Morgunblaðið - 24.09.1992, Blaðsíða 6
6 C
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1992
Fjármál
Veð hf. með verkefnisfjár-
mögnun í Setbergshlíð
Mun sérhæfa sig í fjármögnun verkefna, sjá um og stýra uppbyggingu þeirra og selja síðan
NYTT fjármálafyrirtæki, Veð
hf., hefur tekið að sér að fjár-
magna framkvæmdir SH-verk-
taka við íbúðabyggðina í Set-
bergshlíð í Hafnarfirði. Hér er
um að ræða svonefnda verkefn-
isfjármögnun („project financ-
ing“) sem er nýjung hér á landi
en hún felur í sér að ákveðið
verkefni er fjármagnað sérstek-
lega meðan á framieiðslu eða
gerð þess stendur. Frumkvöðull
að stofnun fyrirtækisins er Pétur
Blöndal en aðrir stofnendur eru
SH-verktakar og margir valdir
aðilar. Hlutur SH-verktaka var í
upphafi stærstur í Veði hf. eða
um 80% en hann hefur farið
minnkandi eftir því sem fleiri
hluthafar hafa bæst í hópinn.
Núna er hann 55%. Er gert ráð
fyrir að þannig verði SH-verktak-
ar smám saman leystir af hólmi
hvað fjármögnun snertir.
Pétur segir að verkefnisfjár-
mögnun hafi til þessa verið óþekkt
hér á landi en sé algeng erlendis.
Meðan verið sé að Ijúka við verk
þurfi mikið fjármagn og hafí marg-
ir verktakar að undanförnu lent í
SETBERGSHLIÐ —Pétur Blöndal, starfandi stjónarformaður Veðs, og Jón Ingi Gíslason, fram-
kvæmdastjóri SH-verktaka fyrir framan nýbyggingar í Setbergshlíð í Hafnarfirði.
T
■ ■
O
L
V
U
N
Á
Nám sem veitir forskot í atvirsnulífinu
TÖLVUNOTKUN
í FYRIRTÆKJAREKSTRI
Tölvuskóli Stjórnunarféiags íslands og Nýherja býður nú í annað sinn vetrarnámið
TÖLVUNOTKUN f FYRIRTÆKJAREKSTRI. Markmið námsins er að veita
hagnýta alhliða starfsþjálfun í notkun einkatölvubúnaðar, en það hefur sýnt sig að
skortur er á fjölhæfum starfsmönnum á þessu sviði. Viðbrögðin á síðasta vetri voru
mjög góð og umsagnir þátttakenda jákvæðar.
Námið er 252 klukkustundir eða 21 kennsluvika, auk æfingatíma. Kennt er 4 daga í viku
frá mánudegi til fimmtudags kl. 16.00 - 19.00. Innifalið í námsgjaldi er öll kennsla,
æfingatímar, veitingar og námsgögn á íslensku. Kennsla hefst mánudaginn 5. október
1992 og lýkur 18. mars 1993, en nemendur útskrifast eftir lokaverkefni þann 15. apríl.
í lok námsins eiga þátttakendur:
- að hafa góða þekkingu á tilgangi. notkun og uppsetningu DOS og Windows stýrikerfa á PC tölvum.
- að hafa atmenna þekkingu á stjómun og umsjón netstýrikerfis.
- að geta séð um uppsetningar nýrra véla og forrita.
- að geta notað flesta möguleika ritvinnslu og töflureiknis.
- að geta nýtt sér töivubúnað við gerð kynningarefnis, auglýsinga og fréttabréfa.
- að þekkja undirstöðuatriði gagnavinnslu og þa möguleika sem þar eru fyrir hendi.
- að þekkja undirstöðuatriði og möguleika tölvusamskipta.
- að hafa unnið sjálfstætt að úrlausn ýmissa hagnýtra verkefna.
