Morgunblaðið - 06.11.1992, Side 21

Morgunblaðið - 06.11.1992, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1992 21 41. þing Norðurlandaráðs í Arósum Halldór Ásgrímsson formaður íslenzku sendinefndarinnar Tillögnr forsætisráðherra Norðurlandanna um eflingu norræns samstarfs efst á baugi ÞING Norðurlandaráðs, hið 41. í röðinni, hefst í Árósum í Dan- mörku næstkomandi mánudag, 9. nóvember. Síðasta Norðurlanda- ráðsþing var haldið í Helsinki i marz siðastliðnum. í ár eru því í fyrsta sinn haldin tvö regluleg Norðurlandaráðsþing, en þannig verður þinghaldi hagað framveg- is. Alþingi kaus á miðvikudag ís- lenzku sendinefndina í Norður- landaráði og var Halldór Ásgríms- son varaformaður Framsóknar- flokksins kjörinn nýr formaður hennar. Stærsta má! þingsins í Árósum verða tillögur forsætisráðherra Norð- urlandanna um eflingu og nýskipan norræns samstarfs. Tillögiir þessar eru afrakstur vinnuhóps persónu- legra fulltrúa forsætisráðherranna, sem skilaði áliti er kynnt var á Borg- undarhólmi í ágúst síðastliðnum. Forsætisráðherramir leggja meðal annars til að samstarf ríkisstjóma Hafnarfjarðarbær Óskað eftir til- boði frá Hag- virki-Kletti um holræsagerð BÆJARRÁÐ Hafnarfjarðar hefur samþykkt að óska eftir tilboði frá Hagvirki-Kletti um hönnun, fyrir- komulag og kostnað við gerð út- rása fyrir vatn og holræsi í bæn- um, en á fundi bæjarráðs í síðustu viku yar felld tillaga Magnúsar Jóns Árnasonar um að verkið yrði borið út. Að sögn Guðmundar Árna Stefánssonar bæjarstjóra var óskað eftir tilboði frá Hag- virki-Kletti vegna reynslu fyrir- tækisins á þessu sviði, en hann sagði enga endanlega ákvörðun hafa verið tekna um hvort því yrði tekið. „Það á að skoða hönnunarforsend- ur þessa verks upp á nýtt og njóta þar reynslu þessa fyrirtækis sem hefur veið leiðandi í holræsafram- kvæmdum, meðal annars hjá Reykja- víkurborg. Það liggur fyrir úttekt í þessa veru af hálfu verkfræðistofu sem hefur unnið þetta fyrir okkur, en okkar sérfræðingum fínnst að sumar forsendur þurfi að taka upp á nýjan leik með það að markmiði að hægt sé að gera þetta ódýrar en með sama árangri. Það er hins vegar engin endanleg ákvörðun um það hvort sú útfærsla og þau tilboð sem koma frá Hagvirki-Klétti verði þann- ig úr garði gerð að þeim verði tekið, en menn eru bara ekki komnir það langt í þessum fasa að það sé grund- völlur til útboðs á verkinu," sagði Guðmundur Árni Stefánsson. Bæjarráð Hafnarfjarðar hefur samþykkt að undirbúin verði stofnun sérstaks sjóðs í eigu bæjarsjóðs, umhverfís- og hoiræsasjóðs, sem hafí það verkefni að ráðast í hönnun og framkvæmd við gerð útrása fyrir vatn og holræsi í bænum samkvæmt fyrirliggjandi áætlunum. Er við það miðað að sjóðurinn ljúki stærstum hluta verkefnisins á næstu tveimur til þremur árum. Norðurlandanna muni ná til utanrík- is- og öryggismála. Þeir vilja náið samráð milli landanna um mál á dagskrá innan EB, EES og annarra svæðisbundinna samtaka. Þeir hyggja á aðgerðir til að stórefla menningarsamstarf Norðurlanda og þróa frekar samstarf á sviði um- hverfisvemdar, þjóðfélagsmála, orkumála og URpbyggingar sam- göngu- og þjónustukerfís Norður- landanna. Sjálfír hyggjast forsætis- ráðherrarnir hafa forystu um póli- tíska stefnumörkun á sviði norræns samstarfs, innan og utan Norður- landa í framtíðinni. Tillögur þessar verða til umfjöllunar í Árósum og að þinginu loknu munu forsætisráð- Halldór Ásgrímsson. herrarnir leggja til breytingar á Hels- inki-sáttmálanum, sem er lagaleg umgjörð Noðrðurlándasamstarfsins. Fyrir hönd Alþingis íslendinga munu sjö þingmenn sækja Norður- landaráðsþingið og voru þeir kjörnir á þingfundi síðastliðinn miðvikudag. Þeir eru Geir H. Haarde, Árni M. Mathiesen og Sigríður Anna Þórðar- dóttir frá Sjálfstæðisflokki, Rannveig Guðmundsdóttir frá Alþýðuflokki, Kristín Einarsdóttir frá Kvennalista, Hjörleifur Guttormsson frá Alþýðu- bandalagi og Halldór Ásgrímsson frá Framsóknarflokki. Halldór var kjör- inn formaður nefndarinnar í stað Geirs H. Haarde, sem gegnt hefur því embætti í eitt ár. Geir verður varaformaður sendinefndarinnar, en Hjörleifur Guttormsson gegndi því embætti áður. ara "| g 2 7”______________ 'l g g 2 Ybíður þér ■ alrnælisveislu! AF OLLUM VORUM VIKUDAGrFUWVmiDAtáFÖmjDAG^G 1AUGARDAG "<"*bSrab#Gstfrafef/clG$mlsg,@^wessadaga . j MIKID URVAL AF/GODUM VORUM m.a. GÓLFTEPPI - GÓLFDREGLAR FILT GÓLFTEPPI 2m-4m FfÖHNS parket VEGGFÓDUR VEGfDUKAR 5fcm á breR RIML^GARDÍNÍIR plast-áL GÓÚFDÚKAR 2m-3m-4m brei(óir VILLEROY OG BOCH gólfflfsar § m ■iaMfemíra KVERKLISTAR 6 gerðir LOFTRÓSIR 14 gerðir ROWNEY Listmálaravörur MÁLNINGAVÖRUR Harpa-Sadolin-Polytex áfoarabou n iiVMruyyii zm Grensásveg 11 ■ Sími 813500 9QQQQQQQQ09QQQQQQQQQQQQQQQQQQQQ SKIÐASAMFESTINGAR Ungbarna jfjjj Barna og unglinga kr. 4.980, kr. 5.990,- Fullorðins kr. 7.980,- »hummelA SPORTBÚÐIN Ármúla 40 - símar 813555 og 813655

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.