Morgunblaðið - 07.01.1992, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIRpRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 1992
B 3
SPJOTKAST
Spjót með gáróttri áferð bönnuð frá og með nýliðnum áramótum:
Allir hafa notað slík
spjót meira og minna
á undanfömum ámm
- segir Sigurður Einarsson, sem er bjartsýnn á eigin árangur á árinu
SIGURÐUR Einarsson, spjótkastari, segist bjartsýnn á árangur
sinn á nýbyrjuðu ári þrátt fyrir að nú hafi verið ákveðið að
banna notkun spjóta með gáróttri áferð. Eins og greint varfrá
í blaðinu á laugardag hefur árangur með slíkum áhöldum
verið þurrkaður af afrekaskrám, en Sigurður náði lengstu
köstum sínum ffyrra með gáróttu, sænsku spjóti. Hann seg-
ir alla spjótkastara heims hafa notað slík spjót meira og minna
undanfarin ár, og þau hafi ekki verið ólögleg fyrr en nú. Ekki
meðan hann og fleiri notuðu þau á mótum, þó svo það hefði
mátt lesa úrfrétt blaðsins um helgina.
Sigurður varð í sjötta sæti á
heimsmeistaramótinu í Jap-
an í haust, kastaði þá 83,46 m.
Lengsta kast hans er hins vegar
84,94 m á alþjóðlegu móti í Shizu-
oka í Japan sl. vor.
„Ástæða þess að hætt var að
nota gömlu spjótin á sínum tíma
var að þau svifu of langt. Menn
vildu breyta spjótinu þannig að
það stingist betur,“ sagði Sigurð-
ur við Morgunblaðið í gær, en
bætti við að ekkert hefði verið í
reglunum um að gárótta áferðin
hefði ekki mátt vera til staðar.
Reglunum var breytt nú um
áramót. Nú má enginn „utanað-
komandi" hlutur vera á spjótinu,
eins og það er orðað. Það er því
ekki lengur löglegt að hafa gárur
eða hrufur, eins og hafa verið á
ungversku Nemeth-spjótunum,
eða sandpappírs-áferð eins og
verið hefur á sænsku Nordvik
áhöldunum, eins og m.a. Sigurður
hefur notað. Þessir „utanaðkom-
andi“ hlutir hafa verið á 30-40
sentímetra kafla aftast á um-
ræddum áhöldum.
„Alþjóða frjálsíþróttasamband-
ið tók málið ekki nógu föstum
tökum strax. Það er búið að draga
þessa ákvörðun allt of lengi,“
sagði Sigurður, um þá ákvörðun
að banna umrædd spjót frá og
með nýliðnum áramótum. En þar
sem allir spjótkastarar hafa notað
þessi áhöld undanfarin ár ætti
ákvörðunin að koma jafnt niður á
öllum. „Það gæti þó verið örlítið
mismunandi eftir kaststíl manna,
eftir útkastshorninu. Meðal-lengd
kasta gæti styst um tvo tii þijá
metra, en þó er erfitt að segja til
um það. Ég er mjög bjartsýnn á
minn árangur á árinu; held ég
geti bætt mig. Ég kasta ef til vill
ekki 90 metra, en held ég geti
bætt mig,“ sagði Sigurður.
Sigurður Einarsson segist bjartsýnn á árangur sinn á nýbyrjuðu ári,
þó svo hann þurfi að fara að nota nýtt áhald.
SKIÐI / GANGA
Rögnvaklur hefur náð
Ólympíulágmarkinu
toám
FOLK
■ HÖRÐUR Magnússon, knatt-
spymumaður úr FH, var um helg-
ina útnefndur íþróttamaður Hafn-
arfjarðar fyrir árið 1991.
■ ÍRIS Grönfeldt hefur verið út-
nefnd íþróttamaður Borgarfjarðar
199i. _
■ GÖNGUBRA UT er troðin dag-
lega á Miklatúni, á vegum Skíða-
félags Reykjavíkur, og er öllum
áhugamönnum um skíðagöngu
fijálst að nýta sér aðstöðuna endur-
gjaldslaust.
■ HÉÐINN Gilsson gerði 5/2
mörk fýrir Dusseldörf í 20:14 sigri
gegn Schwerin á útivelli um helg-
ina. Þetta var fyrsti útisigur Diiss-
eldorf á tímabilinu,
Jón Halldór en liðið er í 8. sæti
Garöarsson norðurdeildar. Fyrir
skrifar skömmu tapaði
frá Þýskalandi Dusseldorf 24:22
fyrir Fredenbeck, sem er í efsta
sætinu og gerði Héðinn þá 7 mörk
úr 9 skotum.
■ SIGURÐUR Bjarnason og
samheijar í Grosswallstadt unnu
Aue 20:16 á útivelli eftir að hafa
verið 9:7 undir í hálfleik. Sigurður
var með tvö mörk, en liðið er í 8.
sæti suðurdeildar.
■ BERNHARD Thiele, sem var
formaður þýska handknattleiks-
sambandsins í um 20 ár, lést 27.
desember s.l. Thiele var í tækni-
nefnd IHF og var sæmdur heiðurs-
merki HSÍ í tengslum við forseta-
leikinn í Berlín 1988.
RÖGNVALDUR Ingþórsson,
Akureyri, er eini íslenski skíða-
göngumaðurinn sem hefur náð
tilskildum árangri fyrir Ólymp-
íuleikana í Albertville. Hann var
innan við 8 prósent á eftir
fyrsta manni á sterku móti í
Hálfdalen í Svíþjóð í 2x18 km
göngu um miðjan desember.
