Morgunblaðið - 06.11.1992, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1992
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
Sérrit um mótun framtíðar-
stefnu í vímuefnavörnum
SÉRSTAKT rit um ráðstefnu um mótun framtíðarstefnu í vímuefna-
vörnum, sem haldin var 29. og 30. nóvember árið 1991, er komið út
á vegum heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins. Þar er að finna
framsöguerindi og fyrirlestra ráðstefnunnar, pallborðsumræður,
niðurstöður vinnuhópa og umræður um frumvarp til laga um áfengi-
svarnir og aðrar vímuefnavamir.
Sighvatur Björgvinsson heil-
brigðis- og tryggingamálaráðherra,
sagði að á ráðstefnunni hefðu í
fyrsta sinn komið saman fulltrúar
ólíkra hópa, sem fjalla um áfengis-
og vímuefnamál og vamir gegn
þeim. Farið var yfir frumvarp til
laga um áfengisvamir og aðrar
vímuefnavamir, sem lagt var fyrir
Alþingi á síðasta ári en var ekki
afgreitt. Verður það lagt fram á
ný með lítilsháttar breytingum.
Ritinu verður dreift til allra, sem
sátu ráðstefnuna, heilbrigðisstofn-
anna og skóla. Að sögn Ingimars
Sigurðssonar forstjóra Heilsuvemd-
arstöðvar Reykjavíkur, er þar að
fínna margvíslegan fróðleik um
vímuefni og forvamarstarf. Ritið
ætti því að gagnast þeim nemend-
um, sem fá það verkefni að fjalla
um vímuefni og öðmm þeim, sem
hafa huga á að kynna sér þennan
málaflokk sérstaklega.
Auk Ingimars skipuðu ritstjórn
ritsins þeir Hrafn Pálsson, Kristinn
T . Haraldsson og Hjalti Zóphónías-
son en þeir áttu einnig sæti í undir-
búningsnefnd ráðstefnunnar.
Sigfús
Sigfússon
AÐALFUNDUR
BÍLGREmASAMBANDSmS
verður haldinn laugardaginn 7. nóvember nk.
á Hótel Sögu, Reykjavík, og hefst kl. 09.00.
DAGSKRÁ:
Kl. 9.00-10.00 Fundarsetning -
Sigfús Sigfússon, formaður BGS.
Kl. 9.15-10.00 Erindi: Eiríkur Hilmarsson -
Menntun og framfarir í atvinnulífi.
Kl. 10.15-11.45 SÉRGREINAFUNDIR. Dagskrá:
A. VERKSTÆÐISFUNDUR
1. Eftirmenntun í Bílgreininni.
2. Reynsla af tölvuvæðingu
- Möguleikar einingaútsölu.
3. Innganga í EES, áhrif þess í bílgreininni.
Kristinn Árnason, utanríkisráðuneytinu,
ræðir um þetta og svarar fyrirspurnum.
4. Auknar kröfur í mengunarvörum.
- Starfsleyfi verkstæða.
5. Horfur á verkstæðum vetur.
B. BÍLAMÁLARAR OG BIFREIÐASMIÐIR
1. Átak gegn svartri atvinnustarfsemi.
2. Eftirmenntun í bílgreininni.
3. Nýtt fyrirkomulag á málningarútsölu.
4. Auknar kröfur í mengunarvörnum.
- Starfsleyfi verkstæða.
C. BIFREIÐAINNFLYTJENDUR
1. Innganga í EES, áhrif þess í bílgreininni -
Kristinn Árnason, utanríkisráðuneytinu,
ræðir um þetta og svarar fyrirspurnum.
2. Pappírslaus viðskipti - Karl Garðarsson.
3. Vörugjald á bifreiðir.
4. Horfur í bílasölu.
D. SMURSTÖÐVAR
1. Taxtamál og horfur í vetur.
2. Menntun, námskeið og eftirmenntun.
3. Önnur mál.
E. VARAH LUTASALAR
1. Innganga í EES, áhrif þess bílgreininni -
Kristinn Árnason, utanríkisráðuneytinu,
ræðir um þetta og svarar fyrirspurnum.
2. Pappírslaus viðskipti - Karl Garðarsson.
3. Breytingar í tollamálum um áramót.
Kl. 11.45-12.15 NIÐURSTÖÐUR SÉRGREINAFUNDA
Kl. 12.30-14.00 HÁDEGISVERÐUR - HÁDEGISVERÐARERINDI -
Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra.
Kl. 14.15-14.00 AÐALFUNDUR BÍLGREINASAMBANDSINS.
- Aðalfundarstörf skv. 9. gr. laga sambandsins.
STJÓRN BÍLGREINASAMBANDSINS
Eiríkur
Hilmarsson
Jón
Sigurðsson
Jólafrímerki 1992.
Jólafrímerki póst-
slj ómarinnar koma
út á mánudaginn
Frímerki
Jón Aðalsteinn Jónsson
Hin árlegu jólafrímerki Póst-
og símamálastofnunarinnar koma
út 9. þ.m. í tilkynningu póst-
stjórnarinnar segir, að þau séu
„hönnuð með hliðsjón af vetrarsól-
hvörfum eins og listamaðurinn
upplifði þau út um vinnustofu-
glugga sinn í háhýsi í Reykjavík".