Umsagnir þátttakenda á síðasta vetri:
Stefán Thorarensen
skrifstofustjóri
Laugavegsapóteki
“Mig haföi alltaf langaö
til aö komast á tölvu-
námskeiö sem hjálpaöi
mér til aö sameina þá
tölvukunnáttu sem ég
haföi aflaö mér / gegnum árin. Meö þátttöku f
náminu Tölvunotkun hef ég bæði náö betri
heildaryfirsýn yfir þá kunnáttu og öðlast mjög
góöa undirstööu sem nýtist mér f vinnunni og
til frekara tölvunáms, en ég fékk námiö vel
metið inn í Tölvuháskóla VÍ þar sem ég mun
hefja nám i haust."
Inga Engilberts
Galileo á íslandi
“Töivunám Stjórnunar-
féiagsins og Nýherja
sem ég sótti s.l. vetur
hefur nýst mér frábær-
lega vel í starfi. Þarsem
ég starfa bæöi viö markaösmál og sérhæfö
tölvumál, þá hefur kennsla í hinum ýmsu
forritum sem notuö eru i fyrirtækjarekstri í dag,
komiö mér aö góöum notum. Ekki má gleyma
mjög gagnlegri kennslu um stýrikerfi, netkerfi
og nútima tölvufjarskipti. Námiö hefurþvl veriö
mér til mikils gagns i starfi mínu i dag."
Fáið sendar nánari upplýsingar. Hagstætt verð. Góð greiðslukjör.
Hafið samband í símum 62 10 66 og 69 77 68.
MHal
▲
TÖLVUSKOLI
STJÓRNUNARFÉLAGSINS
OG NÝHERJA
Stjórmmcirfélcig Islcmds
NYHERJI HF.
lausafjárvandræðum vegna þessa. I
tilviki SH-verktaka hafí vantað fjár-
magn til að ljúka við framkvæmdir
við íbúðir í Setbergshlíð með eðlileg-
um hraða, en heildarumfang verks-
ins er alls um 900 milljónir króna.
„Það hefur reynst SH-verktökum
þungur baggi að fjármagna verkið,"
segir Pétur. „Veð var stofnað í
kringum verkefnið og keypti eignir
SH-verktaka í Setbergshlíð. Þama
er um að ræða 125-135 milljóna
króna staðgreiðslu en heildarverð
er 495 milljónir."
SH-verktakar tóku að sér skipu-
lagningu, hönnun og allar fram-
kvæmdir í Setbergshlíð. Um er að
ræða 56 íbúðir i blokk, 32 íbúðir í
raðhúsum á hallandi landi og 11
einbýlishúsalóðir. Heildarumfang
verksins var upphaflega 900 rfíillj-
ónir og er stórum hluta verksins
þegar lokið og hann seldur.
Verkefnið hefur þann eiginleika
að fyrst þarf að framkvæma en tekj-
ur skila ekki fyrr en einu til tveimur
árum seinna. Verktakinn hefur séð
um innri fjármögnun en með stofn-
un Veðs var ákveðið að skilja að
verktakastarfsemina og verkefnisfj-
ármögnunina. Jón Ingi Gíslason,
framkvæmdastjóri SH-verktaka,
segir að verkið hafí hingað til verið
fjármagnað með skammtímalánum
og úr rekstri fyrirtækisins. Með fjár-
mögnun Veðs hf. þurfi ekki að taka
dýr skammtímalán og jafnframt
skapist möguleikar á staðgreiðsluaf-
slætti hjá undirverktökum og efnis-
sölum. Samningurinn við Veð hf.
sé því báðum aðilum hagstæður.
Hluthafar geta lagt fram eigið
fé eða veð
Heildarhlutafé Veðs hf. er 400
þúsund krónur og er hver hlutur
að lágmarki 5 þúsund krónur. Hins
vegar þarf hluthafí að leggja fram
peninga að láni eða öruggt veð að
lágmarki 325-falt nafnverð hluta-
fjárins. Ef keypt er fyrir 5 þúsund
krónur ber hinum sama að leggja
fram peninga að láni eða veð fyrir
1.625 þúsund krónum. Ef hluthafi
Teggur fram veð, er skuldabréf með
því veði selt á fjármagnsmarkaði.
