Morgunblaðið - 29.07.1992, Side 4

Morgunblaðið - 29.07.1992, Side 4
w C fí f./.pj í ()<■ (i-jvi'/iPQQ (HQ/ !(’/ií/OHOM 4 B MORGUNBLAÐIÐ 999 BARCELOMA ’92 MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1992 Barcelona ’92 £ í i ■ 21 ÁRS Bandaríkjamaður, i' Mark J. Henry frá Texas er þyngsti keppandinn á ólympíuleik- £ unum. Henry er 176 kíló þrátt - fyrir að vera aðeins 188 sm. Hann keppir í lyftingum og er að sjálf- 1 sögðu í þyngsta flokknum. ■ ÓLYMPIUKEPPENDUR frá lýðveldum Júgóslavíu eru vel að- skildir frá hvorum öðrum í ólympíu- þorpinu. 88 keppendur koma frá Serbíu, 71 frá Króatíu, 51 frá Slóveníu, 23 frá Bosníu og 13 frá Makedóníu. Minnsta fjarlægðin á milli keppenda frá sitthvoru lýð- veldi er 300 metrar. ■ FREGNUM um að þijár aust- urrískar sundkonur hefðu dansað naktar á svölum sínum í ólympíu- ri þorpinu aðfararnótt sunnudagsins var tekið með ró af forráðamönnum hópsins. „Atvikið kemur ekki til með að hafa neinar afleiðingar þar sem okkur hafa ekki borist neinar kvartanir frá sendinefndum ann- arra þjóða,“_ sagði meðlimur Austurrísku Ólympíunefndarinnar ! um atvikið. ■ MORGUNBRA UÐIÐ hefur áreiðanlega staðið í spænskum blaðalesendum sl. sunnudag. Leik- fangafyrirtækið Bennetton var með tvær heilsíðuauglýsingar í þremur stærstu dagblöðum lands- ins. í auglýsingunum var mynd af fimm risasmokkum sem mynduðu ólympíuhringina. Auglýsingarnar voru fordæmdar af einum stjórnar- manna Alþjóða ólympíunefndar- innar sem kallaði þær lágkúruleg- ar og sagði að nefndin myndi hugs- anlega grípa til einhverra aðgerða vegna málsins. ■ SJÓNVARPSHÓPUR frá þýsku stöðinni ARD fékk óboðna gesti á hótelið til sín. Hópur kakkalakka hafði hreiðrað um sig í herbergjum þeirra. Keppinautarn- ir hjá ZDF-stöðinni búa í nágrenn- inu við gott yfirlæti í einbýlishúsi. ■ ÞAÐ er oft stutt á milli sorgar og gieði í íþróttum og því fékk sautján ára dönsk sundkona, Britte Vestergárd að kynnast eftir 400 m fjórsundið á Ólympíuleikunum. Vestergárd hoppaði af gleði eftir sundið þegar tilkynnt var að hún hefði synt á 3,53:60 mín sem er undir danska metinu. Það var ekki fyrr en nokkrum mínútum síðar þegar hún var spurð að því hvað hefði farið úrskeiðis að það rann upp fyrir henni að hún hefði fallið úr keppni. Hún gerði ógilt við snún- ing eftir 250 metra og grét eftir að sannleikurinn kom í ljós. ■ BRESKI júdókappinn Elvis Gordon segist ætla að heiðra minn- ingu bróður síns með því að vinna gullið í þungavigt. Bróðir hans var skotinn til bana í heimabæ sín- um eftir að hafa handleikið leik- fangabyssu sem lögreglan taldi vera alvöruvopn. ■ MÓTSHALDARAR hafa farið fram á það við hjólreiðamenn að þeir hætti að æfa sig á vegum úti án aðstoðarmanna, vegna slysa- hættu. Að sögn þeirra hafa þegar orðið fimm slys. ■ SL YSA VARÐSTOFAN í ólympíuþorpinu hefur nú þegar aðstoðað yfir 500 manns, mest vegna minniháttar meiðsla eða veikinda. Af þessum 500 voru 110 þátttakendur á leikunum. ■ HEIMSMEISTARINN í 200 m hlaupi karla, Bandaríkjamaður- inn Michael Johnson, segir að hann eigi að geta slegið heimsmet- ið í 200 m hlaupi á leikunum, en það er elsta heimsmet sem í gildi er í hlaupagreinunum. BLAK . ÆMSSmSjMM mesimsm ít . á'S Reuter FRJALSIÞROTTIR Þýska