Morgunblaðið - 06.11.1992, Síða 4

Morgunblaðið - 06.11.1992, Síða 4
 VEÐUR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1992 Morgunblaðið/Sverrir Frekar rólegft var i afgreiðslum Fjárfestingarfélagsins Skandia i gær. Innleyst fyrir 20 milljónir hjá Skandia í gær Innlausnir voru nær ein- göngu á Skyndibréfum INNLAUSNIR í verðbréfasjóðum í vörslu Fjárfestingarfélagsins Skandia námu um 20 miiyónum króna í gær en þá gafst eigendum þeirra i fyrsta sinn kostur á að innleysa hlutdeildarskirteini sín síðan 5. október. Var þar nær ein- göngu um að ræða innlausnir á Skyndibréfum en gengi á þeim lækkaði ekki sem kunnugt er. Að sögn Friðriks Jóhannssonar, for- stjóra félagsins, eru þessar inn- lausnir Skyndibréfa mjög eðlileg- Stálu úr sýning- arglugga fyr- ir framan vitni TVEIR menn voru handteknir á Laugavegi i fyrrinótt eftir að hafa brotið rúðu i gullsmíðaverslun þar og stolið úr sýningarglugga að nokkrum vitnum ásjáandi. Þegar lögreglan kom að voru mennimir með fulla vasa af úrakeðj- um og -ólum, svo og gullarmböndum og hálskeðjum. Þeir sögðu lögreglunni að skömmu áður hefði komið til þeirra maður og beðið þá um að halda á þessu því hann þyrfti að bregða sér frá. Lög- reglan lagði ekki trúnað á þá sögu, enda dreif að vitni sem báru að það hefði verið þessir tvímenningar sem köstuðu gijóti í rúðuna og létu síðan greipar sópa. ar þar sem þau eru skammtimafj- árfesting og velta á þeim að jafn- aði mjög mikil. Friðrik sagðist vonast til þess að skráning verðbréfasjóðanna á Verð- bréfaþinginu gæti hafist fljótlega í næstu viku. Hins vegar gæti félagið nú þegar tekið við kaup- og sölutil- boðum en þannig skapaðist mögu- leiki fyrir eigendur skírteinanna að selja þau á hærra verði en ella. Hann sagði að borist hefðu allmargar fyrir- spumir frá aðilum sem vildu kaupa skírteini og von væri á kauptilboðum í dag fyrir a.m.k 20 milljónir króna. Aðspurður sagðist Friðrik eiga von á að nokkur hækkun gæti orðið á gengi hlutdeildarskírteinanna á næstunni. Það væri ákvörðun stjóm- ar verðbréfafyrirtækisins sem myndi fylgjast með þróuninni og hafa til hliðsjónar viðskiptin á Verðbréfa- þingi. Verðbréfasjóðir í vörslu Kaup- þings og Verðbréfamarkaðar Is- landsbanka eru nú skráðir á Verð- bréfaþingi íslands en viðskipti hafa hingað til verið lítil á þeim vett- vangi. Þar er um að ræða Eininga- bréf 1 og Einingabréf 3 hjá Kaup- þingi ásamt Sjóðum 1,3 og 4 hjá Verðbréfamarkaði íslandsbanka. Samkvæmt upplýsingum Landsbréfa er til athugunar hjá fyrirtækinu að sækja um skráningu verðbréfasjóða í vörslu fyrirtækisins. VEÐURHORFUR í DAG, 6. NÓVEMBER YFIRLIT: Skammt suðsuðvestur af Reykjanesi er 990 mb lægö sem hreyfíst norður og grynnist en yfir A-Grænlandi er 1025 mb hæð. Um 600 km suöur af Vestmannaeyjum er 995 mb vaxandi lægð og hreyfist hún allhratt norð- austur. SPÁ: Um landið sunnanvert verður hvasst en þurrt og vlða lóttskýjað. Sfðdeg- is fer að lægja vestantil og þá lóttir til á Vestfjörðum. Kólnandi veður. VEBURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG: