Morgunblaðið - 19.01.1992, Page 4

Morgunblaðið - 19.01.1992, Page 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1992 Slíkt tókst engum öðrum leiðtoga svo nefndra borgaraafla á Norður- löndum. Olafur Thors var í forystusveit þeirra, sem loksins tókst að breyta ólýðræðislegri kjördæmaskipun landsins eftir miðja öldina, því mið- ur að vísu hálfri öld of seint. En ranglát kjördæmaskipun hafði allar götur síðan íslandi var fyrst sett stjórnarskrá 1874 beint þróun þjóð- mála á rangar brautir, einkum þó eftir að átök um innanlandsmál og hagsmuni urðu aðalatriði stjóm- málabaráttunnar. í þriðja lagi hafði Ólafur Thors við upphaf sjöunda áratugarins for- ystu í ríkisstjórn, sem gerbreytti efnahagslífi og í raun og veru þjóð- lífi íslendinga, sagði skilið við þriggja áratuga úrelta og skaðlega haftastefnu og lagði grundvöll að frjálsræði og heilbrigðri samkeppni í atvinnumálum og viðskiptum, samhliða velferðarsjónarmiðum til þess að stuðla að jafnvægi og jafn- rétti í þjóðfélaginu. Þegar ég tók sæti á Alþingi árið 1946, þá aðeins 29 ára gamall og yngstur þingmanna; þekkti ég Ólaf Thors ekki neitt. Eg vissi þó, að honum var lítið um mig gefíð. Það mun upphaflega hafa átt rót sína að rekja til afskipta minna af skiln- aðinum við Dani í upphafi styrjald- arinnar, en ég var eindreginn fylgis- maður svo nefnds lögskilnaðar, en sá hópur beitti sér mjög gegn stefn- unni, sem Ólafur Thors og Bjami Benediktsson vom aðalforystu- menn fyrir og við_ nefndum hrað- skilnaðarstefnu. Á þessu fyrsta þingi mínu var Keflavíkursamning- urinn svo nefndi aðalmálið og leiddi til stjómarslita í Nýsköpunarstjórn- inni, þar sem Ólafur Thors var for- sætisráðherra. Ég var andstæðing- ur Keflavíkursamningsins ásamt einum flokksbróður mínum og átta af þrettán þingmönnum Framsókn- arflokksins, þar á meðal aðaland- stæðingi Ólafs Thors, Hermanni Jónassyni, formanni Framsóknar- flokksins, auk alls Sósíalistaflokks- ins. Við því var ekki að búast, að kynni hæfust milli okkar. Í þessu sambandi er þess og að geta, að á þessum ámm var umburðarlyndi gagnvart andstæðingum lítið og óvild milli stjómmálamanna með ólíkar skoðanir miklu meiri en síðar varð. Á næstu ámm varð ýmislegt fleira til þess, að milli okkar Ólafs Thors var ekkert samband. Með hliðsjón af því, sem síðar gerðist, má telja furðulegt, að 14-15 fyrstu árin mín á Alþingi liðu þannig, að ég kynntist Ólafi Thors ekki neitt. Á æskuámm varð ég eindreginn jafnaðarmaður. Ég varð aldrei marxisti, þar eð ég var fylgjandi lýðræði og þingræði. En eins og nær allir jafnaðarmenn þess tíma var ég fylgjandi þjóðnýtingu og áætlunarbúskap. Smám saman breyttust þó skoðanir mínar, eins og raunar flestra jafnaðarmanna í Vestur-Evrópu. Við urðum fylgj- andi markaðsbúskap, sem þó yrði að mótast af velferðarsjónarmiðum. Ég varð annar af tveim ráðhermm Alþýðuflokksins í ríkisstjórn Her- manns Jónassonar 1956-58. Árangur stjómarsamstarfsins olli mér vonbrigðum. Haldið var fast við haftastefnu undanfarinna ára- tuga. Nú fannst mér reynslan sýna, að slík stefna væri röng. Þegar Emil Jónsson myndaði minnihlutastjóm Alþýðuflokksins í árslok 1958 með stuðningi Sjálf- stæðisflokksins, hófust jafnframt viðræður um hugsanlegt stjómar- samstarf þessara flokka. Það voru Ólafur Thors og Emil Jónsson, sem hófu þessar viðræður. Kjarni þeirra hlaut að verða, hvort samstarf gæti tekizt um gerbreytingu á stefnunni í efnahagsmálum. Olafur Thors var sá af forystumönnum sjálfstæðismanna, sem mestan skilning og áhuga hafði á þeim málum. Þótt Emil Jónsson væri að sjálfsögðu aðalmálsvari Alþýðu- flokksins, bað hann mig um að ræða þessi mál við Ólaf Thors. Það hefur eflaust verið í fyrsta skipti, sem við Ólafur Thors sátum saman við fundarborð. Þótt ég þekkti Ólaf Thors ekki, hafði ég eins