Morgunblaðið - 07.01.1992, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
JHrágitiiMfifrife
1991
SUND
Ragnheiður Runólfsdóttir hefur
ákveðið að snúa sér að þjálfun hjá ÍA
eftir Ólympíuleikana í Barcelona.
Ragnheiður
ráðin til ÍA
Ragnheiður Runólfsdóttir, ný-
kjörinn íþróttamaður ársins
1991, verður framkvæmdastjóri og
yfirþjálfari Sundfélags Akraness
frá og með næsta hausti. Samning-
ar þess efnis voru undirritaðir áður
en sunddrottningin hélt aftur til
Bandaríkjanna, þar sem hún stund-
ar háskólanám og æfir stíft fyrir
Ólympíuleikana í Barcelona í sum-
Ragnheiður hafði ákveðið að
hætta keppni á meðal þeirra bestu
eftir Ólympíuleikana og var með
mörg þjálfaratilboð í höndunum,
m.a. frá Bandaríkjunum og
Kanada. „Ég fékk mjög gott boð
frá Akranesi og ákvað að taka því.
Þar þekki ég alla og allir eru tilbún-
ir að veita mér hjálparhönd. Því er
auðveldara að byija þar en annars
staðar og auk þess fæ ég tækifæri
til að borga bæjarfélaginu og bæj-
arbúum til baka mikinn stuðning á
undanförnum árum,“ sagði Ragn-
heiður við Morgunblaðið.
ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR
SKIÐI / LANDSLIÐIÐ
BLAÐ
B
adidas
.annað ekki
• •
Kristinn sigradi á alþjóð-
legu fis-móti í Austurríki
KRISTINN Björnsson frá Ólafs-
firði sigraði á alþjóðlegu svig-
móti í Matrei í Austurríki á
laugardaginn. Hann erfyrstur
íslendinga tii að vinna fis-mót
erlendis í meira en 10 ár. Hann
fékk 45,64 fis-stig og er það
næst besti árgngur hans til
þessa. Örnólfur Valdimarsson
varð í þriðja sæti á sama móti
og hlaut 48,86 fis-stig. Kepp-
endurvoru 118.
Kristinn náði besta tímanum í
fyrri umferð svigsins á laug-
ardaginn er hann fór brautina á
43,51 sek. Hann fór síðari ferðina
á 50,29 sek. og því samanlagt á
1:33.90 mín. Austurríkismaðurinn,
Thomas Geodam, varð annar á
1:34.26 mín. (44,81749,49). Örnólf-
ur varð þriðji á 1:34.33 mín.
(44.19/50,14).
Brautin var mjög erfið þar sem
sprautað hafði verið í brekkuna
fyrir keppnina og því mjög hart,
nánast svell. Alls tóku 118 keppend-
ur þátt í mótinu flestir frá Austur-
ríki og Þýskalandi. 31 keppandi
komst klakklaust báðar umferðir.
Valdemar Valdemarsson var með
fimmta besta tímann eftir fyrri
umferð, en krækti fyrir hlið í síðari
umferð og varð úr leik. Arnór Gunn-
arsson fór útúr í fyrri umferð.
íslenska landsliðið í alpagreinum
er nú að hefja lokaundirbúning sinn
fyrir Vetrarólympíuleikana í Albert-
ville sem verða settir 8. febrúar.
Karlaliðið mun taka þátt í 12 fís-
mótum og konurnar í 9 mótum fram
að jeikunum.
Asta Halldórsdóttir og Harpa
Kristinn Björnsson hefur sýnt
miklar framfarir í vetur og á laugar-
daginn varð hann fyrstur íslendinga
til að vinna fis-mót á erlendri grundu
í meira en 10 ár.
Hauksdóttir eru með karlaliðinu í
Austurríki og keppa þær í dag og
á morgun.
HANDKNATTLEIKUR
Pressuleikurínn gaf milljón
Pressuleikurinn í handknattleik, sem fór fram
í Laugardalshöll á laugardaginn, gaf Hand-
knattleikssambandi íslands milljón í aðra hönd eins
og stefnt var að. Allir, sem hlut áttu að máli,
komu fram endurgjaldslaust, en auk leiksins var
boðið upp á ýmsar uppákomur. Hagnaðurinn var
vegna sölu aðgöngumiða og auglýsinga.
Hagnaðinum verður varið til að styrkja landslið-
ið vegna B-keppninnar í Austurríki, sem hefst eft-
ir liðlega tvo mánuði.
■ Landsliðsmálin / B4
KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ
Sterkasta liðið
MeikáMöHu?
ÁSGEIR Elíasson, landsliðs-
þjálfari í knattspyrnu, er að
reyna að fá atvinnumennina
lausa í a.m.k. einn leik íslands
á fjögurra þjóða mótinu, sem
verður á Möltu í byrjun febrúar.
Asgeir sagði við Morgunblaðið
að hann væri rétt byijaður
að ræða við viðkomandi leikmenn
og kanna stöðu þeirra gagnvart
félögum sínum. „Ef þeir verða ekki
að leika á sama tíma er hugsanlegt
að ég fái þá saman í einn leik af
þremur," sagði Ásgeir.
Landsliðsþjálfarinn hefur hug á
að vera með landsliðsæfingar í vet-
ur og hefur hugsað sér að reyna
að hafa hópinn saman á tveggja
vikna fresti. Hann sagðist tala við
viðkomandi þjálfara á næstu dögum
til að komast að niðurstöðu varð-
andi samvinnu í þessu máli.
Landsliðið fer til Möltu 3. febrúar
og leikur þijá leiki, en kemur síðan
heim 11. febrúar.
SKIÐh FÁDÆMA YFIRBURÐIR ALBERTO TOMBA / B5