Morgunblaðið - 19.07.1992, Side 2

Morgunblaðið - 19.07.1992, Side 2
- 2 C MÓRGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 1992 _ mér blundar sjóhræðsla. Þessi gamla grýla hvolf- Iist yfir mig á bryggju- nefnunni á Borgarfírði eystri (eða í Bakkagerði eins og plássið heitið bókum samkvæmt) þeg- ar ég er búinn að spenna björgunarvestið yfír frakkann úr finnska Vetrarstríðinu. Ég fæ mér lakkrístöflu til að róa taugarnar, krumpa pakkann saman og fleygi honum í ruslagám með margvíslegu drasli sem stendur þar rétt hjá. Nærstaddir líta þessa athöfn heift- araugum og einhver hvæsir: „Ertu vitlaus maður, þetta er leikmynd- in!“ Ég sæki pakkann og sting hon- um í vasann. Upphrópunin kom úr röðum áhugaleikhópsins Vöku þar í bæ, sem er á leið í leikför til Vopnafjarðar með uppsetningu sína á „Hart í bak“ eftir Jökul Jakobs- son, og ég er í föruneyti manna, kvenna og bama sem hyggst fylgja þeim þangað og beija sýninguna augum. „Hart í bak“ var annað leik- verk Jökuls, frumsýnt í Iðnó í leik- stjóm Gísla Halldórssonar í nóvem- ber fyrir réttum þijátíu ámm og sló þá í gegn. Rúmlega 200 sýning- ar í Iðnó og annars staðar mörkuðu upphaf velgengni Jökuls sem leik- skálds — því frumraunin, Pókók, fékk ójafnar viðtökur gagnrýnenda og gjaman afgreitt sem lítilsiglt — og þær vinsældir entust höfundin- um til dauðadags 1978 og verkun- um mun lengur, það sannar t.d. þetta flan. Aðdragandi ferðarinnar er annar en venja er, og að mínu mati eins viðeigandi og hugsast getur í ljósi tilgangs hennar. Fyrir höndum er liðlega tveggja tíma sigl- ing með varðskipinu Ægi, sem gef- ur sér tíma frá hefðbundnu eftirliti á miðunum til að þjónusta leiklistar- gyðjunni, enda er landleiðin til Vopnaflarðar illfær þó sumarið sé gengið í garð. Hjálpsemi Landhelg- isgæslunnar teygir raunar anga sína víðar en til menningarstarfsemi á AustQörðum, því eins og glögga lesendur rekur minni til, birtist fyr- ir fáeinum vikum greinarstúfur í Morgunblaðinu um flutning Ægis á fermingarbömum og presti í geistiegum erindagjörðum. Þar var rakin ósvikin hetjusaga, en innan tíðar verður mér ljóst að ég geng ekki eins greitt á guðs vegum og sá ágæti hópur. Ægir getur ekki lagst að bryggju sökum grynninga, og tveir gúmmí- bátar selflytja hóp og leikmynd um borð í skipið sem lónar við íjarðar- mynnið. Eftir að fólkið hefur kiöngrast upp kaðaistigann, sest það upplitsdjarft í messann og skip- ið siglir. Brátt fínn ég að innbyrgt loftið og þrengslin, auk veltings sem færist í vöxt, hentar ekki líkamlegu atgervi mínu á þessari tilteknu stund og stekk út á ganginn í leit að útgönguleið. Fumið hefur ófýrir- sjáanlegar, afleiðingar í för með sér, en loks fæ ég leiðsögn út í ferskt loft og fóma Nirði morgun- verðinum án tafar, eða eins og sjó- liðamir á Ægi orðuðu það vafninga- laust; „ældi eins og múkki bölvað- ur“. Þar sem ég rígheld mér í borð- stokkinn og mæni gulfölur ofan í ölduna sem skipsstefnið hrindir frá sér, verður mér ljóst að fleiri farþeg- ar hafa orðið fýrir sömu röskun á jafnvægisskyninu. Mannvinurinn ég get ekki stillt mig um að glotta í barminn, því það er aumum manni huggun að vera ekki einn um ræfíl- dóminn. Þetta illfýsna glott víkur þó skjótt fyrir frekari fómum í sjó- inn. Grillan um frískandi sjávarloft og hugdrægt „hafíð bláa hafið“, hefur beðið skipbrot í iðmm mér enn á ný. „OG RISU FJALLHÁIR SJÓIR“ Hafíð var áberandi þáttur í verk- um Jökuls frá fyrstu tíð, en frekar sem bakgrunnur eða skírskotun í aðra veröld heldur en sjálft sögu- sviðið. Öft gegnir það hlutverki nokkurs konar útópíu, eða sælurík- is, sem komið er frá eða stefnt er að án þess að væntingamar rætist. Hvarvetna skín í gegn um textann ástúð á sjávarplássinu, sjónum og sjómennskunni: að komast á vertíð er æðra takmark en ekki neyðar- „Hart í bak“ var frumsýnt