Morgunblaðið - 07.01.1992, Síða 2
2 6
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIRÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 1992
KORFUKNATTLEIKUR / JAPISDEILDIN
Bakverðir
KRgerðu
gæfumuninn
Tindastólsmenn á lygnum sjó en
úrslitakeppnin fjarlaegur draumur
ÞAÐ má með sanni segja að bakverðirnir hjá KR hafi gert gæfu-
muninn fyrir lið sitt þegar það lagði Tindastól að velli 83:74 á
sunnudaginn. Þeir léku skynsamlega og stjórnuðu leik KR af
röggsemi, nokkuð sem bakverðir Tindastóls réðu ekki við að
þessu sinni.
Þetta var mikilvægur sigur fyrir
KR. Liðið hefur nú 22 stig og
er tíu stigum á undan Tindastóls-
mönnum sem eru í
þriðja sæti riðilsins.
Nokkuð víst má telja
að KR hafi gull-
tryggt sæti í úrslita-
keppninni með þessu sigri. Það er
SkúliUnnar
Sveinsson
skrifar
þó vissara að hafa alla fyrirvara
á, því allt getur jú gerst í íþróttum.
Fyrri hálfleikur var hraður og
skemmtilegur þó svo hittnin hefði
mátt vera betri hjá báðum liðum.
Bæði lið léku maður á mann vörn
nema hvað Páll Kolbeinsson lék
pressuvörn á þann bakvörð Tinda-
stóls sem tók boltann upp og gerði
Páll það með góðum árangri.
ÍÞffrnR
FOLK
H AXEL Nikulásson lék ekki
með KR gegn Tindastóli á sunnu-
daginn. Axel var veikur, en lét sig
þó ekki vanta á áhorfendabekkinn.
H ÓLAFUR Gottskálksson lék
ekki heldur með KR gegn Tinda-
stóli. Hann hefur verið meiddur og
því ekki getað æft. Óvíst er hvenær
hann getur byrjað að leika.
H PALL Kolbeinsson hefur átt
við meiðsli að stríða í hægra hné.
Þau tóku sig upp í fyrri hálfleik
gegn Tindastóli og sagðist Páll
ekki vita hvort hann gæti leikið
með í næstu leikjum.
H ÞAÐ er oft gaman að skoða
ýmsar tölulegar staðreyndir úr
körfuboltaleikjum. í síðari hálfleik
KR og Tindastóls voru heimamenn
búnir að fá á sig 4 villur þegar um
50 sekúdnur voru til leiksloka en
gestimir 12!
Síðari hálfleikur var mun rólegri
en hittnin lagaðist ekki, nema síður
sé. Eftir tíu mínútur hafði gestun-
um tekist að skora 8 stigen KR-ing-
um 16. Munurinn varð mestur 13
stig, 62:49, en Tindastóll saxaði á
forskotið og átti möguleika á að
jafna leikinn. KR-ingar léku þá af
mikilli skynsemi, nýttu tímann vel
og „héngu“ á boltanum og skoruðu
úr vítaköstum sem þeir fengu þegar
Tindastólsmenn brutu í örvætningu
á þeim.
Ungu strákarnir hjá KR, Óskar
Kristjánsson og Sigurður Jónsson
skiluðu hlutverkum sínum vel og
Hermann Hauksson var sérdeilis
góður. Jon Baer var sterkur, átti
m.a. 7 stoðsendingar, og Guðni
-dijúgur, sérstaklega í vörninni.
Páll var sterkur í fyrri háleik en
hann meiddist og lék ekkert með í
þeim síðari.
Hjá Tindastóli bar að venju mest
á þeim Vali Ingimundarsyni, Pétri
Guðmundssyni og Ivan Jonas. Aðrir
áttu ekki góðan dag og sérstaklega
var áberandi hve erfíðlega bakvörð-
unum gekk að taka boltann upp.
af leikvelli um miðjan hálfleikinn
og reyndist það afdrifaríkt, þegar
mest á reið síðustu mínúturnar.
