Morgunblaðið - 29.11.1991, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 29.11.1991, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1991 C 5 Draumadísin Barbie hefur unnið hug og hjörtu ungmeyja víðsvegar um heiminn LJÓSHÆRÐ, há og grönn, fögur og tíguleg vann hún þegar í stað hug og hjörtu ungmeyja víða um heim og ekkert lát virðist vera á vinsældum hennar þótt liðin séu þrjátíu og tvö ár síðan hún birtist fyrst. Meðan drengir taka ástfóstri við nýjar og nýjar furðuverur, skrímsli og skjaldbökur halda stúlk- urnar tryggð við Barbie og þótt Barbie hafi sáralítið breyst í áranna rás hefur hún skotið hvers kyns nýjungum eins og litl- um folum og ævintýraprinsessum ref fyrir rass. Ameríska draumadísin Barbie wmm á uppruna sinn að rekja til Þýskalands. Saga hennar er í stuttu máli sú að 24. júní 1952 birtist í þýska dagblaðinu Bild ■Sáí Zeitung teiknimyndapersónan Lilli, sem Reinhard Beuthien teiknaði. Lilli átti upphaflega aðeins að birtast einu sinni í blað- inu, en viðbrögð lesenda voru slík að Lilli átti langa lífdaga fyrir hönd- um á síðum Bild Zeitung og Beuthi- en hafði nóg að gera næstu árin. Ekki leið á löngu þar til sú hug- mynd skaut upp kollinum að hanna dúkku sem samsvaraði Lilli í útliti og árið 1955 kom fyrsta Lilli dúkk- an á markaðinn. Sú átti nokkrum vinsældum að fagna í byijun, en af einhveijum ástæðum dalaði salan þar til bandaríska leikfangaverk- smíðjan Mattel keypti einkaréttinn á framleiðslunni. Nokkrar breyting- ar voru gerðar á Lilli; Lilli varð að Barbie, sem nú hóf sigurgöngu um heiminn. Tímannatákn? Ef til vill er Barbie tímanna tákn. Aður höfðu stúlkur leikið sér í „mömmuleik” þ.e. þær voru mömm- urnar og brúðurnar voru ungbörn, sem þörfnuðust umönnunar. Kven- frelsisbaráttan var lítt komin til sögunnar og framtíð konunnar fólst í móðurhlutverkinu. En Barbie var ekkert ungbarn heldur sjálfstæð, ung og glæsileg stúlka á uppleið og á þeim árum var hún á kafi í tískusýningarstörfum, sem mörg- um litlum stúlkum þótti og þykir efalítið ennþá toppurinn á tilver- unni. Nú skyldi enginn halda að Barbie sé stöðnuð tildurrófa, sem ekki hugsi um annað en útlitið og fín fðt. I fullu samræmi við tíðar- andann hafa framleiðendur smám saman látið Barbie fá mun háleit- ari markmið, nú vílar hún ekki fyr- ir sér að verða læknir, lögfræðingur eða gegna öðrum snyrtilegum og metnaðarfullum störfum. Auðvitað á hún þá fatnað og allan þann út- búnað sem slíkum störfum tilheyrir. Barbie er ekki ein á báti, hún á kærasta, sem heitir Ken og yngri kysturina Skipper. Hún á einnig Teiknilnynda- persónan Lilli Bild Zeitung 1952. Barbie 1991. Margir telja frönsku leikkonuna Brigitte Bardot fyrirmyndina að Barbie. láta þau æfa sig að klæða Barbie dúkkur. Hvað sem ólíkum skoðunum fólks á Barbie líður, þá virðast þriggja til tólf ára stúlkur enn una sér löng- • um stundum í Barbie-leik og vafa- lítið sjá margar þeirra framtíðina endurspeglast í Barbie ... fegurð- inni, ríkidæminu, velgengninni og gáfunum. Heilbrigt fjölskyldulíf SÉRA Þorvaldur Karl Helgason segir að eftirtalin atriði virðist skipta máli fyrir heilbrigt fjölskyld- ulíf. Hefur hann fyrir sér banda- ríska könnun sem gerð var fyrir nokkrum áiunum. Sagt er frá þessu í tímaritinu Heilbrigðismál. 