Morgunblaðið - 06.11.1992, Side 14

Morgunblaðið - 06.11.1992, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1992 Landsvirkjun og hálendið eftir Þorstein Hilmarsson Tilefni þessara skrifa eru greina- skrif Kára Kristjánssonar, land- varðar, í DV og Morgunblaðið á undanförnum dögum, en í þeim lætur hann í ljós ótta við að „fram- kvæmdagleðU og „gróðafíkn" stjórnar Landsvirkjunar leiði til þess að óréttlætanleg nátturuspjöll eigi sér stað á hálendinu. Enda þótt lík- legt hljóti að teljast að almennir lesendur sjái í gegnum málflutning Kára, eins og hann er framsettur, þá tel ég rétt að víkja að nokkrum atriðum sem mættu vera almenn- ingi umhugsunarefni þegar frekari nýting orkulinda landsins er í brennidepli. Svo virðist sem tiltölu- lega fámennur hópur reyni nú'að vekja sem mesta athygli á fyrirhug- uðum línulögnum Landsvirkjunar með því að gera markmið fyrirtæk- isins og þær upplýsingar sem það hefur lagt fram um þessar ráða- gerðir sem tortryggilegastar. Ekki er annars að vænta en að lausn finnist á þessu máli með samráði við alla þá er málið varðar og fái menn óvilhallar upplýsingar um málið, efast ég ekki um að þeir sjái að hér er verið að reyna að gera skynsamlega hluti á eins varfærinn hátt og kostur er. Landvsirkjun er fyrirtæki í eigu ríkisins, Reykjavíkurborgar og Ak- ureyrabæjar, það hefur sjálfstæðan fjárhag og er ábyrgt fyrir eigin framkvæmdum. Því er falið það hlutverk með lögum að tryggja nægilegt framboð raforku í landinu á hveijum tíma og að stuðla að aukinni nýtingu orkuauðlinda landsins. Til þessa hefur Lands- virkjun tekist að framfylgja stefnu- mörkun stjórnvalda með þeim hætti að fyrirtækið ræður við fjárhagsleg- ar skuldbindingar sínar og er í stakk búið ti! að stunda enn frekara upp- byggingarstarf. í ljósi þess að vantnsaflið og jarðarvarminn eru stærstu ónýttu auðlindir íslands, hlýtur það að vera hagsæld þjóðar- innar lyftistöng að til staðar séu burðir til að nýta þær. Kári telur Landsvirkjun hafa vegið að Ódáðahrauni með því að leggja fram tillögur að línustæði á svæðinu. Ólíkt því sem hann gefur í skyn hefur Landsvirkjun ekkert aðhafst í því máli án samráðs við tilskilda aðila. Um árabil hefur t.d. verið gott og náið samstarf milli Landsvirkjunar og Náttúruvernd- arráðs og ráðinu hafa verið kynntar hugmyndar Landsvirkjunar að línu- stæðum á svæðinu eftir'því sem þær hafa komið fram til þess ein- mitt að þiggja ábendingar um það sem betur mætti fara. Þá hafa hin- ar ýmsu línuleiðir verið ræddar við sveitarstjómarmenn og landeigend- ur á svæðinu. Má sérstaklega geta þess að hin svonefnda byggðalínu- leið sem Kári og fleiri landverðir ásamt ýmsum aðilum á Austurlandi aðhyllast er einmitt valkostur sem Jökuldælir, Bárðdælir og íbúar Skútustaðahrepps leggjast gegn vegna þess að þeir vilja vernda gró- ið land. Ef fara ætti að óskum Kára og annarra um að byggðalínu- leiðin yrði farin þyrfti sem sagt að ganga í berhögg við þá sem búa með þeirri leið og eiga þar land. Leiðirnar sem gerðar hafa verið til- lögur um, fyrst hin svonefnda A- leið og síðan E-leiðin eru fram komnar sem málamiðlun á milli allra þeirra atriða og hagsmuna sem taka þarf tillit til en ekki af neinni sérstakri löngun til þess að spilla Ódáðahrauni. Andstæðingum línulagnarinnar hefur orðið tíðrætt um kostnaðar- útreikninga í sambandi við þessar framkvæmdir — hveiju skal fórnað fyrir svo og svo margra milljóna króna sparnað? Helst má skilja það sem svo að það sé ósvífni hjá fyrir- tæki eins og Landsvirkjun að leitast við að flytja orku eftir sem örugg- ustum og hagkvæmustum leiðum. Það skal fúslega játað að Lands- virkjun fæst