Morgunblaðið - 21.08.1992, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 21.08.1992, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 21. AGUST 1992 B 5 tt TTT í i' ITI- niiiA lir/'iminr/' Skipti mér ekki af því sem mamma kaupir á mig „Á TÁNINGSALDRINUM fara flestir að móta sér skoðanir á klæðaburði og finnst þeir hafa heilmikið til málanná að leggja. Foreldrar eru stundum í öngum sínum þegar úlpan sem þeir af mestu kostgæfni völdu handa barninu sínu liggur óhreyfð inni i skáp og gamli slitni gallajakkinn er þess í stað notaður dag eftir dag. Lítið þýðir að malda í móinn því táningurinn segir einfald- lega að úlpan sé ekki í tísku og hinir krakkarnir myndu aldrei láta sjá sig í slíkri flík. Guðlaug Sveinsdóttir og sonur hennar, Sveinn Viðarsson, 13 óra, sem fer i 8. bekk í Ár- bæjarskóla. Morgunblaðið KGA í nýja jogginggallanum. - Sveinn í jogg- inggallanum sem Guðlaug keypti á útsölu. mátti ekki undir nokkrum kringum- stæðum vera undir hökunni. Verð á fatnaði fyrir barn, sem er að byija í 8. bekk, virðist svipað og fyrir 6. ára. Þörfín er álíka mikil og því hægt að setja upp líkt dæmi. Flestir kjósa reimaða íþróttaskó og allir þurfa kuldaskó en gúmmí- stígvél heyra víst sögunni til á þess- um aldri. Innileikfímiskó verður líka að taka með í reikninginn og ættu því 8.000 - 10.000 kr. að duga fyr- ir skótaui ef haft er til hliðsjónar verð hjá Hagkaupum og S. Waage. Tískusveiflur í skólatöskum Fyrir nokkrum árum voru ungl- ingar mikið með svokallaðar stress- töskur. Tími þeirra er senn að líða undir lok og þeir sem gerst þekkja telja að bakpokar eða töskur úr leð- urlíki með handfangi og hliðarólum verði vinsælastar í vetur. Hjá Penn- anum og Hagkaupum fást þær á u.þ.b. 2.000 kr. Odýrustu bakpok- arnir kosta 1.574 kr. í Hagkaupum. Annars segir Eydís Egilsdóttir að oft komi val unglinganna hveiju sinni eins og þruma úr heiðskíru lofti, innkaupafólki sé mikill vandi á höndum og þurfi stundum að gera skyndipantanir ef það hefur ekki veðjað rétt. Ætla má að í ritföng, stílabækur og pennaveski fari 1.900 kr. Ekki er víst að allt þetta sé nauð- synlegt til þess að unglingurinn sé sæmilega útbúinn. Hann getur e.t.v. notað skólatöskuna frá því í fyrra og peysur af stóra bróður o.s.frv. En aðstæður geta líka verið þannig að kaupa þarf allt nýtt á sama tíma og þá hljóðar dæmið upp á 28.000 - 45.000 kr. í fyrsta bekk í f ramhaldsskóla Þegar hér er komið sögu vandast málið og útúrdúrarnir verða miklir á klæðnaði 16 ára unglings saman- borið við hefðbundinn fatnað á 13 ára. Einstaklingurinn er óðum að bijótast út úr hópsálinni, þótt vissum grundvallarreglum verði að hlíta. Fataáhugi eykst til muna og oft veija unglingar mestum hluta sum- arlauna sinna í föt. Þeir nota nú oftast fullorðinsstærðir og verðið getur auðvitað hlaupið upp úr öllu valdi ef keypt er í dýrustu búðunum, en yfirleitt eru ungjingar þó ekki bestu viðskiptavinir þeirra. Gallabuxur eru númer eitt, tvö og þijú. Enginn þykir gjaldgengur nema eiga Levis 501 en þær