Morgunblaðið - 06.11.1992, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 06.11.1992, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVBMBER 1992 Halldóra Hafliða- dóttir - Minning Fædd 20. nóvember 1920 Dáin 30. október 1992 1 dag kveð ég mína kæru vin- konu, hana Dóru, eins og við kölluð- um hana sem þekktum. Hón hét fullu nafni Halldóra og var dóttir Hafliða Baldurssonar og Jóneu H. Fríðsteinsdóttur konu hans. Dóra var gift Jóni Sveinssyni verslunar- manni, sem er látinn fyrir alllöngu, einkadóttir þeirra er Kristjana Jóns- dóttir borgardómari. Við Dóra þekktumst í yfír fímm- tíu ár og bar aldrei skugga á þau kynni. Ég dáðist oft að Dóru þegar ég kom til hennar síðustu árin en oft lá hún ein heima meðan Krist- jana, sem ávallt annaðist hana, var við vinnu. Kristjana var sólargeisli móður sinnar og hlýtur söknuður hennar að vera sár enda hafa þær mæðgur alltaf búið saman. Við Dóra ræddum oft um að verða sam- ferða inn í eilífðína, sem varð ekki. Einnig ræddum við oft um trúmál og vorum á öndverðum meiði enda hún trúaðri en ég. Um heimsmálin spjölluðum við líka og vorum oftar sammála þótt okkur greindi stund- um á um ýmis efni. Við kvöddumst þó alltaf sáttar og hlökkuðum alltaf til að hittast aftur. Ég vona að heimurinn taki elsku Kristjönu mjúkum höndum og sólin skíni á ný. Hólmfriður Löve. Góða tungl um loft þú líður ljúft við skýja silfurskaut. Eins og viijinn alvalds býður eftir þinni vissu braut. Öllum þreyttum, ljós þitt ljáðu læðstu um glugga sérhvem inn. Lát í húmi hjörtun þjáðu hugast blítt við geisla þinn. (Stgr. Thorst. þýddi) í hvert sinn er við systkinin heyr- um þetta lag kemur Dóra frænka fram í huga okkar, þar sem hún sat við píanóið heima á Rauðó og spilaði og söng þetta fallega ljóð. Okkur langar nú að leiðarlokum að þakka Dóru fyrir allar samveru- stundir okkar. Henni var alltaf svo umhugað um okkur og það var svo gott að vera með henni. Þegar hug- ur okkar leitar til hennar og til alls þess er hún veitti okkur erum við Guði þakklát fyrir að hafa gefið okkur frænku eins og hana. Við minnumst sérstaklega allra þjóðhá- tíðadaganna sem við áttum með henni og Kristjönu dóttur hennar, þegar þær höfðu „opið hús“ fyrir okkur öll. Blessuð sé minning hennar. Jóna, Hafdís, Gummi og Ástrún. Það er skrýtið til þess að hugsa að Dóra frænka sé ekki lengur á meðal okkar, en allar góðu minning- amar um hana eigum við enn. Allt- af var jafngaman að koma til Dóru á Hraunteiginn og hún tók ávallt á móti okkur bömunum opnum örm- um. Það var ósjaldan þegar maður kom til hennar á köldum vetrardög- um að græni hitabrúsinn með hund- unum á beið á borðinu fullur af kakói. Við viljum þakka fyrir allar þær ánægjulegu stundir sem við fengum að njóta með Dóm frænku á 17. júní jafnt sem aðra daga. Við biðjum Guð að vera með Kristjönu og veita henni styrk. Linda, Ella og Dóra. Kallið er komið, óvænt og ótíma- bært. Halldóra Hafliðadóttir hefur kvatt þennan heim. Hún lézt á Borg- arspítalanum í Reylq'avík að morgni 30. október sl. Þangað hafði hún verið lögð inn til rannsóknar skömmu áður vegna líkamlegrar vanheilsu, sem þjáð hafði hana um nokkurt skeið. Sízt gmnaði ástvini hennar, að hún ætti þaðan ekki aft- urkvæmt. Minningamar sækja á. Sú mynd, sem kemur oftast upp í huga mér, er frá afmælisdegi Kristjönu, dóttur hennar, í byijun október