Morgunblaðið - 30.10.1992, Side 2
Hafnarfjöróur
Sala hafin á íbúó-
um í Golfarahúslnu
FASTEIGNASALAN As í
Hafnarfirði auglýsir í dag
vandaðar og rúmgóðar íbúðir
vestast í Hvaleyrarholtinu í
Talsvert
framboó
áeUsnum
ÞAÐ er mikið af fólki úti á
markaðnum, sem hyggur af al-
vöru á íbúðarkaup, en viðskipti
ganga svolítið hægar nú en
stundum áður. Það er töluvert
framboð af eignum og fólk
skoðar því mikið og vandar sig
við kaupin. Markaðurinn nú er
greinilega hagstæður fyrir
kaupendur og verð fer alla veg-
anna ekki hækkandi. Samt er
ekki það mikill munur á fram-
boði og eftirspurn, að búast
megi við neinni verðlækkun að
marki, heldur muni verð hald-
ast nokkuð stöðugt.
Þannig komst Magnús Leóp-
oldsson, fasteignasali í Fast-
eignamiðstöðinni að orði í
viðtali við Morgunblaðið. — Það
er hugsanlegt, að það hafi orðið
nokkur verðlækkun á fasteignum
miðað við það hvemig þær eru
greiddar en ekki í krónum talið
og ég held, að sú verðlækkun, sem
margir hafa gert ráð fyrir, sé kom-
in fram, sagði Magnús. — Stærri
eignimar em þyngri og það má
kannski frekar búast við meiri
verðlækkun þar og það er víst, að
það má gera nokkuð góð kaup í
stærri eignum nú. Þau einbýlis-
hús, sem hafa selzt að undan-
fömu, hafa farið á nokkuð sann-
gjörnu verði.
Magnús sagði, að þegar á heild-
ina væri litið, væri töluvert um
fyrirspurnir nú, enda væri þetta
sá tími, sem hreyfíngin væri hvað
mest á markaðnum og þessi tími
væri því yfirleitt nokkuð góður
fyrir fasteignaviðskipti.
Hafnarfirði. Þarna er um að
ræða íbúðir með eða án lyftu
112-132 ferm og með eða án
bílskúrs. íbúðirnar seljast með
vönduðum innréttingum og
gólfefnum. Tvennar svalir
fylgja hverri íbúð og sólskáli.
Byggingaraðili er Fjarðarmót
hf., en íbúðirnar verða afhent-
ar haustið 1993.
Þessar íbúðir eru á Klappar-
holti 10-12, en það fjölbýlis-
hús gengur undir nafninu “Golf-
arahúsið" sökum nálægðar sinn-
ar við golfvöllinn á Hvaleyri,
sagði Ingvar Guðmundsson fast-
eignasali í viðtali við Morgun-
blaðið. — Golfáhuga- menn hafa
sýnt þessu húsi alveg sérstakan
áhuga, allt frá því að það fréttist
fyrst, að þetta fjölbýlishús ætti
að að rísa þama, enda geta menn
fylgzt með nánast hverri einustu
holu á golfvellinum frá húsinu.
Þarna verða alls 14 íbúðir og
allar stórar. Þær verða með gegn-
heilum eikarinnréttingum, par-
keti á gólfum og flísalögð böðum,
þannig að þessar íbúðir verða I
háum gæðaflokki. Fjarðarmót hf.
hefur líka getið sér orð fyrir að
vera eitt af traustari bygginga-
raðilum á landinu. Ég á því von
á, að það verði auðvelt að selja
þessar íbúðir, Greiðsluskilmáiar
verða sveigjanlegir, það er reynt
verður að sníða stakk eftir vexti
hvers kaupanda.
Ingvar var spurður að því,
hvort það væri ekki mikil bjart-
sýni að ráðast í svona nýbygg-
ingu nú og svaraði hann þá. —
Það þýðir ekki annað en að vera
bjartsýnn og ekki má leggja árar
í bát. Fjarðarmót hf. er mjög
traustur byggingaraðili og hefur
því svigrúm til að fjármagna slíka
byggingu, þó að sala á íbúðunum
taki sinn tíma.
Ingvar kvað eftirspum eftir
nýjum íbúðum hafa verið furðu
góða að undanfömu og sagði að
lokum: — Yfirleitt hafa nýjar
íbúðir, sem afhentar eru fljótt og
vel, selzt þokkalega.
• /
Talsverður ahusi a
fasteignum á Spáni
MORGUNBLAÐIÐ
FASTEIGIMIR FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1992
Þetta raðhús á Costa Blanca
kostar um 4,5 ísl. kr. Það
er tveggja hæða og um 70
fermetrar að flatarmáli.
Peter Amos
ÞRÁTT fyrir samdrátt í efnahagslífinu hafa margir íslendingar
enn áhuga á að eignast íbúðir og hús á Spáni. Kom þetta fram
í viðtali við brezka fasteignasalann Peter Amos, en hann hefur
að undanförnu staðið fyrir kynningu á Hótel Holiday Inn á fast-
eignum á Spáni. Amos selur þar íbúðir, allt frá stúdíóíbúðum upp
í einbýlishús með eigin garði og sundlaug.
