Morgunblaðið - 19.01.1992, Page 6

Morgunblaðið - 19.01.1992, Page 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1992 framkomu. Og ekki minnist ég þess á mínu heimili, að virðing fyrir hon- um hafi minnkað við að rödd hans og skoðanir hafi svo að segja dag- lega borist inn á heimilið, að vísu mest í gegnum síma í þau ár er eiginmaður minn var framkvæmda- stjóri Sjálfstæðisflokksins. Við- brögð barnanna voru gjarnan eftir að hafa svarað í símann: „Það er skemmtilegi maðurinn með skrýtna hárið.“ Framkoma hans var ávallt hin sama og á fundinum á Snæfells- nesi, þrátt fyrir annir skyldi tekið eftir börnunum og þeim sýndur áhugi og virðing. Ólafur Thors var áberandi í ís- lensku þjóðlífi og þekktur maður vegna stöðu sinnar og persónuleika, en í raun reyndi hann að komast undan veislum og samkvæmislífi og öll sýndarmennska var honum víðs fjarri. Hann var sívinnandi, ekki á flokksskrifstofu frá níu til fimm, heldur vann hann mest heima hjá sér. Hann kallaði til sín fólk og vann mikið í gegnum síma. Ólafur var nánast hringjandi á öllum tím- um sólarhringsins til að leggja línur í flokksstarfinu og til að fylgja málum eftir. Það gat orðið æði hvass tónn í símanum, ef málum var ekki komið í það horf er hann hafði óskað. En Ólafur hafði þá reglu sem einnig er sögð undirstaða að góðu hjónabandi; þótt deilt sé að degi, skal aldrei leggjast ósáttur til svefns. Engan mann hef ég þekkt, sem átti eins auðvelt með að biðja um fyrirgefningu og sætt- ir, eins og Ólaf Thors. Ólafur Thors var mikill jafnréttis- sinni, taldi að konur ættu að taka meiri þátt í stjómmálum og mótun þjóðfélagsins. Hann var því mikill hvatamaður að stofnun félaga sjálf- stæðiskvenna, því þar gæfíst kon- um kostur að kynnast starfsemi flokksins og gætu styrkt sjálfs- ímynd sína til frekari þátttöku í stjómmálum. Sjálfsagt hefur þar mestu ráðið hans meðfædda réttlæ- tiskennd. Það hefur hins vegar ekki spillt fyrir áliti hans á konum, hversu mjög hann dáði og virti eig- inkonu sína, Ingibjörgu. Hún var honum hollur ráðgjafi sem aldrei haggaðist. Ingibjörg var mikill unn- andi lista og menningar og var víð- lesin. Hún var yfirveguð og varðist að taka afstöðu fyrr en hún var búin að vega og meta mál frá öllum hliðum. í stormi og misvindasömu veðri stjómmálanna er geisuðu kringum Ólaf hefur slíkur lífsföru- nautur og hollvinur sem Ingibjörg, verið honum stór þáttur í mikils- virtu ævistarfi. Þótt öldinni sé ekki lokið fer ekki hjá því að telja Ólaf Thors einn mesta stjómmálamann íslands á þesgari öld. Hann var formaður stærsta stjómmálaflokks landsins á mesta breytinga- og framfaraskeiði þess. Hjá honum fóru saman var- fæmi, viska og mikil réttlætis- kennd. Hann vildi byggja upp þjóð- félag frjálsra einstaklinga og hvetja þá til orða og athafna. Fyrir þaði er þjóðin honum þakklát. Persónu- lega þakka ég forsjóninni fyrir þá giftu, að hafa átt eitt lítið spor í samtíðinni með Ingibjörgu og Ólafí Thors. Ingibjörg Magnúsdóttir ÞEGAR MINNST er Ólafs Thors, fyrrum formanns Sjálfstæðisflokks- ins og forsætisráðherra, hrökkva fá orð skammt. Slík voru áhrif hans á sögu lands og lýðs. Hann gerðist þingmaður árið 1926 og var óslitið einn tilþrifa- mesti leiðtoginn á Alþingi unz yfir lauk 31. desember 1964. Það