sl. Halldóra var óvenju hress þann dag. Hún hafði drifíð sig í eldhúsið og bakað ótal gimilegar „hnallþómr" fyrr um daginn, útbúið brauðrétti og fleira góðgæti. Um kvöldið komum við svo saman í stofunni heima hjá henni og nutum góðgerðanna og ekki sízt samvistanna, níu konur. Halldóra lék á als oddi og var ekki að sjá að hún hefði verið rúmföst dögum saman, sárþjáð. Hún naut sín í hlut- verki gestgjafans, enda var hún höfðingi heim að sækja. Eins og venjulega var stutt í glettnina og hláturinn, sem mér fannst ávallt einkenna hana. Þannig man ég hana bezt og þannig er gott að muna hana. Halldóra var greind kona með næmt skopskyn. Viðmótið var hlýtt og aðlaðandi. Hún hafði ákvéðnar skoðanir á mönnum og málefnum, en kvað aldrei upp áfellisdóma um nokkum mann að óathuguðu máli, heldur gerði hún sér far um að leita að hinu jákvæða í umhverfí sínu. Hún var heilsteypt, réttsýn og for- dómalaus í samskiptum sínum við aðra. Halldóra fæddist í Reykjavík þann 20. nóvember 1920. Foreldrar hennar voru Hafliði Baldvinsson físksali og kona hans Jónea Fríð- Minning Rögnvaldur Sigurðs- son bókbindari Fæddur 20. ágúst 1914 Dáinn 29. október 1992 Foreldrar Rögnvaldar voru Sig- urður Björgólfsson, fæddur 11. des- ermber 1887, dáinn 10. desember 1964, kennari á Siglufírði, og kona hans Svava Hansdóttir, fædd 20. nóvember 1888, dáin 29. september 1960. Rögnvaldur hóf nám í bókbandi hjá Áma Ámasyni á Akureyri 1934. Hann fluttist til Reykjavíkur 1936 og hélt áfram námi hjá föður mín- um, Guðmundi Gamalíussyni. Rögnvaldur bjó í húsi föður míns á Lækjargötu 6, kynntist ég þá Rögn- valdi fyrst. Hann lauk námi í Isa- foldarbókbandi 1944. Ég hóf nám í ísafoldarbókbandi 1942. Byijuð- um við þá að vinna saman sem átti eftir að vara langan tíma. Oft var glatt á þjalla í bókbandinu á stríðs- árunum enda Rögnvaldur skemmti- legur og sagði margan lúmskan brandarann. Arið 1947 fluttist hann til Seyðisfjarðar og vann við bók- band í Prentsmiðju Austurlands og er það í fyrsta og sennilega eina skiptið sem upplagabókband hefur verið starfrækt á Austurlandi. Liðu nú mörg ár þar til leiðir okkar lágu saman á ný, þá í Ríkisprentsmiðj- unni Gutenberg og unnum við þar saman í 17 ár í góðu yfírlæti. Rögn- valdur var einn af fyrstu bókbindur- unurn sem unnu við hinar nýju vél- ar sem héldu innreið sína hér á landi, brotvélar, rafmagnshnífar o.fl. Allan þennan tíma sem ég þekkti Rögnvald heyrði ég hann aldrei hallmæla eða tala illa um nokkum einasta mann, sem nú í dag er harla sjaldgæft. Rögnvaldur var tvígiftur. Fyrri kona hans var Guðný Guðmundsdóttir og eignuð- ust þau einn son, Snorra. Seinn steinsdóttir. Alsystkini hennar voru Hákon, sem var þeirra elstur, en hann lézt árið 1981, Helgi, sem var næstur Halldóru að aldri og yngst er Ástríður. Vom þau systkinin sam- hent og samrýnd, og hélzt það sam- band þeirra alla tíð. Eina hálfsystur áttu þau, Baldvinu Hafliðadóttur, sem er látin. Var hún elzt systkin- anna. Hafliði lézt árið 1949 og Jónea árið 1967. Skólaganga Halldóru var svipuð og hjá mörgum ungum stúlkum á þeim ámm. Hún lauk skyldunámi og fór síðan í húsmæðraskóla. Að námi loknu var hún við ýmis störf, svo sém verksmiðjustörf, en þó eink- um við fyrirtæki föður síns og á heimili foreldra sinna, enda vom verkefnin ærin á stóm heimili. Halldóra steig mikið gæfuspor, er hún gekk í