Morgunblaðið - 07.01.1992, Qupperneq 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIRÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 1992
HANDKNATTLEIKUR / B-KEPPNIN I AUSTURRIKI
B-keppnin í Austurríki
19.-29. mars 1992
B-riðill
Pólland
Danmörk
ísrael
Alsír
C-RIÐILL
Sviss
Búlgaría
Brasilía
Japan
Milliriðill 1
Þrjú efstu lið
úr A og B riðli
A-riðill
ÍSLAND
Noregur
Belgía
Holland
D-riðill
Austurríki
S-Kórea
Finnland
Bandaríkin
QLinz
Stockerau
Salzburg
URSLITALEIKIR
um 12 efstu sætin
Milliriðill 2
Þrjú efstu lið
úr C og D riðli
Leikið um 13
til 16. sæti
Graz O
--SSSE’Ws;
• r lceDpr*’*na hcf*t
** OQ 4. mars,
Búlgar,u 3' ?3ik gegn Ho«-
Leikið verftur gegg mafS með le.K g 9
B-keppnm nets
andi-
HÆTTUASTAND?
ER landsliðið að falla á tíma? Það eru aðeins tíu vikur þar til
B-keppnin hefst í Austurríki, en Þorbergur Aðalsteinsson, lands-
liðsþjálfari, hefur aðeins rúmar fjórar vikur til umráða til að sjá
um lokaundirbúning liðsins. Er það nægilegur tími? „Ég er ekki
hræddur við þennari stutta tíma. Það sem ég er hræddastur við
er að ég fái ekki að hafa þá leikmenn sem koma til með að leika
í Austurríki í æfingum þær fjórar vikur sem við höfum til um-
ráða. Þá er greinilegt að okkur vantar fleiri landsleiki,'1 sagði
Þorbergur Aðalsteinsson í viðtali við Morgunblaðið í gær.
- Hvenær velur þú endanlegan
hóp fyrir B-keppnina?
„Það verður ekki fyrr en í bytjun
mars. Eins og málin hafa þróast
vil ég halda öliu opnu eins lengi og
mögulegt er,“ sagði Þorbergur, sem
sagði að sú skoðun sín að fá tvo
til þrjá reynda leikmenn í hóp sinn
hafi ekkert breyst. „Yið þurfum á
reyndari leikmönnum að halda í
baráttunni til að tryggja okkur
sæti í heimsmeistarakeppninni í
Svíþjóð 1993. Það eru kynslóða-
skipti framundan í landsliðinu. Eft-
ir B-keppnina verður enginn þess-
arra „eldri ieikmanna“ lengur í lið-
inu.“
Of mikil pressa á Kristján?
„Nú hefur verið mikil pressa á
Kristján Arason að gefa kost á sér
í iandsliðið fyrir B-keppnina. Ungu
leikmennirnir hafa sagt að þeir
þurfi á kröftum hans að haida.
Ertu ekki hræddur um að pressan
sé orðin einum of mikil á Kristján?
„Ég vona það ekki. Kristján hef-
ur verið undir geysilegri pressu all-
an sinn keppnisferil. Hann myndi
ekki kippa sér upp við þá pressu.“
Norðmenn og Danir hættulegir
Norðmenn, mótheijar okkar í
Austurríki, hafa sent frá sér aðvör-
un, með góðum leik gegn Svíum
um helgina [er þeir töpuðu með
einu marki]. Hveijir verða hættu-
legustu mótheijar íslands?
„Norðmenn eru með sterkt lið
og þeir verða okkar aðal keppinaut-
ar í riðlakeppninni. Þeir og Danir,
sem við komum til með að leika við
í miliiriðli ásamt Pólverjum, eru
Pólveij-
arverða
undir
smásjánni
IJólveijar.sem verða væntanlega mót-
■ heijar íslands í B-keppninni í Aust-
urríki, verða sérstaklega undir smásjánni
þar. „Við vitum ekkert hvaða leikmenn
koma til með að leika með pólska liðinu
í Austurríki. Þeir hafa verið að leika að
undanförnu án sinna sterkustu leik-
manna, þannig að ekkert hefur verið að
marka leik þeirra,“ sagði Þorbergur
Aðalsteinsson.
„Við fáum tækifæri til að sjá þá leika
þijá til fjóra leiki í Austurríki áður en
við mætum þeim. Þeir verða því sérstak-
lega undir smásjánni hjá okkur þar og
tveir menn koma til með að kortleggja
leiki þeirra í riðlakeppninni - gegn Dan-
mörku, ísrael og Alsír.“
Þorbergur fer jafnvel til Noregs og
Svíþjóðar í vikunni til að sjá Norðmenn
og Dani leika þar í mótum. „Við þekkjum
vel til Norðmanna og Dana. Ég fékk
fimm myndbandsspólur frá Danmörku á
dögunum, með leikjum danska liðsins,“
sagði Þorbergur.
