Morgunblaðið - 06.11.1992, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1992
11
Þjóðleikhúsið
Dýrin í Hálsaskógi
aftur á fjalirnar
Dýrin í Hálsaskógi, hið sigilda barnaleikrit Thorbjörns Egner verð-
ur frumsýnt í Þjóðleikhúsinu 8. nóvember. Þetta er þriðja upp-
færsla leikhússins á verkinu, en 16 ár eru síðan leikritið var síðast
sýnt. Frumsýningin hefst kl. 14.00 á sunnudag.
Thorbjörn Egner hefur samið
mikið af verkum fyrir börn. Leikrit-
ið, Dýrin í Hálsaskógi er meðal
þekktustu verka hans, en einnig
má nefna Kardemommubæinn og
Karíus og Baktus. Egner samdi
sjálfur alla söngva í leikrit sín og
segja má að lög úr verkum hans
hafi fylgt íslenskum börnum í þijá
áratugi.
Aðalpersónur í Dýrunum í Hálsa-
skógi eru Mikki refur og Lilli klifur-
mús. Og fleiri kunningjar eru á
ferð, eins skógarmýsnar Marteinn
og amma, Hérastubbur bakari og
Bakarasveinninn, Bangsamamma
og pabbi.
Sigurður Sigurjónsson leikur
Mikka ref, Örn Arnason Lilla klifur-
mús, en í öðrum helstu hlutverkum
eru Ólafía Hrönn Jónsdóttir (Mar-
teinn skógarmús), Herdís Þoivalds-
dóttir (Amma skógarmús), Erlingur
Gíslason (Bangsapabbi), Guðrún Þ.
Stephensen (Bangsamamma), Flosi
Ólafsson (Hérastubbur bakari) og
Hjálmar Hjálmarsson (Bakara-
sveinninn). I sýningunni taka þátt
25 leikarar, bæði börn og fuliorðnir.
Hulda Valtýsdóttir þýddi leik-
textann, en Kristján frá Djúpalæk
söngvana. Sigrún Valbergsdóttir er
leikstjóri. Messíana Tómasdóttir
gerir leikmynd og búninga, Sylvia
von Kospoth semur dansa og sviðs-
hreyfingar, en lýsingu annast Ás-
mundur Karlsson. Jóhann G. Jó-
hannsson er hljómsveitarstjóri.
Skautar - skautar
PRISMA - St. 37-47. Verð kr. 6.750,-
ELITE - St. 33-41. Verð kr. 5.690,-
HOKKÍ skautar - St. 30-46. LISTSKAUTI - St. 28-47. Svartir og hvítir.
Verð kr. 4.550-4.960,- Verð kr. 3.450,-
mmuTiuFmm
GLÆSIBÆ . SÍMI 812922
A A ▲ A M
STORKOSTLEG
, TJLBOÐ
INOVEMBER
Covent Garden-rúm m/springdýnu: Kr. 23.900,- stgr.
( Áðtir kr. 27.300,- stgr. )
Hereford-borð m/marmaraplötu: Kr. 29.500 - stgr.
( Áðnr kr. 39.900.- stgr. )
habitat
LAUGAVEGI 13 - SÍMI (91) 625870
OPIÐ Á LAUGARDAGINN KL. 10.00-17.00