Morgunblaðið - 29.11.1991, Síða 14

Morgunblaðið - 29.11.1991, Síða 14
14 C MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1991 MARGT er þoð i Miðnes heidi sem mennirnir ekki sjá. ÞÓRARINN ELDJÁRN: UÚFLINGSMÁL. Bíla- sölurnar í bænum Heiti Sölulaun L^3^3 Innigjald i±b_ I Heimili Aðal-Bílasalan Miklubraut 2,5% 14.000 - Bílabankinn Bíldshöfða12 2,5% 14.000 0-100 Bílatorg Nóatúni 2 2,5% 14.000 200 Bílahúsið Sævarhöfða 2 2,0% 14.000 150 Bílahöllin Bíldshöfða 5 2,5% 13.665 0 Bílakaup Borgartúni 1 2,5% 14.000 - Bílamiðstöðin Skeifunni 8 2,0% 14.000 150 Bilaport Skeifunni 11 2,0% 14.000 **o Bílasala Garðars Borgartúni 1 2,5% 13.600 - Bílasala Guðfinns Vatnsmýrarvegi 29 2,5% 14.000 - Bílas. Ragnars Bjarnas. Eldshöfða 18 2,5% 14.000 200 Bílasala Reykjavíkur Skeifunni 11 *3,0% 14.000 200 Bílasalan Smiðjuvegi 4 2,0% 12.000 0 Bílaþing Laugavegi 174 2,0% 12.000 0 Bílaval Hyrjarhöfða 2 2,5% 14.000 0 Bílval Skeljabrekku 4 2,0% 14.000 - Blik Skeifunni 8 2,0% 14.000 0 Borgarbílasalan Grensásvegi 11 2,0% 14.000 150 Braut Borgartúni 26 2,0% 14.000 0 Brimborg Skeifunni 15 *2,5% 14.000 0 Höfðahöllin Vagnhöfða 9 2,5% 14.000 150 Nýja Bílahöllin Funhöfða 1 2,5% 14.000 Q-100 R Samúelsson Nýbílavegi 6-8 ‘2,5% *15.000 160 Skeifan Skeifunni 11 2,5% 14.000 200 ' Virðisaukaskattur er innifalinn. ** Ekkert innigjald fyrstu vikuna Algengustu sölulaun eru 17.430 krónur ÞEGAR bílasíðan ákvað að athuga hver sölulaun væru á notuðum bílum vakti athygli hve margar bílasölurnar eru. Sölulaunin, sem seljandi bílsins greiðir, virðast vera nokkuð svipuð, algengast er að lágmarksgjald sé 14.000 krónur að viðbættum virðisaukaskatti. Allar bílasölurnar sem bílasíðan JJJ hafði samband við taka ákveðið nl hlutfallsgjald af sölu notaðra bíla og síðan lágmarksgjald ef ft/ft bíllinn selst á það lágu verði að hlutfallstalan nær ekki lág- marksgjaldinu. Flestar bílasöl- Z urnar, þrettán talsins, taka 2,5% í sölulaun en níu taka 2%. Við þetta bætist 24,5% virðisauka- skattur. Lágmarks sölulaun eru víðast hvar 14.000 krónur, 19 af 24 bílasölum sem haft var samband við voru með 14.000 króna lágmarks sölulaun. Ein bílasala tekur 13.600 krónur, önnur 13.665 og lægstu lágmarks sölulaun- in eru 12.000 krónur á tveimur bíla- sölum. Við þessar’tölur legst virðis- aukaskattur. Ein bílasala tekur 15.000 krónur og er virðisaukaskatt- urinn reiknaður inn í þá tölu. Margar bílasölur bjóða uppá að bíllinn sé geymdur innandyra. Fyrir slíka þjónustu greiða menn mismikið, sumir taka ekkert fyrir og mest taka bílasölurnar 200 krónur fyrir sólar- hringinn. Rétt er að taka fram að bílar sem eru geymdir inni hjá bíla- sölunum eru tryggðir, en þeir sem standa úti eru það ekki. ■ Nauðsvmeaur synlea ibunaði ferðabúnaður tílfíalla rúnrast í litlum poka ÞEGAR farið er í fjallaferðir, sama livort menn fara fótgangandi, á siyósleða eða í bil, er mikilvægt að sýna fyrirhyggju og hafa með sér góðan og traustan búnað. „Menn mega ekki lenda í því þegar komið er á fjöll að sjá eftir að hafa ekki haft hitt eða