Morgunblaðið - 25.04.1992, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 25.04.1992, Blaðsíða 8
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1992 \ 8 B SKIPTAR SKOÐANIR UM HVORT ÍSLENDINGAR LESIOG KAUPIÍSLENSKAR SKÁLDSÖGUR / / IJAFN MIKLUM MÆLI OG AÐUR í grein í Skími I fyrra talar Guðbergur Bergsson um „áhugaleysi samtímans á listum, einkum skáldskap og þá skáldsögunni öðm frem- ur.“ Ólafur H. Johnson, skólastjóri Hraðlestrarskól- ans, tekur í skyldan streng í nýlegri grein í Morgun- ! blaðinu: „íslendingar, ungir sem gamlir, lesa miklu minna en þeir gerðu fyrir áratug.“ Við spurðumst fyr- ir um það hjá forlögum og bókasöfnum hvort þessar fullyrðingar gætu átt við ís- lenskar skáldsögur, hvort þeim væri sýndur minni áhugi en áður. Ljóst er að ekki hefur dregið úr útgáfu á íslenskum skáld- sögum á undanförnum árum og af samtölum við útgef- endur að dæma hvarflar ekki að þeim að draga sam- an seglin á því sviði, jafnvel þótt salan sé ekki alltaf upp á marga fiska. Nokkrar íslenskar skáldsögur seldust líka býsna vel á síðustu jólabókavertíð, ein þeirra vermdi meira að segja toppsæti og er samkvæmt upplýsingum viðkom- andi forlags söluhæsta íslenska skáldsaga allra tíma. Þá hafa þau tíðindi orðið að skáldsögur nýstár- legra og oft torseldra höfunda á borð við Guðberg Bergsson, Thor Vilhjálmsson og Fríðu A. Sigurðar- dóttur hafa selst ágætlega á síðustu árum. Á móti kemur að skáldsaga sem ekki vekur athygli, hver sem ástæðan kann að vera (skakkar tennur höfundarins kynni einhver að álykta), hreyfist kannski varla nokkum skapaðan hlut, fer jafnvel ekki nema í einhverjum tugum ein- taka. Sumir útgefendur telja að ' salan hafi færst yfir á örfáa titla meðan þorri sagnanna selst lítið og margar aðeins í 100-300 eintökum. HEIMSMET? „íslenskar skáldsögur seldust að jafnaði betur fyrir 20 árum en nú,“ * segir Jóhann Páll Valdimarsson, en hann hefur um árabil annast útgáfu á skáldsögum margra okkar virt- ustu höfunda, fyrst hjá Iðunni en síðar hjá Forlaginu. „Áður fyrr gaf maður út slatta af skáldsögum sem allar seldust ágætlega, en nú hefur salan færst á eina eða tvær bækur og hinar liggja steindauðar. Al- mennt er salan á íslenskum skáld- sögum hroðalega lítil og undantekn- ing ef íslensk skáldsaga stendur undir sér. Það eru aðrar útgáfubæk- ur sem fjármagna skáldsögumar." Nokkrir útgefendur sem blaðið hafði samband við tóku undir þá skoðun að salan hefði færst á færri titla, en gátu samt ekki séð að vem- legar breytingar hefðu orðið á gengi íslenskra skáldsagna á markaðnum. Sumir töldu að salan hefði alltaf einskorðast við fáa titla. Eiríkur Hreinn Finnbogason hjá Almenna bókafélaginu man langt aftur en kell Hreinsson hjá Amtsbókasafn- inu á Akureyri sagði fólk forvitið um íslensku skáldsöguna, en kvaðst hvorki sjá aukningu né samdrátt í útlánum. Helst mætti merkja minnkandi útlán á unglingabókum. Þótt það síðasttalda hljóti að telj- ast váboði virðist sem vegur ís- lensku skáldsögunnar sé töluverður meðal bókasafnsgesta, hvað sem hræringum á markaðnum líður. MINNIMÁTTARKENND GAGNVART SKÁLDSÖGUNNI „Mér finnst eins og skáldsagan hafi lokast inni í einhvetjum turni og höfði ekki í sama mæli og áður til almennings," sagði Jóhann Páll Valdimarsson þegar rætt var um lesendahópinn. „Það jaðrar við að almenningur fái minnimáttarkennd gagnvart skáldsögunni. „Aðrir við- mælendur sögðu að tíðindin frá nýliðinni jólabókavertíð bentu þvert á móti til að hópur skáldsagnales- enda væri að breikka. I því sam- bandi taldi Sigurður Valgeirsson hjá Iðunni það hafa áhrif tii góðs að bókmenntamenntuðu fólki færi fjölgandi. En sitt sýnist hverjum. „Er skáld- sagan að breytast í skrautjurt í betristofum menntaðarar millistétt- ar?