og margir aðrir talið hann slóttugan stjómmálamann, glæsilegan ræðumann, en oft létt- úðugan í málflutningi, án þess þó að það eyðilegði þá persónutöfra, sem hann augljóslega hafði. Mér til talsverðrar undrunar kynntist ég nú allt öðmvísi manni. Það kom mér á óvart, hversu glöggur Ólafur var á tölur og hversu fljótur hann var að átta sig á efnahagsvanda- málum og rökum á því sviði, sem ýmsir aðrir töldu nánast sérfræði. Ég fann, að hér var um að ræða mikinn alvörumann, sem vildi kanna hvert mál til hlítar. Hann var augljóslega að leita að sem rétt- Iátastri lausn á hvéiju máli og hafði gert sér fullkomna grein fyrir því, að á sviði efnahagsmála skiptir fleira máli en íjármunir og hags- munir. Þar þarf einnig að leiða hugann að tilfinningum og réttlæti. Það kom mér satt að segja einnig á óvart, hvernig Ólafur talaði við mig í þessum viðræðum. Aldurs- munur okkar var slíkur, að hann hefði getað verið faðir minn. Samt ræddi hann við mig eins og jafn- ingja. Við kynntumst ótrúlega fljótt. Það var honum að þakka. í Viðreisnarstjórninni varð mér ljóst, að Ólafur Thors var mikill stjórnmálamaður. Hann tók aldrei erfitt vandamál eða viðkvæmt deilumál fyrir á ráðherrafundi, nema við ráðherrar Alþýðuflokksins hefðum áður fengið um það að vita og hann hefði rætt það við okkur, einn okkar eða okkur alla. Auðvitað sýndist oft sitt hveijum. En Ólafur lagði sig jafnan fram um að fínna sanngjama lausn og kaus að und- irbúa hana í einkasamtölum. Það var auðvelt fyrir okkur Alþýðu- flokksráðherrana að tala við hann um þau mál, sem við höfðum sér- stakan áhuga á, félagsmál og menntamál. Af þessari ástæðu m.a. var það sjálfsagður hlutur, að flokk- arnir eða einstakir ráðherrar bæru ekki ágreining sinn á torg utan stjórnarráðsins, er samkomulag hafði verið gert. Ekkert væri samt fjær sanni en að tala um „hrossakaup" í þessu sambandi. Ólafur Thors talaði aldr- ei í mín eyru um stuðning Alþýðu- flokksins við eitt mál gegn stuðn- ingi Sjálfstæðisflokksins við annað. Og hann hefði aldrei getað sagt, að nú ætti ég að gera eitthvað fyr- ir sig, af því að hann hefði gert eitthvað fyrir mig. Það hefði ekki verið sá Ólafur Thors, sem ég var búinn að kynnast. Ólafur Thors vann störf sín ekki fyrst og fremst á skrifstofu sinni. Hann byijaði starfsdaginn yfírleitt heima hjá sér og talaði við menn í síma. Hann hringdi oft í mig á morgnana og æ oftar, eftir að sam- starf okkar varð nánara. Stundum varð samtalið örstutt, ef ekkert sérstakt var á döfinni. En það gat orðið langt. Og það var alltaf gagn- legt. Þegar Ólafur Thors lét af störfum sem forsætisráðherra sökum heilsu- brests haustið 1963, hætti hann að sjálfsögðu að hafa jafnnáin sam- skipti við samstarfsmenn og vini og hann hafði áður haft. En ég hringdi oft til hans til þess að leita hjá honum ráða og segja honum fréttir. Það varð til þess, að hann hringdi til mín eins og áður. Ein- hverju sinni var á döfinni erfitt vandamál, sem ríkisstjórnin var í þann veginn að taka ákvörðun um. Ég sagði honum frá því. Á næsta ráðherrafundi, þegar fjallað var um málið, sagði Bjarni Benediktsson, og var alvarlegur á svip, að Ólafur Thors væri á móti málinu og hefði rétt fyrir sér. „En ekki veit ég, hvernig hann hefur frétt af þessu,“ bætti hann við. Ég sagði ekkert á fundinum. En eftir hádegi fór ég til Bjarna og sagði honum sem var. Og nú bætti ég við, að vonandi hefði ég ekki gert rangt með því 3 að segja Olafi frá málinu. Þá svar- aði Bjarni, með þeirri hlýju og ein- lægni, sem honum var gefin: „Nei, þvert á móti. Auðvitað átti ég að vera búinn að segja honum frá þessu. Viðbrögð Ólafs voru rétt eins og fyrri daginn.