Fremur hæg breytileg eða vestlæg átt. Víða lótt- skýjað. Svalt i veðri og vlða frost, einkum inn til landsins. HORFUR Á SUNNUDAG: Suðlæg ótt, sums staðar strekkingur. Þurrt að mestu norðaustanlands en rigning annars staöar. Hiti 3-7 stig. HORFUR Á MÁNUDAG: Breytileg átt, él víða um land. Hiti nálægt frost- marki við strendur en frost inn til iandsins. Nýir veöurfregnatímar: 1.30, 4J0, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 1S.30, 22.30.Svarsfmi Veðurstofu islands — Veöurfregnir: 990600. O & & Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað V ^ V Skúrír Slydduél Él r r r * / * f f * f f f f f * f Rigning Slydda * * * * * * * * Snjókoma Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaörimar vindstyrk, heil fjööur er 2 vindstig.^ 10° Hitastig v súld = Þoka itig.. FÆRÐA VEGUM: (Ki.i7.30ígær) Ágætlega greiðfært er i nágrenni Reykjavíkur, nema Mosfellsheiði er þung- fær. Greiðfært austur um Hellisheiðí og Þrengsli og til Austfjarða en hálka er á þeirri leið og á vegum í uppsveitum Árnessýslu, sömuleiðis á fjallavegum á Austfjörðum. Greiðfært er um Vesturland en hált er á Fróðárheiði, Kerling- arskarði og Bröttubrekku. Fært er vestur fyrir Gilsfjörð og um Barðastrandar- sýslur en Klettháls og Dynjandisheiði eru aðeins færar jeppum og stórum bílum. Hrafnseyrarheiði er ófær. Fært er yfir Holtavörðuheiði og norður Strandasýslu til Hólmavíkur og þaðan um Steingrímsfjarðsrheiöi til ísafjarð- ar og þaöan bæði tii Bolungarvíkur og Þingeyrar. Víða á þessari leið er hálka. Það er greiðfært um Noröur- og Austurland en þar er víöa umtals- verð hálka. Möörudalsöræfi eru þungfær og öxarfjarðarheiði er ófær. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og í grænni línu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma Afcureyri Reykjðvifc hlti 3 31 veður aiskýjað skýjað Bergen 4 rigning Helsinfci 1 akýjað Kaupmannahöfn 8 skýjað Narssarseuaq +11 léttskýjað Nuufc +4 snjókoma Osló 1 alsfcýjað Stokkhólmur 2 léttskýjað Þórahöfn 8 rigning Algarve 21 heiðskírt Amsterdam 14 þokumóða Barcelona 20 mistur Beriín 8 súld Chicago vantar Feneyjar 16 þokumóða Frankfurt 10 skýjað Glasgow 9 skúr Hamborg 9 súld London 14 skýjað LosAngeles 16 alskýjað Lúxemborg 10 skýjað Madrtd 17 heiöskírt Malaga 20 léttskýjað Mallorca 21 léttskýjað Montreal 4 skýjað NewYorfc 13 skýjað Oriando 23 þokumóða París 11 þokumóða Madeira 22 hálfskýjað Róm 21 léttskýjað Vín vantar Washington vantar Winnipeg +7 alskýjað ÍDAGkl. 12.00 Heimild: Veðurslola Islands (Byggt á vsðurapá kl. 16.15 (gær) Búið að veiða rúmlega helming síldarkvótans Ottast að ekki takist að salta og frysta sfld upp í sölusamninga sem gerðir hafa verið SAMKVÆMT upplýsingum frá Fiskistofu hafa nú verið veidd um 62 þúsund tonn af síld það sem af er vertiðinni. Á sama tíma í fyrra var síldaraflinn orðinn um 18.400 tonn. Alls er heimilt að veiða um 120 þúsund tonn í vetur en þar af voru tæp 10 þúsund tonn flutt frá síðasta kvótaári. Er því búið að veiða rúmlega helming kvótans á vertíðinni. Af því