Morgunblaðið - 06.11.1992, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 06.11.1992, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1992 25 John Major um Maastricht-samninginn Staðfestingin verð- ur á næsta sumri London. Reuter. JOHN Major forsætisráðherra Bretlands sneri sér að lausn erfiðra vandamála á sviði efnahags- og velferðarmála, daginn eftir að hafa treyst stöðu sína sem forsætisráðherra og sett niður deilur í íhalds- flokknum um Evrópumálin. Sagði hann í gær að Bretar myndu ekki staðfesta Maastricht-sáttmálann fyrr en eftir nýtt þjóðaratkvæði, sem ráðgert væri í Danmörku í maí. Náinn aðstoðarmaður Majors sagði í gær að 26 þingmönnum íhaldsflokksins yrði ekki fyrirgefið að hafa gengið til liðs við Verka- mannaflokkinn er atkvæði voru greidd í þinginu í fyrrakvöld um ályktunartillögu um Maastricht- samkomulagið. Fyrir vikið neyddist Major að leita eftir stuðningi Fijáls- lynda flokksins til þess að halda velli í atkvæðagreiðslunni. Liðhlauparnir hafa haldið því fram að Maastrich-samkomulagið feli í sér stofnun evrópsks sam- bandsríkis þar sem öll völd hverfi frá þjóðþingum aðildarríkjanna og safnist á fárra hendur. Þeir hótuðu því í gær að beijast áfram gegn samþykkt Maastricht-samkomu- lagsins í þinginu en stjórnmálaskýr- endur telja að málstaður þeirra hafi verið endanlega kveðinn í kút- inn í fyrrakvöld. Verkamannaflokk- urinn sé fylgjandi Maastricht-sátt- málanum en hafi talið atkvæða- greiðsluna í fyrrakvöld ótímabæra og ástæðulausa. Major lagði hins vegar áherslu á að fá ályktunartillögu sína um stuðning við Maastricht-samkomu- lagið samþykkta til þess að sýna leiðtogum annarra EB-ríkja fram á að hann hefði þingstyrk til að fá það samþykkt á þingi síðar. Bretar fara nú með forystu í EB og taldi Major nauðsynlegt að fyrir leiðtoga- fund EB í Edinborg eftir mánuð sýndu Bretar EB-þjóðunum fram á að þeir ætluðu sér að leika aðalhlut- verk í þróun EB í framtíðinni. í gær sagði Major svo á þingi að hann myndi beita sér fyrir því að fram færi full umræða um Ma- astricht-samkomulagið á þingi og stjórnin vildi bíða með staðfestingu þess þar til nýtt þjóðaratkvæði um Evrópumálin hefði farið fram í Danmörku næsta vor. Uffe Ellemann-Jensen utanríkis- ráðherra Danmerkur fagnaði úrslit- um atkvæðagreiðslunnar í neðri deild breska þingsins. Hann sagði að það hefði flækt stöðu Evrópu- málanna stórum — einnig fyrir Dani — ef breskir stjórnarandstæð- ingar hefðu orðið ofan á. Elton John undir- ritar 39 milljóna dollara samning Rokkstjarnan Elton John (í miðju) og félagi hans, söngtextahöfund- urinn Bernie Taupin (til vinstri) undirrituðu á miðvikudag ásamt Les Bider, stjórnarformanni út- gáfufyrirtækisins Warner/Chapp- ell Music, 39 milljóna dollara sam- starfssamning. Þarna er um að ræða meira en tvisvar sinnum hærri fyrirframgreiðslu en samist hefur um áður í svipuðum tilvik- um. Samkvæmt samningnum, sem gildir í tólf ár, öðlast útgáfu- fyrirtækið einkarétt til að gefa út öll verk þeirra félaga frá 1974 fram til dagsins í dag, svo og sex næstu hljómplötur þeirra. Noregur EB vill auknar veiðiheimildir Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Morgunblaðsins. Evrópubandalagið (EB) krefst þess að fá auknar fiskveiðiheimild- ir við Noreg án þess að Norðmenn fái samsvarandi heimildir í lönd- um bandalagsins og virðist vera að hverfa frá grundvallarreglunni um jöfn skipti, að sögn blaðsins Nordlys. Ástæðan fyrir þessari stefnubreytingu er samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið, EES, en samkvæmt honum falla niður tollar á norskum fiski í EB-löndum. Eftir að Noregur og EB gerðu samning um fískveiðar árið 1981 hefur reglunni um jöfn skipti verið fylgt mjög vandlega - að minnsta kosti í orði kveðnu. En hluti af norsku kvótunum í fiskveiðilögsögu EB-landanna hefur verið nefndur „pappi'rsfiskur" vegna þess að stofnarnir eru orðnir svo litlir að norsku sjómennirnir hafa ekki get- að nýtt sér heimildirnar. í samningunum um EES höfn- uðu Norðmenn að láta veiðiheimild- ir í staðinn fyrir tollalækkanir og þeir staðhæfa-enn að ekki sé kveð- ið á um neitt samband á milli þess- ara tveggja mála í samningnum. Samt hafa stjórnvöld sæst á að bandalagið fái einhveijar auknar heimildir í norskri lögsögu. Stærð heimildanna er ekki ákveðin í samningnum sjálfum heldur í sér- stökum, tvíhliða fiskveiðisamningi Noregs og EB. Þar er sagt að bandalagið auki hluta sinn af þorskkvótanum í Barentshafi, er skiptist milli Norðmanna og Rússa, úr 2,15% af heildarkvótanum í 2,9%. Aukningin verður tekin af hluta Norðmanna. Þetta merkir að Norðmenn láta af hendi allt að 1,5% af öllum þorsk- veiðikvóta sínum til bandalagsins. Að auki hafa Norðmenn orðið að samþykkja að EB fái úthlutað sér- staklega 6.000 tonna kvóta 1993 er hækki í 11.000 tonn 1997. í tvíhliða samningnum er tekið fram að norskum sjómönnum verði bætt- ur skaðinn á norðursvæðunum með stærri heimildum í lögsögu EB- ríkja. Annab tilbob í spariskírteini ríkissj óbs verbur mibviku- daginn 11. nóvember Tilboö í spariskírteini Næstkomandi miðvikudag fer fram 2. tilboð í spariskírteini ríkissjóðs. Um er að ræða hefðbundin verötryggð spariskírteini í eftirfarandi flokkum: ríkissjóðs Flokkur Lánstími Gjalddagi l.fl.D 1992 5 ár 1. febrúar 1997 l.fl.D 1992 10 ár 1. apríl 2002 Þessir flokkar eru skráðir á Veröbréfaþingi íslands og er Seðlabanki íslands viðskiptavaki þeirra. Spariskírteinin verða seld með tilboðsfyrirkomu- lagi. Löggiltum verðbréfafyrirtækjum, verðbréfa- miðlurum, bönkum og sparisjóöum gefst einum kostur á að gera tilboð í spariskírteinin samkvæmt tilteknu tilboðsverði. Lágmarkstilboð er kr. 5.000.000 að nafnverði. Aðrir sem óska eftir að gera tilboð í spariskír- teinin eru hvattir til að hafa samband við framangreinda aðila, sem munu annast tilboðsgerð fyrir þá og veita nánari upplýsingar. Öll tilboð í spariskírteinin þurfa að hafa borist Lánasýslu ríkisins fyrir kl. 14, miðvikudaginn 11. nóvember. Tilboðsgögn og allar nánari upplýsingar eru veittar hjá Lánasýslu ríkisins / Þjónustumiðstöð ríkisverðbréfa, Hverfisgötu 6, í síma 62 60 40. LANASYSLA RIKISINS ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ RÍKISVERÐBRÉFA Hverfisgötu 6, 2. hæö, 150 Reykjavík, sími 91- 62 60 40

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.