kosta 6.890 kr. Víða er hægt að fá mun ódýrari gallabuxur, t.d. segir Þor- björn Stefánsson innkaupastjóri sér- vara í Hagkaupum að mest seldu gallabuxurnar séu á 2.295 kr. Stretsbuxur eru alveg ómissandi fyrir stelpur svonefndir afabolir eru vinsælir á bæði kynin. Svava Johans- en eigandi verslunarinnar Sautján segir að groddaleg mótorhjólastígvél á 8.900 kr. seljist eins og heitar lummur. Sparifatnaður telst ekki með nauðsynlegum skólafatnaði, en flest- ir framhaldsskólanemar þurfa að eiga einhveijar betri flíkur vilji þeir stunda félagslífið að einhveiju marki. Ekki er fjarri lagi að áætla að 16 ára unglingur eyði 27.000 - 40.0000 krónum í fatnað fyrir skólann ef keyptar eru þrennar buxur, rúllukragabolur, afabolur, háskóla- bolur, peysa, úlpa og ullaijakki. Nauðsynlegur skóbúnaður þ.e. leðurskór, reimaðir íþróttaskór, inni- íþróttaskór og kuldaskór er á bilinu 12.000 - 18.000 kr. Belgtöskur eða dýrar leöurtöskur Ekki eru nema tvö til þijú ár frá því framhaldsskólanemar tóku skyndilega miklu ástfóstri við stórar og þykkar skjalatöskur úr leðurlíki, belgtöskur eru þær kallaðar, kosta um 6.000 kr. og eru til í mismun- andi gerðum. Eydís í Pennanum sagði að áður hefðu einungis roskn- ir herramenn keypt slíkar töskur og engin teljandi sala verið í þeim. Reyndar kaupa strákar frekar belg- töskur, en stelpur kjósa fremur vandaðar leðurtöskur. Þær eru til í í ótal gerðum og getur verðið farið allt upp í 10.000 kr. í Hagkaupum er búist við að leðurtaska á 7.495 kr. verði mest keypt í ár. Nðmsbækur og ritföng Þótt fatnaður komi ansi drjúgt Sveinn Viðarsson segir að sem betur fer viti mamma sín alveg hvemig föt hann vilji og hann sé ekkert að skipta sér af því sem hún kaupi á sig. „Að minnsta kosti ennþá,“ segir Guðlaug Sveinsdóttir móðir hans og af raddblænum má ráða að hún hafi ekki mikla trú á að svo verði mik- ið lengur. „Ég er ekki mjög skipu- lögð í innkaupum, kaupi skólaföt- in á krakkana aðallega eftir veðri og vindum. Þó reyni ég að kaupa svolítið á útsölum strax í ágúst. Ég er núna búin að kaupa jogg- inggalla og þykkan bómullarbol á Svein, þetta eru fín föt í skólann, segir Guðlaug og er ánægð með innkaupin. „Bolurinn kostaði tæp- ar 2.000 kr. og gallinn 3.500. Eg ætla ekki að kaupa fleira strax, sjá frekar til, ég býst við að þeg- ar líður á veturinn geri Sveinn ákveðnar kröfur þegar hann sér hvernig hinir krakkarnir klæðast. Auðvitað er nauðsynlegt að kaupa góða kuldaskó, húfu og vettlinga. Verðskyn mitt er ekki betra en það að ég hef ekki hugmynd um hvort kuldaskór kosta 6.000 eða 10.000 kr. Hér á heimilinu er til ónotuð dúnúlpa sem ég vonast til að Sveinn geti notað í vetur. Sveinn fitjar upp á nefið svo lítið ber á og segir að úlpan frá í fyrra sé alveg ágæt. - Gúmmístígvél, þau kosta nú eitthvað? Sveinn er hálfhneykslaður, seg- ir að svoleiðis noti maður bara í veiðiferðum, maður láti ekki sjá sig í gúmmístígvélum í skólanum. Sem sagt, gúmmmístígvél þarf ekki að kaupa handa þeim sem eru í áttunda bekk. - En