Morgunblaðið - 05.02.1992, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 1992
HANDKNATTLEIKUR / HEIMSMEISTARAKEPPNIN 1995
Laugardalshöll á grænlitu
Ijósi hjá tækninefnd IHF
Handknattleikssamband íslands óskareftiráframhaldandi viðræðum við Reykjavíkurborg
TÆKNINEFND Alþjóða hand-
knattleikssambandsins, IHF,
ssm fundaði íVín um helgina,
tók vel í hugmyndir HSÍ varð-
andi breytingar á Laugardals-
höll með úrslitaleik heims-
meistarakeppninnar 1995 í
huga. Jafnframt samþykkti hún
að leggja til að 24 lið tækju
þátt í keppninni, en ekki 16
eins og verið hefur. HSÍ ætlar
að óska eftir áframhaldandi
viðræðum við Reykjavíkurborg
um málið.
HSÍ lagði fram g'ógn fyrir fund-
inn, sem Jón sagði að hefðu
verið unnin á vegum íþrótta- og
tómstundaráðs um endurbætur á
Laugardalshöll, þar sem m.a. er
gert ráð fyrir áhorfendabekkjum
meðfram sviðinu í Höllinni, endur-
bættu anddyri, aðstöðu fyrir frétta-
menn og auglýsingum fyrir aftan
mörkin. Jón Hjaltalín Magnússon,
formaður HSÍ, sagði við Morgun-
blaðið að tækninefndin hefði tekið
vel í þessar hugmyndir og myndi
leggja þær fyrir stjórnarfund IHF
í aprll og síðan alþjóða þingið í
Barcelona í júlí, þar sem endanleg
ákvörðun varðandi HM 1995 verður
tekin. Jón sagði að tækninefndinni
hefði sérstaklega litist vel á að hafa
auglýsingar fyrir aftan mörkin, því
þær gæfu HSÍ og IHF auknar tekj-
ur, en þetta yrði að kanna nánar í
samráði við EBU vegna reglna í
sambandi við sjónvarpsútsendingar.
Jón sagðist vera ánægður með
viðbrögð tækninefndarinnar. „Ég
er mátulega bjartsýnn og nú verð-
um við að undirbúa heimavinnu
okkar vel. Næsta skref hjá okkur
er að óska eftir áframhaldandi við-
ræðum við Reykjavíkurborg um
breytingar á Laugardalshöll og
framkvæmd keppninnar við þessar
aðstæður. Við munum vinna áfram
að því að sannfæra stjóm IHF og
þingfulltrúa í Barcelona um það að
við getum haldið HM á Islandi
þannig að keppnin verði handknatt-
leiksíþróttinni til sóma.“
Jón sagði að HSÍ hefði lagt til
að keppnin færi fram á fjórum stöð-
um; í Laugardalshöll í Reykjavík,
Bræður - botninn er
suður í Borgarfirði
Nú er dómur genginn í máli
Víkings á hendur Valsmönn-
um vegna bikarleiks_ liðinna á dög-
tinum. Dómstóll HSÍ hefur sýknað
Val af kröfum Víkings. Það verða
því Valur og FH sem leika til úr-
slita í bikarkeppni HSÍ 1992. Við
Víkingar óskum Valsmönnum velf-
amaðar í þeim leik — málinu er
lokið af okkar hálfu. Gangi ykkur
allt í haginn, Valsmenn.
Það setur hins vegar skugga á
bikarleik Vals, að nokkrir lykilleik-
menn liðsins eiga í meiðslum og
verða því væntanlega fjarri góðu
gamni þegar til alvörunnar kemur
gegn vöskum Hafnfirðingum.
Raunar hafa fuglar hvíslað því í
Hafnarfirði undanfarna daga, að
gott sé að glíma við Valsmenn eins
og málum háttar — jú, meiðslin hái
^iðinu og raunar hafa sömu fuglar
hvíslað, að ef dómur hefði gengið
Víking í vil, þá hefði það jafnvel
þýtt að bikarúrslitin frestuðust
fram í maí. Bikarúrslitin því í upp-
námi ef dómur hefði gengið Víking
í vil.
