Morgunblaðið - 10.11.1991, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1991
Óvissa um framtíö fyrirtœkja
Roberts Maxwells
eftir Guðm. Halldórsson
SIÐUSTU mánuðina áður en fjölmiðlajöfurinn Robert Maxwell féll
fyrir borð á lystisnekkju sinni Lady Ghislaine við Kanaríeyjar var
margt á huldu um fjármál fyrirtækja hans, sem eru skuldum vafin.
Maxwell var einn umdeildasti og iitríkasti kaupsýslumaður Bretlands
og þegar hann lézt, 68 ára gamall, átti hann í málaferlum vegna
ásakana í nýrri bók um að hann hefði staðið í tengslum við ísraelsku
leyniþjónustuna Mossad.
Dauði Maxwells vakti ýmsar
spurningar, þótt sá bráða-
birgðaúrskurður væri
kveðinn upp að hann hefði
dáið eðlilegum dauðdaga
og líklega fengið hjartaá-
fall áður en hann féll fyrir
borð. Sögusögnum um sjálfsmorð
var vísað á bug. Læknar höfðu ráð-
lagt honum að taka sér hvíld áður
en hann fór í siglinguna og hann
var eini farþeginn í Lady Ghislaine.
Ellefu manna áhöfn var á snekkj-
unni, sem arabíski kaupsýslumaður-
inn Adnan Khashoggi hafði látið
smíða og Frank Sinatra eignaðist
síðar.
Kvöldið áður en Maxwell lézt átti
hann að ávarpa árlegt hóf ensk-ísra-
elska vináttufélagsins í London.
Hálftíma áður en hann átti að taka
til máls var gestunum tilkynnt að
hann hefði veikzt og læknar hefðu
ráðlagt honum að mæta ekki. Ian
sonur hans flutti ávarpið í hans stað.
Viðskiptum með hlutabréf í fyrir-
tækjum Maxwells var hætt um tíma
vegna dauða hans, sem olli uppnámi
í bönkum. í fjölmiðlum bar mikið á
vangaveltum vegna erfiðrar stöðu
fyrirtækja hans og staðhæfinganna
um hugsanleg tengsl hans við
Mossad. Samstarfsmenn hans full-
yrtu að menn af hans sauðahúsi létu
sér ekki til hugar koma að svipta
sig lífi.
Ásakanir Hersh
Ýmsir veltu því jafnvel fyrir sér
hvort ókunnir tilræðismenn tengdir
alþjóðlegri njósnastarfsemi hefðu
komið Maxwell fyrir kattarnef.
Skömmu áður hafði hann harðneitað
því að hann og Mirror-blaðasam-
steypa (MGN) hans stæðu á nokkurn
hátt í tengslum við Mossad. Ásakan-
irnar koma fram í nýrri bók eftir
bandaríska rannsóknarblaðamann-
inn Seymour Hersh, The Samson
Option, og Maxwell stefndi honum
fyrir meiðyrði.
Þó var Nick Davies, einum rit-
stjóra Daiiy Mirrors — útbreicidasta
blaðs Maxwells — sagt upp. Ástæð-
an var sú að hann hefði logið því
að hann hefði ekki hitt ákveðna
vopnasala í Ohio í Bandaríkjunum
eins og Hersh hélt fram. Þrátt fyrir
uppsögnina hét Maxwell því að
styðja Davies fyrir rétti.
Hersh höfðaði sjálfur meiðyrða-
mál gegn Maxwell og heldur fast
við ásakanir sínar. Síðan Maxwell
lézt hefur Hersh haldið því fram að
aðeins sé vitað um „innan við 10%
af því sem Maxwell aðhafðist” og
forlag hans í Bretlandi segir að von
sé á nýjum og mikilvægum uppljóstr-
unum um Maxwell.
Aðalheimildarmaður Hershs er
fyrrverandi starfsmaður Mossad, Ari
Ben- Menashem — nú búsettur í
Sydney — en hann er talinn lítt áreið-
anlegur. Síðan Maxwell lézt hefur
hann staðhæft að fjölmiðlajöfurinn
hafi komið fyrir í erlendum bönkum
margra milljarða dala hagnaði, af
leynilegri vopnasölu til írans. Þeim
ásökunum var vísað á bug. .
