Morgunblaðið - 19.07.1992, Page 7

Morgunblaðið - 19.07.1992, Page 7
... MORGIJNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR,19. JÚJJ l-992 neinu tagi. Hélt mig eingöngu við áfengið. Þótt ég hafi verið svona mikið veikur þá man ég þetta tíma- bil í smáatriðum, en ég hugsa ekki mikið um það í dag.“ Það urðu mikil viðbrigði að hætta að drekka. Fyrstu áfengislausu helg- arnar eru Óla í fersku minni. Hvem- ig það var að vakna upp á sunnu- dagsmorgnum, ótimbraður og klár í kollinum. Helgarnar söfnuðust sam- an og urðu mánuðir og ár. Þetta var ótrúleg reynsla, að lifa-hverja helgina eftir aðra án áfengis. Óla fór að líða betur og hann öðlaðist trú á sjálfan sig og lífið á ný. Leitin að Guði í meðferðinni á Silungapolli gafst íþróttamanninum loksins tóm til að taka eftir hrópi sálarinnar. Þar öðlað- ist hann trúarreynslu: „Eina nóttina vaknaði ég upp og fann fyrir miklum friði og kærleika sem ég vissi innst inni að var snerting Guðs. Eftir þetta var ég mjög leitandi andlega, en vissi ekki hvert ég átti að snúa mér. Ég vildi trúa því að til væri Guð sem hægt væri að tala við og væri nálæg- ur, ekki bara einhvers staðar lengst í burtu.“ Á þessum tíma kynntist Óli Berg- þóru Oddgeirsdóttur og hófu þau sambúð. Þeim fæddist drengur árið 1982. Tveimur árum síðar slitnaði upp úr sambúðinni en þau héldu áfram tengslum sín í milli. í huga Óla velktust margar spurningar um tilgang lífsins og hvar Guð væri að finna. Haustið 1986 benti Bergþóra Óla á að tala við Björn Inga Stefáns- son, prest Vegarins. „Þarna hitti ég mann sem sagði mér sögu sína. Björn hafði lifað ósköp venjulegu lífi, ekki lent í misnotkun eða neinu slíku líkt og ég. Frásögnin af trúarreynslu hans heillaði mig gjörsamlega. Mér fannst þetta of ótrúlegt til að geta verið satt. Hann talaði um Guð eins og hann þekkti hann. Þetta hafði ég aldrei heyrt áður. Þegar viðtalinu lauk bað Björn með mér litla bæn og það má segja að þá hafi allt breyst. Ég tók á móti Kristi inn í líf mitt. Á þessari stundu varð ég ekki fyrir neinum sérstökum hughrifum, en um kvöldið og næstu daga fann ég að eitthvað mikið hafði gerst. Það varð meiriháttar breyting hið innra BOSCH V E R S L U N Lágmúla 9 sími 3 88 20 RAFSTÖÐVAR ALLT AÐ 30% LÆ K K U N 1,90 kw 62.627 stgr. 2,15 kw 55.456 stgr. 3,00 kw 80.741 stgr. 3,40 kw 1 fasa 3,80 kw 3 fasa 115.446 stgr. sími 67 48 44 3^7 Morgunblaðið/Bjami Okunnugir áttu það til að spyrja hver hann _ væri þessi Óliver sem ylli slík- um huga- ræsingi. Maðurinn \ var Ólafur R Bene- diktsson, einn fræknasti I mark- vörður ís- lensks handbolta. 1969 1970 1971 1972 1972 1973 1973 1974 1974 1974 1976 1976 1977 1977 1977 1978 1979 1979 1979 1979 1979 1980 1981 1982 1985 1989 1989 Byrjar með 2. flokki í Val. Sigur á Norðulandameistaramóti unglinga. Fyrsti landsleikur Óla. Valur íslandsmeistari utanhúss. Ólympiuleikarnir í Munchen. Valur Islandsmeistari innanhúss. Evrópukeppni meistaraliða. Valur bikarmeistari. Heimsmeistarakeppnin í A-Þýskalandi. Evrópukeppni bikarhafa. Norðurlandámeistaramót í Danmörku. Valur íslandsmeistari utanhúss. B-keppnin