vikutímaritinu Spiegel um svissneskan kúluvarpara: Tvö andlit... Þessi skemmtilega mynd sýnir banda- rísku blakmennina Robert Samuelson og Scott Fortune í sigur- leik gegn Kanada. Lyfjanotkun Giinthörs eins og bankaieyndarmál í Sviss SVISSLEMDINGAR eru svo til vissir um ein gullverðlaun á Ólympíuleikunum í Barcel- ona. Werner Giinthör, heims- meistari í kúluvarpi, hefur varpað kúlunni yfir metra lengra en helstu keppinautar hans á leikunum og ætti ekki að eiga íerfiðleikum með sig- ur á föstudag. En fullyrðingar í þýska vikutímaritinu Spiegel nú í vikunni varpa skugga á stolt og gleði þjóðarinnar með væntanlega frammi- stöðu Gunthörs. Tímaritið fullyrðir að hann hafi árum saman notað kraftalyf og svissneskir læknar og íþróttafrömuðir séu í vitorði með honum. Giinthör kallar fullyrðingar tímaritsins „hreinasta kjaft- æði“ og veltir fyrir sér hver græði á því að slíkur óhróður sé borinn út um hann. Spiegel skrifar fullyrti einmg fynr tveimur árum að hann notaði ólögleg lyf. Gúnthör segir að tímaritið hafi ekki getað sannað orð sín þá frekar en nú. Spiegel segir að það sé farið með lyfjanotkun Gúnthörs eins og bankaleyndarmál í Sviss. Tímaritið segir að Rannsóknarstofnun ríkis- ins í íþróttaskólanum í Magglinaen hafí aðstoðað Gúnthör og vitnar í gamalt bréf frá fyrrverandi for- stjóra hennar til núverandi for- stjóra þar sem segir að hann hafi farið að óskum þjálfara Gúnthörs og þagað um anabólísku-meðferð hans. Bernhard Segesser, læknir svissneska Ólympíuhópsins, sem Spiegel kallar „lyfjalækni", segist hafa gefið Gúnthör 10 til 50 grömm af „Stromba oral“ í nokkr- ar vikur árin 1985 og 1987 þegar hann var meiddur en ekki eftir bakuppskurð 1990 af því að þá var búið að banna lyflð. Svissneskir fjölmiðlar hafa aldr- ei fullyrt að Gúnthör notaði lyf en hafa greint frá erlendum að- dróttunum um það. Margir trúa ekki öðru en að hann noti lyf og komist með klókindum hjá því að vera gripinn. Hann hefur staðist lyfjapróf í Helsinki, Lille og í Lausanne í ár. Þeir sem veittu honum harðasta samkeppni und- anfarin ár eru allir úr leik vegna lyfjaneyslu. Svisslendingar vilja trúa því að þeirra maður sé Herkú- les af náttúrunnar hendi og eru súrir út í Spiegel fyrir að kasta rýrð á frammistöðu hans. RIFFLA OG SKAMMBYSSU SKOTFIMI RiHlaskotfiminni er skipt í þrjá aðaiflokka; léttriffla, stóra riffla og loftriffla. Síðan er skotfimi flokkuð eftir því hvort skotið er standandi, í gleiðstöðu eða krjúpandi. Nútíma markbyssur og rifflar eru gerðar af mikilli nákvæmni og skotin eru sérstaklega prófuð og þeim úthlutað til keppenda til að tryggja að allir standi jafnt að vígi. Góður skotmaður þarf að hafa sterkar taugar og mikla einbeitingu. Léttur markriffill NOIÍma léttrifflar (22ja calibera) eru míkil nákvæmnissmíð sem gerir það að verkum að góðir skotmenn geta náð mjög góðum árangri, nærri fullkomnum. Skepti sem hægt er að stilla þannig að það falli þétt að kinn skotmannsins. Aftara sigtið er með örfínum stillibúnaði svo skytturnar geti tekið mið af hæðamismun og vindi. Hægt er að fá litað gler til að útiloka endurkast sem trufað gæti miðið. Jafnvægisstilling til að tryggja nákvæmt mið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.