Morgunblaðið - 28.05.1992, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 28.05.1992, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1992 C 3 Iðnaður * Ahersla á bætt skatta- kjör íslenskra fyrirtækja AÐ undanförnu hefur verið starfandi hópur með fuiltrúum iðnað- arráðuneytis, Félags íslenskra iðnrekenda og Landssambands iðnaðar- manna sem hefur farið yfir þau atriði sem hefur þótt nauðsynlegt að athuga til að bæta samkeppnisstöðu íslenskra iðnfyrirtækja í kjöl- far samninga um Evrópskt efnahagssvæði. I niðurstöðum starfshóps- ins er bent á ýmis atriði, en aðaláhersla er lögð á skattakjör ís- lenskra fyrirtælga annars vegar og erlendra keppinauta hins vegar. Þetta kom fram í ávarpi Jóns Sigurðssonar, iðnaðarráðherra, á féiags- fundi Félags íslenskra iðnrekenda sl. þriðjudag þar sem fjallað var um EES samninginn og þýðingu hans fyrir iðnaðinn. Iðnaðarráðherra sagði í ræðu sinni að brýnt væri að fjölga aðgerð- um sem styddu við bakið á þeim íslensku fyrirtækjum sem færðu út kvíarnar erlendis. Fjárfestingarsjóð- ir atvinnuveganna þyrftu í áuknum mæli að beina starfsemi sinni að því að aðstoða íslenska aðila við slíka fjárfestingu. Þá þyrfti að koma á fót hér sérstökum fjárfestingarlánasjóði sem aðstoðaði íslensk fyrirtæki við fjárfestingar í þróunarríkjunum og fyrrum sambandsríkjum Sovétríkj- anna. Jón sagði að slíka sjóði hefðu m.a. önnur Norðurlönd sett á fót með góðum árangri, jafnt fyrir at- vinnulíf sitt og þeirra ríkja sem fjár- festingin beindist að. „Við þurfum einnig að leggja áherslu á einföldun þess stjórnkerfis sem við höfum byggt upp hér á landi með það í huga að lækka kostnað og stytta boðleiðir, sagði iðnaðarráð- herra í ræðu sinni. „Við þörfnust ekki 200 sveitarfélaga eða 67 lífeyr- issjóðastjóma í landinu. Og það væri vissulega nóg að hafa ein sam- tök í stað þriggja til þess að gæta hagsmuna iðnaðarins í landinu." A nýafstöðnum aðalfundi Vinnu- veitendasambands íslands lýsti fjár- málaráðherra yfir ákvörðun um end- Steinullarverksmiðjan Samdráttur írekstri á síðasta ári AÐALFUNDUR Steinullarverksmiðjunnar hf. var haldinn á Sauðár- króki í síðustu viku. í skýrslu framkvæmdasíjórans Einar Einarsson- ar kom fram að hagnaður síðastliðins árs var 5 milljónir króna á móti tæplega 50 milljóna króna hagnaði árið á undan, enda fyrsta samdráttarárið í sögu verksmiðjunnar. Heildarsala Steinullarverk- smiðjunnar hf. var á síðasta ári 5.102 tonn sem er um 17% samdrátt- ur frá 1990. Tekjur fyrirtækisins minnkuðu úr 369,6 milljónum í 362,9 milljónir 1991, eða um 1,8%. Fjármagnsstreymi fyrirtækis- ins sýnir að fjármyndum í rekstri var 44,4 milljónir miðað við 58,5 milljónir árið áður og hreint veltufé hækkaði um 13,6 millj. og er veltufjárhlutfall nú um það bil 2,37 miðað við 2,0 árið 1990. Eigið fé fyrirtækisins milli ára jókst úr 231,1 millj. í 250,2 millj. og er eiginfjárhlutfallið því 29,2%. Heildarlaunagreiðslur verksmiðj- unnar á árinu voru um 67,1 millj. og er þar um 6,7% hækkun að ræða á milli ára. Skuldir verksmiðjunnar voru í árslok 608,3 millj. og hafa iækkað um tæpar 90 millj. á síðustu tveim árum. Eins og fram hefur komið er framkvæmdastjóri Steinullarverk- smiðjunnar Einar Einarsson, en