skólataska, nota krakkar í sjöunda bekk eins skólatösku og krakkar í áttunda bekk? „Margir eru komnir með skjala- töskur eins og' krakkar í fram- haldsskólum eiga. Ég á sjálfur harða tösku til að hafa á bakinu, hún er úr taui og raunar ágæt, hefur dugað í mörg ár. Mér er alveg sama þótt ég hafi hana líka í vetur." Guðlaug segist ómögulega geta gert sér í hugarlund hversu há upphæð fari í skólafatnað og ann- að sem tengist skólagöngu Sveins. „Mestu peningarnir fara í fatnað, enda fá grunnskólaböm allar nauðsynlegar námsbækur í skól- anum. Stílabækur, ritföng og þess háttar eru ekki stór útgjaldaliður í heimilisbókhaldinu. Ég hef alla tíð ptjónað og saumað mikið á krakkana mína og tel mikinn sparnað í því. Sveinn er ósköp nægjusamur varðandi fatnað, hann er hvorki í tónlistarskóla né dansskóla, aftur á móti á skíða- íþróttin hug hans allan og það fer dijúgur peningur í tilheyrandi út- búnað og æfíngagjöld." ■ Vinsælustu skólatöskumar Efst til vinstri er kassataska úr vatnsheldu næloni fyrir yngstu nemendurnar, við hliðina er skólataska úr leðurlíki með hliða- rólum eins og unglingar kaupa mikið og neðst er belgtaskan vinstra megin og vönduð leðurt- Morgunblaðið/KGA aska fyrir framhaldsskólanema. við pyngju framhaldsskólanema mega þeir ekki gleyma aðalatriðinu; kennslubókum og ritföngum. Lauslega áætlað kosta. ritföng um 2.000 kr. Vafalaust er hægt að komast af með tiltölulega lítil fataútgjöld, en enginn sleppur við bókakaupin. Sú nýlunda var tekin upp fyrir nokkrum árum að bókaverslanir komu á fót skiptibóka- mörkuðum. Þar fást bækur fyrir u.þ.b. 60% af verði nýrra bóka. Reinharð Reinharðsson verslunarstjóri í bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar segir að nemend- ur reyni yfirleitt að kaupa bækur þar, en eftirspum |Sé meiri en framboð og því verði flestir að kaupa sér ritthvað af nýjum bókum. Hann segist ekki enn hafa fengið bókalista frá skólunum en upplýsir að nýnemi í MR hafí í fyrra þurft að kaupa kennslubækur fyrir 38.0000 - 40.000 kr. og er þá miðað við verð nýrra bóka. Sextán ára og vel búinn í skólann þýðir sem sagt útgjöld upp á 75.000 - 110.0000 kr. Framangreind upptalning og meðfylgjandi töflur eru aðeins til að fá nasasjón af því sem kostar að búa börn á mismunandi aldri í skóla. Ékki er alltaf um lægsta eða hæsta verð að ræða heldur verð þeirrar vöru sem verslun- arfólk taldi að seldist best. í Hagkaupum er t.d. hægt að fá úlpur á 6 ára og 13 ára fyrir 5.995 kr., þótt verðið í töflunni sé uppgefíð 2.995 kr., og í Bangsa em til úlpur á 6.950 kr. Þess ber líka að geta að alls ekki er um gæðasamanburð að ræða. ■ Valgerður Þ. Jónsdóttir Ódýrara að kaupa bækur á skiptibókamörkuðum. KOSTNAÐUR við nám í framhaldsskóla er nokkru meiri en í grunnskóla. Námsbækur eru ekki lengur ókeypis, unglingar verða yfirleitt kröfuharðari varðandi fatnað og í sumum framhaldsskól- um eru innheimt skólagjöld. Á móti kemur að allmargir ungling- ar afla sér tekna á sumrin, sumir vinna jafnvel með skólanum og eru því ekki