verður hlutskipti hans að mynda fimm sinnum ráðuneyti og bera þunga stjórnarforustu við mis- jafnar aðstæður. Hann sinnir af áhuga og einurð hinum margvísleg- ustu málum. Á stjórnmálaferli hans ber hæst: Þátt hans í stofnun full- veldis á íslandi 1944, raunsæa for- ustu í utanríkismálum, sem aldrei brást, og langa og stranga baráttu með öðram góðum mönnum, fyrir að tryggja okkur íslendingum rétt- inn yfír fískimiðunum umhverfís landið. En Ólafur Thors var ekki ein- Þingflokkur sjáifstæðismanna hausiið 1959. göngu formaður Sjálfstæðisflokks- ins og brautryðjandi mikilla mála. Hann var fyrst og fremst málsvari fólkins í landinu. Fáir höfðu betri skilning en hann á erfiðleikum og raunum náungans. Til þess að jafna metin yrði umhyggjan og skynsem- in að ráða ferðinni. Löng og ströng lífreynzla hafði kennt honum, að óskhyggjan ein næði skammt, er á reyndi og á móti blési. Frá því er Ólafur Thors tók við formennsku í Sjálfstæðisflokknum og til ioka var hann ókrýndur leið- togi stuðningsmanna flokksins og áhrifa hans gætti langt út fyrir flokksmörkin. Hann athugaði gaumgæfílega skoðanir annarra og virti og fór ekki í manngreiningar- álit. Akvarðanir hans vora rök- studdar og ótvíræðar. Náin kynni mín af Ólafi Thors hófust haustið 1949, er ég fór í framboð fyrir Sjálfstæðisflokkinn á Akureyri. Kosningahorfur vora tví- sýnar og Ólafur kom norður flokks- mönnum til halds og trausts. Ég minnist þess, að Ólafur hvorki latti mig né hvatti til þess að takast þennan vanda á hendur. Sjálfur vissi hann, að þingmennskan væri ekki einhlítur dans á rósum. Ég hlyti að mestu að hverfa frá lög- fræðistörfum mínum á Akureyri og framtíðin því í nokkurri óvissu. Ég fann þó strax hlýhug hans í minn garð. Áður hafði ég nokkuð kynnst honum, er ég gegndi störfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn á Norður- og Austuriandi. Eftir að ég kom á þing var mér jafnan tekið opnum örmum á heim- ili Ólafs og frú Ingibjargar í Garða- stræti. Ingibjörg var einstök kona og öllum ógleymanleg, er henni kynntust. Hún var manni sínum allt í öllu, óbifanleg stoð og stytta. Ég, ungur maður að norðan, átti því láni að fagna að njóta velvildar og gestrisni þeirra hjóna eins og svo margir aðrir. Að spjalla við Ólaf á skrifstofu hans í góðu tómi var lærdómsríkur skóli. Þá bar oft margt á góma. Hann var svo skemmtilegur og hnyttinn í svörum og tíminn flaug áfram. Þrátt fyrir glettnina duldist engum, að alvaran bjó undir. Ólafur vildi hafa náið samband við þingmenn. Eitt sinn kom ég suður án þess að gera vart við mig. Er norður var komið símaði Ólafur og sagði að ég hefði þó getað Iátið í mér heyra án þess að tefja hann með heimsókn. Rétt er að hafa það í huga, að þá var öðruvísi en nú að tala á milli landshluta og sveita. Að vinna með Ólafi Thors var öllum lærdómsríkt, flokksmönnum sem andstæðingum. Hann var hreinskiptinn og gat verið hvassyrt- ur. Fáir hafa sagt mér eins ræki- Iega til syndanna, er þeim mislík- aði. En hann var fljótur að jafna ágreining og koma málum til betri vegar. Það var ekki ætíð auðvelt að sannfæra og að fá samþykki Ólafs Thors. í ævisögu hans eftir Matt- hías Johannessen er á blaðsíðu 387 í síðara bindi frásögn mín um það með hvaða hætti hann, ásamt öðr- um, hrundu því