Morgunblaðið - 19.01.1992, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JANUAR 1992
33
AF BRESKU SKALDKONUNNI RUTH RENDELL
FÁLÁT OG FEIMIN
eftir Bergljótu Ingólfsdóttur
ÞAÐ ER eftirtektarvert hve margar konur, í enskumælandi lönd-
um, hafa skrifað góðr sakamálasögur. Sumar eru enn að, sækja
sífellt í sig veðrið, svo ekki leggst sú sagnahefð af þó ókrýnd
drottning þeirra, Agatha Christie, sé farin á fund feðra sinna.
Ein þessara sagna-kvenna er breski rithöfundurinn Ruth Rendell,
hún vakti ekki verðskuldaða athygli í upphafi, skrifaði sögur í ára-
tug án þess að nokkuð af því kæmi fyrir aimenningssjónir. Nú fær
hún hver verðlaunin á fætur öðrum fyrir sögur sínar, alls hafa
komið út eftir hana 42 bækur og eftir mörgum þeirra hafa verið
gerðir sjónvarpsþættir og myndirí fullri lengd.
Ruth Rendell er nú á 62. ald-
ursári, fædd og uppalin í
London, móðir hennar
sænsk og faðir breskur. Hann hafði
þurft að hætta í skóla 14 ára gam-
ail til að vinna fyrir sér, var hafnar-
verkamaður en fór síðar í háskóla
og gerðist stærðfræðikennari. Móð-
ir hennar var haldin MS-sjúkdómi
og veikindi hennar þjökuðu allt
heimilislíf, telpan átti ekki gleðirík
æskuár að sögn.
Ruth hætti í skóla 18 ára gömul
og fór að vinna við blaðamennsku
á litlu hverfisblaði. Þar kynntist hún
ungum blaðamanni, Don, tilvonandi
eiginmanni, sem hún giftist tvítug
að aldri. Einkabarn þeirra, sonur,
fæddist þegar Ruth var 23 ára og
hætti hún þá að vinna utan heimil-
is. Þarna var hún komin ung móðir
í dæmigerðu bresku úthverfí og
byijaði að skrifa sögur sér til hugar-
léttis. Tilviljun réð því að hún tókst
á við sakamálasögur, hún hvorki
þekkti til slíkra mála af eigin raun
né var kunnug neinum sem lent
höfðu í slíkum hörmungum.
Það var árið 1965 sem persóna
Wexford rannsóknarlögreglustjóra
kom fram fullsköpuð á prenti. Síðan
hafa leiðir þeirra legið saman, rit-
höfundarins og lögreglustjórans, og
farið vel á með þeim. Eftir að sjón-
varpsþættir, gerðir eftir Wexford-
bókunum, voru teknir til sýninga,
en talið er að 11 milljónir manna
fylgist með þeim á skerminum,
hefur sala á bókum hennar aukist
að mun. í sumar er leið kom út ný
Wexford-bók, „Goin Wrong“, og
seldist í 240.000 eintökum í Bret-
landi á örfáum vikum. Wexford
hefur séð til þess að höfundurinn
þarf ekki að hafa áhyggjur af fjár-
hagslegri afkomu sinni það sem
eftir er ævi. Sá orðrómur var á
sveimi að höfundurinn væri farinn
að þreytast á að skrifa um lögreglu-
stjórann. Nú er jafnvel haldið að
Wexford-bókin, sem á að koma út
í febrúar, verði sú síðasta. Það er
þó ekki ástæða til að örvænta, enn
á eftir að gera þætti eftir mörgum
bókanna og ef til vill á leikarinn
George Baker eftir að túlka hinn
traustvekjandi Wexford enn um
sinn.
Fyrir fimm árum kom út bók
eftir Ruth Rendell, en undir skálda-
nafninu Barbara Vine, síðan hafa
fjórar bæst við, sú fimmta „King
Solomon’s Carpet", kom út í sept.
sl. Þessar bækur eru einnig saka-
mála- eða spennubækur, en þó ann-
ars eðlis en fyrri bækur hennar,
þar eru sálfræðiflækjur áberandi
og örvæntingarfullt fólk sem komið
er á ystu nöf. Eftir einni B. Vine-
bókinni, „A Fatal Inversion”, á að
gera kvikmynd, einnig verður gerð
kvikmynd eftir 15 ára gamalli bók:
„A Demon I My Wiew“ þar sem
Anthony Perkins á að fara með
aðalhlutverkið.
Ruth Rendell
býr nú í Suffolk
með manni sín-
um, í gömlu
húsi frá 16.
öld, þar
sem þau
eiga 11
ekrur
lands,
mikið af
því skóg-
lendi. Eig-
inmaður
hennar starf-
aði lengst af
sem þingfrétta-
maður hjá Daily
Mail, en hefur látið
af þeim störfum til
að sinna málefnum
konu sinnar sem orð-
in eru all umfangs-
mikil.