stjórnarformaður Lára M. Ragnars- dóttir. - BB. Veruleg minnkun varð í sölu steinullar á erlendum mörkuðum en einnig innanlands. Sérstaklega munaði um markaðinn í Finnlandi sem var tæplega eitt þúsund tonn á árinu 1990, en þar varð nánasf' engin sala á síðasta ári, um það bil fimm tonn. Hinsvegar varð sölu- aukning á Bretlandsmarkaði sem lagaði stöðuna nokkuð og taldi framkvæmdastjórinn að á þeim markaði mætti enn gera betur. Framkvæmdastjórinn skýrði frá því að í áætlunum yfírstandandi ára væri gert ráð fyrir um það bil 15% samdrætti í sölu á innanlandsmark- aði og um 6% í útflutningi, enda virtist lítið benda til uppsveiflu í byggingariðnaði hérlendis á næst- unni. Vegna þessa hefði verið grip- ið til ýmiskonar spamaðaraðgerða og hagræðingar svo sem að keyra verksmiðjuna á tvískiptum vöktum í stað þrískiptra áður. í marsmánuði voru fluttar út vörur fyrir 8,9 milljarða króna en inn fyrir 8,5 milljarða króna fob. Fyrstu þrjá mánuði þessa árs var verðmæti vöruútflutnings 5% minna á föstu gengi en í fyrra. Sjávarafurðir voru um 80% alls útflutningsins og voru um 4% minni en á sama tíma í fyrra. Útflutning- ur á áli var 3% minni og útflutning- ur kísiljárns var 42% minni en á síðastliðnu ári. Útflutningsverð- mæti annarrar vöra var 10% minna í janúar-mars en á sama tíma í urskoðun skattalaga. Iðnaðarráð- herra sagði að brýnt væri að taka til hendinni með það í huga að jafna skattakjör íslenskra fyrirtækja við það sem þekkist erlendis. M.a. þyrfti að komast að samkomulagi við sveit- arfélögin um breytingar á tekju- stofnum þeirra og fleira þyrfti að koma til ef taka ætti ákvörðun um að gera þá grundvallarbreytingu á skattkerfínu að lækka hlutfall virðis- aukaskattsins, breikka skattstofninn og flytja skattbyrðina yfir á önnur form skattlagningar. Ennfremur sagði iðnaðarráðherra að stefnt yrði að því að tillögur lægju fyrir snemma í haust þannig að unnt yrði að leggja frumvarp um breytingar fyrir Al- þingi þegar í októberbyrjun. Af öðrum málum sem umræddur starfshópur hefur fjallað um nefúdi iðnaðarráðherra opnun fjármagns- markaðarins enn frekar fyrir sam- keppni í því skyni að íslenskt at- vinnulíf geti ávallt fengið fjármagn á sömu kjöram og keppinautar þess njóti almennt. „Það mætti gera með því að við nýttum okkur ekki að fullu þann aðlögunarfrest sem við sömdum um í EES-samningnum á sviði bankamála. Við þurfum einnig að byggja upp traustan fjármagns- markað sem auðveldar íslenskum fyrirtækjum öflun eiginfjár og breyta lögum um Seðlabanka íslands í þá veru, sem lagt er til í frum- varpi sem nú er til urnfjöllunar.“ ORLOFSVOKTUN — Viðar Ágústsson framkvæmdastjóri VARA og Þórður Jónsson þjónustustjóri VISA íslands undirrita samn- ing fyrirtækjanna um Orlofsvöktun. Orlofsvöktun Húsgæslukerfi fyrir korthafa á ferðalögum ORLOFSVOKTUN er samofið húsgæslukerfi sem öryggisþjónustan VARI og VISA ísland bjóða korthöfum VISA á sérstöku tilboði frá 1. júní og er sérstaklega ætlað þeim sem verða fjarri heimili sínu í orlofi. I húsgæslukerfinu er hátæknibúnaður tengdur öryggismiðstöð VARA sem verður vör við óboðna gesti í húsum, vatnsflóð, reyk og rafmagns- leysi. Jafnframt er í húsgæslukerfinu þjónusta öryggisvarða VARA sem tvisvar