Morgunblaðið - 07.01.1992, Side 8
JWMBg
ENGLAND / 3. UMFERÐ BIKARKEPPNINNAR
Svartnætti hjá Arsenal
Fimm lið í 1. deild úr leik og mörg önnur sluppu með skrekkinn
MEISTARAR Arsenal höfðu stutta viðdvöl í bikarkeppninni að
þessu sinni — hrösuðu í 1. tilraun og töpuðu 2:1 gegn Wrexham,
sem er í 18. sæti í 4. deild. „í knattspyrnu getur allt gerst,"
sagði George Graham. „Það gengur upp og ofan og það skiptast
á skin og skúrir. Ég hef upplifað margt sem leikmaður og þjálf-
ari, en þetta er það svartasta."
Frá
Bob
Hennessy
ÍEnglandi
Mickey Thomas, sem hefur oft
verið til vandræða utan vall-
. ar og setti m.a. upp apagrímu fyrir
landsleik Wales og
íslands 1981 til að
gera lítið úr mót-
heijunum (liðin
gerðu 2:2 jafntefli),
var maður leiksins og jafnaði með
glæsilegu skoti úr aukaspyrnu af
um 20 m færi, en skömmu síðar
gerði Steve Watkin sigurmarkið.
„Ég hef gert nokkur dúndurmörk
í gegnum tíðina og meðal annars
mark gegn Liverpool úr aukaspyrnu
,af um 27 metra færi, en þetta er
mikilvægasta mark mitt á ferlin-
um,“ sagði Thomas, sem er á 38.
ári og á 51 landsleik fyrir Wales
að baki.
Hjá veðbönkum var Arsenal talið
sigurstranglegast í keppninni, en
Wrexham sýndi að ekkert er öruggt
fyrr en flautað hefur verið til leiks-
loka. „Þetta er ótrúlegt," sagði Joey
Jones, sem er 36 ára varnarmaður
Wrexham og var áður hjá Liver-
pool. „Gjarnan er sagt að bikar-
keppnin hafi yfir sér töfrablæ og
við áttum hlut að máli að þessu
sinni.“ Gordon Davies, jafnaldri
hans og samheiji, tók undir þau orð.
Graham hélt eftir 1:0 tapið gegn
Luton eftir jólin að það væri það
lægsta, en komst að öðru. Hann
sagði að ekki væri annað að gera
í stöðunni en bretta upp ermarnar
og byrja að vinna, en Arsenal er
úr leik í Evrópukeppni meistaraliða,
deildarbikarnum og ensku bikar-
keppninni og á vægast sagt litla
möguleika á að veija meistaratitil-
inn. „Við töpuðum leik, sem við
áttum að vinna auðveldlega. Fyrir
vikið erum við alls staðar úr leik
og erum auk þess í vandræðum í
deildinni."
„Við höfum skráð nöfn okkar á
spjöld knattspyrnusögunnar," sagði
Bryan Flynn eftir sigur manna
sinna.
Utandeildarliðið Famborough
fékk stuðningsmenn West Ham til
að skjálfa á Upton Park, þegar
Dean Coney jafnaði úr vitaspymu
á 82. mínútu. Liðin mætast aftur
14. janúar og sigurvegarinn fær
síðan Wrexham í heimsókn í 4.
umferð. „Ég er mjög ánægður með
að hafa náð jafntefli út úr þessu,“
sagði þjálfari West Ham, en um
3.000 stuðningsmenn liðsins sættu
sig ekki við gengið, sex töp í síð-
ustu sjö leikjum. Eftir leikinn hróp-
uðu þeir gamla lummu, rekið stjóm-
ina, rekið stjómina... og svo fór að
sex þeirra var hleypt inn til að
ræða við þá, sem ráða ferðinni.
Auk Arsenal féllu fjögur lið í 1.
deild úr keppni. Crystal Palace tap-
aði 1:0 fyrir 2. deildarliði Leicester,
Manchester City varð að sætta sig
við 2:1 tap gegn Middlesborough,
Southampton skaut QPR niður á
■ jörðina með 2:0 sigri og Luton tap-
aði 4:0 fyrir Sheffield United.
Mathew Le Tissier var maðurinn
á bak við sigur Southampton, lagði
upp fyrra markið og skoraði síðan.
Roy Wegerle fékk tækifæri til að
minnka muninn á 82. mínútu, en
Ian Flower varði þá frá honum víta-
spyrnu.
