Morgunblaðið - 20.09.1992, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1992
21
flestir í bardögum Armena og Az-
era vegna Nagorno-Karabak, einn-
ig hafa átökin i Moldovu og allra
síðustu daga í Tadzíkístan verið
mannskæð. Blóðug átök hafa verið
í Georgíu í meira en hálft ár, upp-
haflega vegna sjálfstæðiskrafna
minnihlutahópa en síðar breyttist
pólitísk valdabarátta milli Georgíu-
manna sjálfra í vopnuð átök. Á
landsvæði gömlu Sovétríkjanna eru
nú 15 lýðveldi sem eru, a.m.k. að
nafninu til, fuílkomlega sjálfstæð.
Það stærsta, Rússland, er lang-
stærsta ríki í heimi og skiptist í
mörg héruð. Tuttugu og eitt þeirra
njóta víðtæks sjálfsforræðis og
meðal þeirra eru Tartarstan,
Tsjetsjenía, Dagestan og Jakútía,
hið síðastnefnda nær yfir mikinn
hluta Síberíu og eru þar mikil nátt-
úruauðæfi í jörðu. Þessi héruð eru
yfirleitt byggð smáþjóðum, flestar
eru lítt eða ekkert skyldum Rússum
og eru Tartarar fjölmennastir. Flest
eru fámenn, með aðeins nokkur
hundruð þúsund íbúa, nokkur með
fáeinar milljónir íbúa og sums stað-
ar, t.d. í Jakútíu, eru Rússar í mikl-
um meirihluta.
Sum sjálfsstjórnarhéraðanna
vilja ganga lengra en hin og Tsjetsj-
enar hafa þegar lýst yfir fullu sjálf:.
stæði. Borís Jeltsín Rússlandsfor-
' seti sendi her til Tsjetsjeníu til að
bæla niður mótþróann þar en dró
liðið til baka áður en til vopnavið-
skipta kom. Málið virðist vera í bið-
MIÐ-ASÍA
Gamlir afturhaldsmenn eru enn við völd I
flestum Mið-Asíulýðveldunum sem áður
voru hluti Sovétríkjanna og eiga það
sameiginlegt að trúarbrögð meirihluta
íbúanna eru islam. Leiðtogarnir eiga þó æ
meira i vök að verjast vegna vaxandi styrks
samtaka múslima og lýðræðisafla.
Tyrkland, íran, Saudi-Arabía og Pakistan
reyna að koma ár sinni fyrir borð I
löndunum. Oeilt.er um landamæri milli
þjóða í Mið-Asíu sem mörkuð votu Ltíð
Jósefs Stalihs og getur komið til aukios
ofbeldis á næstunrý, '
.......m
Stærð: 2.717.300 ferkilómetrar.
Ibúafjöldi: 16,7 milljóri8£ _
Stjórnmál: Núrsúltan Nazarbajev, forsetí
landsins og fyrrverandi kommúnista-
leiðtogi, réð lögum og lofum I landinu þar
til I júní er fjöldamótmæli ollu því að hann
varð að víkja frá mörgum gömlum
embættismönnum I æðstu stöðum.
Rússar eru nær helmingur Ibúanna, hinir
flestir Kazakhar.
Efnahagsmál: Nazarbajev hefur ýtt mjög
undir erlenda fjárfestingu og einka-
væðingu en fremur litið hefur orðið úr
framkvæmdum.
TÚRKMENISTAN L& ®
Stærð: 488.100 ferkílómetrar. v
Ibúafjöldi: 3,7 milljónir.
Stjórnmál: Saparúmad Níjazov, fyrrverandi
kommúnistaleiðtogi, er enn við völd og
líður enga andstöðu; valdakerfi
kommúnista er enn við lýði.
Efnahagsmál: Ástand mála I stórum
dráttum óbreytt frá tlð Sovétvalþsins.
ÚZBEKÍSTAN
£tærð: 447.400 ferkílómetrar.