Þegar þrjár mínútur voru eftir
braut Jón Arnar Ingvarsson klaufa-
lega á Franc Booker, sem skoraði
af öryggi úr báðum bónus vítaskot-
unum og jafnaði, 67:67. Þetta var
fimmta vinna Jóns og varð hann
því að fara af leikvelli.
Lokamínútan var æsispennandi.
Svali Björgvinsson skoraði þriggja
stiga körfu fyrir Val, en þegar 15
sekúndur voru eftir lék Pétur Ing-
varsson það eftir fyrir Hauka.
Booker tók boltann undir körfunni
og þeytti honum yfir endilangan
völlinn og beint útaf. Haukar fengu
innkast á vallarhelmingi Vals og
þegar níu sekúndur voru eftir brutu
Valsmenn á ívari Ásgrímssyni, sem
fékk tvö bónus vítaskot og gat jafn-
að. En ívari, sem hafði hitt úr öllum
vítaskotum sínum í leiknum, brást
bogalistin, Valsmenn náðu frákast-
inu og Magnús Matthíasson tryggði
sigurinn með því að skora úr tveim-
ur bónus vítaskotum.
Magnús og Tómas voru bestir í
liði yals. Iljá Haukum voru bestir
þeir ívar Ásgrímsson, sem nýtti sér
vel slakan varnarleik Franc Bookers
og skoraði grimmt gegn honum,
og John Rhodes, sem lék vel í vörn-
inni.
Morgunblaðið/Einar Falur
Sigurður Jónsson, einn ungu strákanna í KR, skilar boltanum hér til samherja framhjá Tindastólsmönnunum Ein-
ari Einarssyni cg Val Ingimundarssyni.
Lánið lék við Val
Valsmenn máttu þakka fyrir sig-
ur gegn Haukum á sunnu-
dagskvöldið. Haukar leiddu allan
■■■■■ leikinn, en á loka-
PéturH. mínútunum tókst
Sigurösson Val að jafna og
skrifar komast yfír. „Ég er
ánægður með sigur-
inn og að liðinu tókst að vinna upp
10 stiga mun, sem Haukar höfðu
um miðjan fyrri hálfieik," sagði
Tómas Holton, leikmaður og þjálf-
ari Vals, við Morgunblaðið eftir sig-
urinn. „Þetta sýnir að leikmennirnir
hafa trú á getu sinni og því að við
getum sigrað öll lið, sérstaklega á
heimavelli.“
í fyrri hálfleik léku Haukar mað-
ur á mann vörn og höfðu ávallt
frumkvæðið. Jón Arnar gætti
Bookers vel og Rhodes var sterkur
í vörninni, en leikurinn var ekki
sérlega vel leikinn fyrir hlé — virt-
ist sem jólafríið hafi setið í mönnum.
i byijun seinni hálfleiks fékk
Magnús Matthíasson tvær sóknar-
villur með stuttu millibili og var
ekki sáttur við það. Hann lét Krist-
in Óskarsson dómara heyra nokkur
vel valinn orð og fékk tæknivillu í
kjölfarið. Magnús var settur á bekk-
inn með fjórar villur og sat þar í
10 mínútur. Á meðan náðu Haukar
10 stiga forskoti. En þeir urðu fyr-
ir því áfalli að Ilenning Hennings-
son sneri sig illa og varð að fara
Tómas Holton átti góðan leik með Val.
Grindavík
og Þór
GRINDVÍKINGAR áttu ekki
í erfiðleikum með að sigra
slakt lið Þórsara f fþrótta-
húsinu í Grindavík sl.
sunnudagskvöld.
GHeimamenn höfðu forystu frá
byijun og létu hana ekki af
hendi. Munurinn var 10 stig í hálf-
leik og heimamenn
Frímann juku heldur við hann
ólafsson í seinni hálfleik og
skrifar lokatölurnar 96:66
segja meira um leik-
inn en langur texti. Leikurinn var
í heild slakur og var oft á tíðum
eins og um æfingaleikur væri á
ferðinni og áhorfendur sem að öllu
jöfnu láta vei í sér heyra frá áhorf-
endapöllum voru mjög hljóðlátir.
Slakt hjá