Morgunblaðið - 19.01.1992, Síða 8
8
m% «í rrwi. kf\ $á B %jí\ð^1á fí#%|| |Étt-^
MORGUNBLAÐIÐ DAGBOK SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1992
IT\ \ er sunnudagur 19. janúar, 2. sunnudagur
UxXVJT eftir þrettánda, 19. dagur ársins 1992.
Árdegisflóð í Reykjavík kl. 5.50 og síðdegisflóð kl. 18.15.
Fjarakl. 12.10. Sólarupprás í Rvík kl. 10.46 ogsólarlag
kl. 16.31. Myrkurkl. 17.35. Sólin eríhádegisstaðkl. 13.38
og tunglið er í suðri kl. 0.46. (Almanak Háskóla íslands.)
Því að Drottinn, Hinn hæsti er ógurlegur, voldugur
konungur yfir gjörvallri jörðinni. (Sálm. 47.)
ÁRNAÐ HEILLA
O/\ára afmæli. í dag, 19.
ÖU janúar, er áttræður
Ivar Guðmundsson, fyrrum
fréttaritstjóri Morgun-
blaðsins og ræðismaður Is-
lands í New York, nú bú-
settur í Washington. Morg-
unblaðið sendir Ivari og konu
hans, Barböru, hamingjuóskir
á þessum merku tímamótum
og þakkar honum langt og
farsælt samstarf. Hjónin eru
að heiman.
/*/Yára afmæli. Næstkom-
OU andi þriðjudag, 21.
janúar, er sextugur Halldór
Jónatansson, forstjóri
Landsvirkjunar, Þinghóls-
braut 46, Kópavogi. Kona
hans er Guðrún Dagbjarts-
dóttir. Þau taka á móti gest-
um í félagsheimili Kópavogs,
Fannborg 2, á afmæiisdaginn
kl. 17-19.
pT /\ára afmæli. í dag, 19.
tí U þ.m., er fimmtug
Eygló Helga Haraldsdóttir
píanókennari. Maður hennar
er Eiður Guðnason umhverf-
isráðherra. Þau taka á móti
gestum á heimili sínu, Kúr-
landi 24, Rvík, eftir kí. 17 í
dag, afmælisdaginn.
KROSSGATAN
■ ■
9 10
x
H__1Z
_
■■
ffl
13
LÁRÉTT: — 1 eldstæðum,
5 versa, 8 ófagurt, 9 plantan,
11 mannsnafns, 14 gutl, 15
sól, 16 ýlfrar, 17 reið, 19
karldýr, 21 matsupphæð, 22
getið um, 25 þræta, 26 skip,
27 sjávardýr.
LÓÐRÉTT: - 2 leyfi, 3
hár, 4 skynsemi, 5 hverful, 6
stefna, 7 grönn, 9 ófreskja,
10 fiðluleikara, 12 illþýðis,
13 harminn, 18 mjúka, 20
drykkur, 21 skóli, 23 tveir
eins, 24 titili.
LAUSN SIÐUSTU KROSSGÁTU:
LÁRÉTT: - 1 ósatt, 5 æstur, 8 áræði, 9 holla, 11 undur,
14 urr, 15 iðnað, 16 iðjan, 17 ann, 19 náin, 21 egni, 22
nistinu, 25 men, 26 æsi, 27 Rán.
LÓÐRÉTT: — 2 svo, 3 tál, 4 trauða, 5 æðurin, 6 sin, 7
Unu, 9 heilnæm, 10 lundinn, 12 dijúgur, 13 runninn, 18
nets, 20 Ni, 21 en, 23 sæ, 24 II.
FRÉTTIR/MANNAMÓT
ÞENNAN dag árið 1892
fæddist Ólafur Thors alþing-
ismaður og ráðherra.
FUGLAVERNDARFÉL. ís-
lands heldur fræðslufund nk.
þriðjudagskvöld í Odda, húsi
hugvísindadeildar Háskólans,
kl. 20.30. Fundurinn er til-
einkaður fuglalífi og vernd
sunnlensks votlendis. Sl. tvö
ár hafa þeir Einar Ó. Þorleifs-
son og Jóhann Óli Hilmarsson
unnið að því á vegum félags-
ins að skrá votlendissvæðin á
Suðurlandsundirlendi. Munu
þeir gera grein fyrir þessu
verki á fundinum. Þeir bregða
upp litskyggnum til skýringar
á máli sínu. Fræðslufndir fé-
lagsins eru ætíð öllum opnir.
