýtt og öflugt fyrirtæki með því að sameina krafta beggja fyrirtækjanna. Væntanlegurframkvæmdastjóri þarf að geta hafið störf um áramót eða sem fyrst þar á eftir. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu sendar undirrituðum, sem veitir nánari upplýsingar um starfið, fyrir 20. nóvember nk. • SigfúsJónsson, Nýsir hf. - ráðgjafaþjónusta, Skipholti 50B, 105 Reykjavík. S'ími 91-626380.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.