Amos kvað stúdíóíbúðimar
kosta 1,5-1,7 millj. ísl. kr.
en einbýlishúsin um 15 millj. kr.
Flestar eignimar, sem hann selur,
eru þó á verðbilinu 1,7-10 millj.
kr. Eignimar eru á Costa Blanca
á suðausturströnd Spánar, en það
svæði er hvað vinsælast þar í landi
sakir hins góða loftslags og fallega
umhverfis.
Peter Amos hefur rekið fast-
eignafyrirtæki sitt í Englandi í um
23 ár og selt fasteignir á Costa
Blanca í yfir 10 ár. Hann hefur
skrifstofu þar í Torrevieja, en fast-
eignasala hans hefur annars aðal-
stöðvar sínar í Bretlandi, enda er
aðal markaðssvæði hans þar.
Hann selur þó einnig fasteignir á
Spáni í mörgum öðmm löndum
Evrópu.
Amos er eingöngu umboðsaðili
fyrir byggingafyrirtæki. — Ég
gæti selt fasteignir fyrir hvaða
byggingafyrirtæki sem er, en ég
geng fyrst úr skugga um það,
hvort viðkomandi byggingaraðili
er traustur, sagði hann. — Á sam-
dráttartímum eins og nú verður
að sýna nokkra varkárni varðandi
byggingaraðila. Ég og samstarfs-
menn mínir emm atvinnumenn á
þessu sviði. Við vitum því, hvar
vandamálin liggja. Ég hef alltaf
verið mjög vandfýsinn á, fyrir
hveija ég sel, enda hefur það borg-
að sig. Ég hef aldrei lent í vand-
ræðum með neinn af þeim bygg-
ingaraðilum, sem ég sel fyrir.
Amos kvað aðeins erfiðara að
endurselja fasteignir á Spáni nú
en fyrir 3-4 ámm, vegna þess að
þeim hefði fjölgað, sem vildu selja
aftur. Ástæðurnar væm fyrst og
fremst breyttar ástæður heima
fyrir. í Bretlandi, en þar væri aðal-
markaður hans að sjálfsögðu,
væru þeir fleiri en áður, sem vildu
selja nú, ekki til þess að komast
burt frá Spáni heldur vegna þess
að þeir ættu við íjárhagsvanda að
etja heima fyrir. Ekkert væri held-
ur því til fyrirstöðu að taka pen-
inga sína út úr landinu, ef fólk
vildi selja eign sín á Spáni aftur.
— Þetta er fyrsta ferð mín til
íslands og ég vinn nú að því að
skipuleggja sérstakar ferðir til
Spánar fyrir fólk héðan til þess
að skoða fasteignir þar, sagði
Amos að lokum. — Ég mun sjálfur
taka á móti þeim Islendingum,
sem koma til Spánar í þessu skyni
og starfsmenn mínir munu fylgja
þeim á skoðunarferðum og fara
með þeim á fund byggingaraðil-
anna. Þeir, sem koma, munu dvelj-
ast þama 4-7 daga, en við munum
skipuleggja flugið og hótelgist-
ingu. Fólk greiðir kostnaðinn af
þessu, en í mörgum tilfellum fær
það töluvert endurgreitt af honum,
ef af fasteignakaupum verður.
Erlendur Hjálmarson, byggingafulltrúi í Hafnarfirði og Sigurbjartur Halldórsson byggingatæknifræðing-
ur. í baksýn sést nýi leikskólinn, sem nú er I smíðum í Setbergslandi. Það sem er sérstætt við þessa
byggingu er, að allt burðarvirki hennar er úr blikki.
Itlilik notað i
bui'ðarvirkið
í Setbergshverfi í Hafnarfirði er verið að reisa nýjan leikskóla.
Það sem er sérstætt við þetta hús, er að burðarvirki þess er allt
úr blikki, bæði stoðir og sperrur. Heildarflatarmál hússins er um
G60 fermetrar. Það á að taka i notkun um mánaðamótin febrúar-
marz nk., en byrjað var á smíði þess í ágúst.
Blikk hefur verið töluvert notað
í innveggi, en nú er verið að
byrja að nota það í útveggi, sagði
Erlendur Hjálmarsson, bygginga-
fulltrúi í Hafnarfírði. — Blikkstoð-
imar eru klæddar að innan með
gipsplötum en að utan með steni-
plötum. Burðargrindin er öll úr
blikki, það er notaðar era snið-
grindur (prófílar) úr blikki bæði í
sperrar og grind hússins. Það er
norskt fyrirtæki, Norsk profil-
formning, sem framleiðir þessar
sniðgrindur, en Breiðfjörðsblikk-
smiðja hf. er samstarfsaðili þess
hér á landi. Sniðgrindurnar era
fluttar hingað tilbúnar, þannig að
ekki þarf annað en að raða þeim
upp eins og mekkanói.
Erlendur sagði, að um lokað
útboð hefði verið að ræða, þegar
smíði leikskólans var boðin út og
hefði byggingafyrirtækið Byggða-
verk tekið verkið að sér í svoköll-
uðu alútboði. Verkið hefði gengið
mjög vel, en leikskólinn ætti að
þjóna öllu Setbergshverfinu.
.