Morgunblaðið - 06.11.1992, Síða 30

Morgunblaðið - 06.11.1992, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1992 Þrotabú Arvers Eignirnar seldar á nauðungaruppboði TVÖ TILBOÐ bárust í eignir þrotabús rækjuverksmiðjunnar .Tekinn með amfetamín UNGUR maður var handtekinn í miðbæ Akureyrar aðfaranótt fimmtudags, en hann var með amfetamín í fórum sínum. Hjá rannsóknarlögreglu fengust þær upplýsingar að maðurinn hefði verið með tvö grömm af amfetamíni er hann var handtekinn. Hann var fluttur í fangageymslur lögreglunnar og síðan sleppt í gærmorgun eftir yfirheyrslur. Maðurinn . hefur áður komið við sögu lögreglunnar. Árvers hf. á Árskógsströnd, en þau voru ekki talin aðgengileg svo óskað hefur verið eftir því að þær verði seldar á nauð- ungaruppboði. Arnar Sigfússon bústjóri þrota- bússins sagði að leigusamningur sem gerður hefði verið við Sölt- unarfélag Dalvíkur um rekstur rækjuverksmiðju í húsakynnum Árvers á Árskógsströnd rynni út í lok þessa mánaðar. Þau tvö til- boð sem bárust er eignirnar voru auglýstar til sölu hafí ekki verið aðgengileg og því væri búið að biðja um nauðungarsölu á eignun- um. Bjóst Amar við að eignirnar yrðu seldar öðru hvoru megin við næstu áramót. Sönghópurinn Vocis Thulis á tónleikum AÐRIR tónleikar á 49. starfsári Tónlistarfélags Akureyrar verða í Akureyrarkirkju á morgun, laugardaginn 7. nóvember kl. 17. Á tónleikunum mun sönghópur- inn Vocis Thulis og félagar úr kammersveitinni Caput flytja verk eftir eistneska tónskáldið Arvo Part og einnig trúarleg verk úr íslenskum handritum frá miðöld- um fram á 17. öld. Flytjendur á tónleikunum eru Sverrir Guðjónsson, kontratenór, Sigurður Halldórsson, kontrate- nór, selló, Guðlaugur Viktorsson, tenór, Eggert Pálsson, baritón, slagverk, Ragnar Davíðsson, bassi, Hildigunnur Halldórsdóttir, fiðla, Zbignew Dubik, fiðla, Guð- mundur Knstmundsson, lágfiðla og Hilmar Öm Agnarsson, orgel. Utskurðaður í gæsluvarð- hald vegua kynferðisafbrots 28 ARA garnall karlmaður á Akureyri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 10. nóvember næstkomandi, en hann hefur ver- ið kærður fyrir kynferðislega misnotkun á þroskaheftri konu. Maðurinn er fyrrverandi starfs- dag, en úrskurðaður í gæsluvarð- maður Svæðisstjómar um málefni fatlaðra á Norðurlandi eystra og J)ekkti hann konuna. Atburðurinn íitti sér stað um síðustu helgi og var maðurinn handtekinn á mánu- hald á þriðjudagskvöld. Að sögn Gunnars Jóhannssonar lögreglufulltrúa hjá Rannsóknar- lögreglunni á Akureyri er rann- sókn málsins langt komin. Verslunarmiðstöð í miðbæ Morgunblaðið/Rúnar Þór Iðnaðarmenn vinna nú að Iokafrágangi við verslunarmiðstöð við Hafnarstræti 97, í miðbæ Akur- eyrar, en þar verða fyrstu verslanir opnaðar innan skamms. Fyrstu verslanimar opna innan skamms FYRSTU verslanimar í ným verslunarmiðstöð við Hafnarstræti 97 í miðbæ Akureyrar verða opnaðar 20. nóvember og er nú unnið að lokafrágangi á neðstu hæð byggingarinnar. Það er bygg- ingafélagið Lind sem reisir húsið, en að því standa verktakar og hönnuðir í bænum. Birgir Ágústsson einn þeirra sem að félaginu stendur, sagði að framkvæmdir væru á lokastig á neðstu hæð hússins og væri stefnt að því að hæðin yrði fullbú- in í næstu viku, eða 15. nóvember og fyrstu verslanimar myndu síð- an verða opnaðar í nýja hús- næðinu 20. nóvember. Á neðstu hæðinni verða 6 versl- anir opnaðar nú, en á næstu hæð fyrir ofan sem tengd verður götu- hæðinni með rúllustiga verða álíka margar verslanir, en á þess- um tveimur hæðum er rými fyrir alls 14 verslanir. Eftir að búið verður að taka fyrstu hæðina í notkun verður farið í að ljúka þeirri næstu og er áformað að verslanir þar opni í mars á næsta árL Á þriðju og fjórðu hasð verða skrifstofur og þjónusturými, sem ekki hefur enn verið ráðstafað en Birgir sagði að verið væri að skoða nokkra möguleika í því sambandi. Búið er að steypa upp fjórar af sex hæðum hússins og sagði Birg- ir að ákveðið hefði verið að bíða með efstu hæðimar, en verið væri að skoða hvort gera ætti bflastæði á efstu hæðinni sem ekið yrði inn í frá Gilsbakkavegi, eða hvort þar kæmi inngangur í Heilsugæslustöðina, sem er í Amarohúsinu næst norðan við. í húsinu yrðu tvær lyftur og að- gengi fyrir fatlaða væri betra þannig að þessi möguleiki hefði verið ræddur, en ákvarðanir hafa ekki verið teknar. Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri Gistifræðimanni boðin aðstaða Hausthappdrætti SÁÁ-N ÁRLEGT hausthappdrætti Samtaka áhugafólks um áfengisvand- ann á Norðurlandi, SÁÁ-N stendur yfir dagana 7. til 15. nóvem- ber næstkomandi. Happdrættið er ein þýðingar- mesta íjáröflun SÁÁ-N og vegna áforma um niðurskurð til áfengis og vímuefnameðferðar er „enn brýnna að við stöndum saman hér heima í héraði og gerum SÁÁ-N kleift að halda áfram og efla þá —þjónustu við áfengis- og vímuefna- neytendur sem SÁÁ-N hefur stað- ið fyrir,“ segir í fréttatilkynningu frá samtökunum. Gengið verður í hús á Akureyri og öðrum þéttbýliskjömum á Norðurlandi frá 7. til 15. nóvem- ber og biðja samtökin íbúa að taka vel á móti sölufólki sínu. Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri hefur ákveðið að bjóða fram skrifstofuaðstöðu fyrir gistifræðimann eða „rannsókn- arfélaga" eitt misseri í senn. Með þessu vill stofnunin styrkja skólann í sessi sem fræðasetur og efla vísindarannsóknir á svæðinu. að geta aðstoðar Háskólans í rann- sóknarverkefnum sínum og að flytja 1-2 fyrirlestra á vegum skól- ans á gistimisserinu. Lysthafendur vegna komandi vormisseris geta sent umsókn sína og greinargerð um rannsóknir til Jóns Þórðarson- ar, framkvæmdastjóra Rannsókn- arstofnunar Háskólans á Akureyri, fyrir 1. desember næstkomandi og veitir hann einnig nánari upplýs- ingar. Karlakór Akureyrar-Geysir AKUREYRI - REYKJAVÍK - AKUREYRI Allir almennir flutningar ásamt frystivörum. Geri verötilboð. Upplýsingar í símum 96-21673 og 985-25444. Ráðhústorg 7 Húseignin við Ráðhústorg 7 er til leigu. Efri og neðri hæð, samtals 450 fm. Húseignin hentar bæði til verslunar- og skrifstofureksturs eða fyrir veit- inga- og skemmtanareksturs. Upplýsingar í síma 96-24430 eftir kl. 20. Efna til þrennra tón- leika syðra um helgina Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri var formlega stofnuð síðastliðið sumar og íslandsbanki hefur léð stofnuninni hluta af 3. hæð í Glerárgötu 34 til starfsemi sinnar. „Stofnunin lítur svo á að eitt hlutverk sitt sé að efla og sam- hæfa vísinda- og fræðastarf á Norðurlandi. í því skyni hefur hún nú ákveðið að bjóða fram vinnuað- stöðu fyrir fræðimann í húsakynn- um stofnunarinnar, eitt misseri í senn,“ segir í fréttatilkynningu frá stofnuninni. Ennfremur kemur þar fram að slík aðstaða ætti t.d. að geta nýst stúdentum sem eru að vinna að meistara- eða doktorsrit- gerðum, eða háskólakennurum í rannsóknarorlofi frá öðrum skól- um. Væntanlegir umsækjendur skuldbinda sig ekki til annars en FÉLAGAR í Karlakór Akur- eyrar-Geysir efna til þrennra tón- leika á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Fyrstu tónleikamir verða í Víði- staðakirkju í Hafnarfírði kl. 14.00 á laugardag, 7. nóvember, og um kvöldið kl. 20.00 ætla karlakórsfé- lagar að syngja í Langholtskirkju. Þriðju og síðustu tónleikarnir verða sunnudaginn 8. nóvember kl. 15.00 í Hlégarði í Mosfellsbæ. Á efnisskránni eru lög eftir Sigfús Einarsson, Karl 0. Runólfsson, Sig- valda Kaldalóns og Jóhann Ó. Har- aldsson og einnig eftir Grieg, Verdi og Gounod. Flytjendur með kómum em þeir Micael Jón Clarke, barítón, og Ric- hard Simm, píanó, kórfélagar verða um 30 talsins í ferðinni, en söng- stjóri er Roar Kvam. --------» » ♦-------- I BJÖRN Steinar Sólbergsson organisti Akureyrarkirkju heldur hádegistónleika í Akureyrarkirkju á morgun, laugardag kl. 12. Á efn- isskránni verða verk eftir Bach og Duruflé. Auk orgeltónllstar verður lesið úr ritningunni, en eftir tónleika gefst gestum kostur á léttum veit- ingum í Safnaðarheimili Akur- eyrarkirkju. Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir. (Fréttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.