Morgunblaðið - 10.11.1991, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1991
15
ungversku blaði og stofnaði litprent-
smjðju í Búdapest.
I nóvember 1988 keypti Maxweil
rit um tímaáætlanir flugfélaga,
Official Airline Guides, fyrir 750
milljónir dala. Skömmu síðar var til-
kynnt að hann mundi hætta umsvif-
um í prentiðnaði og selja BPC-fyrir-
tækið stjórn þess til að auðvelda
fyrirtækjakaup í Bandaríkjunum.
New York-blaðið DailyNews bættist
síðan í hópinn, en eignir víða um
heim urðu fremur til að veikja ijöl-
miðlastórveldi hans en að efla það.
Á sömu árum haslaði Murdoch sér
einnig völl í Bandaríkjunum og varð
bandarískur ríkisborgari.
Evrópskt blað
í fyrra hleypti Maxwell af stokk-
unum evrópska vikublaðinu The
European eftir þriggja ára undirbún-
ing. Hann sagði að blaðið „myndi
styðja alla sem væru hlynntir ein-
ingu Evrópu og beijast gegn þeim
sem væru henni andvígir.” Fyrsta
tölublaðið kom út í 300.000 eintök-
um og var prentað í London, París,
Hannover og Búdapest. Blaðið hefur
ekki fengið eins marga kaupendur
og auglýsendur og vonir stóðu til.
Nú er talið óvíst að það verði lang-
líft vegna fráfalls stofnandans.
Tilraunir Maxwells til að hasla sér
völl á sviði kapals- og gervihnatta-
sjónvarps runnu út í sandinn. Tilraun
hans til að stofna nýtt dagblað í
London, Daily News, fór út um þúf-
ur á fimm mánuðum. í apríl var
Pergamon Press selt hollenzka fyrir-
tækinu Elsevier fyrir 440 milljónir
punda til að skera niður skuldir.
Það markmið Maxwells að auka
veltu úr um 3 milljörðum punda í
um 5 milljarða „og hagnað að sama
skapi” stóðst ekki. Allir eignarhlutar
hans í sjónvarpi voru að lokum seld-
ir, þar á meðal 20% hlutur í Central
Independent í Bretlandi. Nokkrum
mánuðum síðar fór fram uppboð
sjónvarpsleyfa, sem hefði fært hon-
um margra milljóna punda hagnað
ef hann hefði beðið rólegur.
Þj óðsagnapersóna
Maxwell varð þjóðsagnapersóna í
lifanda lífi og fær misjöfn eftir-
mæli. „Skepna, en geðugur og með
vott af snilligáfu,” segir fyrrverandi
blaðafulltrúi hans. „Um hann er það
eitt hægt að segja með vissu að
hann er óútreiknanlegur,” segir í
ævisögu hans eftir Joe Haines, sem
telur að hann hafi notið þess að
koma af stað deilum og lægja síðan
öldurnar. Sagan segir að þegar 10
framkvæmdastjórar hans hafi beðið
um nýja bíla hafi hann sagt sex
þeirra upp, þar sem þeirra væri ekki
lengur þörf.
Fjármálamönnum mislíkaði að
þeir gátu ekki reiknað hann út að
sögn Financial Times. Hann var líka
gagnrýndur fyrir að flytja fjármuni
milli opinberra fyrirtækja sinna og
einkafyrirtækja. Því vöknuðu grun-
semdir um að einkaskuldir hans
væru meiri en hann vildi viðurkenna
opinberlega. Hann stóð oft í mála-
ferlum og hafði áhuga á mörgu, rak
til dæmis knattspyrnufélag og bjarg-
aði brezku samveldisleikunum.
Andstæður og mótsagnir í fari
Maxwells vöktu mesta athygli að
sögn Financial Times. Vinir jafnt
sem andstæðingar hafi talið hann
vægðarlausan, vingjarnlegan, næm-
an, fljótfæran, haldinn stórmennsku-
æði og velviljaðan öðru fólki. Athygl-
isverðast sé að hann hafi alltaf neit-
að því að hann sæktist eftir veralda-
rauði og jafnan stutt hægfara jafn-
aðarstefnu, þótt auðugur væri. Hon-
um hafi gramizt að Margaret That-
cher fyrrum forsætisráðherra benti
eitt sinn á og sagði að í raun væri
hann „einn af oss.”
Blaðið segir að fyrir ári hafí mátt
halda því fram að þrátt fyrir ýmsa
sérvizku hefði Maxwell komið á fót
stórfyrirtæki, sem myndi standast
tímans tönn. Síðan hafí æ betur
komið í ljós að miklar skuldir væru
að gera út af við Maxwell sjálfan
og fyrirtæki hans og mestallar eign-
irnar hafi verið til sölu fyrir skikkan-
legt verð. Hann hafí ekki viljað láta
inneignir sínar í Liechtenstein og
síðar Gíbraltar renna til fjölskyld-
unnar heldur til góðgerðar- og vís-
indamála, en óvíst hafí verið hve
mikið væri eftir af eignum hans
þegar hann hvarf af snekkju sinni
undan strönd Tenerife.
Styrktarfélag krabba-
meinssjúkra barna
sett á stofn 2.sept
STYRKTARFÉLAG krabbameinssjúkra barna var stofnað mánu-
daginn 2. september sl. Tilgangur félagsins er að gæta hagsmuna
krabbameinssjúkra barna og aðstandenda þeirra á öllum sviðum
innan sjúkrahúsa og utan.
