Morgunblaðið - 06.11.1992, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 06.11.1992, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1992 Charles E. Cobb, fyrrum sendiherra Bush málaði ástand- ið of dökkum litum Jeltsín rekur hátt- setta aðstoðarkonu Moskvu. Reuter. BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti hefur vikið helsta ráðgjafa sínum í málefnum þjóðarbrota úr starfi og skipað ungan og umdeildan umbóta- sinna í hans stað. Talsmaður Jeltsíns staðfesti í gær að forsetinn hefði vikið Galínu Starovojtsovu úr starfí en hún hafði verið ráðgjafi hans í málefnum þjóð- arbrota í Rússlandi og fyrrverandi sovétlýðveldum frá því hann tók við starfí Rússlandsforseta í fyrra. Engin ástæða var gefín fyrir brott- vikningunni en Starovojtsova var áhrifamesta konan í rússneskum stjómmálum. Að sögn Itar-Tass- fréttastofunnar var Sergej Shakhraj skipaður í hennar stað og var fékk hann jafnframt starfsheitið aðstoðar- forsætisráðherra sem Starovojtsova var ekki. Er það talið til marks um að Jeltsín hyggist taka málefni þjóð- arbrotanna fastari tökum. Talið er að brottvikning Starovojtsovu standi í sambandi við að í síðustu viku blossuðu upp þjóð- aremisátök innan rússnesku landa- mæranna í fyrsta sinn frá því Sovét- ríkin liðu undir lok í fyrra. Blóðugir bardagar brutust þá út milli Norður- Ossetíumanna og Ingúsha í norður- hémðum Kákasusfjalla. Vitað er um 115 manns sem féllu í átökunuin en Jeltsín reyndi að stöðva ofbeldisverk- in með því að senda 3.000 manna sérlið á vettvang og setja neyðarlög á átakasvæðinu. Shakhrai er 36 ára lögfræðingur og ákafasamur umbótasinni. Er talið að útnefning hans verði til þess að harðlínumönnum á þingi renni kalt vatn milli skinns og hömnds. ÁLFABAKKA 16 • REYKJAVÍK • SÍMI 670050 JMtMETRÓ iMJÓDD Innanhússarkitekt ráðleggur viðskiptavinum Metró Guðrún Benediktsdóttir innanhússarkitekt, FHÍ, verður í versluninni Metró fimmtudag og föstudag kl. 14-18 og laugardag kl. 11-14 og veitir viðskiptavinum ráðleggingar um allt er varðar innréttingar, gólfefni, hreinlætistæki og litaval í málningu. /ftAliK • GROHE •'Vffleroy & Boch Verið velkomin í Metró og þiggið ókeypis ráðgjöf. CHARLES E. Cobb, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna á íslandi og einn af aðstoðarmönnum George Bush forseta í nýafstaðinni kosningabaráttu, segir að Bush hafi málað efnahagsástandið of dökk- um litum og þannig veikt málstað sinn með því að taka um of und- ir áróður demókrata. „Eg ritaði honum tvö bréf þar sem ég Iýsti þessari skoðun minni. Svarið var að forsetinn hefði verið sakaður um kaldlyndi, um að hafa fjarlægst almenning, þess vegna yrði hann að leggja áherslu á áhyggjur sínar vegna þess vanda sem margir væru í,“ sagði Cobb í samtali við Morgunblaðið. „Bandaríkjamenn vildu breyt- ingu, svo ákaflega að þeir kusu meiri ríkisafskipti af efnahagsmál- unum. Stefna Reagans og Bush var sú að hægt væri að skapa fleiri störf með minni ríkisafskiptum og Clinton barðist með miklum árangri gegn þessum skoðunum". -Eru Bandaríkjamenn að biðja um gamaldags, skandinavíska jafn- aðarstefnu? „Það sagði Bush forseti að gæti orðið niðurstaðan. Sum af ummæl- um kvennanna tveggja úr Demó- krataflokknum sem sigruðu í Kali- fomíu gáfu reyndar til kynna að nú væri stundin runnin upp, nú væri í grundvallaratriðum hægt að koma á skandinavískum sósíal- isma“. Cobb sagði efnahagsvand- ann ýktan, of lítið gert úr bata- merkjum. Undanfarin 12 ár hefðu verið sköpuð 15 milljónir nýrra starfa í Bandaríkjunum. „Bush ákvað að svara gagnrýni um meint