Morgunblaðið - 01.09.1992, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 01.09.1992, Qupperneq 3
FRJALSIÞROTHR ses ÍÞRÓTTlriíWlMWS .‘^ÉÍTÉMbER 'Íð92 — }ÍB r3 „Nú er bara aðleitasér að vinnu" - sagði Einar Vilhjálmsson eftir að hafa lokið keppnistímabilinu með nýju íslands- meti í spjótkasti „ÞETTA var ánægjulegur árangur og tekur af öll tvímæli varðandi metið sem ég setti á mánudaginn var. Nú er keppn- istímabilinu lokið hjá mér og þetta var punkturinn fyrir aftan i-ið. Nú er ekkert annað á dag- skrá hjá mér en að finna mér vinnu því ég er atvinnulaus," sagði Einar Vilhjálmsson spjót- kastari úr ÍR eftir að hafa bætt sex daga gamalt íslandsmet sitt í spjótkasti um 10 senti- metra. Kastaði 86,80 metra á kastmóti Flugleiða á sunnudag eftir mikið einvígi við kraftmik- inn Hvít-Rússa, Vladímír Sa- símovítsj. Einar sagðist hafa verið hálf droms er hann mætti til leiks og upphitunin hefði gengið illa. Rakti hann það til umræðu í fjölmiðlum um meintan vafa á gildi fyrra mets- ins. „Fyrsta kastið, 78,34, var í sam- ræmi við tilfinninguna en Sasímo- vítsj kastaði næstur, 83,52 metra, og það kveikti í mér,“ sagði Einar. Hann lengdi sig í 81,36 í annarri umferð en Hvít-Rússinn lét kné fylgja kviði og bætti tveimur metrum við fyrsta kastið, spjótið sveif 85,68 í öðru kasti. Það dugði þó ekki til að slá Einar út af laginu, hann bætti sig í 84,60 í þriðju umferð og metk- astið kom í þeirri fjórðu, 86,80. Við því átti Sasímovítsj ekki svar en lauk góðri seríu með 85,88 í sjötta og síðasta kasti. Lokaköst Einars voru einnig góð, 83,68 og 82,28. „Mér fannst kastið heppnast vel og hafði strax á tilfinningunni að það yrði lengra en hið næsta á und- an sem var 84,60. Vonaði innst inni er spjótið sveif út yfir völlinn að metið fyki og gleðin var mikil þegar það lá fyrir,“ sagði Einar. Spjótkastið var hápunkturinn á Flugleiðamótinu og árangurinn eins og hann gerist bestur á stærstu al- þjóðamótum. Tveir til viðbótar köst- uðu yfir 80 metra, Sigurður Einars- son Ármanni 82,90 og Úzbekístinn Víktor Zajtsev 81,98. Er þetta næst- lengsta kast Sigurðar í sumar og góður árangur hjá þeim Einari í rimmu við tvo bestu spjótkastara Samveldis sjálfstæðra ríkja. Engir aukvisar á ferð því Zajtsev hefur kastað 87,20 í ár og sigraði á Friðar- leikunum í Seattle 1990. Sasímovítsj er aðeins 24 ára en þessi lágvaxni og geysilega kröftugi kastari hefur þegar náð glæsilegum árangri. Á lengst 87,08 frá í fyrra og 86,60 í ár. Hann varð annar á HM í Tókíó í fyrra og heimsmeistari unglinga 1986, þá aðeins 18 ára. Báðir voru þeir ánægðir með árangur sinn hér og Sasímovítsj sagði það gleðja sig að árangur hans hefði orðið Einari hvatning til að setja íslandsmet. Kúluvarpskeppnin varð ekki eins spennandi og efni stóðu til því Pétur Guðmundsson KR gekk ekki heill til skógar. „Ég er ómögulegur í hend- inni,“ sagði Pétur og neyddist til að hætta eftir tvær umferðir, meiðsl höfðu tekið sig upp. Litháinn Saulis Kleiza sigraði því örugglega, varpaði 19,73 metra. Pétur varpaði 17,52 og Andrés bróðir hans 16,84. Kringlukastið gaf hins vegar spjótkastinu ekki mikið eftir því það snerist strax upp í einvígi Vésteins Hafsteinssonar Selfossi og Þjóðvetj- ans Wolfgangs Schmidt fyrrum heimsmethafa. Vésteinn byijaði með 62,82 metra kasti og Schmidt svar- aði með 62,58. Lengdi Vésteinn sig í 62,86 í þriðju umferð en í næsta kasti náði Schmidt forystunni frá honum, kastaði 