Morgunblaðið - 19.07.1992, Qupperneq 5
C 5
MORGUNBLAÐIÐ MANNLIFSSTRAUMAR SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 1992
UMHVERFISMAL//ft;<?^ berframtíbin í skauti sérf
Umhveifið í nýju Ijósi
UM VÍÐA veröld er mikill og almennur áhugi á umhverfisvernd
og því ekki að undra að merkir vísindamenn á sviði náttúruvís-
inda láti til sín heyra. Nýjar kenningar sjá dagsins ljós sem full
þörf er á að ræða. Síðan kemur í ljós hvort þær standast tímans
tönn eða falla í gleymsku. Frægur bandarískur umhverfis- og
lífeðlisfræðingur, Daniel Botkin að nafni, hefur skrifað margar
bækur um umhverfismál og borið fram nýstárlegar kenningar.
Nýlega birtist eftir hann athyglisverð grein í tímaritinu Dialouge
þar sem hann gerir að umtalsefni úrelt viðhorf til eðlisþátta
náttúrunnar. Til dæmis telur hann það jaðra við gamla kreddu
að besta lausnin á varanlegri umhverfisvernd sé friðun sam-
kvæmt uppskrift samtímans. Hún byggist á ranghugmyndum um
að náttúran sjálf nái hinu ákjósanlegasta jafnvægi fái hún til
þess frið. Þessi trú hamli því hins vegar að rædd séu ný viðhorf
um eðli lífríkisins. Að hans dómi er lífríkið svo flókið fyrirbæri,
samofið og samþætt á svo margvíslegan máta þar sem hver þátt-
ur lýtur sínu eigin lögmáli, að maðurinn eigi langt í land þar til
hann kann að lesa hina sönnu heildarmynd út úr þeim „búta-
saumi“. Þó sé heldur ekki nóg að komast að sannleikanum um
þetta flókna kerfi og samspil þess, heldur verði líka að gera ráð
fyrir „hinu óvænta“ sem sé í raun eðlislægur þáttur í framvindu
jarðar. Daniel Botkin andmælir líka þeirra skoðun, að maðurinn
sé óvelkomið aðskotafyrirbæri á jörðinni. Hann sé í raun óaðskilj-
anlegur þáttur lífríkis jarðar og sé þar jafnrétthár og aðrar lífver-
ur.
Ennfremur heldur hann því
fram að hið ákjósanlegasta
og varanlega jafnvægi milli teg-
unda í náttúrunnar ríki náist ekki
sjálfkrafa með friðun vissra teg-
unda. Slík þróun
hafi aldrei verið
til sanns vegar
færð nema í
rannsóknarstof-
um. Þessu til
sönnunar nefnir
hann Tsavo-
þjóðgarðinn í
Kenya, þar sem
er sérstakt friðland fíla. Þar átti
fílastofninn að ná eftir vissan tíma
hinni æskilegustu stærð til eilífð-
ar. Nú hafa gervihnattamyndir
hins vegar sýnt að gróður á þessu
svæði er svo til uppurinn en gróð-
urbeltið í sókn utan girðingarinn-
ar. Þarna gleymdist að taka með
í reikninginn burðarþol annarra
þátta í lífríki svæðisins.
í fyrrnefndri grein er líka farið
nokkrum orðum um stjórn fisk-
veiða og mistök á alþjóðavettvangi
að því er þær varðar. Tekið er
dæmi um ansjósuveiðarnar við
Perú. Árið 1970 veiddust 8 millj-
ónir tonna af ansjósum undan
ströndinni þar. Samkvæmt út-
reikningum sérfræðinga var það
talið hæfilegt magn. Tveim árum
síðar var veiðin komin í 2 milljón-
ir tonna og hún hefur minnkað
árlega síðan. Engin fullnægjandi
skýring er til á þessu.
Enda þótt kenningin um mann-
gerða friðun hafi sína annmarka
er hún þó skásta úrræði umhverf-
isverndaryfirvalda um allan heim.