magni, sem nú hefur ver- ið veitt, hefur megnið farið í bræðslu. Til að geta geta staðið við samninga um síldarsölu á þessari vertíð telur Síldarútvegsneftid sig hins vegar þurfa 14-15 þúsund tonn af sfld en Sölumiðstöð hraðfrysti- húsanna 16-19 þúsund tonn og ís- lenskar sjávarafurðir hf. 6-7 þúsund tonn, eða samtals 35-41 þúsund tonn, sem er 29-34% af heildarkvót- anum á vertíðinni. Fyrir nokkrum árum fóru hins vegar allt að 60% af síldinni til manneldis. Búið er að saita um 30% af þeirri saltsfld, sem Sfldarútvegsnefnd hef- ur samið um sölu á á þessari ver- tíð, eða 4.500 tonn (um 24.000 tunnur), að sögn Einars Benedikts- sonar framkvæmdastjóra Sfldarút- vegsnefndar. Þá hafa verið fryst um 20% af síldinni, sem Sölumið- stöð hraðfrystihúsanna hefur samið um sölu á í vetur, að sögn Gylfa Þórs Magnússonar framkvæmda- stjóra hjá SH. í haust hafa 26 loðnuskip veitt sfld en þau eru mun afkastameiri en hinir hefðbundnu sfldarbátar. Einar og Gylfi Þór hafa áhyggjur af því að hraðinn í sfld- veiðunum nú geti leitt til þess að ekki náist að salta og frysta síld upp í samninga. Gylfi Þór bendir t.d. á að nýlega hafí verið veidd um 10 þúsund tonn, eða tæp 10% af heildarkvótanum, á einni nóttu. Prentsmiðjan Oddi segir upp 10 manns TÍU starfsmönnum Prentsmiðjunnar Odda var sagt upp störfum um síðustu mánaðamót. Að sögn Þorgeirs Baldurssonar forstjóra fyrirtæk- isins var gripið til uppsagnanna vegna fyrirsjáanlegs samdráttar f verkefnum eftir áramótin. „Við erum að búa okkur undir það að eftir áramótin verði minna um að vera vegna samdráttar í samfélag- inu og einnig óttumst við afleiðing- amar ef virðisaukaskattur verður settur á. Við erum einfaldlega að búa okkur undir þetta,“ sagði Þorgeir. Hjá Prentsmiðjunni Odda starfa í dag 260 starfsmenn, og að sögn Þorgeirs starfa þeir sem sagt hefur verið upp við prentun, bókband og ýmsa undirbúningsþætti. Hann sagði að í bili hefði ekki verið ákveðið neitt varðandi frekari uppsagnir hjá fyrir- tækinu. Dollariim 836% dýr- ari en fyrir 12 árum GENGI íslensku krónunnar hefur fallið gagnvart Bandaríkjadoll- ar frá því 1. janúar 1981 þannig að dollar er nú 836,46% dýrari en þá. Er þá miðað við gengisskráningu Seðlabanka íslands frá því í gær, 5. nóvember 1992. Gengi íslensku krónunnar hefur hins vegar fallið á sama tíma gagnvart sterlingspundi sem nemur því að pundið er nú 509,84% dýrara en 1981. Pundið hefur sigið mikið undanfarið, en fyrir nokkrum mánuðum var pundið rúm- lega 600% dýrara en 1981. Ef gengisfelling krónunnar gagnvart nokkrum öðrum gjald- miðlum, sem Seðlabankinn skráir, er skoðuð, kemur í ljós að fransk- ur franki er nú rétt rúmlega 700% dýrari og þýskt mark 1.069,57% dýrara. Verð á einu þýsku marki hefur sem sé tæplega tólffaldast á þessum tæplega 12 árum, sem liðin eru. Gengisfelling krónunnar gagnvart japönsku yeni hefur hins vegar haft þau áhrif að yenið er nú 1.452,53% dýrara en 1981, en það þýðir að verðið á hveiju yeni hefur rúmlega 15,5 faldast.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.