En ekki hvarflar að mér, að hin-
ir sömu fuglar hafi flögrað um
dómssal HSI. Þó er óhjákvæmilegt
að víkja nokkrum orðum að dómin-
um, svo furðulegur og illa grundað-
ur sem hann er — í raun með ólík-
indum. Víkingar vissu að dómur
gat fallið á hvorn veginn sem var,
en hins vegar kom okkur rökstuðn-
ingur meirihluta dómstóls HSI í
opna skjöldu.
í dómstól HSÍ mynduðu. meiri-
hluta fyrrum markvörður í Val og
skytta úr FH og svo hafnfirskur
lögvitringur. Einn dómara sem á
gifturíkan dómaraferil við æðstu
dómstóla landsins skilaði séráliti og
dæmdi að leikurinn umdeildi skyldi
ógildur og leikinn að nýju.
Hann segir sem svo; — léikur
Vals og Víkings fór ekki fram sam-
kvæmt settum reglum. Dómstóll
HSÍ hljóti að halda sig við skráðar
reglur um framkvæmd leikja og
hann — dómstóllinn, hafi ekki heim-
ild til þess að víkja frá þeim. Sé
vikið frá þessari stefnu sé augljós
hætta á upplausn. Því skuli leikið
að nýju.
Þetta er kjarni málsins.
Markvörður, skytta og lögvitr-
ingur
Dómaramir þrír — markvörður-
inn, skyttan og lögvitringurinn voru
sammála um að gera þurfi „nokkuð
^strangar" kröfur um framkvæmd
leikja. Þeir eru sammála um að
eftirHall Hallsson
„upplýst sé og óumdeilt að leikhlé
var tekið ... þótt um það séu deild-
ar meiningar með aðilum hvort það
hafi leitt til reglugerðarbrots ..
Þeir eru sem sagt sammála um
að leikhlé var tekið, en fara síðan
út í heimspekilegar vangaveltur í
þeim tilgangi að sannfæra sig um
að leikhlé hafí alls ekki verið tekið!
Orðrétt segir í hinum makalausa
dómi þar sem hvað rekur sig á
annars hom:......Hjá því verður
hins vegar ekki komist að ... alltaf
verða tafir af einum og (!) öðrum
orsökum og dómarar geta þurft, að
stöðva leik til þess að huga að fram-
kvæmd hans (sic). Það er einnig
óhjákvæmilegt að nokkurt hlé verði
á leik við það eitt að skipta um
vallarhelming (svo). Það verður hins
vegar að fara mjög varlega í að
jafna þessum töfum við leikhlé í
þeim skilningi sem lagður er í reglu-
gerðum HSI.“
Svo mörg eru orð þríeykisins.
Þeir sem sagt reyna að sannfæra
sig um að leikhlé hafi alls ekki ver-
ið tekið! Samt gengu dómarar og
leikmenn til búningsherbergja. Og
í hátalarakerfi var tilkynnt leikhlé!
En útherjinn, skyttan og lögvitring-
urinn haldast í hendur. Einbjörn
leiðir tvíbjöm sem leiðir þríbjöm
sem leiðir ... í makalausri vitleys-
unni villast þeir í þokunni, sem því
miður létti ekki í hugskotum þeirra.
Og handknattleikshreyfingin sit-
ur uppi með vitleysuna. Dómarinn
í minnihluta víkur að mikilvægi
formreglna og segir:....svo sem
rakið var, hafa verið gerðar strang-
ar kröfur varðandi framkvæmd
leikja. Sú krafa er eðlileg og í sam-
ræmi við það, að íslendingar hafa
lengi staðið framarlega meðal þjóða
í handknattleik og hafa nú fengið
heimild til að halda heimsmeistar-
keppni hér á landi."