SAMVERKAMENN Móður
Theresu halda mánaðarlegan
fund sinn annað kvöld, mánu-
dag, kl. 16 í safnaðarheimil-
inu, Hávallagötu 16.
Breytingar á bandorminum:
Eftirlitsmenn ráðherra | j/
ráðnir að ríkisstof nunum
Ríkisstjómin lagöi fram ný ákvæði
og breytingartiilögur á frumvarpinu
um ráöstafanir í ríkisfjármálum fyr-
irárið 1992.
RAO MÍMGflR
skr'ifstofr
K^IUaJD
Ég er með fjörutíu ára starfsreynslu í eftirliti með innra öryg-gi ...
DÓMS- og kirkjumálaráðu-
neytið tilk. í nýlegu Lögbirt-
ingablaði um veitingu héraðs-
dómarastarfa. Forsetinn skip-
aði þá í nóvembermánuði síð-
astl. Voru þá Finnbogi H.
Alexandersson, Finnur Torfi
Hjörleifsson, Guðmundur L.
Jóhannesson, Gunnar Aðal-
steinsson, Ólöf Pétursdóttir,
Sigríður Ingvarsdóttir, Sig-
urður Hall Stefánsson, og
Sveinn Sigurkarlsson skipuð
til að vera héraðsdómarar við
héraðsdóm Reykjaness. Tek-
ur skipunin gildi l.júlí 1992.
KARLAKÓR Reykjavíkur
heldur aðalfund sinn í félags-
heimili sínu, Freyjugötu 14,
laugardaginn 25. janúar.
PRESTAKÖLL, fjögur tals-
ins, auglýsir biskup íslands
laus til umsóknar í nýju Lög-
birtingablaði, með umsóknar-
fresti til 31. janúar. Þessi
prestaköll eru: Njarðvíkur-
prestakall (Ytri/Innri Njarð-
vík), Patreksfjarðarprestakall
(Patreksíjarðar-, Sauðlauks-
dals-, Breiðavíkur- og Saur-
bæjarsóknir), Þingeyrar-
prstakall (Hrafnseyrar-Þing-
eyrar-, Mýra-, Núps- og Sæ-
bólssóknir). Og hið fjórða
prestakall er Hómavíkur-
prestakall (Kaldrananess-,
Drangsness-, Staðar-,
Hólmavíkur- og Kollafjarðar-
nesssóknir).
BARNADEILD Heilsu-
verndarstöðvarinnar, Baróns-
stíg. Opið hús nk. þriðjudag
kl. 15-16, fyrir foreldra
ungra barna. Umræðuefnið
verður hreyfiþroski barna.
LYFJAEFTIRLIT ríkisins. í
Lögbirtingablaði tilk. heil-
brigðis- og tryggingamála-
ráðuneytið að Guðrún Ey-
jólfsdóttir hafi verið sett sem
forstöðumaður Lyfjaeftirlits-
ins, til eins árs, — ársins
1992.
KÓPAVOGUR, féla&sstarf
aldraðra. Biblíulestur á
mánudag k. 14 í Fannborg 1.
KIRKJA
KÁLFATJARNAR- KIRKJA: Messa í dag kl. 14. Sr. Bjarni Friðriksson.
KIRKJUSTARF
GRENSÁSKIRKJA: Æsku- lýðsfundur í kvöld kl. 20.
HALLGRÍMSKIRKJA: Fundur í Æskulýðsfélaginu Örk mánudagskvöld kl. 20.
HÁTEIGSKIRKJA: Biblíu- lestur mánudagskvöld kl. 21.
LAUGARNESKIRKJA: Æskulýðsfundur í kvöld ki. 20.
NESKIRKJA: Mánudag: Æskulýðsfundur kl. 20.
SELTJARNARNES- KIRKJA:Fundur í æskuiýðs- félaginu í kvöld kl. 20.30. 10-12 ára starf mánudag kl. 17.30.
