Morgunblaðið - 29.07.1992, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 29.07.1992, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ Q$<Kp BARCELONA ’92 MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1992 B 5 Norðmann TENNIS Becker í vandræðum meðóþekktan ÞÝSKI tennisleikarinn Boris Becker lenti í miklum vandræðum með óþekktan 19 ára gamlan Norðmann, Christian Ruud, ífyrstu umferð tenniskeppni Olympíuleikanna. Becker sigraði með þrem ur hrinum gegn tveimur í leik sem tók á milli fjórar og f imm klukkustundir. Norðmaðurinn er númer 312 á heimslistanum, og hefur aðeins unnið einn leik á móti á þessu ári. Reuter Borls Becker þurfti svo sannarlega á kælingu að halda í leiknum á móti Norðmanninum Christian Ruud. í fyrsta lagi þurfti hann fimm hrinur til að sigra unglinginn og í öðru lagi fór hitinn yfir 40 gráður meðan á leiknum stóð. SKOTFIMI Tvöfalt hjá Rússum Norðmaðurinn sigraði fyrstu hrinuna nokkuð auðveldlega 3-6, tapaði síðan annarri hrinu naumlega, en náði síðan að sigra þá þriðju. Hann hefði með sigri í ■ STEFFI Graf ætlar að flytja úr ólympíuþorpinu, þar sem hún er orðin mjög þreytt á því að vera sí- fellt að gefa öðrum íþróttamönnum eiginhandaráritanir. Hún segist engan frið fá og það gangi einfald- lega ekki. H BORIS Becker lenti í miklum vandræðum með ungan Norð- mann, Christian Ruud, í fyrstu umferðinni. Þegar honum gekk hvað verst gekk hann í átt að áhorf- endapöllunum, rétti einum áhorf- anda tennisspaðann sinn og sagði honum að fara inn á , því hann myndi örugglega gera betur en hann. ■ HITINN í Barcelona fór yfir 40 gráður í gær og kvörtuðu bæði keppendur og áhorfendur mikið yfir því. Nokkrir áhorfendur á tennis- keppninni fóru fram á það við starfsmenn að þeir úðuðu á þá vatni með vatnsslöngum sem staðsettar voru á vellinum. ■ BECKER léttist um rúmlega þrjú kíló í leiknum gegn Norð- manninum. fjórðu hrinu tryggt sér sæti í ann- arri umferð og sent Becker heim, en tapaði aftur naumlega 7-6 eftir að hafa verið 2-4 yfir, og tryggði Becker sér síðan sigurinn í fimmtu og síðustu hrinu, 6-3. Norðmaðurinn, sem er númer 312 á heimslistanum, hefur aðeins náð að sigra einu sinni á þessu ári og kom því frammistaða hans mik- ið á óvart. Becker hefur hins vegar aldrei verið sterkur á leirvöllum, hefur t.a.m. aldrei unnið sigur á stórmóti á leirvelli. „Ég lék alls ekki nógu vel í dag, ég verð að gera betur ef ég ætla að vinna til verðlauna," sagði Bec- ker eftir leikinn. „En ég veit þó að ég hef úthald í 4-5 tíma leik sem er mikilvægt að vita.“ Norðamaður- inn sagði á eftir að hann væri mjög ánægður með leik sinn. „Ég lék ansi vel, en mig grunar að hann hafi oft leikið betur,“ sagði Ruud. Fleiri í vandrædum En Becker var ekki sá eini af þeim stóru sem lenti í vandræðum. Jim Courier, sem er efstur á heims- listanum, lenti í vandræðum með Indveijann Ramesh Krishnan og Króatinn Ivanisevic sigraði Portúg- alann Bernardo Mota í fimmtu og síðustu hrinunni. Steffi Graf sigraði óþekkta stúlku frá Mexíkó auðveldlega, en kvartaði mjög yfír hitanum í gær, sem fór yfir 40 gráður meðan hún var að spila. „Hitinn ætlar okkur öll lifandi að drepa. Ég hef þurft að æfa mjög snemma á morgnana þegar hitinn er aðeins minni. Það er ekki auðvelt en ég grennist að minnsta kosti örlítið," sagði Graf. ■ Úrslit / B10 Rússar unnu tvöfalt í skotfimi í fyrradag. Yuri Fedkin og Marina Logvinenko settu bæði ólympíumet. Heimsmeistarinn í keppni með loftriffli karla, Yuri Fedkin frá Rússlandi, setti ólympíumet í und- ankeppninni í gær, fékk 593 stig af 600 mögulegum (60 skot). Hann fékk 695,3 stig í úrslitunum. „Ég gerði mér nokkrar vopir um að sigra,“ sagði Fedkin. „Ég var taugaóstyrkur í úrslitunum, en háv- aðinn, hrópin og köllin í áhorfendum hjálpuðu mér.