„Ég varaði strákana við brotlend-
ingu eftir sigurinn á Old Trafford,“
sagði Francis. „Það hefur ekkert
að segja að fá 10 af 10 mögulegum
í seinni hálfleik eftir að hafa ekki
fengið nema einn fyrir hlé.“
Luton stóð sig best allra liða um
jólin og komst úr botnsætinu, en
fékk háðuglega útreið gegn
Sheffield, sem gerði þijú mörk á
síðustu 14 mínútunum. „Þetta eru
hlægileg úrslit,“ sagði David Pleat.
„Fyrir leikinn var ég sannfærður
um sigur minna manna, en annað
kom á daginn."
Everton átti mestu erfiðleikum
með Southend, en vann 1:0 óverð-
skuldað. Neville Southall kom í veg
fyrir aukaleik með snilldarmark'
vörslu. „Markvarsla hans var eins
og hún gerist best,“ sagði Howard
Kendall.
Chelsea vann Hull 2:0 og mætir
Everton næst. „Það er ánægjuleg
tilfinning að vera kominn í fjórðu
umferð, en ég var hræddur, jafnvel
eftir að við gerðum seinna markið,“
sagði Ian Porterfield.
Mikil rigning var í Leeds og var
Elland Road hreinlega á floti.
Leiknum gegn Manchester United
var því frestað til 15. janúar, en
liðin mætast í deildarbikarnum ann-
að kvöld.
RUÐNINGUR / BANDARIKIN
Reuter
Steve Watkin fagnar sigurmarki
Wrexham. A minni myndinni er Mic-
key Thomas.
ÚrsKtastundin nálgast
Atta liða úrslitin í bandaríska
fótboltanum fóru fram um
helgina. Úrslitaleikirnir í deildunum
verða um næstu helgi, en sjálfur
úrslitaleikurinn, Super Bowl, verður
í Minneapolis sunnudaginn 26. jan-
úar.
Buffalo Bills og Denver Broncos
leika til úrslita í amerísku deild-
inni. Denver vann Houston Oilers
26:24 og gerði David Treadwell út
um leikinn með góðu skoti af 25 m
færi (field goal), þegar 16 sekúndur
voru til leiksloka, en John Eiway,
leikstjórnandi, var maðurinn á bak
við vallarmarkið — kom liði sínu frá
tveggja metra línunni á eigin vallar-
helmingi að þeirri 11. hjá Houston
á tveimur mínútum. Elway hefur
stjómað leik Denver í níu ár og
síðan hefur liðið 19 sinnum tryggt
sér sigur í fjórða og síðasta leik-
hluta. „Við erum ánægðir með að
hafa fengið tækifærið," sagði El-
way, sem hefur komið Denverþrisv-
ar á síðustu fimm árum í Super
Bowl. „Allir gerðu það sem þeir
gátu og okkur tókst að setja punkt-
inn yfir i-ið.“
Warren Moon, leikstjómandi
Houston, lét vonbrigði sín í Ijós, en
hann átti mjög góðanjeik. 27 af
36 sendingum hans voru góðar og
gáfu m.a. af sér þijú snertimörk,
en Houston komst í 21:6.
Buffalo Bills, sem lék til úrslita
í Super Bowl í fyrra, átti ekki í
erfiðleikum með Kansas City Chiefs
og vann 37:14. Jim Kelly, leik-
stjómandi Buffalo, átti þijár send-
ingar, sem gáfu snertimörk og Scott
Norwood gerði þijú vallannörk, en
Bills komst í 24:0. Kansas vann
Buffalo 33:6 í riðlakeppninni. „Við
náðum ekki að stöðva þá, réðum
ekki við Kelly og ekkert gekk upp
hjá okkur," sagði Marty Schotten-
heimer, þjálfari Kansas.
Buffalo tekur á móti Denver á
sunnudaginn.
Washington Redskins tryggði sér
sæti í úrslitum landsdeildarinnar
með 24:7 sigri gegn Atlanta Fal-
cons, en leikið var í rigningu og
roki í Washington. Washington,
sem er sigurstranglegast í keppn-
inni, vann Atlanta 56:17 í nóvemb-
er s.I., en Atlanta hafði sigrað í
síðustu sex leikjum. Veðrið setti
hins vegar strik í reikninginn hjá
gestunum, en átti við heimamenn.