ÁRBÆJARKIRKJA: Æsku- lýðsfundur í kvöld kl. 20. Foreldramorgnar eru í safn- aðarheimili kirkjunnar þriðju- daga kl. 10-12.
FELLA- OG HÓLA- KIRKJA: Mánudag: Fyrir- bænir í kirkjunni kl. 19. Starf fyrir 11-12 ára börn kl. 18. Fundur í æskulýðsfélaginu mánudagskvöid kl. 20.30. Söngur, leikir, heigistund.
SELJAKIRKJA: Mánudag: Fundur hjá KFUK, yngri deild kl. 17.30, eldrideild kl. 18.30. Opið liús hjá æskulýðsfélag- inu SELA kl. 20. Helgistund.
SKIPIN
RE YK J A VÍKURHÖFN: Á mánudaginn er Brúarfoss væntanlegur að utan. I dag er togarinn Rauðinúpur, væntanlegur inn til viðgerðar, dreginn til hafnar. Þá var leiguskipið Orilíus væntan- legt að utan nú um helgina.
KR-konur halda aðalfund
sinn nk. þriðjudagskvöld kl.
20.30 í félagsheimili KR.
HAFNARFJARÐAR-
HÖFN: Hvítá var væntan-
leg af ströndinni um helgina.
Þetta sigurstranglega gengi hélt hlutaveltu til ágóða
fyrir Barnaspítala Hringsins og söfnuðust þar 3.300
krónur. Krakkarnir heita: Einar, Daniel, Þórdís, íris,
Ómar, Unnur, Auðunn, Ásta, Stefán, Guðrún Helga,
Guðmundur, Kolla og Hafdis. Þau eru nemendur í Selja-
skóla, Rvík.
MORGUNBLAÐIÐ
FYRIR 50 ÁRUM
Um þetta leyti árs árið
1942 var prentaraverk-
fall í Reykjavík og kom
Morgunblaðið því ekki
út. Verkfallið hófst um
áramótin. Var það í ann-
að skiptið í sögu blaðsins
sem prentaraverkfall
stöðvaði útgáfu þess, en
það gerðist fyrst í árs-
byijun 1923. Kom þá
fyrsta tölublað þess ár-
gangs 13. febrúar. Verk-
fallið 1942 stóð til 23.
janúar að fyrsta blað
þess árgangs kom út.
ORÐABOKIN
Brúna — brúnna
Fyrir nokkrum árum
fór ég að taka eftir því,
að ýmsir — einkum þó
ungt fólk — rugla saman
framburði tveggja falla
nokkurra kvk. orða, þ.e.
þf. et. og ef. ft., þegar
þessi orð eru með greini.
Ég held ég hafi fyrst tek-
ið eftir þessu í samb. við
no. brú. Þá er sagt sem
svo: Hann fór yfir brúnna,
þar sem eðlilegur fram-
burður er brúna, enda er
greinisendingin -na, sbr.
hi/ia í þf. et. Ef. ft. er
aftur hi/ma. Þá segjum
við sem svo, þegar um
tvær brýr er að ræða:
Hann gekk í átt til
brú/ma. Eðlilegur fram-
burður þessara falla er
svo allur annar, eins og
menn hljóta að finna. Ú-ið
er langt í þf., brú-na, en
stutt í ef., brúnna. Þetta
heyra trúlega flestir enn.
En því miður færist þessi
ruglingur í vöxt, enda er
hann farinn að sjást í riti.
— Þannig kom þessi fram-
burður fram í Mbl. fyrir
viku. Þá var sagt frá nýj-
um veitingastað, Skóla-
brúnni, með þessum orð-
um: „Þrír bjartsýnir ná-
ungar opna „Skóla-
brúnna" í Pósthússtræti
17.“ — Sennilega hafa
fleiri en ég hnotið um
þennan rithátt, enda átti
auðvitað að opna Skóla-
brúna. Fyrir nokkru
heyrði ég ekki betur en
útvarpsmaður segði: „Nú
fara menn til skósmiðsins
til þess að fá göngubrodda
yfir tánna,“ en ekki yfir
tána. Aftur láta menn
eitthvað á milli tánna.
- JAJ