við verðmæti sem kosta krónur og aura — það kostar svo og svo mikið aðvirkja vatnsaflið og það skilar svo og svo miklum tekjum. Náttúruperlur eru hins veg- ar verðmæti sem ekki verða metin til fjár segja menn. En þegar valið stendur milli nýtingar og varðveislu er það svo að ákvörðunin sem tekin er endurspeglar íjárhagslegt mat í raun. Hún er til marks um hvort menn telja náttúruperluna meira eða minna virði en þá ljármuni sem nýting hennar skapar. Tenging orkulinda Austurlands, en þar er um þriðjungur alls vatnsafls á land- inu, við Norðurland og Suðurland er lykilatriði í nýtingu þessarar stærstu ónýttu auðlindar sem þjóðin á. Menn ættu að huga vel að því hvort ekki sé þess virði að jgreiða slíkri uppbyggingu götu um Odáða- hraun. Hugmyndir um að veija óbyggð- irnar ágangi eru góðra gjalda verð- ar en spyija má hvernig það verði best gert. Þar held ég að við Kári séum sammála. Skipulagsyfirvöld þurfa að hafa samráð við alla er málið varðar og móta sínar reglur sem segja til um hvað má gera hvar og hvernig að því skuli staðið. Það þarf að gera ráðstafanir til þess að ekki verði ringulreið á há- lendinu. En ólíkt því sem Kári virð- ist halda tel ég að Landsvirkjun hafi staðið sig flestum betur í því að leggja fram eitthvað uppbyggi- legt til skipulagsmála hálendisins. Fyrirtækið hefur kynnt hvar það telur þörf á að leggja háspennulínur yfir hálendið í framtíðinni og hvar ekki út frá vitneskju um vænleg- ustu virkjunarkosti og líklegustu stóriðjusvæði. Ef náttúruperlan Tillag'a um fjáröflun til reksturs með- ferðarstofnana fyrir ofdrykkjumenn eftir Kristin Björnsson Nú hafa ljárveitingar ríkisins til reksturs meðferðarstofnana og lækninga ofdrykkjumanna verið skertar. Þetta er gagnrýnt vegna þess að þetta starf þarf frekar að auka en úr að draga. Ráð er þó til að bæta úr þessu, og ef því væri breytt, mætti e.t.v. fella fjárveitingar til þessa mála- flokks út af ljárlögum, þannig spara töluvert í ríkisútgjöldum, en jafnvel auka þessar lækningar þrátt fyrir þar. Ráðið er þetta: Allir þeir sem áfengi kaupa greiði sérstakt áhættugjald í meðferðarsjóð sem síðan rennur til að kosta lækningu þeirra sem háðir verða áfengi og þarfnast meðferðar. Þetta væri þá eins konar húftrygging sem tryggði það að þeir nytu nauðsynlegrar hjálpar þegar áfengið hefur tekið þá tökum og skert heilsuna, andlega eða líkamlega. Auðvelt er að reikna út hve hátt þetta gjald þarf að vera á hvern lítra áfengis. Þarf aðeins að vita tvær tölur; hver árleg neysla er hér á landi og hve miklu sé nauðsynlegt „Ráðið er þetta: Allir þeir sem áfengi kaupa g-reiði sérstakt áhættu- gjald í meðferðarsjóð sem síðan rennur til að kosta lækningu þeirra sem háðir verða áfengi og þarfnast meðferð- ar.“ að veija til ineðferðar drykkju- manna árlega? Með einfaldri deil- ingu má þá finna hve há áhættu- þóknunin eða veikindatryggingin þarf að verða. Þessar tölur eru án efa til í tölfræðilegum yfirlitum síð- ari ára. Þessi meðferðarsjóður mundi skapa þeim sem áfengis neyta mik- ið öryggi, þó að það kosti þá nokk- uð í byijun, það er því þeirra ávinn- ingur. ’ Þetta er líka mjög réttlátt lausn með tilliti til þeirra sem ekki nota áfengi eða aðeins í hófi. Þeir greiddu þá ekkert eða lítið til þess- ara lækninga. En þeir sem mikils neyta greiddu mest, enda eru þeir í mestri hættu að verða ofdrykkju að bráð, því að neysla þarf að vera töluverð um alllangt skeið til að maðurinn verði háður áfengi. Þetta gjald ætti alls ekki að vera reiknað með í vísitölu og því ekki valda almennum hækkunum á verð- lagi og launum. Þetta er fé sem neytandi leggur fram sem trygg- ingu ef illa