Dómstól HSÍ til vansa
Dómstóll HSÍ hefur sett niður í
vitleysunni, því miður. Hann hefur
gefið það fordæmi, að ekki skipti
lengur máli á íslandi að halda sig
við reglur í handbolta. Það sé bara
allt í lagi þó dómarar fari ekki að
settum reglum og mæti illa undir-
búnir. Þó þeir rjúfi leik, sendi lið
inn í búningsklefa, tilkynni leikhlé,
fari sjálfir og fletti upp í bókum tií
þess að íhuga næsta skref leiksins.
Það sé bara allt í lagi að leikið sé
í blóra við reglur HSÍ. Og við ætlum
að halda heimsmeistarakeppni.
Sýna heiminum að við séum um
það fulifærir. Að okkur sé trey-
standi til þess að fara að settum
reglum í því viðamikla verkefni.
Og eilítið um lögfræði. Grund-
vallarregla réttarfars er að dómstól
skipi einn, þrír, fimm, nú eða sjö
dómarar, svo dæmi séu tekin. Samt
skipar forseti dómstóls HSí — um-
talaður lögvitringur, svo fyrir að
fjórir dómarar dæmi í málinu. Hvað
hefði þessi ágæti dómforseti gert
ef atkvæði hefðu fallið jöfn, 2-2.
Hver hefði þá verið úrlausn.dóm-
stólsins? í hvaða öngstræti hefði
hann þá lent, eða er þetta kannski
bara hafnfirsk lögfræði?
Sinnaskipti lögmannsins
Og þessi niðurstaða er þeim mun
merkilegri, sem litið er til kæru,
sem lögmaðurinn úr Hafnarfirði
lagði fram fyrir nokkrum árum. Þá
var hann formaður handknattleiks-
deildar FH, kærði Víking vegna
rangrar framkvæmdar dómara á
leik. Viðureign þessara stórvelda í
handknattleiknum hafði lyktað með
sigri Víkings eftir framlengingu í
2. flokki kvenna. Þá taldi lögmaður-
inn hafnfirski að fara bæri að sett-
um reglum um framkvæmd leiks
og hann leikinn að nýju. Dómarar
höfðu kastað upp knetti við upphaf
framlengingar. Lögmaðurinn
kærði. Auðvitað voru reglugerðir
brotnar rétt eins og að Hlíðarenda
á dögunum og því eðlilegt að lög-
maðurinn léti á það reyna fyrir
dómstól HSÍ.
Að Hlíðarenda hafði jafnræði
ekki verið raskað með liðunum þó
leikhlé hafi verið tekið, að mati
dómstóls HSí. í umræddum leik í
2. flokki hafði jafnræði ekki verið
raskað. Dómarar köstuðu knetti
upp og það voru sjö leikmenn í
hvoru liði og þeir höfðu jafna mögu-
leika á að ná knettinum. En reglur
voru brotnar og því dæmdi dóm-
stóll HSÍ að leikur stúlknanna
skyldi endurtekinn, í samræmi við
skoðun lögmannsins hafnfirska. Og
þóttu engin stórtíðindi þá, enda til
þess ætlast að farið sé að settum
reglum í handknattleik á íslandi.
Hvað veldur þessum sinnaskipt-
um lögvitringsins? Um það er erfitt
að álykta. En það er sama hversu
mikið markvörðurinn, skyttan og
lögvitringurinn moka úr fjóshaugn-
um í tunnuna og þeir bræður allir
— botninn er suður í Borgarfirði.
Höfundur er formaður Víkings
Hafnarfirði, Akureyri og Keflavík.
Tækninefndin hefði fyrir sitt leyti
samþykkt tillögur HSÍ, en bent á
að gott væri að leika í fjórum höll-
um til viðbótar svo þrír leikir í hveij-
um riðli gætu farið fram á hveiju
kvöldi. Jón sagði að þetta yrði að
skoða með tilliti til möguieika á
sjónvarpsútsendingum, en við
fyrstu sýn virtist ekki vera um
vandamál að ræða.
Hann sagði ennfremur að tækni-
nefndin hefði ákveðið á fundi sínum
að leggja til á þingi IHF í Barce-
lona í sumar að 24 þjóðir tækju
þátt í keppninni 1995 og leikið yrði
í fjórum riðlum. Fjögur efstu í hveij-
um riðli færu áfram, en tvö neðstu
yrðu úr leik. Síðan yrði leikið með
útsláttarfyrirkomulagi. „Þetta er
eins og við höfðum hugsað okkur
og áttum von á,“ sagði Jón.