64,36. Vésteinn gerði harða hríð að Þjóðveijanum og reyndi að endurheimta forystuna. Velgdi hannn Þjóðveijanum undir uggum með 63,38 metra kasti í fímmtu umferð en lengra varð ekki komist og skemmtilegri viðureign lauk með sigri Schmidts. Bandaríkjamaðurinn Mike Buncic sem kastað hefur yfir 70 metra í ár blandaði sér aldrei í glímu Vésteins og Schmidts, gerði rúmlega 62 metra kast hárfínt ógilt en kastaði 60,36. Eggert Bogason FH kastaði 54,96 metra. Seppo Ráty: 89,00 Finnski spjótkastarinn Seppo Ráty sigraði auðveldlega í landskeppni Finna og Svía, sem fram fór í Helsinki um helgina. Gerði sér lít- ið fyrir og kastaði spjótinu 89 metra. Sá fáheyrði atburður gerðist í 1.500 m hlaupi karla í landskeppn- inni að allir sex keppendumir voru dæmdir úr leik. „Háttalag allra keppendanna stríddi gegn grundvallarhugmyndum íþróttarinnar," sagði Luciano Barra, formaður dómnefndar mótsins. Hlaupið þótti einkenn- ast af miklum slagsmálum með tilheyrandi olnbogaskotum og hlupu keppendur óspart hver í veg fyrir annan. Morgunblaðið/Kristinn METI Einar Vilhjálmsson fagnar íslandsmeti sínu innilega í Laugardalnum á laugardaginn eftir að hafa þeytt spjót- inu 86,80 metra. Hélt Einar styrktaræfingum of lengi áfram? ÁRANGUR Einars Vilhjálms- sonar eftir Ólympíuleikana í Barcelona; annað sæti og naumt tap fyrir Ólympíumeist- aranum á Grand Prix-móti í Mónakó þremur dögum eftir leikana og tvö íslandsmet með sex daga millibili 2-3 vikum síð- ar, vekja upp spurningar hvort hann hafi náð afrekstoppi á röngum tíma, hvort mistök hafi átt sér stað við gerð æfingaá- ætlunar hans. að er eðlilegt að svona sé spurt og það má vel vera að álags- skekkja hafi átt sér stað í æfingaá- lagi eða álagsdreifing í æfingum hafi verið röng. Eftir þau slæmu meiðsli sem ég varð fyrir í hné í fyrrahaust og uppskurð, var Ijóst að skipulagið yrði allfcaf að vera málamiðlun, hálfgerð jafnvægislist. Annars vegar milli þess að styrkja lærvöðva nógu mikið til þess að þola álagið og átökin sem keppni fylgir og hins vegar þess að gefa fætinum nógu mikinn frið til þess að bólga minnkaði og hindraði ekki það sem nauðsynlegt var að gera í æfingum,“ sagði Einar við Morg- unblaðið eftir mótið á laugardag. „Þegar á sumarið leið hafði ég á tilfínningunni að æfingaprógramm- ið stæðist og ég ætti alveg eins að geta náð því sem stefnt var að. Og æfíngamar tóku mið af þeim vænt- ingum sem ég vissi að til mín voru gerðar. Eg taldi að eftir að mönnum fannst ég hafa klikkað með því að ná sjötta sæti í Los Angeles yrði engin sátt um annað en ég kæmist á pall nú. Allt annað yrðu talin mistök. í ljósi þessa hélt ég áfram styrktaræfmgum þar til stuttu fyrir leikina og vonaðist til þess að sjúkraþjálfun og hljóðbylgjumeð- ferð í þorpinu síðustu dagana dygðu til þess að ég yrði fullbúinn í slag- inn í Barcelona." „Eftir á að hyggja er ég ekki frá því að ég hafi tekið rangar ákvarð- anir og haldið áfram styrktaræfing- um of lengi. Ég hef ekki tekið eina einustu styrktaræfingu eftir leikina, bólgan er minni í hnénu og ég get beitt mér meira í kasthreyfingun- um. Kannski hefði ég átt að hætta þeim fyrr. Ólympíuleikamir eru ákveðið lottó og ég fékk ekki réttu tölurnar að þessu sinni." „Annars er ég virkilega ánægður með sumarið eins og það hefur æxlast með tilliti til hinna alvarlegu meiðsla sem ég hlaut fyrir ári,“ sagði Einar Vilhjálmsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.