“ Ólafur Thors var mikill stjórn- málamaður. Hann markaði djúp spor í sögu íslands á þessari öld. Hann var dáður leiðtogi stærsta flokks landsins. Hann var glæsileg- ur. En hann var ekki harður og óvæginn. Hann var þvert á móti mildur maður og góðviljaður. Ég held, að sú mynd, sem flestir höfðu af Ólafi Thors sem vígreifum baráttumanni, gamansömum manni, sem ávallt lék á als oddi, hafi verið röng. Ég held, að þeir, sem þekktu hann bezt, hafi vitað, að stundum var hann á þennan hátt að veija viðkvæmt geð sitt. Hann var meiri alvörumaður en gleðimaður, og kunni hann þó sann- arlega að gleðjast. En gleðskapur var samt ekki hans innsta eðli. Mér er nær að halda, að hann hafi ef til vill verið feiminn innst inni. Góðvild hans og hjartahlýja var einstök. Og sannleikurinn er sá, að stjórnmálaskoðanir Ólafs Thors mótuðust ekki síður af mannúðar- stefnu en trú á einstaklingsframtak og frelsi. Mig langar til þess að ljúka þess- um orðum með því að vitna í fal- legt ævintýri eftir franska skáldið Saint-Exupéry, Litla Prinsinn, sem Þórarinn Björnsson skólameistari þýddi á íslenzku. Litla Prinsinum var trúað fyrir Ieyndarmáli. „Það er mjög einfalt: maður sér ekki vel nema með hjartanu. Það mikilvæg- asta er ósýnilegt augunum." Ólafur Thors hafði þann mikla hæfileika að sjá með hjartanu. Þannig sá hann það, sem er mikil- vægast. Ekki hvað sízt þess vegna var hann mikill stjómmálamaður. Gylfi Þ. Gíslason SÉRFRÆÐINGA greinir á um hve- nær barn skynji sig sem sjálfstæða persónu. Vísindalega verður það víst seint sannað, en í mínum huga er það er ég sat á hné föður míns á stjómmálafundi vestur á Snæ- fellsnesi. Þaðan er sú bernskuminn- ing, að einn ræðumanna, Ólafur Thors, spurði mig að nafni og í áheym ókunnugra varð ég að segja til nafns. Minning mín um Ólaf á þessum fundi er mjög sterk, þótt á þessum tíma væri hann ólíkur þeirri ímynd, sem við höfum af honum í dag. Hann var rétt meðalmaður á hæð, grannvaxinn, kvikur í hreyf- ingum og ekki búinn að leggja sér til sitt mikla hvíta hár, sem féll svo vel að persónuleika hans. En út- geislunin var sú sama og svo sterk, að ekki man ég eftir öðrum ræðu- mönnum frá þessum fundi. Ekki hvarflaði að mér, að kynni mín við þennan mikla stjórnmála- leiðtoga yrðu meiri. En atvikin hög- uðu sem betur fer svo til, að þau kynni áttu eftir að verða mikil og góð. Við hlið míns væntanlega eig- inmanns, Magnúsar Jónssonar frá Mel, varð ég aftur að stynja upp nafni mínu við Ólaf Thors, litlu brattari en fyrir vestan forðum. En hlýjan og velvildin sem streymdi frá Ólafi þurrkaði fljótlega burt alla feimni. Litlu síðar þegar við Magn- ús stóðum frammi fyrir því að eiga kost á íbúð og hefja búskap áttum við ekki fyrir tilskilinni fyrirfram- greiðslu. Þá var ekkert eðlilegra en að leita til Ólafs. Svarið sem Magn- ús fékk var dæmigert fyrir greiða- semi og tilsvör Ólafs: „Enga víxla eða pappíra, ég lána þér þetta sjálf- ur. Ég treysti þér strákur." Dreng- skapur og heiðarleiki Ólafs kom þannig fram í trú og trausti til annars fólks. í dag er gjarnan bent á það sem ástæðu fyrir minnkandi virðingu almennings á stjórnmálamönnum, að með tilkomu sjónvarps og ann- arra fjölniðla séu þeir komnir of mikið inn á heimili fólks. Og sé útlit og framkoma ekki í samræmi við tískukröfur líðandi stundar verði þeir úti í kuldanum. Slæmt er ef svo er komið, að ytra útlit ráði meiru um brautargengi æðstu ráða- manna okkar, en vitsmunir og úr- ræði til góðra verka. Ólafur Thors hefði hinsvegar engu þurft að kvíða í þessu efni. Hann hafði mikla per- sónutöfra til að bera og heillandi (SJÁ BLS. 6 B) Forsætisiáðherrahjónin Ingibjörg og ðlafor Thors ásamt forsætisráð- herrahjónunum frá fsrael, David Ben - Gurion og frú. Sjómannadagurinn 1953: ðlafur Thors, sjávarútvegsráð- herra, ásamt Gróu Pétursdðttur og Guðmundi Guðmunds- syni, sem voru heiðruð hann dag af Sjómannaráói.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.