Ritstörfin eru Ruth
Rendell mikils virði, hún segir
líf sitt í raun hefjast þegar fyrsta
bókin kom út, þá var hún 33 ára
að aldri. Sú bók heitir „From Doon
with Death". Síðan hefur vart verið
hlé á ritstörfum hennar.
Það eru fleiri en hinn venjulegi
lesandi sem kunna að meta bækur
hennar, henni hefur verið sýndur
margvíslegur sómi af öðrum rithöf-
undum bæði austan hafs og vestan.
Samtök bandarískra sakamála-
sagna hafa þrisvar veitt henni
„Edgar“-verðlaunin, þau eru veitt
árlega og kennd við Edgar Allan
Poe (1809—1846), bandarískt ljóð-
og sagnaskáld. Hann er talinn upp-
hafsmaður sakamálasögunnar.
Heima fyrir
hefur Ruth
Rendell
fengið bók-
mennta-
verðlaun
„The
Sunday
Times“
(árið
1990) og
nú rétt fyr-
ir áramót
fékk hún í
fjórða sinn
verðlaun bre-
skra saka-
málasagnahöf-
unda, „Gold
Dagger" eru þau
nefnd og reyndar
.Diamond Dag-
ger“-verðlaunin
^rj -nn'g-
Ruth Rendell er lítið
fyrir að vera í sviðsljósinu,
hún afþakkar boð um fyrirlestra-
hald, opnun sýninga og annað í
þeim dúr. Hún þykir fálát, jafnvel
feimin og á sumum myndum á bók-
askápum virðist hún döpur á svip.
Hún er þó sögð hlýleg og glöð í
hópi góðra vina en hún stendur
vörð um einkalíf sitt.
í útliti og framgöngu er henni
lýst sem dæmigerðri breskri milli-
stéttarkonu, hún er dökkhærð,
stuttklippt, látlaust klædd og án
alls skrauts. En augun vekja at-
hygli, þau eru óræð, jafnvel dulúðug
°g þykir engum mikið hjá konu sem
í 25 ár hefur helst haft það fyrir
stafni að spinna listilega þræði sak-
amálasögunnar.
Samtök
landflutn-
íngamanna
stofnuð
STOFNFUNDUR Samtaka
landflutningamanna,
skammstafað SLF, var hald-
inn miðvikudaginn 15. jan-
úar 1992.
Þeir sem standa að samtök-
unum eru: Bandalag íslenskra
leigubifreiðastjóra, Félag hóp-
ferðaleyfishafa, Félag sér-
leyfishafa, Félag vinnuvélaeig-
enda, Landssamband vörubif-
reiðastjóra, Landvari og
Trausti, félag sendibifreiða-
stjóra. Oll félögin eru stofnaðil-
ar með fyrirvara um samþykki
stjórna og aðalfunda viðkom-
andi félaga.
Tilgangur samtakanna er að
vera samstarfsvettvangur
þeirra sem gera út bifreiðir og
vinnuvélar í atvinnuskyni og
koma fram sem fulltrúi allra
aðildarfélaga út á við, þegar
það á við. Meginverkefnið
verður að fá lækkun á rekstrar-
kostnaði bifreiða sem gerðar
eru út í atvinnuskyni. Einnig
verða samtökin vettvangur við-
ræðna aðildarfélaga í málum
þar sem hagsmunir skarast.
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
Heilsutöflur
Verndib fæturna
Verð: 2.995,- Stærðir: 36-42. Litir: Hvítt + beige.
Ath.: Gott, formað innlegg fyrir táberg og il,
einnig góð teygja yfir rist fyrir þreytta fætur.
Landsins mesta úrval af heilsuskóm.
Póstsendum samdægurs. 5% stabgreidsluafsláttur.
Domus Medica, Toppskórinn, Kringlunni,
Egilsgötu 3, Veltusundi, Kringlunni 8-12,
sími 18519 sími 21212 simi 689212
Bókamarkaðurinn,
Kringlunni, 20.2-5.3 '92
Til almenningsbókasalna
Hinn árlegi bókamarkaður Félags íslenskra bókútgef-
enda verður haldinn í Kringlunni og hefst þann
20. febrúar til 5. mars.
Nánari upplýsingar veröa sendar til ykkar á næstunni.
Framkvæmdaaðili
HEILDSÖLU
R Y
I N G A S A L A
HEFST MÁNUDAGINN 20. JANÚAR
RÝMUM FYRIR NÝJUM FATNAÐI
HOLLENSKA VERSLUNARFÉLAGIÐ
FAXAFEN 9, 2. HÆÐ T.V. OPIÐ FRÁ KL. 10-17