Morgunblaðið - 06.11.1992, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1992
MUli 20 og 30 þúsund manns koma í Kolaportið um hveija helgi. Framkvæmdastjórinn segir að Kolaportið verði áfram markaður en
ekki stórmarkaður.
Kolaportið er að þróast en
ekki breytast í stórmarkað
- segir Jens Ingólfsson, framkvæmdastj óri
„KOLAPORTIÐ er ekki að breytast í venjulegan stórmarkað. Hver
sem er getur leigt sér bás og selt hvað sem er, innan ramma þeirra
reglna, sem Heilbrigðiseftirlitið setur. Þær reglur hafa verið í gildi
frá upphafi. Þá eru sjóðsvélarnar, sem seljendur ýmist kaupa eða
leigja, eðlUegt framhald starfseminnar, því í Kolaportinu gilda
auðvitað sömu reglur um skil á virðisaukaskatti og annars stað-
ar,“ sagði Jens Ingólfsson, framkvæmdastjóri Kolaportsins, í sam-
tali við Morgunblaðið.
Þegar markaðurinn í Kolaport-
inu tók til starfa fyrir tæpum fjór-
um árum var hann í ómálaðri bíla-
geymslu Seðlabankans. Ári síðar
voru veggir málaðir, þar næsta ár
loftið og nú hefur verið sett nýtt
rafkerfi, sem eykur möguleika á
lýsingu, auk þess sem nóg rafmagn
er nú til að knýja sjóðsvélamar.
Kolaportið hefur gert samning við
Nýheija hf. um kaup á 80 sjóðsvél-
um og verða 40 þeirra seldar selj-
endum á markaðnum, en hinar 40
verða leigðar. Þá birtist auglýsing
frá Kolaportinu i Morgunblaðinu á
miðvikudag, þar sem seljendum
var bent á, að fá skriflegt leyfi
Heilbrigðiseftirlitsins, ætluðu þeir
að selja matvöru.
Morgunblaðið innti Jens Ingólfs-
son eftir því, hvort Kolaportið
væri ekki hætt að vera eiginlegt
markaðstorg og í raun orðið stór-
markaður. Hann neitaði því og
sagði að eðlilegt þróun hefði ein-
faldlega orðið. „Það sem skiptir
sköpum er, að hver sem er getur
komið og selt sína vöru,“ sagði
hann. „Sala í Kolaportinu er auð-
vitað háð sömu reglum um skil á
virðisaukaskatti og sala annars
staðár, en seljendur notaðara
muna þurfa ekki að innheimta
hann og ekki heldur þeir sem selja
fyrir minna en 183 þúsund krónur
á ári. Þá er einnig rétt að taka
skýrt fram, að þó menn séu með
virðisaukaskylda starfsemi hér, þá
er ekki skylda að eiga sjóðsvék
Við erum mjög ánægð með, að nú
verði hægt að fara að nota sjóðs-
vélar í Kolaportinu, því margir
aðilar hafa verið með leiðinlegar
og ómaklegar aðdróttanir um að
skattsvik séu ástæðan fyrir lágu
vöruverði hér.“
Jens sagði að auglýsingin um
skriflegt leyfi frá Heilbrigðiseftilit-
inu ætti rætur sínar að rekja til
þess, að Kolaportið fékk fjölda
fyrirspurna um sölu matvæla.
„Héma er selt grænmeti og ávext-
ir, harðfiskur, hákarl, sælgæti og
brauð, svo eitthvað sé nefnt. Hug-
myndaflugi kaupenda virðist engin
takmörk sett og við settum þessa
reglu, um skriflegt leyfi, einfald-
lega til að Heilbrigðiseftirlitið tæki
af skarið og tilgreindi skilyrði fyr-
ir sölu, ef einhver væru. Það hefur
að vísu fylgst mjög vel með starf-
semi hér og varla liðið svo helgi,
að starfsmenn þess litu ekki inn.“
Jens segir að um 300 seljendur
séu í Kolaportinu um hveija helgi.
„Þriðjungur þeirra býður notaða
muni, þriðjungur nýja og þriðjung-
ur er með heimilsiðnað, matvæli,
þjónustu og fleira. Þetta hlutfall
hefur ekki breyst frá opnun Kolap-
ortsins fyrir tæpum fjórum árum,
sem ætti að færa mönnum heim
sanninn um að starfsemin er hin
sama, þó ytri aðstæður hafi þróast
með árunum. Neytendur hafa líka
sýnt í verki, að þeir vilja Kolaport-
ið, því hingað koma 20-30 þúsund
manns á hverri helgi.“
Langur laugardagur við Laugaveg
Kaupmenn hvetja fólk
til að versla heima
„VERSLUM heima er yfirskrift næsta Langa laugardags sem verður
næskomandi laugardag 7. nóvember, en þá verða verslanir við Lauga-
veg og Bankastræti opnar til kl. 17.00,“ segir í fréttatilkynningu frá
Laugavegur.
Laugavegssamtökunum.
í tilkynningunni segir ennfremur:
Kaupmenn vilja að þessu sinni
hvetja fólk til að fara í bæinn og
kynna sér vöruúrval og verð í versl-
unum og nýta sér hin fjölmörgu
tilboð sem verða í gangi í tilefni
dagsins. Að sögn kaupmanna áttar
fólk sig ekki alltaf á því að það er
hægt að versla mjög hagkvæmt á
Islandi og oft er það þannig að
gæðavörur og svokallaðar merkja-
vörur eru ódýrari á íslandi en í
nágrannalöndum okkar.