kaldlyndi með því að taka undir svartsýnina, með því að segja að Kína „Félagi“ á útleið Peking. Reuter. ÁVARPIÐ „félagi“ er á útleið í Kfna og þess í stað eru „herra“ og „frú“ að taka við. Þykja þau eiga betur við þegar verið er að kasta kommúnismanum fyrir róða. Um áratugaskeið hafa Kínveijar ávarpað hver annan sem „félaga" en nú er fólki farið að fínnast það kjánalegt að því er sagði í einu dagblaðanna. Það þykir hafa of mikla pólitíska tilvísún. Þess í stað eru „herra“ og „frú“ að ryðja sér til rúms en þessi orð voru lengi bönnuð þar sem þau þóttu minna á undirokun lénsskipulagsins. „Nú hafa „herra" og „frú“ sigrað í suðurhluta landsins og sækja hratt norður eftir," sagði í dagblaðinu, „og þau virðast eiga sér glæsta framtíð. „Félaginn" verður hins vegar stöðugt fáránlegri.“ efnahagurinn væri í hræðilegu ástandi. Þetta olli því að jafnvel þeim, sem ekki voru á þessu máli fyrir, snerist hugur. En efnahagur okkur er sterkur, útflutningurinn er að aukast, samkeppnishæfni fyr- irtækjanna á mörkuðum eykst“. Cobb var spurður um utanríkis- stefnu Clintons, hvort hann teldi að niðurskurðarhugmyndir nýkjör- ins forseta varðandi bandarískan herafla á erlendri grund ættu einn- ig við ísiand. „Ég veit það ekki, ég veit ekki hvort nokkur veit það ennþá en hann talaði um niður- skurð alls staðar. Það er að minnsta kosti ljóst að hann vill að ríku Evr- ópubúamir annist sjálfír vamir sín- ar í staðinn fyrir að láta Bandaríkja- menn um þær“, sagði Cobb. Reuter Bfll Clinton flytur ávarp fyrir utan ríkisstjórabústaðinn í Little Rock á miðvikudag, við hlið hans er A1 Gore, nýkjörinn varaforseti. Fyrstu yfirlýsingar nýkjörins Bandaríkjaforseta Boðar óbreytta stefnu í utannkísmálunum Clinton segist munu einbeita sér að efnahagsmálunum fyrst í stað Little Rock, Washington. Reuter. BILL Clinton, nýkjörinn forseti Bandarikjanna, leggur áherslu á að grundvallarhagsmunir Bandarikjanna á alþjóðavettvangi séu hinir sömu og verið hefur, andstæðingar Bandaríkjanna muni ekki geta gengið á lagið núna þótt demókratar taki ekki við stjórnarforystu af repúblikönum í Washington fyrr en i janúar. Þúsundir manna i stjórn- kerfinu missa vinnuna á næstunni eins og venja er við forsetaskipti, ekki síst þegar annar flokkur nær völdum. George Bush forseta var ákaft fagnað af þúsundum manna við Hvita húsið er hann sneri heim á miðvikudag. Forsetinn sagðist sannfærður um að sagan myndi sýna að hann hefði verið á réttri braut en hvatti jafnframt fólk til að sam- einast og styðja við bakið á nýkjörnum forseta. í fyrsta sjónvarpsviðtalinu frá því að Clinton var kjörinn, er tekið var á miðvikudag, sagðist hann ætla að einbeita sér að efnahagsvandanum en efnahágsmálin voru í brennidepli í kosningabaráttu demókrata sem þótti afar vel skipulögð. „Ég hef ekki ákveðið hveijir muni skipa ráðherra- embætti eða forgangsröðina á til- nefningum í þau. En ég ætla að beina athyglinni óskorað að efnahagnum, eins og leysigeisli, og athyglin mun beinast að utanríkismálunum þar sem þau tengjast efnahagsvandanum... Við verðum að leggja áherslu á það sem við getum haft áhrif á þegar í stað, síðan getum við stækkað vett- vanginn og hugað að öðrum málum þar sem viljum taka til hendinni," sagði Clinton. Hann vísaði þar til þjóðfélagsmeina sem hann segir að hafi vaxið í takt við samdráttinn í efnahagsmáiunum. Clinton flutt stutt ávarp á miðviku- dagskvöld og sagðist vilja fullvissa þjóðir heims um að samhengið í utan- ríkisstefnunni myndi alls ekki rofna. „Ég hvet jafnt vini sem ijendur Bandaríkjanna til að gera