Vildi hætta
Maxwell hafði lengi talað um að
hann hygðist hætta störfum, en eng-
inn tók mark á honum. Fyrr á þessu
ári ætlaði hann að láta af for-
mennsku í aðalfyrirtæki sínu, Max-
well Communication Corporation
(MCC). Þegar Peter Walker fyrrum
ráðherra hafnaði stöðunni hélt Max-
well áfram að gegna henni, en Ke-
vin sonur hans tók við daglegri
stjórn. Nú tróna Kevin og Ian bróð-
ir hans yfir MCC og Mirror-blaða-
samsteypunni og sagt er að faðir
þeirra hafi veitt þeim góða en
stranga tilsögn. Þegar hefur verið
ákveðið að selja Berlitz- málaskólana
og búizt er við að fleiri fyrirtæki
verði seld.
Meðal annarra fyrirtækja, sem
Maxwell réð yfir, voru Macmillan-
forlagið í Bandaríkjunum og New
York-blaðið Daily News. Hann hafði
tekið mikið af lánum til að færa út
kvíarnar, en á síðustu mánuðum los-
aði MCC sig við miklar eignir til að
grynnka á skuldum og alvarlegar
spurningar vöknuðu um fjárhags-
stöðu fyrirtækisins. Að sögn Finan-
cial Times nemur söluvelta fyrir-
tækja Maxwells tæpum níu milljörð-
um dala á ári, en heildarskuldir allt
að 3,75 milljörðum dala.
Aðeins nokkrir mánuðir eru síðan
Maxwell tók við rekstri New York
Daily News. Síðan setti hann 49%
hlutabréfa Mirror-samsteypunnar í
umferð til að afla 245,5 rriilljóna
punda, en hlutabréfin hafa lækkað
í verði og ekki náð aftur fyrra verð-
gildi.
Kaupin á New York Daily News
í marz voru síðasta áhættan af
mörgum, sem Maxwell tók á litríkum
ferli. Tilgangurinn var að hleypa
nýju lífi í blað, sem mátti muna fíf-
il sinn fegri. Útgáfan hafði legið
niðri vegna verkfalla og Maxwell
aflaði sér vinsælda, sem voru honum
ný reynsla. Hann virtist njóta sín
betur í Bandaríkjunum en í Bret-
landi, þar sem hann var aldrei veru-
Iega vel látinn. Eitt sinn sagði hann
að í Bretlandi „væru þeir sem næðu
langt hataðir.”
Stríðshetja
Maxwell var af Gyðingaættum og
hreykti sér af því að vera bæði só-
síalisti og kapitalisti. Faðir hans var
fátækur landbúnaðarverkamaður,
en missti atvinnuna, og þá kvaðst
Maxwell hafa orðið sósíalisti. Hann
hét réttu nafni Jan Ludvik Hoch og
fæddist 1923 í þorpinu Solotvino í
Austur- Tékkóslóvakíu. Þjóðverjar
tóku föður hans af lífi og móðir
hans lézt í fangabúðunum í Ausch-
witz. Þrátt fyrir litla sem enga skóla-
göngu lærði hann níu tungumál.
Sjálfur var Maxwell tekinn til
fanga í Bratislava, þar sem hann
seldi smávarning, en honum tókst
að flýja til Frakklands. Þar gekk
hann í her fijálsra Tékka og í brezka
herinn^ þegar hann flúði til Bret-
lands. I janúar 1945 var hann sæmd-
ur einu æðsta stríðsheiðursmerki
Breta og í stríðslok var hann orðinn
höfuðsmaður. Hann kvæntist
franskri konu og kynntist evrópskri
útgáfustarfsemi þegar hann var
blaðafulltrúi brezka utanríkisráðu-
neytisins í Berlín eftir stríðið.
Þegar Maxwell sneri aftur til
Lundúna kom hann á fót bóksölufyr-
irtæki, sem varð gjaldþrota. Málið
olli ljaðrafoki, sem seint gleymdist,
en hann lét það ekki á sig fá og
stofnaði forlagið Pergamon Press,
sem gaf út vísindarit og varð undir-
staða stórveldis hans. Þegar Rússar
skutu Sputnik-hnetti á braut tryggði
hann sér rétt til að gefa út sovézk
vísindarit á ensku og gerði Pergam-
on að einn helzta útgefanda vísinda-
rita í heiminum.