Þorbergur sagðist vera að afla sér
upplýsinga um Hollendinga, sem íslenska
liðið leikur fyrst gegn í B-keppninni,
fimmtudaginn 19. mars.
mönnum. Þá koma Búlgarar til
landsins í byijum mars og leika tvo
leiki og fyrirhugað er að Júgóslavar
komi í kjölfar Búlgara, en það er
þó allt óvíst um það. Við munum
reyna að leika fleiri leiki. Ég hefði
viljað fá fimm til sex leiki til viðbót-
ar. _
Ástæðan fyrir því hvað margir
leikmenn voru notaðir í fyrra var
sú að það var erfítt að fá leikmenn
lausa. Ég hef aldrei getað bókað
fyrirfram hvaða leikmönnum ég
geti teflt fram í skyttuhlutverkum,
eða í hlutverki leikstjórnanda. Ég
hef til dæmis notað hvorki fleiri en
færri en sex leikmenn í hlutverki
skyttu hægra megin á vellinum."
Endanlegur hópur verður val-
inn í byrjun mars
- Þú hefur sagt að þú stefndir
á að það lið sem þú ferð með á
æfingamótið í Austurríki verði sá
hópur sem þú byggir á í B-keppn-
inni. Sérðu fram á að það verði svo?
„Já, ég sé fram á það.“
- Hvað með þá leikmenn sem
leika í Þýskalandi. Konráð Olavson
og Sigurð Bjarnason?
„Konráð getur leikið alla leikina,
en Sigurður kemur til með að missa
af einum.“
- Hvað með Héðin Gilsson?
„Héðinn hefur verið að ná sér á
strik, en varð fyrir smávægilegum
meiðslum fyrir jól. Hann verður í
hópnum, sem fer til Austurríkis.“
- Eru Oskar Ármannsson og Jón
Kristjánsson útúr myndinni?
„Nei, þeir eru enn inni í mynd-
inni eins og aðrir leikmenn, sem
hafa leikið með landsliðinu.“
Þorbergur sagði að það væri
mesta vandamálið að fá ekki
nægilega marga landsleiki. „Við
höfum misst af
SigmundurÓ. fimm landsleikjum á
Steinarsson stuttum tíma. Við
skrifar lékum aðeins þijá
leiki í Ungveijalandi
á dögunum, en áttum að leika fimm.
Þá komu Finnar ekki til landsins í
byijun janúar, eins og búið var að
ákveða. Þar með misstum við af
þremur landsleikjum til viðbótar.
Þegar ljóst var að Finnar kæmu
ekki var ákveðið að Egyptar kæmu
til landsins og lékju tvo leiki. Af
því verður ekki,“ sagði Þorbergur.
Minni undirbúningur en áður
íslenska landsliðið lék aðeins 23
landsleiki á árinu 1991 og þarf að
fara allt aftur til ársins 1983 til að
finna svo fáa leiki. Árið 1987 voru
landsleikir íslands 52, 1988 voru
þeir 43 , 34 leikir 1989 og 40 leik-
ir 1990.
Þess má geta að 35 leikmenn
tóku þátt í leikjunum 23 í fyrra og
tók liðið aðeins þátt í tveimur mót-
um. Á Spáni í janúar og í Ungveija-
landi í nóvember. Af þessum 23
leik.jum voru aðeins sjö gegn A-
þjóðum.
Undirbúningurinn fyrir B-keppn-
ina í Austurríki er ekki mikill. Nú
þegar tíu vikur eru til keppninnar,
er ljóst að landsliðið verður aðeins
saman í rúmar fjórar vikur og á
borðinu eru aðeins sjö landsleikir.
Fimm í móti í Austurríki í lok jan-
úar, enginn í febrúar og tveir gegn
Búlgaríu í byijun mars. Svo fáir
Þorbergur Aðalsteinsson
leikir hafa ekki verið leiknir í loka-
undirbúningi fyrir mót frá því fyrir
B-keppnina í Hollandi 1983, en þá
voru leiknir sex leikir. Fyrir HM í
Sviss 1986 voru þeir, fyrir B-keppn-
ina í Frakklandi 1989 voru 10 leik-
ir og fyrir HM í Tékkóslóvakíu lék
íslenska liðið einnig 10 æfingaleiki.
- Er undirbúningurinn nú ekki
greinileg afturför frá undirbúningi
fyrri ára?
„Eins og ég sagði þá háir það
okkur hve fáa leiki við leikum á
lokasprettinum fyrir B-keppnina.
Við förum til Austurríkis í lok jan-
úar og leikum þar fimm leiki -
gegn Ungveijum, Egyptum, Búlg-
örum, Portúgölum og Austurríkis-
Þorbergur fær að-
stoð frá Bogdan
Bogdan Kowalczyk, fyrrum
landsliðsþjálfari Íslands,
sem er nú þjálfari 1. deildarliðs í
Innsbrúck í Austurríki, mun gefa
Þorbergi Aðalsteinssyni, lands-
liðsþjálfara góð ráð á meðan B-
keppnin stendur yfír. „Bogdan er
tilbúinn að taka út vissa leiki fyr-
ir mig og ég hpf þegið það,“ sagði
Þorbergur.
Bogdan kom til landsins um
helgina til að stjóma pressuliðinu
gegn landsliðinu. Hann sagði að
íslenska landsliðið væri skipað
ungum ogefnilegum leikmönnum,
en óneitanlega væri það sterkt
fyrir liðið að fá með sér nokkra
eldri og reyndari leikmenn til
Austurríkis. „Það er ekki Iangt
þar til íslenska liðið verður komið
í hóp þeirra bestu aftur,“ sagði
Bogdan, sem hefði mjög gaman
að stuttri heimsókn sinni til lands-
ins.