Olympíunefnd íslands setti það
sem skilyrði fyrir þátttöku á
ÓL í Albertville að göngumenn yrðu
að ná að vera innan við 8% á eftir
fyrsta manni í sterku móti erlendis
og Rögnvaldur er sá eini sem hefur
náð því.
Hann var 7,5% á eftir Thomasi
Eirikssyni, Svíþjóð, í fyrrnefndri
göngu sem fram fór 14. og 15.
desember sl. og var með hefðbund-
inni aðferð. Thomas gekk á 1:36.16
klukkst., Sven Erik Danielson, Sví-
þjóð, varð annar á 1:36.26. Rögn-
valdur hafnaði f 39. sæti af 77
þátttakendum á 1:43.32 klukkst. í
sömu göngu var Sigurgeir Svavars-
son, Ólafsfirði, í 51. sæti á 1:45.25
klukkst. (9,5% á eftir)., Haukur
Eiríksson, Akureyri, í 57. sæti á
1:46.35 og Ólafur Björnsson, Ólafs-
firði, í 65. sæti á 1:46.12 klukkst.
Rögnvaldur Ingþórsson frá Ak-
ureyri er eini skíðagöngumaðurinn
sem hefur náð lágmarki fyrir Ólympíu-
leikana.
íslensku göngumennirnir tóku
þátt í 20 km göngu með fijálsri
aðferð, Jábraáslöpped, 27. desemb-
er. Rögnvaldur stóð sig best er
hann hafnaði í 13. sæti af 37 kepp-
endum á tímanum, 48,10 mín og
var 10,7% á eftir sigurvegaranum,
Torgny Mogren sem gekk á 4-3,29
mínútum. Haukur varð í 14. sæti á
48,25 (11,3%), Ólafur Bjömsson í
22. sæti á 50,48 og Sigurgeir Svav-
arsson í 23. sæti á 50,56 mín.
Haukur Eiríksson náði besta ár-
angri Íslendinganna í 20 km göngu
með frjálsri aðferð á móti í Stock-
vis í Svíþjóð 29. desember. Hann
hafnaði í 65. sæti á 51,43 mín.,
Sigurgeir varð í 69. sæti á 51,59
mín., Rögnvaldur í 83. sæti á 53,37
mín. og Ólafur Björnsson í 84.
sæti á 54,07 mín. Vladímir Smim-
off, Sovétríkjunum, sigraði á 45,14
mínútum.
Loks kepptu íslensku strákarnir
í Örnskjöldsvik í 15 km göngu með
fijálsri aðferð á gamlársdag. Sigur-
vegari í göngunni var Torgny Mo-
gren, Svíþjóð, á 38,08 mín. Haukur
varð í 29. sæti á 43,12 mín. (13,2%),
Rögnvaldur í 32. sæti á 43,37 mín.
(14,2%), Sigurgeir í 33. sæti á 44,00
mín. (15,4%). Olafur hætti keppni.
John Barnes
Barnes med þrjú
fyrir Liverpool
Jonn Barnes, sem hafði ekki leik-
ið með Liverpool síðan 21. ágúst
s.l. vegna meiðsla á hásin, lék með
varaliðinu á laugardaginn, sagðist
vera tilbúinn í slaginn og stóð við
stóru orðin í gærkvöldi. Barnes lék
allan leikinn og áður en yfir lauk
hafði hann gert fyrstu þrennu sína
í ensku bikarkeppninni, en Liver-
pool vann fjórðu deildarlið Crewe
4:0 að viðstöddum 7.457 áhorfend-
um á útivelli.
Steve McManaman gaf tóninn á
10. mínútu, en Barnes, sem viður-
kenndi eftir leikinn að hann væri
ekki alveg búinn að ná sér, skoraði
á 26., 28. og úr vítaspyrnu á 89.
mínútu. Liverpool leikur einnig á
útivelli í fjórðu umferð og mætir
þá Bristol Rovers.
■ Bikarkeppn-
in / B7 og B8
HANDBOLTI
Júlíus var í
miklum ham
Júlíus Jónasson var í miklum
ham þegar fjögur Iið kepptu
um IHF-sæti á Spáni um helg-
ina. Júlíus skoraði 9/1 mörk
þegar Bidasoa vann Atletico
Madrid, 18:17, og Pólvetjinn
Wenta skoraði 7 mörk. Teka
vann Barcelona, 19:18, í fram-
lengdum leik.
Bidasoa og Teka léku til úr-
slita og var leikurinn æsispenn-
andi. Lengi vel leit út fyrir að
Bidasoa myndi vinna öruggan
sigur. Júlíus og félagar náðu
mest sex marka forskoti og þeir
voru yfir, 25:23, þegar ein og
hálf mín. var til leiksloka. Þá
fór Melo hjá Teka hamförum -
jafnaði, 25:25, með tveimur
mörkum og skoraði sigurmarkið
Teka, 26:25, þegar fjórar sek.
voru til leiksloka. Júlíus skoraði
4/3 mörk í leiknum.
íHémR
FOLK
■ TERRY Butcher var fyrsti
knattspymu þjálfarinn í Englandi
til að missa starfið á árinu. Hann
var látinn fara frá Cöventry í gær
eftir að hafa hafnað tilboði, sem
gerði ráð fyrir að hann yrði ekki
einnig áfram leikmaður. Butcher
er 33 ára.
■ JOHN McEnroe segir að þetta
verði síðasta keppnisár sitt á meðal
þeirra bestu nema hann bæti sig.
Hann hefur ekki sigrað Á neinu af
stóru tennismótunum síðan 1984
og féll niður í 28 sæti á heimslistan-
um urn áramótin.