eins og ég, viðurkenna að í Bandaríkjunum er aðeins einn forseti við völd í senn og hann hefur síðasta orðið í utanríkis- stefnunni," sagði Clinton. „Mestu mistök sem andstæðingur okkar gæti gert væri að draga í efa að Bandaríkin muni sýna stefnufestu á meðan stjómarskiptin eru undirbú- in“. Hann bætti því við að erlendar þjóðir gætu best sýnt sér velvild með því að eiga gott samstarf við Bush. Stórblaðið TheNew York Times túlk- aði þessi ummæli sem lítt dulbúna viðvönm til íraka. Nokkur ókyrrð hefur verið á fjár- málamörkuðum enda margir í vafa, telja enn á huldu hvort Clinton sé demókrati af öðru tagi en ýmsir fyrir- rennarar hans úr flokknum sem sátu á forsetastóli. Þeir voru sakaðir um að auka mjög opinber útgjöld og hækka skatta ótæpilega en einkum óttast menn að þingið, þar sem demó- kratar hafa meirihluta í báðum deild- um, muni heimta útgjaldastefnu, hvað sem forsetinn segi. Rawlings sigraði í Ghana JERRY Rawlings, leiðtogi í Ghana, vann sigur í forsetakosn- ingunum, sem fram fóru í land- inu í gær, en stjómarandstöðu- leiðtogar sögðu, að lögregla hefði skotið á göngufólk, sem var að mótmæla meintum kosn- ingasvikum. Þegar talið hafði verið í 198 af 200 kjördæmum, bentu hálfopinberar tölur til þess, að Rawlings, sem er fyrr- verandi herflugmaður og hrifs- aði völdin í landinu í byltingu 1981, fengi 58,7% atkvæðanna eða nóg til þess að vinna í fyrstu umferð kosninganna. Sá keppi- nauta hans, sem hlotið hafði næstflest atkvæði, var sagn- fræðiprófessorinn Albert Adu Boahen með 30%. Hinir fram- bjóðendumir, þrír að tölu, fengu allir minna en 7% hver. Stjómar- andstaðan hefur sakað ríkis- stjórnina um umfangsmikil kosningasvik, en samkvæmt skýrslu frá eftirlitsnefnd Breska samveldisins fóm kosningarnar heiðarlega fram. Nýr forsætis- ráðherra í Rúmeníu ION Iliescu, forseti Rúmeníu, tilnefndi á miðvikudag lítt þekktan 49 ára hagfræðing, Nicolae Vacaroiu, sem forsætis- ráðherra. Þar með lauk fímm vikna leit að nýjum forsætisráð- herra eftir þingkosningarnar 27. september. Vacaroiu sagði í gær að hann vildi hægar umbætur og að hann myndi leggja árslu á að koma í veg fyrir matvæla- og eldsneytisskort í landinu í vetur. Sakborningur í mútumáli deyr VINCENZO Balzamo, frammá- maður í ítalska Sósíalistaflokkn- um, lést á þriðjudag af völdum hjartaáfalls en verið var að rannsaka hugsanlega aðild hans að spillingu. Hefur hvert spill- ingarmálið öðru meira riðið yfir Sósíalistaflokkinn að undan- fömu og ekki hann einan, heldur alla helstu flokkana, allt frá kommúnistum til kristilegra demókrata. Hafa 70 stjórnmála- og kaupsýslumenn verið hand- teknir og mál margra fleiri eru til rannsóknar. Snúast þau flest um mútugjafír í tengslum við opinberar framkvæmdir. EB ræðir við Finna EB tilkynnti fínnsku ríkis- stjóminni á miðvikudag um á hvaða forsendum Finnar gætu gerst aðilar að bandalaginu. Þessu var fagnað af fínnskum ráðamönnum sem töldu flestir að formlegar viðræður gætu hafíst um næstu áramót. Frans Andriessen, varaforseti fram- kvæmdastjómar EB, sagði í við- taii við fínnska ríkissjónvarpið að helstu vandamálin tengdust landbúnaðarmálum og byggða- stefnu Finna. Finnar hafa hing- að til gert sér vonir um sérsamn- inga í landbúnaðarmálum til að tryggja framtíð bændastéttar- innar. Andriessen sagðist skilja vel að þetta væri mikilvægt mál og taldi líklegt að á því fyndist viðunandi lausn. Esko Aho for- sætisráðherra Finnlands vísaði því á bug að hlutleysisstefna landsins myndi torvelda aðildar- viðræður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.