“ spyr Matthías Viðar Sæmunds- son í bókinni Myndir á sandi sem út kom á síðasta ári. Þar leiðir hann hugann að stöðu skáldsögunn- ar og veltir m.a. fyrir sér hvort hún skipti ekki minna máli með hveiju árinu sem líði. Auglýsingamennsk- an í kringum útgáfuna vitni um vantrú á skáldskapnum; hann „stendur ekki lengur undir sjálfum sér,“ segir Matthías Viðar og líkir bókavertíðinni við æðisgengið dauðahlaup: „nöfnum og bókum er troðið í fólk eins og fiski sem úldn- ar næsta dag sé hann ekki strax etinn“. í greininni „Frá formi til frásagn- ar - munnmenntir, bókmenntasaga og íslenskur sagnaskáldskapur 1980-1990,“ en hana er að finna í nýjasta hefti Tímarits Máls og menningar, kemur Gísli Sigurðsson m.a. inn á tengsl skáldsögunnar við lesendur. „Þeir sem vilja skrifa verða að horfast í augu við það erfiða verkefni að halda lesendum við efnið,“ segir Gísli og virðist sem honum þyki „vel sögð saga“ best til þess fallin: „...á þeim áratug sem nú er nýliðinn hefur orðið þróun í þá átt að höfundar eru aftur farnir að segja lesendum sínum sögur...“ Þótt þetta séu athyglisverðar kenn- ingar hjá Gísla frábiður skáldsagan sér vísast slíkar einfaldanir, enda kallar hver saga á sitt form (ann- ars er hún tæpast „vel sögð") og hvert form segir sína sögu og síðan hrærir tíðarandinn í öllu saman. Þannig eru ýmsar kenningar á lofti um stöðu íslensku skáldsög- unnar og auðvelt að æra óstöðugan með útlistunum á þeim. Mestu varð- ar þó að lesendur íslensku skáldsög- unnar eru ekki af baki dottnir og sitja kannski betur hestinn en stundum áður, þótt ekki ríði útgef- endur endilega feitum hesti frá or- ustunni við viðskiptavini. kveðst ekki merkja verulegar sveifl- ur í sölu íslenskra skáldsagna og tvínónar ekki við að gefa út góðar íslenskar skáldsögur. Hins vegar hafði hann nokkrar áhyggjur af vaxandi sölu íslenskra skáldsagna á bókamörkuðum. Ámi Kr. Einarsson framkvæmd- astjóri Máls og menningar sagði að í þeirra herbúðum væri góð skáld- saga gefín út án þess að hugurinn væri leiddur að fjárhagslegri af- komu eða sölulíkum. „Eg held að mönnum hætti of mikið til að setja skáldsöguna í einhveija gjörgæslu,“ sagði Arni og taldi tímaskort les- enda meiri þránd í götu en áhuga- leysi þeirra. Sigurður Valgeirsson útgáfu- stjóri Iðunnar taldi að sennilega gengi hvergi í heiminum betur að selja innlendar skáldsögur en hér á íslandi og vísaði til síðustu jóla- bókavertíðar. Hann sagði bækur viðurkenndr^ rithöfunda yfirleitt seljast prýðilega, en við ramman reip væri að draga þegar ungir og óþekktir höfundar ættu í hlut. „Svartsýniskvótinn er búinn,“ sagði Heimir Pálsson framkvæmda- stjóri Félags íslenskra bókaútgef- enda og kvað söluna undanfarin ár ekki benda til þess að íslenska SUMIR ÚTGEFENDUR TEUA A9 SALAN HAFI FÆRST YFIR Á ÖRFÁA TITLA MEÐAN Þ0RRI SAGNANNA SELST LÍTIÐ OG MARGAR AÐEINS í 100-300 EINTÖKUM. skáldsagan væri að fara halloka. Aðspurður sagði hann sína umbjóð- endur síður en svo með böggum hildar um stöðu íslensku skáldsög- unnar. Sem sagt: upplagið á þrotum, næsta prentun væntanleg í búðir á morgun. Eða hvað? BIÐLISTAR ÚT ÁRIÐ „Ég get strax sagt þér að við kaupum aldrei eins mörg eintök og við þyrftum," sagði Þórdís Þor- valdsdóttir borgarbókavörður. „Ætli við kaupum ekki að meðal- tali á milli 25 og 30 eintök af hverri íslenskri skáldsögu, en það er bið- röð eftir þessum bókum í heilt ár eftir að þær koma út og stundum lengur. Eintökin endast aldrei,“ sagði Þórdís og kvað safnið ekki hafa efni á að kaupa jafn mörg eintök og tíðkaðist í eina tíð. Hún sagðist hins vegar geta fullyrt að það væri stöðugur hópur sem læsi íslenskar skáldsögur. „Það eru allt- af lesnar góðar íslenskar bækur. Við getum bara ekki keypt nógu mörg eintök. Ef við hefðum 100 eintök fyrstu vikuna, jafnvel 200 eða 300, myndu þau öll verða rifin út. Núna í ár er kannski búið að svara þörfínni fyrir sumar bækurn- ar frá 1990.“ Minnkandi heildarútlán sagði Þórdís stafa af minni sókn í spennu- sögur og reyfara og svipuð svör fengum við á öðrum bókasöfnum. „Islensku skáldsögurnar eru frekar að koma upp,“ sagði Elín Magnfreðsdóttir á Bæjar- og hér- aðsbókasafninu á ísafírði. „Þær eru frekar teknar en ekki. Það er eins og fólk sé farið að meta íslenskar skáldsögur meira en áður.“ Hólm-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.