Morgunblaðið - 24.09.1992, Page 2
2 C
MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1992
Hugbúnaður
Tölvusamskiptí sækja
hm á Bandaiikjamarkad
TOLVUSAMSKIPTI hf. hafa nú
í undirbúningi markaðssókn í
Bandaríkjunum með nýja útgáfu
af skjáfaxi sem fengið hefur
Borgarráð
2 millj. til
fiskeldis-
rannsókna
Ný útgáfa af skjáfaxi brátt tilbúin til dreifingar
upp í útibúi Pepsi í Tyrklandi. Þá
hefur norska fyrirtækið Helly Han-
sen nýlega lagt inn pöntun á nýja
kerfinu fyrir 100 notendur og fleiri
erlend fyrirtæki hafa hugbúnaðinn
til skoðunar.
Tölvusamskipti hafa þegar boðið
íslenskum notendum hina nýju út-
gáfu og hefur um þriðjungur þeirra
óskað eftir nýja kerfinu. Meðal
þeirra eru mörg af stærstu fyrir-
tækjum landsins.
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
verða við beiðni Rannsóknarráðs
ríkisins um tveggja milljóna króna
styrk til kaupa á búnaði, sem
nauðsynlegur er til að taka fisk-
eldisrannsóknarhúsið á Keldum í
notkun.
í umsögn Eggerts Jónssonar,
borgarhagfræðings, kemur fram að
Reykjavíkurborg er aðili að stofn-
samningi um húsið ásamt Rannsókn-
arráði ríkisins, Háskóla íslands, Til-
raunastöð háskólans í meinafræðum
á Keldum, landbúnaðarráðuneytinu
og Landssambandi fiskeldis- og haf-
beitarstöðva.
heitið „Object-Fax“. Að sögn
Frosta Siguijónssonar, fram-
kvæmdastjóra TS hf. sem er
markaðsfyrirtæki í eigu Tölvu-
samskipta munu á næstunni fara
fram viðræður við dreifingarað-
ila í Bandaríkjunum. Auk hins
nýja nafns á hugbúnaðinum hef-
ur hann verið settur í nýjar
umbúðir sem taldar eru henta
þessum markaði.
Hin nýja útgáfa af Skjáfaxi hef-
ur ýmsa kosti umfram fyrstu út-
gáfuna sem verið hefur á markaðn-
um um nokkurra ára skeið. Nýja
útgáfan sem þegar hefur hlotið
viðurkenningu Microsoft felur í sér
margar mikilvægar nýjungar sem
einfalda notkun kerfisins og gera
það öruggara. „Skjáfax getur auk-
ið framleiðni á skrifstofum þar sem
hægt er að senda faxið beint af
tölvuskjá í stað þess að skjalið sé
prentað út og síðan sent gegnum
faxtæki,“ segir Frosti.
Eins og áður hefur komið fram
er hugbúnaðurinn í notkun hjá
Pepsi í Evrópu t.d. í fyrirtækjum
þess í Bretlandi og Noregi og að
sögn Frosta var hann nýlega settur
Tryggingar
Sjóvá-Almennar snúa
tapiíhagnað
Hlutabréf
Tíu milljónir í við-
skiptum vikunnar
FJÁRHÆÐ skráðra viðskipta á Verðbréfaþingi íslands vikuna
16.-22. september nam um fjórum milljónum króna. Á Opna
tilboðsmarkaðnum námu skráð heildarviðskipti 5,4 milljónum
króna og þar munaði að sjálfsögðu mest um sölu hlutabréfa í
Haferninum í gær fyrir fimm milljónir króna.
í vikunni urðu skráð viðskipti
með hlutabréf í Eimskip fyrir um
3,5 milljónir króna. Gengi bréf-
anna sveifiaðist frá bilinu 4,40 til
4,45. í Olís voru seld bréf fyrir
196.000 á genginu 1,96 sem er
lækkun frá síðustu sölu um 0,13.
Gengi hlutabréfa í Granda hækk-
aði í skráðum viðskiptum vikunn-
ar sem námu 220.000 króna, en
gengi í Hlutabréfasjóðnum og
Eignarhaldsfélagi Verslunar-
banka var óbreytt.