“ Serbinn Goran Maksimovic, sem sigraði í Seoul, hafnaði í fimmta sæti. Logvinenko fékk 684 stig í opn- um flokki skammbyssa. „Ég gat ekki verið með í Los Angeles [Sov- étmenn mættu ekki], gekk illa í Seoul og mál var að linnti,“ sagði rússneska stúlkan. Barcelona ’92 ■ GENC Barkici, lyftingamaður frá Albaníu, komst aldrei lengra en að dyrum keppnisstaðarins í gær. Hann klemmdi fingur á milli stafs og hurðar og varð að draga sig úr keppni. „Þetta var hræði- legt. Ég gerði mér vonir um að ná sjöunda eða áttunda sæti, en upp- skar ekkert.“ ■ ÞETTA rifjaði upp söguna um ítalska maraþonhlauparann Dor- ando Pietri, sem kom fyrstur inná völlinn á leikunum í London 1908. Hann var gersamlega búinn, vissi vart hvar hann var, fór í öfuga átt, datt fímm sinnum og var borinn yfír endalínuna, en var þá dæmdur úr leik. ■ MOHAMED Hammad, boxari í yfirþungavigt frá Súdan, gekk inní hringinn, þegar bjallan glumdi á leikunum í Seoul fyrir fjórum árum. í þriðja skrefi komst hann að því að keppninni var lokið — þjálfari hans hafði hent handklæði inná völlinn í mótmælaskini við dóm í keppni annars boxara frá Súdan. ■ ELVIRA Ozolina átti titil að veija í spjótkasti kvenna á leikunum í Tókýó 1964. Hún hafnaði í fimmta sæti og varð svo reið að hún hélt rakleiðis til hárskera og lét hann krúnuraka sig. ■ MURRAY McCaig, siglinga- kappi frá Kanada, fótbrotnaði, þeg- ar hann hjólaði á lögreglubíl í ólympíuþorpinu í Barcelona og keppir því ekki. ■ Tyrkneski ræðarinn AIi Riza Bilal datt útbyrðis í gær, þegar einstaklingskeppnin var hálfnuð, og þar með var draumurinn úti. ■ VIÐBRÖGÐ hans urðu ekki eins og hjá Allen Warren og David Hunt á leikunum í Montreal 1976. Þeir voru svo óánægðir með skútu sína að þeir kveiktu í henni. Hunt sagði þá að skipstjórinn væri sér- stakur en ekki fullkominn. „Ég reyndi að telja hann á að brenna með fleyinu, en hann féllst ekki á það.“ SUND „Farþegar" ekkimeðí Atlanta MUSTAPHA Larfaoui, forseti Alþjóða sundsambandsins, FINA, sagði ígær að íframtíð- inni fengju sundmenn ekki að taka þátt í Ólympíuleikum, nema hafa náð tilsettum lág- mörkum. Tími „farþega“ væri á enda. Fyrst reynir á þetta í Atlanta eftir fjögur ár, en til þessa hefur hver þjóð getað sent tvo keppendur í hverja grein. Alþjóða ólympíunefndip, IOC, beindi nýlega þeim tílmælúm. til aðildarsamtaka að íþróttafólki á Ólympíuleikum yrði fækkað. Larfaoui, sem var endurkjörmn formaður FINA til næstu fjögurra ára, sagði að IOC hefði óskað eft- ir lágmörkum og bent á að lakari sundmenn gætu eftir sem áður tekið þátt í heimsmeistarakeppn- inni. „Tækninefnd okkar er að skoða málið, en víst er að það verða lágmörk f Atlanta." Þetta þýðir að lakari sundmenn fá ekki framar tækifæri til að keppa við þá bestu á Ólympíuleik- um. Larfaoui var spurður hvort þetta stríddi ekki gegn ólympíu- hugsjóninni, hvort aðalatriðið væri ekki frekar að vera með en sigra. Hann sagðist vera sammála Sam- aranch (forseta IOC) að það að vera með væri ekki endilega gott fyrir. íþróttimar. „Ég held að þetta [lágmörk] sé frekar hvetjandi en letjandi. Við verðum að hugsa okk- ár gang, þegar sundmenn eru 25 til 30 metrum á eftir fyrsta manni í 200 metra sundi, einum legg eða fleiri á eftir í 400 metra sundi að ég tali ekki um 1.500 metra sund. En við viljum hafa sem flesta og reynum að finna leið til þess.“ •DIADORA SAMSKIPADEILD Stórleikur á Valsvelli íkvöld kl. 20: VALUR - VÍKINGUR Mjólkurbikarmeistari 1991 Islandsmeistari 1991 r I síðustu umferð skoruðu Valur og Víkingur samtals 11 mörk. Verða mörkin fleiri í þessum leik? Nokkrir heppnir áhorfendur fá UMBRO bolta og gjafapoka frá DIADORA. •DIADORA Miðaverð: Fullorðnir kr. 600, börn kr. 200. UMBRO

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.