fjárhagslega háðir foreldrum sínum nema með fæði og húsnæði. Eftir rúma viku sest Sigurbjörg Hjaltadóttir í fyrsta sinn á skóla- bekk í Verslunarskóla íslands. Hún segir að foreldrar sínir greiði skóla- gjöldin, sem eru 39.000 kr., taki þátt í bókakostnaði og sjái sér fyr- ir fæði og húsnæði. „Að öðru leyti vonast ég til að geta borgað allt sem ég þarf til skólans sjálf. Ég hef góðar vonir um að fá vinnu í jólafríinu og á enn eftir svolítið af sumarhýrunni, þótt ég sé búin að fata mig að mestu leyti upp fyrir veturinn. í sumar var ég bréfberi fyrir hádegi og vann í unglinga- vinnunni eftir hádegi. Ég gat því safnað mér fyrir gjaldeyri áður en ég fór í sumarfrí til Florida með foreldrum mínum,“ segir Sigur- björg og viðurkennir að hún leggi meira uppúr fatnað nú en áður. - Fannst þér mikill verðmunur á fatnaði í Florida og hér á landi? „Ég hefði aldrei fengið helming- inn af því sem ég keypti þar fyrir sama pening hér á landi. Til dæm- is keypti ég þrennar Levi’s 501 gallabuxur á 2.000 kr. stykkið, en hér kosta þær u.þ.b. 7.000 kr. Eina sem ég á eftir að kaupa mér núna er jakki eða kápa og skór. Góð yfirhöfn kostar örugglega fimmtán þúsund krónur. Kannski þarf ég líka að kaupa mér spariföt til þess að vera í á skólaböllum, en ég sé til, ég veit ekki enn hvernig félags- lífíð verður í skólanum." - Þú segir Levi’s 501, er þá ekki sama hvaða merki er á flíkun- um? „Sumir krakkar leggja mikla áherslu á merkin, mér er yfirleitt sama, kaupi bara það sem mér fínnst fallegt og þægilegt. Aðalat- riðið er að vera vel til fara.“ Þótt flestir unglingar veiji mikl- um peningum í fatakaup og mæti í fínum fötum í skólann er aldeilis Sigurbjörg Hjaltadóttir 16 óra fer í Versl- unarskóla ís- lands. Morgunblaðið/Þorkell Skólafötin. - Sigurbjörg skoðar úrvalið í tískuvöruverslun. ekki allt búið. Eitthvað þarf að eiga til að geta lesið, lært og skrifað. HVað skyldi slík útgerð kosta? Þurfa framhaldsskólanemar t.d. að eiga tölvu eða a.m.k. ritvél? Finnst þeim nauðsynlegt að vera með skól- atösku af fínustu gerð? Sigurbjörg fékk ritvél í jólagjöf og segir enga nauðsyn að fjárfesta í tölvu, enda hafi nemendur VI greiðan aðgang að tölvum skólans auk þess sem góð tölvukennsla sé þar. Hún ætlar að láta gömlu skólatöskuna duga áfram svo framarlega sem hún sé nægilega stór fyrir námsbækumar. En hvað skyldu þær kosta? „Ef ég er heppin, ætti ég að sleppa með 30.000 kr., en þá þarf ég líka að fylgjast vel með skipti- bókamarkaðnum. Ég ætla að reyna að kaupa allar bækumar þar því það munar svo miklu í verði. Næsta haust sel ég bækumar mínar frá þessu skólaári og fæ þannig eitt- hvað upp í bókakostnað næsta skólaárs." Um önnur útgjöld segist Sigur- björg ekki gera sér grein fyrir enn- þá. Hún býst við að þurfa á meiri vasapeningum að halda núna en í fyrra, t.d. fyrir strætisvagnaferð- um og þess háttar. Hún ætlar að taka með sér nesti í skólann og halda áfram að æfa sund með KR, en það kostar 2.500 kr. á mánuði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.