hjónaband með Jóni Sveinssyni verzlunarmanni þann 12. maí 1945. Jón vann þá hjá verzlun Haraldar Ámasonar, Haraldarbúð, sem var ómissandi þáttur í svipmynd Reykjavíkur í þá daga. Var hjóna- band Halldóm og Jóns afar farsælt og bar aldrei skugga þar á. Þau bjuggu sér fallegt og einkar hlýlegt heimili að Hraunteigi 10 í Reykja- vík. Þar naut sín húsmóðirin Hall- dóra í sínu ríki og þar ólst einka- bamið upp, dóttirin Kristjana, sem fæddist 5. október 1947, við ástríki beggja foreldra sinna. Hefí ég aldr- ei kynnzt samhentari fjölskyldu, þar sem áberandi var gagnkvæm ástúð, virðing og ekki sízt vinátta. Heimil- ið var ekki stórt og efnin vom ekki mikil, en þau undu glöð við sitt. Veraldlegt tildur var aldrei sett á oddinn, þar var það hjartarýmið, sem skipti höfuðmáli, og af því áttu þau nóg. Kristjana gekk menntaveginn og var ekkert til sparað að hún fengi búið sem bezt í haginn fyrir framtíð sína. Hún tók embættispróf í lög- fræði og var stolt foreldra sinna og gleði, en jafnframt bezta vinkona. Hún starfar nú sem héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur. Jón lézt langt um aldur fram þann 6. marz 1976, hanndauði öll- um, sem hann þekktu. Ég hef fyrir satt, að Halldóra hafi látið orð falla eftir andlát hans, eitthvað á þá leið, að þótt söknuðurinn væri mikill, þá mildaði það sorgina, hvað samlíf þeirra hafði alla tíð verið ástríkt og gott og aldrei borið skugga á. Þann- ig er viðskilnaður Halldóm líka. Á hennar lífsbraut em engir skuggar, hún var sátt við allt og alla. Minn- ingin er hrein og góð. Hún óttaðist ekki dauðann. Hún trúði á Guð al- máttugan og æðra tilvemstig. Ég bið henni Guðs blessunar um alla eilífð og þakka samfylgdina hér á jörðu. Kristjönu vinkonu minni og öðr- um ástvinum Halldóm sendum við hjónin okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Sigríður Ólafsdóttir. Einstök sómakona er látin. Minn- ingamar um hana Dóru, mömmu vinkonu minnar, er ljúfar. Dóra var Reykvíkingur og bar það með sér að vera komin af góðu fólki og vera frá myndarheimili. Hún var glæsileg kona og sterkur persónu- leiki sem hafði áhrif á samferða- menn sína, bæði böm og fullorðna. Hún var húsmóðir af bestu gerð, átti fallegt heimili þar sem hún umvafði alla með hlýju sinni. Fjölskyldunni kynntist ég við upphaf vináttu okkar Kristjönu, einkabami þeirra hjóna, er við vor- um 10 ára gamlar. Iðulega var ég á heimili þ eirra þar sem mér var tekið sem dóttur og alltaf var Dóra nálæg til að sinna okkur. Eigin- mann sinn, Jón Sveinsson, missti hún fyrir 16 ámm en þau voru sér- lega samrýmd hjón. Hún var hrein- skiptin, dásamlega jákvæð og bar með sér glaðværð og hressileika, hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum og hafði ríka kímni- gáfu. Þessi jákvæðni hennar var aðdáunarverð hin síðari ár þegar hún fór að fínna til heilsuleysis. Þótt dauðinn geti verið líkn veld- ur hann engu að síður sorg og sökn- uði hjá ástvinum sem eftir lifa. Missir Kristjönu dóttur hennar er mikill, hún missir ekki einungis móður heldur einnig góðan og náinn vin. Ég kveð með söknuði og þökk og bið Guð að blessa minninguna Ijúfu um Halldóru Hafliðadóttur. Stefanía. Eyþór M. Stefáns son - Minning Eyþór M. S£efánsson var fæddur 8. ágúst 1906, að Einfætingsgili, Strandasýslu, elstur 5 systkina. Foreldrar hans vora Stefán Jónsson og kona hans, Hrefna