Stofnfundur félagsins var hald-
inn í Reykjavík 2. september sl. í
framhaldi af skemmtun sem hald-
in var í miðbæ Reykjavíkur 31.
maí sl. og forráðamenn skemmti-
staðarins Berlínar og ferðaskrif-
stofunar Veraldar stóðu fyrir
ásamt félögum úr Samhjálp for-
eldra.
Stofnendur þessa nýja styrktar-
félags eru einstaklingar í Sam-
hjálp foreldra, sem er foreldrafé-
lag krabbameinssjúkra barna. Þeir
aðilar sem áhuga hafa á að ganga
í félagið og gera það fyrir 1. jan-
úar 1992 munu teljast stofnfélag-
ar og geta allir þeir sem áhuga
hafa á málefnum krabbameins-
sjúkra barna orðið félagar.
Stjórn félagsins skipa: Þor-
steinn Ólafsson formaður, Jó-
hanna Guðbrandsdóttir ritari,
Bryndís Torfadóttir gjaldkeri og
meðstjórnendur eru Skúli Jónsson
og Bjarni Óskarsson.
Eins og áður hefur komið fram
í ijölmiðlum safnaðist umtalsverð
Qárhæð í tengslum við áðurnefnda
skemmtun í miðbæ Reykjavíkur
og hefur það fé verið lagt í styrkt-
arsjóð félagsins sem stofnfé, en
markmið sjóðsins verður m.a. að
styrkja krabbameinssjúk börn og
aðstandendur þeirra fjárhagslega.
Til eflingar sjóðsins mun stjórn
félagsins beita sér fyrir fjáröflun-
arverkefnum ýmiskonar, þ.á m.
sölu á minningarkortum en prent-
smiðjan Grágás í Keflavík hannaði
og færði félaginu 2.000 fyrstu
kortin að gjöf. Stjórn félagsins
vill koma á framfæri kæru þakk-
læti til allra þeirra fjölmöi’gu sem
lagt hafa félaginu lið á einn eða
annan hátt. Minningarkort styrkt-
arfélagsins verða seld í Garðsapó-
teki. Einnig verður tekið á móti
beiðnum um sendingu í síma 91-
679005 eftir kl. 18 virka daga og
um helgar.
Önnur verkefni félagsins á
næstunni verður kynning á félag-
inu meðal alinennings og fyrir-
tækja með félagaöflun í huga.
Réttindamál krabbameinssjúkra
barna hafa lengi verið útundan í
tryggingakerfínu en 25. júní sl.
var Sighvatur Björgvinsson heil-
brigðis- og tryggingamálaráð-
herra heimsóttur, honum gerð
grein fyrir hversu bágborið ástand
væri víðast hvar á heimilum, þar
sem börn greindust með langvinna
og alvarlega sjúkdóma eins og
krabbamein.
Miklar vonir eru bundnar við
að eitthvað verði nú gert í þessum
málefnum ekki hvað síst vegna
þeirrar jákvæðu yfirlýsingar sem
ráðherra hefur gefið í fjölmiðlum.
Stjórn félagsins mun beita sér
fyrir að réttindamál þessi komist
í höfn og gerir það að lágmarks-
kröfu sinni að þessum börnum
ásamt fjöldskyldum þeirra verið
séð fyrir velferð og öryggi á við
aðra landsmenn.'
Eitt af baráttuverkefnum fé-
lagsins verður einnig að vekja at-
hygli landsmanna allra á því
hversu biýnt það er í þessu vel-
ferðarríki okkar að byggja barn-
aspítala sem fyrst.
■ ÚT ERU komin jólakort
Kvenfélags Hringsins. Jólakort-
in eru hönnuð af Guðnýju Harð-
ardóttur og prentuð í Prent-
smiðjunni Odda. Aðallega selja
Hringskonur sjálfar en einnig eru
þau til sölu á ýmsum stöðum í
bænum, í bóka- og blómabúðum
og stórmörkuðum. Allur ágóði af
kortasölunni fer til styrktar Barn-
áspít'alá Hringsins.
Þeir sem áhuga hafa á að fræð-
ast frekar um félagið geta skrifað
til Styrktarfélags krabbameins-
'sjúkra barna, pósthólf 8687, 128
Reykjavík, eða haft samband í
sima 91-676020. Þar mun sím-
svari veita allar helstu upplýsingar
og gefa upp símanúmer stjórnar-
manna.
(Fréttatilkynning)
Tónleikar í Borgarleikhúsinu
mánudagskvöld 11. nóv. kl. 21.
DREPFYNDIN MYND SEM GEFUR
ÞEIM FYRRIEKKERT EFTIR. FRIS-
LENDINGURINN OTTÓ ER Á KAFI í
UMHVERFISVERNDARMÁLUM OG
ENDURVINNSLU ÝMISSA EFNA. ÖLL
VANDAMÁL SEM OTTÓ TEKUR AÐ
SÉR, LEYSIR
HANN...
ÁSINN HÁTT
SERHANNAD
FYRIR ÞIG
Nýjar húsgerðir:
Bjóðum upp á nýjar húsgerðir í samráði við Verk- og kerfisfræðistofuna SPOR,
Síðumúla 1 í Reykjavík. Þeir félagar hafa einnig milligöngu um að hitta arkitekt eða
fulltrúa framleiðanda til frekari samningaviðræðna. Sérverðlisti fyrir Reykjavíkur-
svæðið þar sem ferðir, fæði og flutningur er innifalið. Hringið í síma 91-686250 eða
síma 98-22333 til að fá nánari upplýsingar og bæklinga.
samtaKf n
HUSEININGAR LJ
Gagnheiói 1 - 800 Selfossi - Sími 98-22333