Morgunblaðið - 30.10.1992, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 30.10.1992, Blaðsíða 16
MORGUNBLÁBIÐ! FASTEIGNIRföstudagur 30JOKTÓBEK 3992 I*ró(tniiliill byggingar- iónaóur á Suóurnesjiiiii íþróttahús og sundlaug í smíðum í Garðinum. Margeir Þorgeirsson og Halldór Ragnarsson eigendur Húsaness hf. í Keflavík. 16 B s.62-1200 62-1201 Skipholti 5 2ja-3ja herb. Furugerði - laus. 2ja herb. 74,4 fm íb. á jarðh. í iitillj blokk. Verð 6,2 millj. Hverfisgata. 3ja herb. stór ib. á 2. hæð í góðu steinh. Nýtt eld- hús. Laus. Gott lán frá húsnæðis- stofnun ca. 3,2 millj. Hverfisgata/Vitastígur. 3ja herb. góð íb. í steinh. fb. sem er á 2. hæð snýr að Vitastig. Verð 4,5 millj. Laus fljótl. Ljósvallagata. 3ja herb. mjög falleg íb. á jarðhæð. Mikið end- um. m.a. eldhús og bað. 4ra herb. og stærra Barónsstígur - ódýr íbúð. 4ra herb. ósamþ. snyrtil. risíb. Góður staður. Verð 2,5 millj. Háaleitisbraut. 4ra herb. góð ib. á 2. hæð. Mjög hagst. lán áhv. Lækjargata - Hf. Mjög sór- stök 121 fm risíb. tilb. u. trév. í fallegri blokk. Sameign fullb. Bílast. fylgir. Maríubakki. 4ra herb. 110,8 fm íb. á 3. hæð í blokk. Góð íb. Þvherb. innaf eldh. Stórt íbherb. í kj. Suð- ursv. Parket. Nýtt gler að mestu. Verð 7,4 millj. Hringbraut. 4ra herb. falleg íb. á 3. hæð í góðu steinh. á góð- um stað við Hringbrautina (við Ljósvallagötu). Vesturberg. 4ra herb. ný- standsett stórglæsi. fb. á efstu hæð. Nýtt eldh. Nýtt parket. Mjög mikið útsýni. Laus. Áhv. Byggsj. 2,4 millj. Verð 7,5 millj. Einbýlishús - raðhús Grundartangi - Mos. Endaraðhús, falleg 2ja herb. ib. Góður garður. Drauma- hús unga fólksins. Gott lán frá húsnstofnun. V. 6,2 m. Álftanes. Nýtt ekki fullb. einb- hús á einni hæð, samtals með bílsk. ca 200 fm. Húsið er vei stað- sett á sunnanverðu Álftanesi. Hagst. lán frá byggsj. 4,5 m. Miðhús. Parhús 147 fm á einni hæð. Selstfokh., glerjað með jámi á þaki. Til afh. strax. Verð 7,3 millj. Atvinnuhúsnæði Þverholt - Mos. Verslun- ar/þjónustuhúsn. 122 fm á götu- hæð. Nýl. gott húsn. Verð 5,5 m. Hringbraut. Verslunarhúsn. ca 85 fm á jarðhæð. Gott húsn. Hentugt fyrir margskonar smá- versl. Sumarbústaðir Til SÖIu lítill, gamall bústaður við vatn í nágrenni Reykjavíkur. Verð 1 millj. Kári Fanndal Guðbrandsson, Axel Kristjánsson hrl. Sígrún Sigurpálsdóttir, lögg. fasteignasali. __ MIKILL kraftur er í byggingar- iðnaðinum á Suðurnesjum, ef marka má könnun Morgun- blaðsins í vikunni, þrátt fyrir að atvinnuleysi sé þar með mesta móti. I Keflavík er 121 íbúð í smíðum og segir Ellert Eiríksson bæjarstjóri að þar haldist sama hlutfall næstu tvö árin, en í þremur sveitarfélög- um eru sundlaugar í smíðum, Grindavík, Garðinum, en þar er íþróttahús einnig í smíðum, og Vogunum, þar sem opnuð voru nýlega útboð í íþróttahús og sundlaug. Stærstu byggingarframkvæmd- imar eru hjá Hitaveitu Suður- nesja í Grindavík, en á Svartsengis- svæðinu er í bygg- ingu orkuver 4, sem kostar 450 milljónir krónur. Þrátt