Með því að versla heima leggjum
við okkar af mörkum í samneysluna
því um 20% af vöruverðinu rennur
beint í ríkissjóð í formi virðisauka-
skatts, auk þess sem verslunin
borgar enn meira í formi aðstöðu-
gjalds, skatta o.fl. Ekki má heldur
gleyma því að verslunin skapar fólki
atvinnu. Það hagnast því allir af
því að versla heima.
Kaupmenn vilja líka vekja at-
hygli á því að þeir eru ávallt til
þjónustu reiðubúnir allt árið og
ekki má gleyma þægindunum sem
felast í því að versla heima. Pjöl-
skyldan getur verslað saman í ró-
legheitunum, mátað og gengið úr
skugga um að öllum Iíki það sem
verið er að kaupa. Annars er hægt
að fara í bæinn aftur og skila eða
skipta, þannig að fólk sitji ekki
uppi með eitthvað sem það getur
ekki notað. Kostimir við það að
versla heima eru því ótrúlega marg-
ir.
Laugardagsleikurinn verður á
sínum stað en hann felst í því að
fínna bangsa sem settur er í einn
verslunarglugga við Laugaveginn
eða Bankastræti. Þegar bangsinn
er fundinn á að skrifa nafn verslun-
arinnar á miða og afhenda í næstu
verslun. Dregið verður úr réttum
lausnum og vegleg verðlaun í boði.
Síðasta Langa laugardag komu
um 20.000 manns í bæinn og ríkti
sannkölluð Þorláksmessustemmn-
ing enda allt kapp lagt á að taka
vel á móti fólki.“
Tyrkneska forræðismálið
Kröfu um
nýjau dóm-
arahafnað
KRÖFU lögfræðinga Sophiu Han-
sen um að skipt verði um dómara
í máli hennar fyrir undirrétti 12.
nóvember nk., hefur verið hafnað.
Gunnar Guðmundsson, lögfræð-
ingur Sophiu, fékk upplýsingar um
að kröfunni hefði verið hafnað seint
á miðvikudag. Kröfu um að sálfræði-
rannsókn yrði gerð á dætrum Sophiu
og að þær yrðu til staðar í réttunum
þegar málið yrði tekið fyrir 12. nóv-
ember næstkomandi, var líka hafnað.
I gær hélt Sophia til Istanbúl þar
sem hún á að hitta dætur sínar á
laugardag samkvæmt dómi um um-
gengnisrétt. Lögfræðingar hennar,
Gunnar Guðmundsson og Hasíp Ka-
plan, vinna að undirbúningi réttar-
haldanna í Tyrklandi.
Safnast höfðu rúmar 4,6 milljónir
í landssöfnun til styrktar Sophiu um
kl. 16 í gær. Tekið er á móti framlög-
um í síma 684455.
-----♦ ♦ ♦
Húsavík
Kjarabót lýst
gjaldþrota
Húsavík.
KJARABÓT, matvöruverslun á
Húsavík, var miðvikudaginn 4.
nóvember lýst gjaldþrota í Hér-
aðsdómi Norðurlands eystra, sem
jafnframt skipaði Örlyg Hnefil
Jónsson hdl. skiptastjóra.
• Til stóð fyrir tveim árum að leggja
þessa verslun niður 'en þá var henni
breytt í hlutafélag sem nú hefur
starfað í tvö ár og reksturinn ávallt
verið erfíður og endaði nú með gjald-
þroti.
Að sögn skiptastjóra eru bundnar
vonir við að sem fyrst takist að koma
eignum búsins í verð.
- Fréttaritari
Bókauppboð
Klausturhóla
BÓLAUPPBOÐ Klausturhóla
verður haldið á morgun og
verða þá boðnir upp 145 titlar
bóka og kennir þar margra
grasa. Uppboðið verður haldið
í húsnæði Klausturhóla að
Laugavegi 25 og hefst klukk-
an 14. Bækurnar verða hins
vegar til sýnis í dag á milli
klukkan 14 og 18.
Sem dæmi um titla, sem boðn-
ir verða upp eru Jarða- og ábú-
endatal Skagafjarðarsýslu frá
1781 til 1958 í fjórum heftum,
Sóknarlýsingar Vestfjarða í
tveimur bindum og bókin Sléttu-
hreppur, fyrrum Aðalvíkursveit.
Þá verða boðnir upp íslenskir
sagnaþættir í tveimur bindum
eftir Brynjólf Jónsson frá Minna-
Núpi, Bútar úr ættarsögu íslend-
inga eftir Stein Dorfa, ævisaga
Árna Þórarinssonar, Bergsætt
eftir Guðna Jónsson, Manntal á
íslandi 1918, nokkrar ljóðabæk-
ur Steins Steinars, íslenskt fom-
bréfasafn og fleira.
Bæjarráð Vestmannaeyja
Alþingi stað-
festi EES-
samninginn
BÆJARRÁÐ Vestmannaeyja hef-
ur samþykkt tillögu um að skora
á Alþingi að staðfesta samninginn
um evrópska efnahagssvæðið.
í tillögunni segir að samningurinn
muni hafa í för með sér aukna mögu-
leika fyrir íslenskan sjávarútveg og
fleiri atvinnugreinar til nýsköpunar,
og þar af leiðandi til fjölgunar at-
vinnutækifæra. Með auknum að-
gangi að erlendum mörkuðum vegna
niðurfellinga tolla geti hafíst nýtt
framfaraskeið í sjávarútvegi ^em
skipti höfuðmáli fyrir sjávarpláss
eins og Vestmannaeyjar.