Ólafsdóttir. Eyþór var á 3ja ári þegar fjöl- skyldan fluttist að Eyvindarstöðum á Álftanesi, Bessastaðahreppi, og þar átti hann eftir að sinna ævi- starfí sínu. Eyþór var af bændafólki kominn og hjá honum var aldrei minnsti vafí, bóndi skildi hann verða. Á þeim tímum sem Eyþór var að alast upp var lífsbaráttan önnur og harðari en nú gerist. Þrælað var myrkranna á milli og-bömin urðu að leggja fram sinn skerf. Þannig varð Eyþór tíu ára gamall að sjá um mjólkurflutninga frá búi föður síns til Reykjavíkur. Eitt atvik frá æsku sinni var Eyþóri jafnan minnisstætt. Sextán ára gamall var hann sendur austur í Ölfus eftir kú sem faðir hans hafði keypt. Stórgripinn varð að reka á fæti alla leið og hefur þurft bæði þrek og þolinmæði við þetta verk. Þegar Eyþór komst til fullorðins- ára, keypti hann hlut af landi föður síns á Álftanesi og hóf sjálfstæðan búskap. Við hlið hans stóð eiginkon- an, Guðrún Siguijónsdóttir, ættuð úr Laxárdal í Dalasýslu. Þeim varð tveggja barna auðið: Stefán Rafn, fæddur 1936 og Elsa Sigrún fædd 1942. Á Álftanesi fann Eyþór hamingju sína. Vinnan við búskap og skepnu- hirðingu var krefjandi, en gaf jafn- framt lífsfyllingu á móti. Ekkert átti verr við Eyþór en leti og aðgerð- arleysi, vinnan var honum heilsu- brannur og yndi. Jafnframt búskapnum sá Eyþór um mjólkurflutninga Álftnesinga ásamt Gunnari bróður sínum, og önnuðust þeir bræður þetta verk í 12 ár. Eyþór sat í hreppsnefnd Bessa- staðahrepps í 30 ár og þar af var hann oddviti í 20 ár. Hjá okkur borgarbúunum verður líf innan um alla steinsteypuna oft yfírþyrmandi. Þá er gott að komast út fyrir borgarysinn og leita upp- rana síns í sveitasælunni. Við fjöl- skyldan nutum þess að eiga athvarf á heimili Eyþórs og Guðrúnar á Álftanesinu. Synirnir sóttu fast að komast til ömmu og afa í sveitinni og þegar helgarnar rannu upp var jafnan spurt: „Eigum við ekki að fara út á Álftanes?" Reyndar þurfti ekki að hvetja okkur hjónin, því ávallt kom mann- skapurinn sæll og endurnærður ut- an af Álftanesinu. Á kveðjustund er ljúft að láta hugann reika til baka og þakka fyrir allt það sem okkur var veitt. Guð blessi minningu Eyþórs Stef- ánssonar. Jóhann Örn Sigurjónsson. Guðný Björk Sturlu- dóttir - Minning kona hans var Unnur Sigurðardótt- ir. Eignuðust þau eina dóttur, Sig- ríði Svövu. Nú þegar komið er að leiðarlokum kveð ég Rögnvald Sig- urðsson með þökk fyrir samstarfíð og skemmtilega samfylgd sem ekki Liar skugga á. Snorra og Sigríði Svövu sendi ég hugheilar samúðar- kveðjur. Arnkell B. Guðmundsson. Mig langar til að kveðja hana Guðnýju, sem ég kynntist háskóla- árið 1991-1992. Eg dvaldi þá á íslandi til þess að taka þátt í nám- skeiðum jarðfræðiskorarinnar og var Guðný ein skólasystra minna. Ég tók fljótt eftir því að hún var alltaf mjög dugleg og vandleg til vinnu og jærdóms og bar ljómandi árangur. Ég tók hinsvegar snemma eftir því að hún átti í baráttu á öðra og aivarlegra sviði, þar sem ekki var um próf eða einkunn að ræða. Hún hélt samt áfram að búa sig undir framtíðina og gafst aldrei upp. Ég og við öll óskuðum Guðnýju þess að ósk hennar um betri heilsu myndi rætast en Guð, sem ákvarðar líf okkar, kallaði hana til sín. Guðný sýndi mér hve vonin getur lifað. Blessuð sé minning hennar. Richard H. Kölbl, Kiel, Þýskalandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.