Morgunblaðið - 07.01.1992, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ IÞROI III?ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 1992
B 5
Geir Sveinsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í handknattleik.
þeir mótheijar sem við þurfurri að
hafa mestar áhyggjur af.l Við vitum
allt um Norðmenn og Dani j og
þekkjum vel leikmenn þeirra, en
aftur á móti eru Pólveijar stórt
spurningarmerki. Þeir geta verið
með lélegt lið, eða leikið eins og
þeir sterkustu. Það fer allt eftir því
hvort þeir fái leikmenn sína sem
leika í Þýskalandi og Spáni. Einn
leikmaður eins og Wenta sem leikur
með Júlíusi Jónassyni hjá Bidasoa
er tíu marka-maður gegn hvaða liði
sem er. Það er enn óljóst hvort að
hann fái frí frá Bidasoa.“
- Hvað þá með Júlíus Jónasson.
Fær hann frí?
„Júlíus er með það skriflegt í
samningi sínum, að við getum feng-
ið hann lausan, en Wenta er ekki
með það í samningi sínum við félag-
ið, að hann geti farið í landsleiki
þegar Pólveijar kalla á hann. Við
höfum lent í strögli í sambandi við
Júlíus og höfum átt vjðræður við
forráðamenn Bidasoa. Ég efást um
að félagið gefi þeim báðum frí í
einu.“
Þýöir ekkert að örvænta
Þorbergur sagði þó að stutiur
tími væri til stefnu fyrir B-keppnina
þýddi ekkert að vera að örvænta.
„Við verðum að nota þann tíma
mjög vel. Ef ég fæ alla leikménnina
og tvo til þijá landsleiki til viðbótar
þá óttast ég ekkert stöðuna. Fram-
undan er átak sem gerist snöggt á
stuttum tíma. Það átak á að geta
gengið upp. Við verðum að tryggja
okkur eitt af fjórum efstu sætunum
í B-keppninni til að tryggja okkur
farse|ðilinn til Svíþjóðar 1993,“
sagði Þorbergur Aðalsteinsson,
landsliðsþjálfari.
Lokaundirbúningur-
inn hefst í Eyjum
Lokaundirbúningur íslenska landsliðsins fyrir B-keppnina í Austur-
ríki hefst 25. febrúar. Landsliðshópurinn heldur til Vestmanna-
eyja í æflngabúðir 28. febrúar, þar sem Island mætir Búigaríu tvíveg-
is, 3. og 4. mars. „Það verður geysileg keyrsla á leikmönnunum í
Eyjum,“ sagði Þorbergur.
„Við vonumst eftir að fá tvo landsleiki 9. og 10. mars í Reykjavík
og eftir það verður æft þar til við förum til Austurríkis. Við höfum
gert allt til að fá A-þjóð til að koma hingað og leika, en það hefur
ekki tekist. Við verðum að fá tvo leiki á þessum tíma og ég vona að
það takist,“ sagði Þorbergur.
SKIÐI / HEIMSBIKARKEPPNIN
Fádæma yfirburðir
Albertos Tomba
ÍTALINN Alberto Tomba hafði
fádæma yf irburði í svigi heims-
bikarsins í slóvenska bænum
Kranjska Gora á sunnudaginn.
Hann var með besta tímann í
báðum umferðum og vann með
tveggja sekúndna mun, sem
eru ótrúlegir yfirburðir. Hann
hefur nú afgerandi forystu í
heildarstigakeppninni, 125
stigum á undan Svisslendingn-
um Paul Accola sem er f öðru
sæti með 675 stig.
Alberto Tomba frá Italíu sigraði með fáheyrðum yfirburðum um helgina.'
ítalinn Sergio Bergamelli kom
mjög á óvart með því að sigra í
stórsvigi á sama stað á laugardag!
Hann hafði rásnúmer 34 og því
ekki búist við miklu af honum.