Þessi höfundur segir að lélegan
árangur slíkrar friðunar sé ekki
að rekja til reikningsskekkju held-
ur séu grundvallar-viðmiðanir um
hið flókna þróunarferli í ríki nátt-
úrunnar rangar og um of einfald-
aðar. Þetta komi æ betur í ljós
með nýjum vísindalegum rann-
sóknum. Þessi viðhorf gilda líka
að hans mati að nokkru um vernd-
un skóga. Nú væri það almenn
skoðun að fengju skógar algeran
frið, muni þar nást hið ákjósanleg-
asta, varanlegasta og fjölbreytt-
asta tegundaríki. Dæmin hafí hins
vegar sannað að þessi kenning er
ekki algild. Jafnvel hafi sannast
að staðbundnir skógareldar hafi
flýtt fyrir endurnýjun og stuðlað
að því fjölskrúðuga lífríki sem
fylgir skógum I vexti.
Hugmyndir manna um um-
hverfi og náttúru hafa tekið breyt-
ingum í aldanna rás. Á 16. öld
var t.d. sú skoðun ríkjandi að
mati hins vestræna heims að allir
þættir náttúrunnar væru hver um
sig sköpunarverk guðs. Færi eitt-
hvað úrskeiðis til dæmis vegna
náttúruhamfara, töldust það elli-
mörk á móður jörð,. sem byijaði
að eldast þegar Adam og Eva
voru gerð brottræk úr Paradís. Á
17. öld komu ný viðhorf til sögunn-
ar með Newton og Kepler, hinum
merkustu vísindamönnum þess
tíma. Gufuaflvélin varð til — véla-
öldin hófst. Þá varð sú skoðun
ofan á að jörðin og sólkerfið
gengju sinn örugga gang eins og
vel smurð klukka — hin fullkomna
aflvél sem staðfesti mátt guðs.
Sú skoðun hefur að mestu gilt
fram á okkar daga. I krafti henn-
ar hafa menn ekki sést fyrir —
treyst um of á gangverkið.
Daniel Botkin telur mannkyn
standa nú á tímamótum. Nú sé
öld hins vélræna viðhorfs að líða
undir lok. Við muni taka nýjar
hugmyndir um náttúruna og eðli
hennar sem munu styðjast við
þróun geimvísinda og hátækni.
Þá muni opnast nýir heimar flók-
inna útreikninga, sem eru okkur
ekki tiltækir enn. Sá heimur muni
taka jafnt mið af hinum lífræna
sem ólífræna efnisheimi. Reyndar
telur hann að fyrst hafi verið
bryddað upp á þessum nýju við-
horfum fyrir tæpum 80 árum,
þegar lífefnafræðingurinn Lawr-
ence Henderson benti á þá algeru
sérstöðu sem jörðin hefur saman-
borið við aðra hnetti, sem sé vatn-
ið. Það er vatninu, sjó eða fersk-
vatni, að þakka að á jörðinni er
ekki óbærilegur hiti og yfirleitt
nokkurt líf.
Allt líf er samofið umhverfinu
í þess flóknu mynd og það getur
ekki viðhaldist nema umhverfið
sé því hliðhollt. Vissar afdrifaríkar
breytingar hafa átt sér stað á jörð-
inni af óþekktum orsökum sem
má rekja árþúsundir eða milljónir
ára aftur í tímann, en þær breyt-
ingar sem hægt er að rekja sögu
til, hafa alltaf verið afar hægfara
samkvæmt okkar tímaskyni og
ekki valdið skjótri alhliða röskun.
Sjálft lífríki jarðar, gróður, dýr eða
örverur, hafa litlu breytt þar um
fram til þessa, enda er hinn líf-
ræni massi ekki nema örlítið, pínu-
brot af heildarmassa jarðarinnar.
Landrekskenningin er eitt dæmi
þessa.
Daniel Botkin vill að hætt verði
að líkja framvindu á jörðinni við
vel smurða klukku. Hann segir
málið miklu flóknara. Framvindan
sé háð samþættingu flókinna
kerfa, sem eru bæði sjálfsstæð og
hvert öðru háð og taka mismiklum
breytingum á misjöfnum tíma.