Varnarleikur Atlanta var góður, en
mönnum vom mislagðar hendur í
sókninni. „Við náðum okkur ekki á
strik, en erum ánægðir með árang-
ur tímabilsins," sagði Deion Sand-
ers, leikmaður Atlanta. Joe Gibbs,
þjálfari Washington, sagði að veðrið
hefði átt við sína menn „og við erum
lánsamir að vera í þessari stöðu.“
Washington mætir Detroit eða
Dallas á sunnudaginn.
ÍÞR&mR
FOLK
■ FYRIR tæplega ári tryggði
Arsenal sér enska meistaratitilinn
í annað sinn á þremur árum, en á
sama tíma var Wrexham í neðsta
sæti í 4. deild eða í
92. sæti í deildunum
fjórum. En Wrex-
ham sýndi að í bik-
arkeppni hefur stað-
an ekkert að segja.
■ STEVE Watkin, sem gerði sig-
urmark Wrexham, er eini leikmað-
ur liðsins, sem er uppalinn hjá félag-
inu.
Frá
Bob
Hennessy
iEnglandi
■ MICKEY Thomas var valinn
besti leikmaður Stoke á síðasta
tímabili, en var síðan rekinn frá
félaginu. Hann fór til Wrexham í
september og lék án launa til að
byija með.
■ BRYAN Flynn sagði að Thom-
as hefði verið besti maður leiksins.
„Ef hann væri 10 árum yngri myndi
ég selja hann fyrir fímm milljón
pund (liðlega hálfa millj. ÍSK).“
■ ARSENAL hefur greitt sem
samsvarar hundruð millj. ÍSK fyrir
leikmenn sína, en leikmenn Wrex-
ham hafa kostað samtals liðlega
3,3 millj. ÍSK.
■ WREXHAM var ekki hátt
skrifað hjá veðbönkum. Möguleikar
liðsins á titlinum voru einn á móti
1.500.
■ DEAN Coney jafnaði fyrir
Farnborough úr vítaspyrnu. Þetta
var fyrsta vítaspyrna hans á ferlin-
um, en Coney er 28 ára.
■ CONEY var stuðningsmaður
West Ham á sínum yngri árum.
Hann lék áður með Fulham, QPR
og Norwich, en meiddist, hætti
keppni og fékk greitt úr trygging-
um og eftirlaunasjóði leikmanna.
Hann lék í Hong Kong i þijá mán-
uði, en sneri síðan heim og byijaði
í haust með Farnborough.
■ FARNBOROUGH dattílukku-
pottinn og fékk um átta millj. ÍSK
í sinn hlut vegna leiksins.
H DAVID Batty missir af bikar-
leik Leeds og Manchester United.
Hann byijar í banni næsta sunnu-
dag og tekur út tvo leiki.
■ STEVE Hodge tekur stöðu
hans hjá Leeds, en hann hefur níu
sinnum verið í byijunarliðinu og
gert sjö mörk.
■ PETER Beardsley tryggði
Everton farseðilinn í næstu umferð
með 14. marki sínu á tímabilinu.
■ ERIC Young hjá Crystal
Palace fékk að sjá rauða spjaldið
um miðjan fyrri hálfleik. Hann sá
Iíka rautt 7. desember s.l. í leik
gegn Norwich.
■ STEVE McMahon lék með
Manchester City í fyrri hálfleik,
en hafði greinilega ekki náð sér af
meiðslum.
■ MIDDLESBOROUGH sló
Manchester City einnig út úr deild-
arbikarnum.
■ CARL Saunders gerði fjögur
mörk í 5:0 sigri Bristol Rovers
gegn Plymouth. Þetta var næst
stærsti sigur Bristol í sögu félagS-
ins.
■ IAN Porterfield, sem tryggði
Sunderland bikarinn 1973 með
marki gegn Leeds, bauð Bob
Stokoe, þáverandi stjóra Sunder-
land, á leik Chelsea og lét hann
ræða við leikmenn sína inni i klefa
fyrir leikinn gegn Hull. „Hann var
okkar lukkudýr," sagði Porter-
field.
■ GUÐNI Bergsson, sem hefur
misst af síðustu leikjum Totten-
ham vegna meiðsla, var varamaður
í Birmingham, þegar Aston Villa
og Spurs gerðu markalaust jafn-
tefli.
I LEIKMENN Southampton
hafa fengið 44 gul spjöld á tímabil-
inu. Þeir eru ekki lengur kallaðir
dýrlingarnir heldur syndararnir.
GETRAUNIR: XXX 221 112 1111 LOTTO: 7 23 27 32 37 / 8