fyrir að mik- ið sé að gera hjá flestum bygginga- raðilum þá var þungt hljóð í eig- endum Húsaness hf. í Keflavík yfir því að sveitarstjórn Vatnsleysu- strandarhrepps skyldi ekki hafa lokað útboð innan Suðurnesja vegna þess hve almennt atvinnu- leysi er þar mikið. Raforkuver í smíðum í Grindavík Stærsta framkvæmdin í bygg- ingariðnaðinum á Suðumesjum er bygging Hitaveitu Suðumesja í Svartsengi á orkuveri 4 sem er gufuraforkuver og kælistöð, og kostar 450 milljónir krónur. Raf- magnsframleiðsla hitaveitunnar verður 16 MWött þegar stöðin verð- ur tekin í notkun þannig að fram- leiðslan dugar fyrir sveitarfélögin á svæðinu. Húsin eru byggð að hluta á uppfyllingu út í Bláa lónið og hefði örugglega verið farið lengra út í lónið með byggingarnar ef Bláa lónið væri ekki eins vin- sæll ferðamannastaður og það er. Fasteignasala opnuð í Grindavík fasteignamarkaðinn og íbúðaverðið í Grindavík. Miklar framkvæmdir í Grindavík „Tuttugu og tvö einbýlishús eru í byggingu í Grindavík í október á þessu ári auk 6 íbúða í þremur parhúsum, 8 íbúða í sambýlishúsi, 4 iðnaðarhús, 1. hæð húkrunar- heimilisins Víðihlíð og sundlaug,“ sagði Jón Sigurðsson byggingafull- trúi í Grindavík og bætti við að á þessu ári var byijað á tveimur ein- býlishúsum og sundlaug sem er framkvæmd sem kostar 125 millj. kr. Lokið var við smíði 5 einbýlis- húsa og 6 íbúða í parhúsum. Þá var lokið á þessu ári við fyrri áfanga hjúkrunarheimilisins Víði- hlíðar, stækkun bakarísins um 115 fm, stækkun leikskólans, byggingu glæsilegs verkalýðshús (Víkur- braut 46) og þá fluttu heilsugæsla, bæjarskrifstofurnar og bókasafnið í glæsileg húsakynni á annari hæð verslunarmiðstöðvarinnar. Keflavík heldur sínum hlut „í dag er 121 íbúð í smíðum og lóðum fyrir 60 íbúðir í viðbót hefur verið úthlutað á þessu ári. Engar lóðir eru tilbúnar til úthlutunar, en framkvæmdir í nýju hverfi verða hafnar á næstunni og þar verða lóðir fyrir 113 íbúðir. Undirbúning- ur og vinna er hafin vegna skipu- lags næstu byggingasvæða,“ sagði Sveinn Númi Vilhjálmsson bygg- ingarfulltrúi er blaðamaður Morg- unblaðsins hitti hann ásamt Ellert Eiríkssyni bæjarstjóra og Sigur- björgu Gísladóttur framkvæmda- stjóra húsnæðisnefndar Keflavíkur í síðustu viku. Skipting íbúða sem eru í smíðum í Keflavík er eftirfarandi: 13 einbýl- ishús, 22 raðhús, 12 íbúðir í fjórbýl- ishúsi og 74 íbúðir í 8 fjölbýlishús- um. í smíðum eru 24 iðnaðar- og verslunarhús og þar af var byrjað á 4 á þessu ári. Ellert Eiríksson bæjarstjóri sagði að þetta væri svipuð tala og í fyrrra en þá voru 119 íbúðir í smíðum þar af var lok- ið við 72 íbúðir og mun þetta bygg- ingahlutfall haldast næstu tvö árin eins og staðan væri núna. „Ræðst það þó mest af því hvort við fáum góða úthlutun úr félagslega kerf- inu. Við sendum inn 40 umsóknir vegna byggingu íbúða fyrir eldri og yngri íbúa og reiknum með að fá minnsta kosti úthlutað til bygg- ingu 30 íbúða. Við óttumst ekki landleysi hér í Keflavík