í viku tæma póstkassa, vökva blómum og gefa gæludýram. Korthafar VISA geta pantað þetta húsgæslukerfí með viku fyrirvara hjá Öryggisþjónustunni VARA áður en þeim legga í ferðalag að heiman. Að sögn Viðars Ágústssonar fram- kvæmdastjóra VARA hefur öryggis- búnaður að undanfönu verið að ryðja sér til rúms á einkaheimilum víða um borgina. Með tilboði VARA og VISA á Orlofsvöktun gefst fólki kost- ur á því að kynnast gagnsemi slíks búnaðar til að auka öryggi heimila sinna. Við heimkomun býðst korthöf- um VISA að kaupa öryggiskerfið og tengjast öiyggismiðstöð VARA til frambúðar á ódýan hátt. Sjávarútvegsfyrirtæki Hagnaður Haraldar Böðv- arssonar um 50 millj. kr. HAGNAÐUR Haraldar Böðvarssonar hf. var 48,9 milljónir króna á sl. ári. Þetta er fyrsta starfsár fyrirtækisins sem er sameining fjög- urra fyrirtækja á Akranesi, Haraldar Böðvarssonar & Co.hf., Sigurð- ar hf., Heimaskaga hf. og Síldar- og fiskimjölsverksmiðju Ákraness hf. Velta fyrirtækisins var 2.032 milljónir króna árið 1991 en árið áður var samanlögð velta hinna fjögurra fyrirtækja um 2.060 milljón- Fjármagn til framkvæmda ir. Heildareignir Haraldar Böðvars- sonar hf. voru í árslok 2.239 millj- ónir króna og skuldir alls 1.681 milljónir. Eigið fé fyrirtækisins er 558 milljónir og eiginfjárhlutfall er því um 25%. Eftir að tekið hafði verið tillit til afla skipa til eigin vinnslu voru rekstrartekjur félagsins 1.490 millj- ónir króna. Að sögn framkvæmda- stjóra fýrirtækisins, Haraldar Stur- laugssonar, gerir fyrirtækið nú út tvo ferskfisktogara, eitt frystiskip og tvö loðnuskip. Starfsmenn fyrir- tækisins voru að meðaltali um 280 talsins á sl. ári. í stjórn Haraldar Böðvarssonar hf. sitja nú Magnús Gunnarsson, sem er formaður, Sturlaugur Stur- laugsson, Matthea Kr. Sturludóttir, Kristinn Björnsson, Óli Kr. Sigurðs- son, Hallgrímur Hallgrímsson og Þorgeir Haraldsson. Aðalfundur fyrirtækisins verður haldinn þann 16. júní næstkomandi. Sumartími júní-júlí-ágúst kl. 8:00-16:00 SUÐURLANDSBR. 22 108 REYKJAVÍK SÍMI 689050 -FAX 812929 Viðskipti Vöruskiptajöfnuður hag- stæður fyrsta ársfjórðung VÖRUSKIPTAJÖFNUÐURINN í mars var hagstæður um 0,4 millj- arða króna en í mars í fyrra var hann hagstæður um tæplega 2,8 milljarða króna á föstu gengi, samkvæmt upplýsingum frá Hag- stofu íslands. Fyrstu þrjá mánuðu þessa árs var vöruskiptajöfnuður- inn hagstæður um 0,3 milljarða króna samanborið við 2,2 milljarða árið áður. Útflutningur kísiljárns var 42% minni á fyrsta ársfjórð- ungi en á síðasta ári. SIMANUMER fyrra, reiknað á föstu gengi. Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu þrjá mánuði ársins var 4% meira en á sama tíma í fyrra. Sú aukning stafar að mestu leyti af flugvélakaupum fyrir nær 1,6 millj- arða króna en þau vora hverfandi á saman tím í fyrra. Verðmæti inn- flutnings til stóriðju fyrstu þijá mánuði ársins var 13% minna en í fyrra en verðmæti olíuinnflutnings 3% meira, reiknað á föstu gengi, samkvæmt upplýsingum frá Hag- stofu íslands. HEÐINN : GARÐASTÁL STÓRÁSI6 SÍMI 91-652000 PÓSTHÓLF15 210 GARÐABÆ = HEÐINN = SMIÐJA STÓRÁSI6 » GARDABÆ ♦ SlMI 652000 « FAX 652570 Hönnun • smíði • viögerðir- þjónusta

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.