Listamaðurinn er Bragi Ás-
geirsson, kunnur listmálari og
grafíklistamaður. Jafnframt hefur
hann ritað mikið um listir og m.a.
hér í Mbl. í tilkynningu póststjórn-
arinnar er rakinn námsferill
Braga, en hann hófst 1947.
Fyrstu einkasýningu sína hélt
hann í Reykjavík árið 1955 og
hefur haldið þær íjölmargar síðan.
Þá á hann verk.í fjölda opinberra
safna, m.a. í Listasafni Islands.
Póst- og símamálastofnunin
hefur á liðnum áratug leitað til
margra listamanna til þess að
teikna eða hanna jólafrímerkin.
Að sjálfsögðu hafa listamennimir
haft óbundnar hendur og getað
túlkað myndefnið eftir eigin höfði.
Slíkt eykur að sjálfsögðu fjöl-
breytni merkjanna, hvað sem öðru
líður. Eftir myndum tilkynningar-
innar að dæma fæ ég ekki betur
séð en jólafrímerkin séu sem oft
áður hin frumlegustu og hér hafi
listamanninum tekizt vel upp að
tengja saman jólin og vetrarsól-
hvörfín.
Verðgildi frímerkjanna er
tvenns konar, 30 og 35 krónur,
en það er sama og var í fyrra og
gildir undir almenn bréf innan-
lands og til Norðurlanda. Póst-
stjómin ætlast líka til, að þessi
frímérki verði sem mest notuð á
jólapóstinn. Frímerkin em prent-
uð með offset-litógrafíSkri aðferð
í Englandi.
Enn frá NORDIU 92
í síðasta þætti var sagt nokkuð
frá NORDIU 92 og þeim árangri,
sem íslenzkir safnarar náðu á
þessari samnorrænu frímerkja-
sýningu. Skal nú haldið áfram þar
sem frá var horfið.
Páll H. Ásgeirsson fékk 83 stig
og gyllt silfur auk heiðursverð-
launa fyrir flugsafn sitt frá 1928-
1946, sem hann sýndi í átta
römmum. Þetta safn er vel þekkt
meðal safnara. Páll hefur stöðugt
verið að bæta safnið og fjarlægja
úr því ýmsa hluti, sem við nefnum
„tilbúning". Mér kom því á óvart,
hversu mikið er þar enn af flug-
bréfum, sem kennd em við Han-
sen, Proppé, Gísla Sigurbjömsson
o.fl. Þessi bréf eru svo lík hvert
öðm, þótt póststimplar séu aðrir,
að tveir fyrstu rammar safnsins
urðu fyrir vikið of einhæfír eða
„flatir", ef svo má orða það. Þá
finnst mér t.d. alveg ofaukið að
sýna í þessu safni ónotaðar fjórb-
lokkir af flugfrímerkjunum 1930
og 1934. Sama gegnir um óst-
implað sett af Hópflugi ítala
1933, og falsað 10 kr. frímerki
úr þeirri seríu á alls ekki heima
í þessu safni. Hér er alveg nóg
að sýna ekta bréf með Hópflug-
inu, eins og Páll gerir. Að þessu
slepptu er fjölmargt mjög áhuga-
vert í safninu, svo sem bréf úr
leiðöngmm von Gronau, Ahren-
bergs, Lindberghs og Solbergs.
Þá era ritskoðuð flugbréf og her-
póstur í safni þessu. Eg held þetta
safn yrði skemmtilegra sýningar-
efni, ef efnið væri dregið betur
saman.
Næst að stigatölu kom svo safn
Sigurðar R. Péturssonar, Tveir
kóngar 1907-08 og 1913-18.
Hlaut það 78 stig og stórt silfur.
Sigurður rekur þessa útgáfu frá
upphafí og til loka, bæði með óst-
impluðum sem stimpluðum frí-
merkjum. Eru margs konar stimp-
lagerðir sýndar á stökum merkj-
um og snyfsum. Þetta safn er
mjög gott og í því em mörg sjald-
gæf bréf með Tveggja kónga frí-
merkjum á. Sigurður gerir grein
fyrir réttum burðargjöldum bréf-
anna, en slíkt er talið sjálfsagt í
hefðbundnum söfnum.
Ungur safnari, Björgvin Ingi
Ólafsson, sýndi í deild ungling^,
fæddra 1976 og 1977, safn sitt,
sem hann kallar: Fuglar Evrópu.
Raunar bindur hann sig einvörð-
ungu við norðvesturhlutann, frá
íslandi og suður til Hjaltlands-
eyja. Hann leggur mikla alúð við
safnið og vandar bæði uppsetn-
ingu og texta, sem er tölvusettur.
Björgvin Ingi uppskar líka fyrir
erfíði sitt, því að safnið hlaut 77
stig og stórt silfur og heiðursverð-
laun.
Hér verður því miður enn að
fresta nánari frásögn af NORDIU
92 og geyma til næsta þáttar.
Nú er sem sé svo komið, að mjög
erfítt reynist að fá inni í blaðinu
um þessar mundir, nema þættim-
ir séu því styttri hveiju sinni.