enda höfum við tekið þá stefnu að kaupa upp gömul hús í gamla bænum og út- hluta lóðum til fjölbýlishúsa en þar eru íbúðir fyrir aldraða mest áber- andi. Sem dæmi má nefna að þar sem áður voru 8 gömul hús eru núna 60 íbúðir,“ sagði Ellert og bætti við að í Keflavík fjölgaði um 100 manns á ári, svo mikill skortur er á húsnæði enn sem komið er. Bæði væri stanslaus innflutningur fólks til svæðisins víðs vegar að af landinu og svo virtust börnin ákveða að setjast hér að í stað þess að flytja burt eins og gerðist á mörgum stöðum og er það ánægjuleg þróun. Unnið við deiliskipulag nýrra hverfa í Njarðvík í skýrslu byggingarfulltrúa Ein- ars Más Jóhannessonar segir að nær öllum lóðum hafi verið úthlut- að í Móahverfi og því orðið mjög aðkallandi að deiliskipuleggja hverfið fyrir ofan núverandi Móa- hverfi í Ytri-Njarðvík. Til úthlutun- ar árið 1991 voru 6 lóðir fyrir ein- býlishús auk tveggja lóða fyrir ein- býlishús. Þá voru byggingar á ýmsum byggingarstigum og reikn- að með að flestum lyki í þessu ári. Um síðustu áramót voru 74 íbúðir í byggingu þar af nokkur hús sem hafa verið lengi í byggingu, en segja má að áætlun síðasta árs fari eftir hvað varðar þörfina fyrir nýtt deiliskipulag því byijað var á byggingu 10 íbúða þar af er eitt fjórbýlishús. Þá er verið að und- irbúa smíði fjölbýlishúss með 21 íbúð fyrir félag eldri borgara á Suðurnesjum en það hefur byggt mikið í Keflavík. í framhaldi af nýju aðalskipulagi sem samþykkt var í sumar verður unnið að deiliskipulagi fyrir ofan Móahverfið þar sem lítið er að til- búnum lóðum fyrir nýbyggingar. Nokkrar lóðir eru til í Innra-hverf- inu en þar er ekki eins góð hreyfing. í fyrra var lokið við byggingu rafmagnsaðveitustöðvar á Fitjum og hún tekin í notkun. Viðamiklar Nýlega opnaði Halldór Halldórs- son fasteignasölu í Grindavík en hann hefur rekið bókhaldsþjónustu- fyrirtæki sitt Tölvík í tæpt ár. Fast- eignasala hefur ekki verið í Grinda- vík um nokkurra ára skeið og seg- ir Halldór að þessari þjónustu hafi verið tekið mjög vel og hefur hann nú þegar séð um 15 sölur. „Ég tók fasteignaverð í Grindavík út í sum- ar með því að fá yfirlit frá Fast- eignamati ríkisins og komst að því að minni eignir eru á sama verði og gengur í Keflavík-Njarðvík en smámunur er enn á stærri eignum sem eyðist fljótt ef eftirspum eykst aðeins. Ástand fasteigna í Grinda- vík er yfirleitt gott en víða mætti bæta frágang húsa og lóða, því það eru smáatriðin sem skipta máli hvort eignin selst,“ sagði Halldór og bætti við að greinilega vantaði blástur í atvinnulífið til að örva Atvinnuhúsnæði óskast Höfum traustan kaupanda að 400-500 fm húseign/atv- húsn. miðsv. í Rvík eða Kóp. Skilyrði er að í ca 100 fm af húsnæðinu sé lofthæð 4,5 m. Húsið má hvort held- ur vera fullb. eða á byggingarstigi. Nánari upplýsingar veitir: Fasteignamarkaðurinn hf., Óðinsgötu 4, símar 11540 og 21700. eftir Kristin Benediktsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.