þetta með sér. Sýni menn fyrirhyggju kemur ekki til þess því þá er allt meðferðis sem til þarf,” segir Hilmar Már Aðalsteinsson. Hann er alvanur fjallagarpur og bíla- síðan fékk hann til að upplýsa lesendur um hvað nauðsynlegt er að hafa meðferðis í slíkum ferðum við misjafnar aðstæður á Islandi. „Það er mjög mikilvægt að vera 55 í góðum og þægilegum nær- £5 fatnaði, ekki úr bómull eða Qj akrýl. Bómullin drekkur í sig Ui raka og heldur honum í sér Sifc þannig að ef menn svitna, eða blotna, tekur langan tíma að j þurrka flíkina,” segir Hilmar • Már. Hann segir einnig mikil- ■I vægt að hafa góðan vatnsheld- ftk an skjólfatnað. Lambhúshetta er gott höfuðfat og nauðsynlegt er að hafa fasta hettu á utanyfirflík- inni því lausar hettur geta fokið og þá er illt í efni. Fötin sem eru á milli nærfatanna og skjólfatanna skipta minna máli, en það er.betra að hafa meira en minna af hlýjum fatnaði með í för. Góða ullarvetlinga er æskilegt að hafa, gjarnan fingra- vetlinga þannig að menn geti gert við bílinn án þess að taka af sér vetlingana. Hilmar Már mælir ekki með venjulegum skíðavetlingum, segir þá ekki nógu hlýja. Sokkar eru nauðsynlegir og þar gildir það sama og með nærfötin. Ekki vera í bómullarsokkúm næst sér. Rúmir sokkar eru hlýrri en þröngir sokkar. Góða skó er hægt að fá og þeir verða að vera vatnsheld- ir og helst með einangrunarsokk. Skórnir mega ekki hindra tilfinningu ökumannsins fyrir pedulunum og því eru skór sem eru góðir á snjósleða ekki nógu góðir fyrir ökumenn. Gott að sofa í snjóhúsi Handhæga skóflu er gott að hafa með því aldrei er að vita í hveiju menn lenda og skófla er nauðsynleg t.d. ef gera þarf snjóhús. „Ef ég ætti að velja um að sofa í tjaldi eða snjóhúsi þá veldi ég frekar snjóhús- ið. Það er lítill raki í því og snjórinn einangrar auk þess sem snjóhús er öruggt skjól í slæmu veðri þegar tjaldið gæti frekar fokið,” segir Hilm- ar Már og bætir við að oft fari betur um. menn í góðu snjóhúsi en í bfl. „Það er mjög mikilvægt fyrir bíl- stjóra að sofa vel og það gerir hann í snjóhúsi. Bílstjórinn verður að vera vel hvíldur til að halda einbeitingu sinni og til að svo verði þarf að hafa góðan svefnpoka. Það er um að gera að fá sér góðan svefnpoka og menn verða að gæta sín á merkingum um að pokarnir þoli e.t.v. 20 gráðu frost. Þær upplýsingar standast ekki alltaf. Einangrunareiginleikar svefnpok- ans byggja á hversu mikið loft er í honum, því meira loft því betri,” seg- ir Hilmar Már. Svefnpoka geta menn átt lengi og því mikilvægt að vanda valið og spara ekki aurinn. Gott er að hafa einangrunardýnu með í för og ekki þynnri en 12 mm. Svampdýn- ur koma ekki að neinu gagni ef menn vilja fá einhveija einangrun. Áttaviti, þurrmatur og prímus Hilmar Már segist vilja hafa hand- áttavita með í för, sama hversu góð- an staðsetningarbúnað menn hafi í bílnum. Þurrmatur er æskilegur enda aldrei að vita í hveiju menn lenda. Hægt er að fá þurrmat sem geyma Betri stjórn meó læsivörðum hemlun Hemlunarvegalengd við nauöhemlun meiri en