Morgunblaðið - 01.09.1992, Blaðsíða 1
KNATTSPYRNA
Þeir bestu í Hollandi
BIKARMEISTARAR
Liverpool leika í Adidas
adidas
Noregur:
Ólafurfrá
ínokkra
mánuði
ÓLAFUR Þórðarson fór meidd-
ur af leikvelli, þegar hálftími
var til leiksloka í leik Lyn og
Viking í norsku deildinni um
helgina, en Lyn vann Noregs-
meistarana 2:0. Ólafur sagði
við Morgunblaðið að hann
þyrfti að taka sér hvíld frá fót-
boltanum í nokkra mánuði til
að fá sig góðan.
Olafur sagði að hann væri allt-
af með stöðugan verk í fætm-
um, sem brotnaði s.l. haust. „Ég
neyðist að öllum líkindum til að
taka mér algerlega
Erlingur hvíld frá fótboltan-
Jóhannsson um ; nokkra mánuði
sknfar til að fá mig góðan.
Naglinn, sem var settur í fótinn í
vetur, angrar mig og eflaust verð-
ur að taka hann.“
Ólafur heim
Eins og fram hefur komið hætt-
ir Ólafur hjá Lyn í haust og sama
er upp á teningnum hjá Teiti, bróð-
ur hans og þjálfara. Ólafur sagði
að framhaldið hjá þeim bræðrum
væri óráðið. „Það getur vel farið
svo að ég flytji heim í haust og
leiki með Skaganum næsta sum-
ar.“
Teitur hefur átt í viðræðum við
úrvalsdeildarliðið Tromsö að
undanförnu, en ekkert hefur verið
ákveðið. Teitur hefur einnig fengið
fleiri þjálfaratilboð, bæði frá Sví-
þjóð og Noregi. Þegar fimm um-
ferðum er ólokið í norsku úrvals-
deildinni eru þrjú lið efst með 33
stig, Rosenborg, Start og Kong-
svinger. Molde er í fjórða sæti með
32 stig og Lyn í fimmta sæti með
30 stig.
ENGLAND
Þorvaldur
Þowaldur lék með Forest
Þorvaldur Örlygsson lék fyrsta leik
sinn á þessu keppnistímabili með
Nottingham Forest gegn Norwich í
ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Þor-
valdur og samheijar hans máttu sætta
sig við fjórða tapið í röð því Norwich
sigraði 3:1 og er nú efst í deildinni.
Bikarmeistarar
Hauka ekki með
liðM.deild
KVENNALIÐ Hauka, sem varð
bikarmeistari í vor, mun ekki
taka þátt í íslandsmótinu sem
hefst á næstunni. Flestar stúlk-
urnar hugsa sér nú til hreyfings
og ætla að skipta yf ir i önnur
félög.
Guðbjörg Norðfjörð, sem hefur
skipt yfir í KR, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær að það
væri auðvitað ferlegt að draga liðið
þannig út úr keppni og í raun að
leggja niður kvennakörfubolta hjá
félaginu. „Okkur var sagt að við
yrðum að sjá um allt sjálfar. Það
er ekki búið að ráða þjálfara og
þegar okkur var sagt um miðjan
ágúst að þetta væri alfarið okkar
mál ákváðum við nokkrar að standa
ekki lengur í þessu og skipta um
félag. í kjölfarið var ákveðið að
senda ekki lið í meistaraflokki
kvenna," sagði Guðbjörg.
Þegar skrifstofu KKI var lokað
í gær var ljóst að Guðbjörg færi í
KR, Hanna Kjartansdóttir, sem var
kjörin besti leikmaður síðasta tíma-
bils, hefur skipt yfir í ÍBK, Hafdís
Hafberg í Grindavík og Hildur Þor-
steinsdóttir í KR. Þá hafði Björg
Hafsteinsdóttir, landsliðsbakvörður
úr ÍBK, skipt yfír í KR.
Sturla Jónsson sem er í stjóm
körfuknattleiksdeildar Hauka sagði
þetta allt byggt á misskilningi.
„Ætlunin var að kvennaliðið stæði
undir sér og við sögðum stelpunum
hvað liðið hefði kostað í fyrra og
einhveijar tóku þá tölu og deildu í
með tíu og fengu þá út að þær
ættu að borga þá upphæð hver og
ein. Þetta er auðvitað misskilningur
því við fórum aðeins fram á að þær
aðstoðuðu okkur við þetta.
Annað sem hafði áhrif er að ein
stelpan sagði að ef Hanna [Kjart-
ansdóttir] færi í ÍBK þá ætlaði hún
líka að fara. Þetta vatt síðan uppá
sig og endaði með því að flestar
stelpurnar em hættar eða farnar
annað þannig að við höfum ekki í
lið. Það er líka misskilningur að
ekki hafi verið búið að ráða'þjálfara
því Ingimar Jónsson var ráðinn í
júní,“ sagði Sturla.
Morgunblaðið/Kristinn
Skagamenn sigurstranglegir
Skagamenn sigruðu íslandsmeistara Víkings 3:1 í 16. umferð á laugardag-
inn og hafa nú tveggja stiga forskot á Þór þegar aðeins tvær umferðir
em eftir í Samskipadeildinni. Myndin er táknræn fyrir yfirburði ÍA í leikn-
um þar sem Alexander Högnason hreinlega gengur yfir Helga Bjarnason.
■ Nánar um Samskipadeildina á bls. B4 - B7
Ian Crook kom Norwich yfir á 2. mín-
útu en Nigel Clough jafnaði fyrir Forest
á 31. minútu og þannig var staðan í
hálfleik. Lee Power gerði annað mark
Norwich og David'Phillips bætti þriðja
markinu við á síðustu mínútu leiksins
og gulltryggði sigurinn.
Péturtilliðs
við Breiðablik
Pétur Guðmundsson körfu-
knattleiksmaður sem lék
síðustu tvö keppnistímabil með
Tindastóli frá Sauðárkróki hefur
ákveðið að ganga til liðs við
Breiðablik og leika með nýliðun-
um í Úrvaisdeildinni á komandi
keppnistímabili.
„Það er auðvitað mikill styrk-
ur fyrir okkur að fá hann heilann
til leiks og hann segist geta spil-
að eins og undanfarin ár. Þetta
eykur líkur okkar á að halda
okkur í deildinni um tugi pró-
senta,“ sagði Sigurður Hjörleifs-
son þjálfari Breiðabliks við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
Til að Pétur yrði strax lögleg-
ur með Blikum þurfti tilkynning
um félagaskipti frá Tindastóli
að berast skrifstofu Körfuknatt-
leikssambandins fyrir miðnætti.
Þá rann út frestur til að verða
strax löglegur með nýju félagi.
Félagaskipti sem berst í dag
þýða að leikmaður verður að bíða
í einn mánuð áður en hann verð-
ur löglegur með nýju félagi.
Ekki náðist í formann körfu-
knattleiksdeildar Tindastóls í
gær en Gunnar Sveinsson, sem
er í stjóm deildarinnar, sagði í
gærkvöldi að símbréf yrði sent
fyrir miðnætti á skrifstofu KKÍ.
„Formaðurinn var búinn að gera
ráðstafanir þannig að hann
kæmist í faxtæki fyrir miðnætti.
Pétur ræddi við hann í dag [í
gær] og bað um að fá opin skipti,
ekki í neitt sérstakt félag og við
ætlum að senda tilkynningu þess
efnis fyrir miðnætti,“ sagði
Gunnar.
SPJOTKAST: EINAR BÆTTIISLANDSMETIÐ / B3
KORFUKNATTLEIKUR / KONUR