íbúafjöldi: 20,4 milljónir. ,
Stjórnmál: íslam Karímov, forseti o_
fyrrverandi kommúnistaleiðtogi, hefur
ákveðið hver fyrirmyndin eigi að vera á
þróunarbrautinni: Tyrkland, riki þar sem
markaösstefna er höfð I hávegum og flestir
eru múslimar en islam er samt ekki
ríkistrú. Karímov hefur brugðist hart við
hreyfingum sanntrúaðra múslima.
Efnahagsmál: Óeirðir urðu í janúar sl.
vegna verðhækkana og stjórnvöld hafa
farið sér hægt í umbótum síðan.
KÍRGÍSTAN É
Stærð: 198.500 ferkílómetrar.
Ibúafjöldi: 4,4 milljónir.
Stjórnmál: Askar Akaev forseti hefur
forystu I róttækustu umbótastjórn í
Mið-Asíu.
Efnahagsmál: Hraðar umbætur í jarð-
næðismálum en verðlag á afurðum er enn
undir opinberri stjórn.
TADZÍKÍSTAN
?tærð: 143.100 ferkílómetrar. X
Ibúafjöldi: 5,2 milljónir.
Stjórnmál: Mjög ótryggt ástand,
lýðræðisöflum og múslimahreyfingum í
stjórnarandstöðu tókst nýlega að þvinga
fram afsögn Rakhmans Nabíevs forseta.
Efnahagsmál: Nablev lýsti því yfir að
þjóðin væri ekki reiðubúin að takast á við
efnahagsumbætur I markaðsátt.
. Pjóðar- Verð-
Þroun 1991 framl. hækk.
Kazakhstan
Túrkmenístan
Úzbekístan
Kírgístan
Tadzíkístan
-8,0%
-8.0%
-8,0%
-7.8%
-8.0%
713,5%
671,4%
644,2%
705,9%
685,0%
stöðu. Takist ekki að ná einingu
um stjórnarskrá þar sem kveðið er
á um samband héraðanna við
Moskvustjórnina og verkaskiptingu
gæti svo farið að Rússland sundrað-
ist í fjölmörg lýðveldi. Héraðsstjóm-
irnar hafa sums staðar farið inn á
verksvið Moskvuvaldsins og inn-
heimt skatta sem ætlaðir eru til
sameiginlegra sjóða og verkefna.
Gamlir kommúnistaforingjar halda
enn völdum, nýskipaðir embættis-
menn Jeltsíns eru víðast hundsaðir
og í mörgum héruðum eru efna-
hagsumbætur ekki hafnar og skrif-
ræðið ríkir enn. Forsprakkar flokks-
ins, sem nú á að heita bannaður,
hafa jafnframt verið iðnir við að
hrifsa til sín eignir og jafnvel heil
fyrirtæki þar sem einhverjir tilburð-
ir hafa verið til breytinga á Sovét-
kerfinu og einkavæðing er að hefj-
ast.
Minnihlutahópar Rússa búa í öll-
um hinum lýðveldunum 14. Í Kaz-
akhstan og Lettlandi eru þeir um
40% íbúanna, víða í Mið-Asíulýð-
veldunum, þar sem múslimar eru í
miklum meirihluta, eru sumir Rúss-
arnir af ættum er búið hafa öldum
saman í nýlendunum. Margir þeirra
flýja nú unnvörpum til Rússlands
vegna hótana innfæddra sem líta
margir hveijir á veru Rússanna sem
tákn um áframhald nýlendukúgun-
arinnar. Bókstafstrúarmenn úr röð-
um múslima róa undir og njóta
margir stuðnings frá nágrannaríkj-
um. Talið er að einn helsti öfga-
sinninn í Afganistan, Gulbuddin
Hekmatyar, hafí árum saman sent
vopn til trúbræðra sinna í Tadzhí-
kístan, Saudi-Arabar hafa einnig
stutt vöxt og viðgang islams eftir
að frelsi var veitt til trúariðkana í
löndunum. í Mið-Asíulöndunum er
þó sú Ijósglæta að þjóðirnar, sem
þarna búa í einum hrærigraut, í
Tadzíkístan eru t.d. nokkrar millj-
ónir Úzbeka, hafa yfírleitt verið í
friðsamlegri sambúð undanfarnar
aldir. Því er ekki hefð fýrir miklum
og blóðugum þjóðaerjum.