Á þriðjudag voru í fyrsta skipti
skráð viðskipti með hlutabréf í
Haferninum hf. að fjárhæð fimm
milljónir á genginu 1.0. Landsvísi-
tala hlutabréfa stóð í 103,69 mið-
vikudaginn 16. september saman-
borið við 103,40 sl. þriðjudag.
HAGNAÐUR af starfsemi Sjó-
vár-AImennra fyrstu sex mánuði
ársins nam 55 milljónum króna
samanborið við 39 milljóna tap
á sama tímabili í fyrra, en félag-
ið birtir nú í fyrsta sinn opinber-
lega tölur úr sex mánaða milli-
uppgjöri. Tap félagsins á síðasta
ári var alls 74 miiljónir.
Bætt rekstrarafkoma Sjóvár-
Almennra er m.a. rakin til þess
að eigin iðgjöld, þ.e. iðgjöld að frá-
dregnum hlut endurtryggjenda,
hækkuðu um 10%, úr 1.879
milljónum króna í 2.145 milljónir.
Þá lækkuðu eigin tjón um 1% í
kjölfar fækkunar tjóna og þeirrar
staðreyndar að allra tiltækra ráða
hefur verið leitað til að draga úr
tjónakostnaði. Rekstrarkostnaður
hækkaðí um 8%, m er engu uð
síður lægri sem hlutfail af iðgjöld-
um.
í júnílok nam eigið fé Sjóvár-
Almennra 652 milljónum og hafði
hækkað um 1% frá síðustu áramót-
um. Á fyrri hluta ársins leysti fé-
lagið til sín eigin hlutabréf að verð-
mæti 72 milljónir króna, en það
hefur áhrif til lækkunar á eigin fé
í milliuppgjörinu.
Stærstur hluti skulda Sjóvár-
Almennra liggur í tryggingarsjóð-
um þar sem lagt er til hliðar fyrir
ógreiddum tjónum félagsins. í
milliuppgjöri fyrstu sex mánaða
ársins hafa tryggingarsjóðir verið
efldir verulega frá því sem áður
var, eða úr tæpum sex milljörðum
skv. síðasta ársuppgjöri í 7,5 millj-
arða. Heildarskuldir nema tæpum
8,5 milljörðum króna. Heildareign-
ir félagsins nema rúmum níu millj-
örðum og þar af er hluti endur-
tryggingar í tryggingasjóði tæp-
lega 1,5 milljarður.
Flugfélag
Atlanta kaupirhús-
næði Álafoss
FLUGFÉLAGIÐ Atlanta hf._ hefur keypt skrifstofuhúsnæði í Mos-
fellsbæ sem áður tilheyrði Álafossi. Féiagið hefur hingað til verið
með skrifstofu í Þverholti í Mosfellsbæ, en flytur sig um set innan
bæjarins íim næstw mánaðarmót,
Atlanta keypti nýja húsnæðið,
sem er 480 fm að stærð, af Iðnlána-
sjóði sern yfírtók það í kjölfar gjald-
þrots Álafoss á síðasta ári. Arn-
grímur Jóhannsson, framkvæmda-
stjóri félagsins, sagði í samtali við
Morgunblaðið að þessa dagana
væri unnið að því að koma hús-
næðinu í viðundandi horf, en stefnt
væri að því að flytja skrifstofurekst-
urinn milli húsa í byijun október.
Milliuppgjör nokkurra fyrirlækja á hlutabréfamarkaði
Upphæðir í þús. kr.
SJÁVARÚTVFfillR HAGNAOUR EIGIÐFÉ Hagnaður/ Eigiöfé Veltu- fjármunir Fasta- fjðrmunir EIQNIFt Skammtíma- skuldir Langtíma- skutdir SKULDIR VELTU- FJÁR- HLUTF. EIGIN- FJÁfl- HLUTF.