fer, og getur þvl ekki flokkast sem neysluskattur eða verðhækkun. Sjálfsagt er að slík trygging sé greidd af áfengi sem selt er í frí- höfnum, veitt í veislum ríkisins eða dreift á annan hátt. Gjald af því tagi sem hér er lagt til, er I raun í allra þágu mest þó þeirra sem neyta áfengis í stórum stíl, því að þá mundu þeir sjálfir byggja upp meðferðarmöguleika meðan þeir hafa heilsu til þess. Ef kostnaður dregur úr neyslu er það líka þeirra hagur, því þeir héldu þá lengur heilsu og „betra er heilt en vel gróið“. Meðferðaraðilar gætu treyst á að mikilvæg störf þeirra yrðu ekki lögð niður þegar minnst varir. Bindindismenn fá þarna stuðning við hugsjón sína að draga úr áfengisneyslu þjóðarinnar. Eg vona að alþingismenn, sem Kristinn Björnsson stuðla vilja að fullnægjandi meðferð á þessu sviði, vinna að réttlátri lausn á ijáröflun og spara ríkisút- gjöld, vilji nú hafa hraðar hendur, semja frumvarp um áhættugjald af umræddu tagi og fá það samþykkt fyrir næstu áramót. Höfundur er sálfræðingur. Þorsteinn Hilmarsson „Leiðirnar sem gerðar hafa verið tillögur um, fyrst hin svonefnda A- leið og siðan E-leiðin eru fram komnar sem málamiðlun á milli allra þeirra atriða og hags- muna sem taka þarf til- lit til en ekki af neinni sérstakri löngun til þess að spilla Ódáðahrauni.“ Ódáðahraun, stærsta ósnortna svæði Evrópu eins og landverðir hafa haldið fram, á að færa náttúru- unnendum komandi kynslóða þá ánægju sem vonast er eftir virðist mér raunar að einhver vegagerð og aðstöðusköpun fyrir ferðamenn sé algjör forsenda. Slík uppbygging gæti einmitt með góðu móti tengst lagningu háspennulínu milli Fjóts- dals, Bárðardals og efstu virkjana á Suðurlandi í samræmi við upp- dráttinn sem hér fylgir og sýnir hverjar þarfir Landsvirkjunar fyrir línustæði á hálendinu eru um alla fyrirsjáanlega framtíð. Það er afar brýnt fyrir alla þá sem annt er um hálendi íslands að hyggja að heildarmyndinni. Nátt- úruverndarsinnar eins og aðrir þurfa að hafa raunhæfar skoðanir á hvemig hinum ýmsum málum sem snerta hálendið verður best háttað. Má þar nefna ferðaþjónustu, sam- göngur, orkumál og sitthvað fleira. Þá ætti að vera hægt að finna málamiðlun sem flestir gætu sætt sig við. Öfgasinnuð náttúruverndar- stefna hlýtur að eiga erfitt upp- dráttar í huga almennings því það verður ekki bæði sleppt og haldið og við getum ekki fórnað hveiju sem er í hagsæld þjóðarinnar til að vemda hálendið. Dæmi um öfga sem ég efa að eigi hljómgrunn hjá almenningi er þegar Kári í grein sinni í DV segir að melöldur upp við Sigöldu séu svo fallegar að það sé hneisa að Landsvirkjun hafi þar sáð „dönskum túnvingli" í umhverfi virkjunarinnar. Ekki hefur mér virst neinn skortur á melöldum á þeim slóðum þrátt fyrir uppgræðsluna og flestir hljóta að sjá að þar ber verndarstefnunni að víkja fyrir þörfínni á að hefta sandfok til þess að vernda viðkæman búnað og bæta aðstæður þeirra sem þarna vinna vanþakklát en afar mikilvæg störf. Það er vissulega eftirsjá að öllu landi sem raskast við virkjun fall- vatnanna íslensku en öllum er hollt að minnast þess að auðlindir íslend- inga eru ekki svo fjölbreyttar að við getum látið þær liggja ónýttar. Fiskistofnarnir eru nánast fullnýttir og aukin verðmætasköpun á því sviði dugar fjölmennari þjóð fram- tíðarinnar tæpast til að viðhalda þeim lífsgæðum sem við njótum í dag. Landsvirkjun framfylgir stefnu stjórnvalda um uppbyggingu á því sviði og mun hér eftir sem hingað til leita leiða til þess að gera það I sem bestri sátt við náttúr- una og mannfólkið. Höfundur er upplýsingafulltrúi Lnndsvirkjunur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.