Um Kákasus-ríkin gegnir öðru
máli. Þar er aragrúi smáþjóða, hver
með sitt tungumálið, auk þeirra
helstu sem löndin eru kennd við;
sum þjóðabrotin eru islamstrúar.
Nú er rússneska kúgunin á enda
en þjóðabrotin óttast að enn verri
áþján taki við. Abkhazar í Georgíu
vilja því sjálfsforræði, stjórn Rúss-
lands reynir að miðla málum og
tekur ekki afstöðu í deilunni. Osset-
ar vilja sameinast löndum sínum í
Norður-Ossetíu, sem er rússneskt
hérað en með nokkra sjálfstjórn.
Georgíumenn telja landamærin hei-
lög og sætta sig ekki við að landið
verði bútað í sundur. í þeim héruð-
um Rússlands, sem liggja næst
Abkhazíu, hefur verið stofnað Sam-
band fjallaþjóða til að aðstoða Abk-
hazana. Þarna gæti verið að mynd-
ast grundvöllur að nýju sambands-
ríki eru segði sig úr lögum við
Rússland.
Kjarnorkuvopnin ekki lengur
á glámbekk?
Fréttir af blóðugum átökum eru
engin nýjung í nútímafjölmiðlum
en það sem veldur mestum ótta
vegna upplausnar Sovétríkjanna
eru kjarnorkuvopnin sem nokkur
lýðveldanna erfðu. Vestrænir sér-
fræðingar eru þó á því að mesta
hættan séu úr sögunni. Búið sé að
flytja öll svonefnd vígvallavopn, það
er tiltölulega lítil og „handhæg"
kjarnavopn, frá helstu átakasvæð-
unum. Líklegt var talið að vopnaðir
hópar myndu reyna að klófesta slík
vopn. Langdræg vopn eru aðeins í
Rússlandi, Úkraínu og Kazakhstan
og éru þau undir samejginlegri
stjórn. Deilur Rússa og Úkraínu-
manna um skiptingu Svartahafs-
flotans og fleiri eigna úr þrotabúinu
hafa verið leystar í bili og Úkraínu-
menn segjast staðráðnir í að verða
þjóð án kjarnorkuvopna.
Söguleg rök
Oft er sagan helsta röksemdin í
deilum um landamæri. Armenar líta
á héraðið Nagorno-Karabak, þar
sem þeir eru þorri íbúa, sem heilaga
jörð vegna sögulegra minninga.
Azerar telja sig einnig eiga gamlan
hefðarrétt á því og benda á að það
er umlukið Azerbajdzhan á alla
vegu. Þjóðernisofstopi er blásinn
upp, engin málamiðlun virðist í
augsýn, vopnin eru látin tala og
nóg er til af þeim. Auðvelt er að
kynda undir með því að rifja upp
gamlar sagnir um bardaga við ná-
grannaþjóðina og þjóðarmorð
undirrituðu nýlega bráðbirgða-
samning á þessum nótum en ýmsir
heimildarmenn eru vantrúaðir á að
þetta gangi hljóðalaust eftir í for-
ystu rússneska flotans. Talið hefur
verið að alls væru vel á annað
hundrað þúsund Samveldishermenn
í ríkjunum þrem en talsmenn nor-
skra alþjóðamálastofnana skýrðu
nýlega frá því að sennilega væru
þeir aðeins um 60.000.
Helsta röksemd fyrir drætti á
brottflutningnum var lengi sú að
Rússar hefðu ekki efni að réisa hús
yfír liðið eða útvega mönnunum
störf. Síðar hafa fleiri ástæður ver-
ið nefndar, einkum meint ill með-
ferð á minnihlutahópum Rússa í
löndunum.