hjá Leikfélagi Reylgarvíkur í nóvember 1962, hér getur að líta Jökul Jakobs- son og nokkra leikara sýningarinnar, f.v. Birgi Brynjólfsson, Helgu Valtýsdóttur, Gerði Guðmundsdótt- ur, höfund og Gísla Halldórsson. Áróra spákona (Ásta S. Geirsdóttir)) reynir að forfæra Stíg skósmið (Bjarni M. Helgason ) honum til mikillar hrellingar. brauð í blankheitum eða á flótta. Um sama leyti og nokkru síðar tóku ýmsir höfundar hins vegar í æ rík- ara mæli að útmála sjómennskuna sem hæli vansvefta og vitgrannra hálftrölla, þar sem helsta dyggðin var hnefaréttur og að hafa þver- brotið vökulögin í aflahrotum. En sýn Jökuls gengur þvert á þessa nöturlegu túikun, hún er rómantísk og mettuð virðingu fyrir aflaklóm og rúnum ristum sægörpum, sömu hetjum og íslensk dægurlög gerðu skil áratugum saman. Svo sterkur er þessi leyniþráður milli hafs og höfundar, að ástæða þykir að drepa á nokkur dæmi sem mér er kunn- ugt um, auk nokkurra annarra áberandi þátta í verkunum: í fyrstu bók Jökuls, „Tæmdur bikar“ (1951), sem kojn út þegar hann var aðeins sautján ára gam- all, siglir uppburðarlítil söguhetjan, Hróar Flosason, inn með ms. Ljósa- fossi í borgarsollinn með sveitapilts- ins „bjánalega furðusvip" og glatar vitaskuld sakleysinu og sveindómin- um. Fleiri æskuverk Jökuls tæpa á glötuðu sakleysi, fyrirfram dauða- dæmdri ást og brostnum draumum. Þannig kemst Ormar Amijótur í bókinni „Orrnar" (1956), sonur stórkaupmanns og þingmanns, í kynni við vafasama menn og hverf- ula ást og tileinkar sér pólítískar skoðanir sem ganga í berhögg við flokksbundna afstöðu föðursins, og brennir að lokum „lífsbókina" er inniheldur „hugleiðingar mínar á andvökunóttum, drauma mína og spár, óskir og hugsjónir, gleði og harma, henni einni hef ég trúað fyrir ástríðu minni að sigra heiminn (bls. 126)“. Óttar í „Fjallinu" (1958) gengur í hafíð eftir tryggðarrof stúlkunnar sem hann telur sig elska, og þannig verða orð sjó- manns sem Óttar hittir skömmu áður og telur hann vera sjórekinn félaga sinn, óvænt að áhrínisorðum. Aðalpersónan í „Dyr standa opnar“ (1960) er nýkomin af rýrri síldar- vertíð fyrir norðan og kveðst í sögu- lok ætla að reyna að komast á Grænlandsmið, og „kannski norður á síld í vor (bls. 225)“. Þetta minnir ögn á kafla í bókinni „Suðaustan fjórtán", sem dregur upp rrtynd af aðstæðum og mannlífínu í Vest- mannaeyjum, en þar lýsir Jökull sjóferð sem hann fer í með togaran- um Halikon. Ferðin verkur minn- ingar um það þegar hann „var á síld hér um sumarið 1949, þá varð að setja út tvo báta ef sfld sást Aórir höf- undar útmál- uóu sjó- mennsku sem hæli vansvefta ©g vitgrannra hálftrölla, en sýn Jökuls var róman- tísk ©g mett- uó viróingu lýrir aflaklóm ©g sægörpum vaða og nótina varð að draga á höndunum; þá var asdikið ennþá hernaðarleyndarmál stórveldanna og engum hafði dottið kraftblökk í hug. Já, seisei. Enda var þetta síld- arleysissumar og við urðum að gera útgerðarmanninum fyrirsát á götu- hornum á Siglufírði til að meija út úr honum fáeinar krónur. Við drýgðum ögn tekjumar með því að draga þorsk úr Axarfirði og selja sama aflann tvisvar sama kaupand- anum, kaupfélaginu á Húsavík, og notuðum þá einnig tækifærið og tókum upp allar rófumar í rófu- garði sjúkrahússins eftir að dimmt var orðið af nóttu (bls. 122).“ í sömu bók greinir hann frá óveðri í vændum og það tendrar minningu um þegar hann „þvældist líka á togara suður fyrir Hvarf á Græn- landi um hávetur en lengra varð ekki komist, þar var látið flatreka í tvo sóiarhringa og risu fjallháir sjóir en síðan sást ekki út úr augum fyrir sjávarlöðri og fjúki. Skipið valt ekki, það lá því sem næst á hliðinni allan tímann, því ekkert lát varð á storminum, og þeir sem voru fram í lúkar urðu að dúsa þar, því ófært var aftur á (bls. 101).