Árnes hf. -3.279 472.840 -0,7% 3.32.079 1.452.855 1.784.934 479.023 833.072 1.312.095 0,7 26%
Grandi hf. 60.431 1.512.345 4,0% 682.902 3.180.287 3.863.190 522.147 1.828.702 2.350.849 1,3 39%
Haraldur Böðvarsson hf. 15.870 vantar 4,0% vantar vantar vantar vantar vantar vantar vantar vantar
Síldarvinnslan hf. 143.119 376.534 38,0% 504.263 1.405.337 1.909.601 574.511 958.556 1.533.067 0,9 20%
Skagstrendingur hf. 16.968 666.763 2,5% 326.729 992.607 1.319.336 167.586 484.987 652.573 1,9 51%
Útgerðarfélag Akureyringa hf. 106.747 1,591.891 6,7% 777.380 2.715.414 3.492.794 583.659 1.317.244 1.900.903 1,3 46%
SAMGÖNGUR o.fl.
Hf. Eimskip 18.141 4.293.768 0,4% 2.636.032 7.166.271 9.802.303 2.467.819 3.040.716 5.508.535 1,1 44%
Flugleiðir hf. -320.000 3.927.000 -8,1% 3.595.313 18.529.688 22.125.000 7.248.263 10.949.737 18.198.000 0,7 18%
Tollvörugeymslan hf. 2.198* 194.138 1,1% 38.508 341.592 380.100 58.009 127.953 185.962 0,7 51%
Samskip hf. -129.000* 853.000 -15,1% vantar vantar vantar vantar vantar vantar vantar 24%
OLÍUFÉLÖGIN
Olís hf. 59.921 1.717.904 3,5% 1.761.072 1.989.319 3.750.390 1.523.861 508.625 2.032.487 1,2 46%
Ollufélagið hf. 127.000 3.769.000 3,4% vantar vantar vantar vantar vantar vantar vantar 60%
Skeljungur hf. 53.560 2.176.046 2,5% 1.729.849 2.852.856 4.582.706 1.536.514 870.146 2.406.660 1,1 47%
FRAML.FYRIRTÆKI
Hampiðjan hf. 39.110 632.414 6,2% 544.053 995.479 1.539.532 493.784 299.429 793.213 1,1 41%
Marel hf. 17.086 118.675 14,4% 159.498 89.446 248.945 104.476 130.269 234.745 1,5 48%
' Hagnaður fyrir skatta.
Haimild: Handsal
Á skrifstofu Atlanta starfa að
jafnaði 5-6 manns, en fyöldinn er
mjög breytilegur og stundum er um
að ræða allt að helmningi fleira
fólk sem vinnur þar að ýmsum verk-
efnum að sögn Arngríms. Nýja
húsnæðið er um þrefalt stærra en
það húsnæði sem skrifstofa Atlanta
er nú í.
Kringlan
Sunnudags-
opnanirhækka
vöruverð
KAUPMENN í Kringlunni hafa
deilt um hvort hafa eigi verslan-
ir opnar á sunnudögum. Síðast-
liðin sunnudag var þó ákveðið
að hafa opið og meirihluti kaup-
mannanna gerði það. Ekki eru
þó allir sáttir við opnunina og
þar á meðal er Skúli Jóhannesson
í Tékkkristal sem segir að sunnu-
dagsopnun leiði til hærra vöru-
verðs. Yfir 20 verslanir voru lok-
aðar í Kringlunni sl. sunnudag.
„Framkvæmdastjórar Kringl-
unnar og Borgarkringlunnar segja
að sá kostnaður sem verslanir beri
af opnun á sunnudögum muni ekki
fara út í verðlagið en ijóst er að
allur sá kostnaður verður til innan
verslananna þarf að greiða. Til að
það sé hægt verður að hækka vöru-
verðið. Velta verslananna kemur
ekki til með að aukast það mikið
að mismunurinn greiði upp kostnað-
inn,“ segir Skúli.
Sunnudagsopnanir verða áfram
til reynslu í Kringlunni fram að jól-
um, en Skúli segist ætla að hafa
verslunina Tékkkristal áfram lok-
aða á sunnudögum.