1. Heilbrigð fjölskylda á góðar og innihaldsríkar stundir saman. 2. Tjáskipti eru greið. 3. Samkennd og traust er mikið. 4. Trúarlíf er þroskað. 5. Virðing er borin fyrir öðrum. 6. Brugðist er á jákvæðan hátt við aðsteðjandi vandamálum. ■ Gætið .. • við skiptiborðið ÝMISLEGT þarf að athuga þegar skiptiborð fyrir börii eru valin. Slysavarnarfélag íslands hefur gefið eftirfar- andi leiðbeiningar þar af lút- andi. Skiptiborðið þarf að vera stöðugt og gott er að láta það standa upp við vegg. Borðin þola mismikla þyngd og mikil- vægt er að velja borð sem ber þyngstu börnin. Þess eru nefni- lega dæmi að borð hafi gefið eftir undan þunga barns. Það er góð regla að taka saman allt sem nota þarf við að skipta á barninu áðuren barnið er sett á skiptiborðið. Þannig eru allir þessir hlutir í seilingarfjarlægð og ástæðu- laust að víkja frá barninu, en ein höfuðreglan er sú að skilja aldrei barnið eftir einsamalt á skiptiborði. ■ fjölda vina og vinkvenna, allt fallegt og glæsilegt fólk. Þennan hóp kalla krakkarnir einu nafni Barbie-dúkk- ur. Fimmtán þúsund brúður Að sögn Jóhanns Ólafssonar hjá heildvérsluninni Kristjánsson hf., seljast að meðaltali fimmtán þúsund Barbie-dúkkur á ári. Þar af selst Barbie sjálf mest eða u.þ.b. tíu þúsund brúður. Reyndar segir Jó- hann að hér á landi sé hlutfallslega meiri sala á leikföngum en víðast annars staðar og líklega megi rekja það til okkar óblíðu veðráttu. Sumum fullorðnum er svolítið í nöp við Barbie, fínnst hún tákn gervimennsku bg einungis til þess fallin að ala á óraunhæfum draum- órum óþroskaðra stúlkubarna, því auk þess að vera með eindæmum fögur á Barbie allt, sem nöfnum tjáir að nefna af veraldlegum auðæfum; hraðskreiða sportbíla, lystisnekkjur, glæsihús og húsbún- að, ennfremur klæðist hún ætíð dýrindis fatnaði hönnuðum af heimsfrægum tískuhönnuðum s.s. Christian Dior, Yves Saint Laurent, Kenzo, Enrico Coveri o.fl. Jóhanni Ólafssyni finnst út í hött að amast við leik, sem glatt hefur geð og stytt bömum stundir um áratuga skeið, enda telur hann þetta viðhorf ekki almennt, því varla myndi Barbie þá seljast eins vel og raun beri vitni. Til marks um það gagn sem af Barbie má hafa segist hann vita til þess að þroskaþjálfar kenni þroskaheftum bömum að klæða sig með því að 6 bretti með eldhúsáhöldum Kjörgripur í eldhúsið. Hentugt bretti. Ryðfrítt gæðastál, hitaþolið og hitaeinangrandi gerviefni. Vegglisti með spaða, kjötgaffli, sósuskeið, ausu, pastaskeið, gataspaða og 6 krókum. U.þ.b. 37 cm langt. Pöntunarnr. 567.364 kr. 990,- QueUe STÆRSTA PÓSTVERSLUN EVRÓPU AÐ PAIMTA SÍMLEIÐIS PÖNTUNARLÍNA 91-50200 VERSLUN OG AFGREIÐSLA, HJALLAHRAUNI 8, HAFNARFIRÐI.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.