Þegar hefur um helmingur hluthafa
Veðs hf greitt sinn hlut með pening-
um, nokkur hluti hefur lagt fram
húsbréf eða spariskírteini en aðrir
hafa lagt fram fasteignaveð. Pétur
Blöndal bendir á að þetta geti hent-
að þeim einstaklingum sem eigi
skuldlausar eignir og viiji nýta sín
veð. Fyrst og fremst hafi verið leit-
að til aðila innan lokaðs hóps og
þannig hafí tekist að safna 60 millj-
ónum króna af 130 milljónum sem
fyrirhugað sé að útvega á þennan
hátt.
Pétur bendir á að afstaða bank-
anna hafí breyst varðandi lánveit-
ingar og þeir leggi nú áherslu á góð
og trygg fasteignaveð t.d. veð í
auðseljanlegum íbúðum. Hann hefur
hins vegar reynt að greina þá
áhættu sem hluthafar í Veði hf.
standa frammi fyrir við ávöxtun
fjármuna sinna. „Áhætta hluthafa
í Veði felst í að verðlag á fasteignum
lækki. Haldist verðið óbreytt verður
arðsemi mjög góð eða á bilinu
30-40% og binditími er mjög stutt-
ur. Hins vegar verður engin arðsemi
ef verð á fasteignum lækkar um
meira en 20% og ef verðið skyldi
lækka um 40% þurfa hluthafar að
kaupa veðin sín til baka að hluta.
Rétt er að benda á að 40% verðlækk-
un fasteigna hefði veruleg áhrif á
öðrum sviðum og verður að teljast
harla ólíkleg. Einnig má benda á
það að ef álver verður að veruleika
myndi verð hækka á íbúðunum sem
myndi bæta ávöxtun hluthafa veru-
lega. Setbergshlíð liggur ennfremur
vel við umferð og þar fer saman
gott verðurfar og útsýni.“ Aðspurð-
ur segist hann ekki óttast sölu-
tregðu á nýjum íbúðum því þar sé
um að ræða skammtímaástand sem
geti breyst fljótlega en byggja þurfí
a.m.k. eitt þúsund íbúðir á ári til
að fullnægja eftirspurn.
Fyrirhugað er að sögn Péturs að
halda hluthafafund hjá Veði í febr-
úar eða mars á næsta ári til að
ákveða nýtt verkefni eftir að létta
fer á verkefninu í Setbergshlíðinni.
Hann telur að þar geti t.d. verið um
að ræða fjármögnun á smíði skips
eða vegagerð en mjög mörg verk-
efni megi leysa með verkefnisfjár-
mögnun.
í stjórn Veðs sitja auk Péturs
Blöndal þeir Sigurður M. Magnús-
son og Stanley Pálsson en varamenn
eru þeir Jón Halldórsson og Baldur
Guðlaugsson.
Fjármál
Hagur bandarískra
banka að vænkast
Methagnaður var hjá viðskiptabönkunum i Bandaríkjunum, 7,9 milljarð-
ar dollara, á öðrum fjórðungi þessa árs þrátt fyrir viðvarandi erfið-
leika í efnahagslífinu. Kemur þetta fram i nýrri skýrslu FDIC, opin-
berrar tryggingastofnunar bankanna, en hún er byggð á afkomu 11.685
banka.
Miðað við annan ársfjórðung í
fyrra jukust tekjur bankanna um 3,3
milljarða dollara og er það þakkað
aukinni varkámi í útlánum og vaxta-
lækkununum vestra. Hafa bankamir
nýtt sér þær með því að lækka vext-
ina meira á innlánum en útlánum.
Auk þessa hafa þeir sjóðir, sem
bankamir hafa lagt til hliðar til að
mæta hugsanlegum áföllum, vaxið
um 9,6% og nema nú alls 248 millj-
örðum dollara. Þá er útlánatapið
undir 100 milljörðum dollara í fyrsta
sinn frá því um sumarið 1990.
Þótt illa ári í efnahagslífínu hefur
atvinnureksturinn vestra og einstakl-
ingar verið að bæta skuldastöðuna.
Minnkuðu heildarskuldirnar um 3,8
milljarða dollara á öðmm ársfjórð-
ungi nú og er það sjötti ársfjórðung-
urinn i röð, sem þær lækka.