Maxwell hélt áfram umdeildum
viðskiptum við Austur-Evrópu, en
virðist lítið hafa hagnazt á þeim að
öðru leyti. Á árunum 1964 til 1970
sat hann á þingi fyrir brezka Verka-
mannaflokkinn. Skömmu eftir að
hann lét af þingmennsku leiddi rann-
sókn í ljós að hann hefði reynt að
selja Pergamon bandarísku fyrirtæki
með ýktum upplýsingum um hagnað
af sölu alfræðibóka Collier’s.
Talinn vanhæfur
I júlí 1971 sökuðu fulltrúar brezka
viðskiptaráðuneytisins Maxwell um
„glæfralega og óafsakanlega bjart-
sýni” og komust að þeirri niðurstöðu
að þrátt fyrir „viðurkennda hæfi-
leika og dugnað” væri hann óhæfur
„til að hafa umsjón með opinberlega
skráðu fyrirtæki.” Hann fékk ekki
að svara þessari yfirlýsingu, sem
hann taldi ómaklega og fyrirgaf
aldrei.
Þótt Maxwell missti yfirráð yfir
Pergamon náði hann þeim aftur síð-
ar. Hann jafnaði sig fljótt eftir áfall-
ið og sneri sér að nýjum verkefnum.
Fyrst átti hann dijúgan þátt í endur-
skipulagningu brezka prentiðnaðar-
ins þegar hann breytti fyrirtækinu
BPC í British Printing and Com-
munication Corporation (BPCC).
BPC hafði verið rekið með halla, en
BPCC skilaði hagnaði.
Síðan keypti Maxwell Mirror-
blaðasamsteypuna (MGN) 1984 fyrir
113 milljónir punda og eignaðist
sölúhæstu blöð Bretlands. Hann átti
í útistöðum við voldug verkalýðsfé-
lög á Daiiy Mirror og hótaði að
stöðva útgáfu bláðsins, ef víðtækar
uppsagnir yrðu ekki samþykktar.
Hann sigraði í þeirri orrahríð og
2.100 starfsmönnum var sagt upp í
janúar 1986. Síðan efldi hann blöð
samsteypunnar og skipti sér oft af
skrifum þeirra, þótt hann væri sam-
þykkur stuðningi þeirra við Verka-
mannaflokkinn.
Áður hafði aðalkeppinautur Max-
wells, Ástralíumaðurinn Rupert
Murdoch, komið í veg fyrir að hann
eignaðist News of the World og The
Sun. Maxwell steig hins végar fyrsta
skrefið í þá átt að draga úr prentun-
arkostnaði með samkomulaginu á
Daily Mirror, en ekki Murdoch eins
og oft er sagt. Murdoch sigraði ekki
í svipaðri deilu fyrr en mánuði síð-
ar, þegar hann flutti mestalla útg-
áfustarfsemi sína til Wapping í
austurhluta Lundúna. Maxwell hélt
því líka fram að hann hefði uppgöt-
vað mikilvægi litprentunar á undan
Murdoch.
Heimsveldi
Nokkru áður en Maxwell keypti
Mirror-blöðin hafði hann sagt að „10
risafyrirtæki yrðu allsráðandi á svið-
um upplýsinga og fjarskipta í heim-
inum” og fyrirtæki hans yrði eitt
þeirra. Til að vinna að því keypti
hann Macmillan- forlagið í Banda-
ríkjunum fyrir 2,6 milljarða dala
þrátt fyrir harða samkeppni.
Auður Maxwells og frægð komu
honum í kynni við marga heimsleið-
toga. „Ég hef samið við alla forseta
Bandaríkjanna síðan Eisenhower var
við völd og alla leiðtoga Sovétríkj-
anna frá dögum Stalíns,” sagði hann
einu sinni. Kynni hans og leiðtoga
kommúnistaríkja voi-u náin og hann
gaf út lofgerðarrit um Brezhnev,
Honecker, Ceausescu og Jaruzelski.
Eftir hrun kommúnismans reyndi
Maxwell að ná ítökum í flölmiðlum
í Austur- og Mið-Evrópu. Hann
tryggði sér yfirráð yfir Magyar
Hirlap, einu þriggja helztu blaða
Ungvetjalands, sem var rekið með
tapi. Áður hafði Murdoch keypt ung-
verskt æsifréttablað og vikublað.
Seinna eignaðist Maxwell hlut í öðru