Formúlan fýrir því ferli hefur bara
ekki fundist enn! Meðan svo er
beri manninum að forðast að valda
of mikilli röskun eða fyrirvaralaus-
um breytingum í ríki náttúrunnar
— og sérstaklega beri að forðast
allar þær breytingar sem sam-
ræmast ekki því sem við þekkjum
þó um náttúrulögmálin. Á meðan
ekki hafa náðst tök á nýjum sann-
indum um heildarmyndina megum
við ekki kasta fyrir róða því sem
áunnist hefur. Við getum nú þeg-
ar skilgreint einföld lífkerfi og
skiljum orsakir og afleiðingar að
vissu marki. Eftir er að tengja og
setja. í allsheijar samhengi. „Nú
þurfum við að eignast afburða-
snillinga á borð við Newton og
Einstein" ;segir Daniel Botkin í lok
greinarinnar og litur vonaraugum
til örtölvunnar, sem hann telur að
muni gegna mestu hlutverki við
vísindaiðkanir framtíðarinnar.
Hann lítur líka vonaraugum til
ungu kynslóðarinnar sem hefur
alist upp við tölvuleiki. Hann seg-
ir að hún muni ef til vill verða
hæfari til að feta nýjar slóðir sem
felast í þeirri tækni og muni kunna
að bregðast við „því óvænta" sem
upp kann að koma með skjótum
hætti. Hver veit nema hann hafi
rétt að mæla.
Sagt er að ánamaðkur heiti ánamaðkur af því að það eigi að kasta
honum í ána!
enn fór laxinn að japla á tuggunni.
Ég gætti þess að hreyfa hvorki legg
né lið og bjóst við ákveðnari kippum
á hverri stundu. Sú von brást, lax-
inn birtist með agnið milli tannanna
og sá fór nett með það.
Ég leit á klukkuna, hún var al-
veg að verða eitt. Nú eða aldrei
yrði ég að fínna ráð sem dygði, slak-
aði út línu, lét strauminn taka bug-
inn niður fyrir fiskinn ef vera mætti
að öngullinn kræktist í kjaftvikið á
honum þegar hann sleppti. Laxinn
synti upp að sama steininum og
hann var vanur, opnaði skoltinn —
ég lyfti ósjálfrátt stangartoppnum,
vonaðist til að finna átakið og sjá
stöngina svigna — en ekkert gerð-
ist. Grár gljúfurveggurinn blasti við
andspænis mér. Klukkan var orðin
eitt.
Ymsar sögur eru sagðar af for-
ystulöxum sem taldir eru svo gáfað-
ir að þeir sjá hættu í agni veiði-
mannsins og vilja bægja henni frá
félögum sínum með því að fjar-
lægja hana á svipaðan hátt og hér
er greint frá. Litla trú hef ég á því
að svo hafi verið í þessu tilviki.
Mér sýndist þessi lax svo sem ekk-
ert gáfulégri en aðrir. Erfitt að vita
með vissu hvað liggur að baki enda
mörgum spurningum ósvarað um
hegðun laxins.
é= cordata
Suðurlandsbraut 12 - stmi 688944
MICROTÖLVAN
486 Sumartilboð
Aðeins í 5 dagal
Til að rýma fyrir nýjum vörum í toll-
/örugeymslu höfum við ákveðið að
bjóða nokkrar Cordata 486 tölvur á ein-
stöku sumartilboði. Afslátturinn í 5
daga samsvarar því að þú fáir lita-
skjáinn ókeypis!
Þetta er tilboðið: Cordata 486DX-33
tölva með 64Kb flýtiminni, 4Mb minni,
3.5" drifi, 102 hnappa lyklaborði, MS-
DOS 5, Windows 3 og mús á aðeins kr.
124.900 staðgreitt. Þetta er frábær og
örugg tölva á ótrúlegu verði!
Lággeisla Super-VGA litaskjár
(1024x768) kostar aðeins kr. 27.600 og
harðir diskar eru frá kr. 17.900.