með venjulegum hemlum ERU læsivarðir hemlar (ABS) eins mikið öryggistæki og af er látið? Munar miklu á hemlunar- vegalengd bíla með slíkum heml- um og bíls með venjulegum heml- um? Skipta læsivarðir hemlar máli þegar hemlað er og reynt að beygja frá hættunni um leið? Með þessar spurningar í huga var kannað hvort greinilegur munur kæmi fram. ^ Fengnir voru tveir sambæri- legir bílar af gerðinni Mazda 3 323. Annar með læsivörðum hemlum en hinn ekki. Báðir ^ voru bílamir búnir sjálfskipt- i{g ingu og þeir voru með sams konar hjólbarða. Bíllinn með læsivörðu hemlana, vegur 1.055 kg og hinn vegur 1.020 kg. Hemlunin var prófuð á kvart- mflubrautinni í Kapelluhrauni. Snjór var á brautinni og nokkurt frost. Hún hafði Iítið verið ekin og var því í raun ekki eins hál og ætla mætti. í fyrstu var hemlunarvega- lengdin prófuð með því að nauð- hemla á 40 km hraða. Bíllinn með læsivörnina dró að sjálfsögðu ekki hjólin og rann talsvert lengra en hinn sem dró óll hjól. Sá fyrrnefndi hélt beinni stefnu en hinn skekktist nokkuð við hemlunina. Munur á hemlunarvegalengdinni á 40 km hraða var 20 metrar, sá með læsi- vörðu hemlunum þurfti 50 m til að Morgunblaðið/Árni Sæberg Bíllinn með læsivörðu heml- unum beygir auðveldlega f ramhjá ítindrun þóH nauð- liemlað sé. Hvíti bíllinn sem i;kki var búinn læsivörðum liemlum fór hins vegar beint á liana og ekki varð við neitt i áðið. staðnæmast en hinn 30 metra. Það sama var uppi á teningnum á 60 og 80 km hraða, í bæði skipt- in mældist styttri hemlunarvega- lengd hjá bílnum sem ekki var bú- inn læsivörðum hemlum. Til að kann hvort munur væri á brautun- um var bílunum ekið til skiptist á akreinum brautarinnar og til að fá enn betri samanburð var endað á að prófa aðeins bílinn með læsi- vörðu hemlunum. Var öryggi læsi- varnarinnar tekið úr sambandi og þá reyndist hemlunai-vegalengdin mun styttri eða sambærileg hinum bílnum. Svo virðist því sem bíll með læsivörðum hemlum þurfi lengri hemlunarvegalengd en bíll án þess búnaðar á snævi þöktum vegi. Þetta var hins vegar ekki reynt á þurru malbiki. Síðan var prófað að hemla og beygja um leið frá óvæntri hindrun. Var báðum bílunum ekið á 40 km hraða, öðrum í senn og hemlað um 10 m frá hindruninni. Bílnum með læsivörðu hemlunum mátti auðveld- lega stýra framhjá en hinn rann beint af augum og yfir hana. Þetta var prófað nokkrum sinnum á meiri hraða og í öll skiptin hafði ökumað- ur fulla stjórn á bílnum með læsi- vörðu hemlunum en enga á hinum. Ljóst er að hér er ekki um mjög tæknilega nákvæma prófun að ræða heldur aðeins verið að fá góða tilfinningu fyrir viðbrögðum bílanna við þessar aðstæður. Hemlalæsi- vörn hefur ótvíræða kosti þegar hemla þarf skyndilega og beygja um leið framhjá hindrun og hafa stjórn á bílnum. Slíkt gerir ökumað- ur ekki svo glatt þegar hann nauð- hemlar bíl með venjulegum hemlum og þá er það undir þjálfun hans komið hvort hann nær að losa um hemlana og ná valdi á bílnum á ný. Jóhannes Tómasson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.