Morgunblaðið - 29.07.1992, Side 12

Morgunblaðið - 29.07.1992, Side 12
 Eftirminnilegur lokapunktur Samveldisstúlkurtryggðu sér sigur í liðakeppni ífimleik- um kvenna þráttfyrirhrakspár SAMVELDISSTÚLKUR hafa sagt sitt síðasta orð í liðakeppni f fimleikum kvenna á Ólympiu- leikum, og það gerðu þær svo sannarlega með eftirminnileg- um hætti f gærkvöldi. Svetlana Boginskaja, 19 ára fyrrum heimsmeistari ffjölþraut, leiddi lið SSRtil sigurs í keppninni, og kæfði þar með allar þær raddir sem haldið hafa þvífram að hún væri útbrunnin og ætti að hætta keppni. Bandarísku stúlkurnar sem flestir bjuggust við að sigruðu í liðakeppninni, lentu í þriðja sæti, Cristina Bontas tryggði rúmensku stúlk- unum annað sæti með frammi- stöðu sinni ífrjálsu æfingunum í gær. Sovéskar stúlkur hafa orðið Ólympíumeistarar í liðakeppni í fimleikum kvenna nær óslitið síðan 1952. Það var einungis 1984 sem þær komust ekki á pall, en þá mættu Sovétmenn ekki til leiks. Sovétríkin heyra nú sögunni til en Samveldi sjálfstæðra ríkja keppir í þeirra stað á leikunum, í fyrsta og væntanlega síðasta skipti. Samveldisstúlkur hafa því sett punkt fyrir aftan glæsilega sögu sovéskra liða í liðakeppni í fim- leikum kvenna, og mjög ólíklegt er að önnur þjóð nái viðlíka árangri í framtíðinni. Boginskaja hættir að öllum líkind- um eftir leikana, en hún stóð sig frábærlega í gær, fékk aldrei lægri einkunn en 9,862 í fijálsu æfingun- um og var önnur í einstaklings- keppninni, 0,024 stigum á eftir Shannon Miller frá Bandaríkjpnum. Miller reyndi hvað hún gat að tryggja Bandaríkjamönnum sigur, en barðist vonlítilli baráttu eftir að heimsmeistarinn í fjölþraut, Kim Zmeskal, féll af jafnvægisslánni í skylduæfmgunum. Miller stóð sig annars frábærlega, tryggði sér sæti í úrslitum á öllum áhöldum ein kepp- enda, auk þess sem hún var efst í einstaklingskeppninni, en 36 efstu stúlkurnar keppa til úrslita í fjöl- þrautinni, og átta efstu á hveiju áhaldi. Reuter Sveltlana Boginskaja frá Samveldinu í gólfæfíngum. segir Júlíus Jónasson um leik hand- boltaliðsins gegn Tékkum í kvöld Skapti Hallgrímsson skrífar frá Barcetona Islendingar mæta Tékkum í kvöld í handknattleikskeppni Ólymp- íuleikanna. Þetta er annar leikur íslendinga hér ytra, þeir sigruðu Brasil- íumenn 19:18 í fyrsta leiknum án þess að sýna bestu hliðar sínar, svo vægt sé til orða tekið. Júlíus Jónasson, markahæsti maður liðsins gegn Brasilíumönn- um, sagði í gær að sér litist alls ekki illa á leikinn í kvöld. „Þetta er lið sem við höfum oft spilað við og þekkjum vel, og úrslitin hafa alls ekki verið okkur neitt frekar í óhag en þeim. Við teljum okkur því eiga möguleika. En við verðum auðvitað að leika mun betur en gegn Brasilíu til að sigra,“ sagði Júlíus. „Við erum ákveðnir í því nú, eins og áður en við fórum af stað hing- að út, að standa okkur. Við höfum rætt það mikið hvað fór úrskeiðis gegn Brasilíu. Fyrir því er kannski ekki ein skýring; þetta var fyrsti leikur og spenna í mönnum. Og þegar allt er í járnum eins og þá var er eins og menn hiksti. En ég held þetta sé ekki neitt stórmál. Það er gott hljóð í mönnum — við ætlum að standa okkur,“ sagði Júl- íus Jónasson. HANDKNAtTLEIKUR: Reuter Kim Zmeskal ræðir við þjálfar sinn Bela Karolyi. En bandarísku stúlkurnar náðu ekki einu sinni að tryggja sér silfur- verðlaunin. Þær voru í öðru sæti eftir skylduæfingarnar en frábær frammistaða rúmensku stúlkunnar Cristinu Bontas lyfti þeim rúmensku upp í annað sæti. Bontas deildi fyrsta sætinu í gólfæfingum með Bog- inskaju, en rúmenska stúlkan hefur nýlega náð sér af meiðslum. Zmeskal endaði í tólfta sæti í ein- staklingskeppninni, en hún var í 32. sæti eftir skylduæfmgarnar. Henni gekk betur í fijálsu æfingunum í gær, og tryggði sér sæti í úrslitum í stökki og gólfæfingum auk fjöl- þrautarinnar. Hún var ánægð með árangurinn eftir mistökin í skyldu- æfingunum. Þjálfari hennar, Bela Karolyi sem m.a. þjálfaði Nadiu Comaneci, sagði að hún he'fði sýnt sitt rétta andlit í gær. „Hún er mjög sterk andlega og líkamlega. Hún sýndi það með frammistöðu sinni nú að hún á skilið að vinna til verð- launa,“ sagði Karolyi. Sólbað á bannlista Ferðamenn í Barcelona kunna vel að meta sólskinið og hit- ann, en keppendum, sem taka íþrótt sína alvarlega og stefna á verðlaunasæti, er ráðlagt að flat- maga ekki á ströndinni við ólymp- íuþorpið. Caroline Searle hjá breska lið- inu sagði að bresku íþróttafólki hefði verið bannað að fara í sól- bað. „Við höfum bannað því að fara á ströndina, vegna þess að það dregur úr kraftinum og er ekki sálfræðilega gott.“ Atle Schjott hjá norska liðinu sagði að sumir norsku keppend- anna hefðu verið í klukkustund á dag á ströndinni. „Þeim hefur samt öllum verið sagt að fara varlega og gæta þess að vera ekki lengi í sólinni í einu, því við erum óvön því.“ Heiner Heinze sagði að Þjóð- veijar segðu ekki íþróttafólki sínu hvað mætti og hvað ekki. „En flestir fara mjög varlega og gæta þess að liggja ekki í sólbaði fyrr en eftir keppni, því allir vilja gera sitt besta.“ Ákveðnir í að FIMLEIKAR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.