Engu að síður vann hann með mikl-
um yfirburðum. Bergamelli, sem er
21 árs, var 2,22 sek. á undan Hans
Pieren frá Sviss. Tomba varð í
þriðja sæti, eftir 'að hafa verið í 5.
sæti eftir fyrri umferð.
„Ég trúði ekki tímanum eftir
fyrri umferð, hélt að þessi tími hlyti
að vera mistök. í seinni umferð var
ég staðráðinn í að gefa fyrsta sæt-
ið ekki frá mér og keyrði á fullu,“
sagði Bergamelli.
■ Úrslit / B6
Yfirburðir Tomba voru þeir
mestu í svigkeppni heimsbik-
arsins í fjögur ár. Italir geta vel
við unað eftir mót helgarinnar því
hinn ungi Sergio Bergamelli sigraði
í stórsvigi á sama stað á laugardag-
inn.
„Það var mjög mikilvægt fyrir
Bergamelli að sigra, en ég var reið-
ur við sjálfan mig að ná ekki að
vinna á laugardaginn. Ég notaði
reiði mína í sviginu á sunnudaginn
og sýndi öðrum keppendum þá í tvo
heimana," sagði Tomba, sem vann
þriðja sigur sinn í svigi á tímabilinu.
Óvænt hjá Bergamelli
Þriðji sigur Schneider
Vreni Schneider frá Sviss vann
þriðja heimsbikarmótið á
þessu keppnistímabili í Oberstau-
fen í Þýskalandi á sunnudaginn.
Hún var rúmlega sekúndu á und-
an ítölsku stúlkunni Deborah
Compagnoni í stórsvigi og skaust
við það í efsta sæti stigakeppninn-
ar.
Schneider, sem hefur tvo
ólympíutitla að veija í Albertville,
verður að teljast til alls líkleg á
leikunum sem verða settir eftir
mánuð. Hún hefur haft nokkra
yfirburði í svigi og stórsvigi í
nokkur ár og það er einmitt í
þeim greinum sem hún sigraði á
Ólympíuleikunum í Calgary 1988.
Hún vann fyrsta svigmót vetrar-
ins í Austurríki og varð önnur í
því næsta og sigraði í fyrsta stór-
svigsmótinu á Ítalíu í síðasta
mánuði og nú endurtók hún leik-
inn í Þýskalandi.
Þessi 28 ára svissneska stúlka
hefur nú unnið 38 heimsbikarmót
á ferlinum, það fyrsta 1984. Nú
þegar sjö mótum er lokið hefur
Schneider eins stigs forskot á
Petru Kronberger frá Austurríki,
sem hafnaði í 12. sæti í stórsvig-
inu.
SUND / NYARSMOT FATLAÐRA
Birkir setti
þrjú íslands-
met og varð
stigahæstur
Birkir Rúnar Gunnarsson, ÍFR,
sem keppir í flokki B1
(blindra), var stigahæstur á Nýárs-
móti fatlaðra barna og unglinga í
sundi sem fram fór í Sundhöll
Reykjavíkur um helgina og hlaut
„Sjómannsbikarinn" að launum.
Hann hlaut samtals 581 stig fyrir
árangur,sinn í 50 m Eringusundi
(42,28 sek.). Hann setti jafnframt
þijú Islandsmet á mótinu.
Rut Sverrisdóttir, Óðni, sem
keppir í flokki B2 (sjónskertra) varð
í öðru sæti með 497 stig fyrir árang-
ur sinn í 50 m skriðsundi (32,80
sek.). Hún setti jafnframt tvö ís-
landsmet.
Ólafur V. Lárusson, sem keppir
í C-flokki þroskaheftra, varð í þriðja
sæti yfir stigahæstu einstaklingana
með 420 stig fyrir árangur sinn í
50 m bringusundi (52,74 sek.).
Stigahæstu einstaklingarnir á
Nýársmóti fatlaðra í sundi. Frá vinstri:
Rut Sverrisdóttir, sem varð í öðru
sæti, Birkir Rúnar Gunnarsson, sem
sigraði og Ólafur V. Lárusson, sem
varð í þriðja sæti.