í Austurríki, island í A-flokk. Valur íslandsmeistari innanhúss. í atvinnumennsku hjá Olympia, Sviþjóð. Með Olympia (sænsku úrvalsdeildinni. Evrópukeppni meistaraliða. ^>4 Valur (slandsmeistari innanhúss. B-keppnin f Frakklandi. Óli Ben. stigahæsti leikmaður MBL. s Evrópukeppni meistaraliða. Sfðasti landsleikurinn, alls leiknir 102 1||| Félagaskipti í Þrótt. Evrópukeppni bikarhafa. Félagaskipti í Val. Evrópukeppni meistaraliða. Valur fslandsmeistari innanhúss. Óli keppti með Olympia i sænsku úrvalsdeildinni eitt keppnistímabil. með mér. Þegar ég fór með bænirn- ar mínar um kvöldið var ég sann- færður um að Guð heyrði þær. Hann var hjá mér. Það var vissa í hjarta mínu og ég fékk að reyna óumræði- lega gleði, óstöðvandi þakklæti, eitt- hvað sem ég hafði aldrei nokkurn tíma fundið fyrir áður.“ Það hafði orðið bylting í lífi Óla við að fara í meðferðina, en þetta var margfalt meira. Þama urðu aftur algjör kaflaskipti. „Þegar ég frelsað- ist fékk ég andstyggð á öllu sem tengdist sukkinu og vitleysunni. Mér fannst eina nóttina að ég þyrfti að gera hreint í íbúðinni. Ég tók saman í poka hluti sem ég hafði fengið lán- aða og gleymt að skila. Allt íþrótta- dótið, bikara og þess háttar, setti ég í svartan plastpoka og fór með í geymslu. Þegar þetta gerðist vorum við Bergþóra komin sitt í hvora áttina og það stefndi í algjöran aðskilnað okkar í milli. Við höfðum gert allt sem í okkar valdi stóð til að vinna úr okkar málum, en ekki tekist. Eft- ir að við eignuðumst bæði trú gerði Guð hið ómögfulega og leiddi okkur saman. Við giftum okkur 1987. Mér finnst þetta sýna hvað Guð getur gert ef maður hleypir honum að.“ í dag er Óli á fastri stefnu og þykir lífíð gott. Þau Bergþóra eiga tvö böm, einnig býr hjá þeim lt ára sonur Bergþóru og Óli átti fyrir dótt- ur sem nú er tvítug. Ólj starfar við sölu- og skrifstofustörf í Reykjavík. Óttinn og kvíðinn sem fylgdi óregl- unni er farinn og í staðinn komin von. Hann segist hafa lært að taka á vandamálum öðmvísi en hann gerði áður, hann biðji Guð að hjálpa sér. „Óliver“ hefur ekki alveg sagt skilið við íþróttimar. „Við hittumst alltaf gömlu félagamir úr „Mulningsvél- inni“ tvisvar í viku og spilum innan- hússfótbolta. Nú myljum við hver annan í kyrrþey," segir Óli. „Svo sæki ég kirkju í Veginum og það fer mikill tími í starfið þar, bæði sam- komur um helgar og heimahópa. Ég spila líka fótbolta við nokkra félaga úr kirkjunni. Við hjónin emm með sumarbústaðaland austur í Gríms- nesi og höfum varið miklum tíma til að planta og græða það upp. í dag langar mig mest til að lifa í sam- ræmi við vilja Guðs.“ FJALLABILL A FINU VERÐI Lada Sport er ódýr 4 manna ferðabíHsem treysta má á jafnt sumar sem vetur. AldrifiO og læsta drifið gera bílinn mjög öruggan og stöðugan íakstri. Hann er með 1600 cm3 vél og er fáanlegur bæði með fjögurra og fimm gíra skiptingu. Farangursrými má stækka með því að velta fram aftursæti. Lada Sport er fjallabíllinn í ár. 1LADA SP0RT BIFREIÐAR & LANDBUNAÐARVELAR HF. Armúla 13108 ReykpmTc Símar 681200 S 31236

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.