Laugardalshöllin.
FRJALSIÞROTTIR
ÓL-lágmarkið í
kúluvarpi lækkað
Olympíunefnd íslands ákvað það á fundi sínum fyrir skömmu að
lækka ólympíulágmarkið í kúluvarpi karla úr 20,10 metrum í
19,85 metra, að ósk Fijálsíþróttasambands íslands.
Ólympíunefnd íslands samþykkti jafnframt að hægt verði að ná
ólympíulágmarki í fijálsíþróttum á Vormóti ÍR, EOP-mótinu eða meist-
aramóti íslands.
Samkvæmt þeim lágmörkum til þátttöku í Ólympíuleikunum í Barcel-
ona sem Ólympíunefnd Islands gaf út fyrir tveimur árum hefur nefnd-
in breytt lágmörkum í sundi, júdói og kúluvarpi karla.
Fram - Fylkir
Ekki búið að samþykkja íþróttahús
Á íþróttasíðu Morgunblaðsins í
gær, þriðjudag, er frétt þess efnis
að bæði félögin, Fram og Fylkir,
fái fjárveitingu á næsta ári til að
hefja byggingu á nýju íþróttahúsi.
Ekkert samkomulag hefur verið
gert um þetta þó hugmyndir liggi
fyrir sem ganga í þessa átt. Málið
hefur ekki verið tekið fyrir hjá
stjórn íþrótta- og tómstundaráðs
Reykjavíkur, ekki í borgarstjórnar-
flokki sjálfstæðismanna, sem hefur
meirihluta í borgarstjórn, hvað þá
í borgarstjórn eða borgarráði.
Þegar Iþrótþa- og tómstundaráð
tekur ákvörðun um skiptingu
styrkja til íþróttafélaganna _ vegna
framkvæmda þeirra verður ÍTR að
horfa á heildina, ekki sitt íþróttafé-
lag eða tvö þannig að góð íþróttaað-
staða byggist upp hjá öllum félög-
um á sem jafnastan hátt. Við út-
hlutun framangreindra styrkja
verða stjórnarmenn ÍTR að horfa á
heildina en alls ekki að gerast full-
trúar einstakra íþróttafélaga.
Morgunblaðið segir m.a. í frétt
sinni að Árni Sigfússon, borgarfull-
trúi, hafi stuðlað að lausn málsins.
Eðlilegt er að borgarfulltrúar al-
mennt reyni að leggja fram tillögur
til lausnar vandamálum sem upp
koma. En tillaga Árna er óaðgengi-
leg og er undirrituðum ekki kunn-
ugt um að um hana hafi verið fjall-
að í borgarkerfinu.
íþrótta- og tómstundaráð sækir
ekki peninga til skólamálaráðs til
að byggja íþróttahús í samvinnu
við íþróttafélög. Það er alröng leið.
Ef borgarstjórnarmeirihlutinn vill
leggja frekari áherslu á mannvirki
íþróttahreyfingarinnar þá sam-
þykkir borjgarstjórn frekari fjárveit-
ingu til ITR beint án einhverra
krókaleiða í skólamálaráð eins og
Árni leggur til.
Heimildir Morgunblaðsins um að
búið sé að leysa forgangsröð á
framkvæmdum íþróttafélaganna er
röng. Mörg verkefni eru óafgreidd
hjá ITR um framkvæmdir íþróttafé-
laganna, þar á meðal beiðni Fylkis
og Fram um íþróttahús.
Verði tvö hús byggð kostar það
borgarsjóð allt að 400 millj. króna
og ef byggja á tvö hús samtímis
þarf að stórauka framlög til ÍTR.
Ákvörðun um það hefur ekki verið
tekin og því óraunhæft að fullyrða
að mál Fram og Fylkis sé í höfn.
Júlíus Hafstein, borgarfulltrúi,
formaður ÍTR