áleiðis, að Útgerðar- félag Akureyringa hf. fengi fjár- magn til þess að reisa hraðfrysti- hús. Að mínu mati lýsir sú saga mjög vel vinnubrögðum Ólafs. Hann vildi fara að öllu með gát. Þegar hann hafði tekið ákvörðun stóð ekki á framkvæmdum. Ólafur Thors er einn þeirra manna, sem ekki gleymast þeim, er honum kynntust. Ég minnist hans sem hins trausta foringja og umhyggja hans fyrir hag annarra er mér hugstæð. Nú, er liðin eru 100 ár frá fæð- ingu Ólafs Thors, þökkum ég og kona mín gömlu og góðu kynnin og óskum ættingjum hans gæfu og gengis. Við minnumst og konu hans, frú Ingibjargar, með þökk og virðingu. Jónas G. Rafnar ÖLD ER liðin frá fæðingu Ólafs Thors. Hann fæddist þennan dag, 19. janúar, árið 1892 í Borgarnesi, en andaðist í Reykjavík 31. desem- ber 1964. Ólafur Thors var einn svipmesti stjórnmálaleiðtogi okkar íslendinga í áratugi. Faðir hans, Thor Jensen, var einn af mestu framkvæmda- og athafna- mönnum þjóðarinnar, bæði á sviði sjávarútvegs og landbúnaðar. Ólaf- ur kynntist því snemma atvinnu- málum og framþróun þeirra. Hann lærði fljótt að þekkja lífsbaráttu fjöldans í þessu landi og sá, eins og faðir hans, að það var fyrst og fremst traust atvinnulíf og framþró- un þess sem tryggði lífsafkomu þessarar þjóðar. Ungur að áram hóf hann af- skipti af stjórnmálum. Hann var kjörinn á þing fyrir Gullbringu- og Kjósarsýslu árið 1926 og var þing- maður þess kjördæmis til ársins 1959, en eftir kjördæmabreyting- una það ár, varð hann þingmaður Reyknesinga til ársins 1964. Hann varð formaður Sjálfstæðisflokksins við fráfall Jóns Þorlákssonar árið 1935 og var það óslitið til ársins 1961 að hann baðst undan endur- kosningu og við formennsku tók þá vara/ormaður flokksins og náinn vinur Ólafs, Bjarni Benediktsson, sem gegndi þessu starfi ásamt for- sætisráðherraembættinu frá haust- inu 1964 til dauðadags á árinu 1971. Þegar Ólafur tók við forystu Sjálfstæðisflokksins höfðu jafnað- armannaflokkar á hinum Norður- löndunum aukið mjög fylgi sitt og voru sterkustu flokkar hver í sínu landi. Ólafi var það ljóst að ekkert var Sjálfstæðisflokknum meira virði en að hann væri samtök breiðrar fylkingar sem hefði einstaklings- hyggjuna að leiðarljósi, en tæki þó fullt tillit til allra stétta og legði grundvöllinn að því að skapa betra og réttlátara líf fyrir allar stéttir þjóðfélagsins. Þess vegna varð Sjálfstæðisflokkurinn þá, og síðar, það stjórnmálaafl sem fólk úr öllum stéttum þjóðfélagsins gat stutt og starfað innan hans vébanda. Flokk- urinn hélt ávallt velli sem stærsti fiokkur þjóðarinnar og áhrif hans jukust frá ári til árs. En vegna mjög óréttlátrar kjördæmaskipunar höfðu aðrir flokkar stjórn landsins lengi vel eftir að Ólafur tók við formennsku í Sjálfstæðisflokknum og var Sjálfstæðisflokkurinn jafnan í stjórnarandstöðu þegar undan er skilin stjórn sem Sjálfstæðisflokk- urinn tók þátt í 1932. En svo var komið málum í ís- lensku þjóðfélagi að andstæðing- arnir töldu að ekki væri lengur hægt að stjórna þjóðfélaginu nema með aðild Sjálfstæðisflokksins og þá varð það úr að Sjálfstæðisflokk- urinn gekk til stjórnarsamstarfs við Framsóknarflokkinn og Alþýðu- flokkinn í aprílmánuði 1939. Ólafur Rstt við erlendan fréttamann.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.