Rússakeisarar náðu tangarhaldi
á Eystrasaltsríkjunum á átjándu öld
og með því að skoða landakortið
verður ljóst hve hernaðarlega mikil-
væg löndin eru fyrir rússneska flot-
ann. Samanlögð strandlengja Rúss-
lands við Eystrasalt að meðtöldu
Kalíníngrad-héraðinu, sem umlukið
eru pólsku og litháísku landi, er
afar stutt. Við Svartahaf falla bestu
flotahafnimar í hendur Úkraínu-
mönnum, á Kyrrahafsströndinni
hefur borið nokkuð á sjálfstæðis-
hreyfingum. Aðeins hafnirnar á
Kólaskaga og við Hvítahaf eru
tryggilega í höndum Rússa. Loks
má nefna að landamærum Eystra-
saltsríkjanna hefur oft verið breytt
á öldinni. Rússar hafa gefið í skyn
að Eistlendingar geri kröfu til rúss-
neskra landa í grennd við landa-
mæraborgina Narva í Eistlandi sem
er að mestu byggð Rússum. Slíkar
kröfur, raunverulegar eða ímyndað-
ar, af hálfu Eystrasaltsþjóðanna og
lög sem takmarka réttindi rússn-
esku minnihlutahópanna í löndun-
um, gætu orðið átylla harðlínuafla
til að koma á „lögum og reglu“ í
nafni réttlætis. Alexander Rútskoi,
varaforseti Jeltsíns, hefur sam-
kvæmt skoðanakönnunum meira
fylgi en Jeltsín. Rútskoi vill fara
hægar í efnahagsumbætur en Jelts-
ín og nokkrir af nánustu samstarfs-
mönnum varaforsetans segja blá-
kalt að rússneska hemum beri að
vernda rússneska minnihlutahópa í
öðrum lýðveldum. Nágrannaríkin
gætu átt erfítt uppdráttar ef
skyndileg mannaskipti verða í
Kreml.
Gömul
kona geng-
ur fram hjá
vagni með
líkum
óbreyttra
borgara
sem orðið
hafa fyrir
skothríð
stríðandi
aðila í deil-
um
Moldova
og aðskiln-
aðarsinna i
Dnéstr-
héraði.
Tyrkja á Armenum í fyrri heims-
styrjöld, en Tyrkir eru náskyldir
Azemm.
I Moldovu eru flestir rúmensku-
mælandi og margir vilja sameinast
Rúmeníu á ný. Stalín samdi við
Hitler í stríðsbyrjun og fékk að taka
Moldovu. Síðar var ákveðið að bæta
við Moldovu héraðinu austan við
ána Dnéstr og þar búa nú nokkur
hundruð þúsund Rússar og Úkra-
ínumenn. Þeim líst illa á sameining-
ardrauma Moldovanna, óttast að
verða aðþrengdur minnihluti í Stór-
Rúmeníu framtíðarinnar og vilja
fremur sjálfstæði eigin héraðs þar
sem flestir minnast Sovétríkjanna
gömlu með söknuði. Sá hængur er
á að iðnaður og orkuframleiðsla
Moldovu er að mestum hluta austan
Dnéstr og því miklir hagsmunir í
húfi. Moldovar vilja ekki að landið
verði aðeins afskekkt og blásnautt
hérað sem komið verði upp á náð
og miskunn Rúmeníustjórnar í Búk-
arest eftir sameininguna.
Hernaðarlegt mikilvægi
Ónefndur embættismaður stjórn-
ar Borís Jeltsíns í Rússlandi gaf
fyrir skömmu í skyn að deilan um
veru sveita Sovéthersins fyrrver-
andi, nú Samveldisherja, í Eystra-
saltsríkjunum yrði senn leyst og
þær yrðu allar á brott á næsta ári.
Forsetar Litháens og Rússlands
ódýri listinn
með vönduðu
merkjunum
kominn.
Yerð kr.
I 90 i„ bgj
Pöntunarsími
52866
B.MAGNUSSON
HÓLSHRAUNI2 ■ SÍMI S2866
HAFNARFIRÐI