“ Veðr- ið brestur á og gengur yfír, og þá segir með óttablandinni ástúð og nánast örlagahyggju: „Sjórinn er þykkjuþyngri en skýin. Enn er brim við klappirnar, öldunni er enn órótt í skapi þótt ofsinn sé úr henni mest- ur. Þó skýjafar sé ekki lengur, virð- ist briminu ekki mnnin reiðin, að hafa ekki tekist að mola þetta út- sker. En sjórinn hefur unnið um aldir og enn á hann aldir framund- an; hann virðist mettur í bili þó hann dangli refsivendinum á klapp- irnar enn um stund. Hann á tímann fyrir sér (bls. 102).“ Raunar má þræða sjóleiðina í höfundarverki Jökuls að lokabindinu sem út kom að honum látnum, „Skilaboð til Söndm“, þar sem rithöfundurinn og sögumaður hefur leigt „lítið hús við hafíð, skammt utan við höfnina, þar vora einmana trillur á ferli út og inn og stundum stoltaralegur fískibátur í glæstum lituifi, einstöku sinnum dmngalegir togarar með úthafsseltu í dapurlegum kýraugum og þar komu risavaxin olíuskip sem gnæfðu upp úr sjónum eins og há- timbmð hús og á skut þeirra vom letmð framandi tákn ... Auðvitað gjálfraði aldan við fjöruborðið og mótorskellimir í fískibátunum vom í takt við hjartað í bijóstinu á mér (bls. 7).“ Einna sterkast er þó hafíð sem teikn og minni í leikverkunum „Hart í bak“ og „Sjóleiðin til Bagdad", sem hafa ýmsa sameigin- lega fleti. Bæði gerast í lágstéttar- umhverfí í Reykjavík, á hafnar- svæðinu í grennd við Slippinn og em um margt, eins og Sigurður A. Magnússon sagði í leikdómi í Morgunblaðinu 28. október 1965 um síðamefnda verkið: „Svo ein- kennilega lík um persónumótun, efnistök, umhverfí og andrúmsloft, að það orkar næstum ankanna- lega.“ Bæði fjalla um átök milli orða og breytni, draumóra og vem- leika, ólíkra samfélagsaðstæðna sem eiga sér holdtekju í ýmsum persónum, og hverfast að nokkru leyti um þá vissu, eins og Halldór segir í „Sjóleiðinni til Bagdad", að „sá sem er laus við vonina úr sjó- pokanum sínum, hann einn fer fijáls um allan sjó (bls. 145)“. Hafíð sem leiðarminni dofnar þó síðar meir, en þá urðu töluverðar efnisþreyt- ingar á skrifum Jökuls, og varð broddurinn áberandi, hann færðist í átt til ádeilu á borgaralega lífs- hætti og hræsni þeim samfara. Ásýnd síðari verkanna er bölsýnt raunsæi, þó samtölin taki fremur mið af ýmsum aðferðum leikskálda eins og Harold Pinters o.fl. absúrd- ista á skyldri línu, þ.s. kaldhæðnis- legur textinn er viðfang í sjálfu sér og lausnir éngar. BRIMSÖLT BÁRAN Eftir að hafa tæmt magann leggst greinarhöfundur milli gúmmíbátanna tveggja sem standa á þyrlupallinum, og finnur kalt stál- ið leiða þægilegan doða upp í húð- ina. Ógleðin hverfur með hægð. Aðvífandi háseti, líklegast sá sami og vísaði mér á útgönguleið stundu fyrr þegar maginn umturnaðist, spyr hvort ég vilji ekki halla mér á mýkri stað inni í skipinu? Ég muldra eitthvað um að vilja aðeins sólina og fríska loftið og nálægðina við hafíð, og hann glottir og fer. Já, það er sól og yfírborð sjávar logn- kyrrt að mestu, þannig að ég hlýt að rekja uppköstin til skæðrar undiröldu. Verð að rekja orsökin þangað, því þótt ég sé tæpast efni í sæfara, myndu aðrar skýringar brytja sjálfsmyndina af íslendingi með sjó í æðum í spað. Það þarf fjandakomið að veija síðustu vígin, nú þegar öll þjóðareinkenni em að glatast í hafsjó alþjóðahyggjunnar. Og enginn Jökull eða annar slíkur til að vitna um báruna sem marar brimsölt í vitundinni. HART í BAK, HART í STJÓR Höfundarverk Jökuls (greinar, smásögur, skáldsögur, leikverk fyr- ir svið, útvarp og sjónvarp, ferðabækur og heimildarmynd o.fl.) er stórt í sniðum miðað við þann árafjölda sem honum áskotnaðist til verka. Má segja að tíminn hafi farið misblíðum höndum um nokk- urn hluta þess, að minnsta kosti í augum þess sem hér lemur lykla- borð. Engar sérstakar furður stýra slíkri þrótm, og má t.a.m. vitna í

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.