Morgunblaðið - 06.11.1992, Page 40

Morgunblaðið - 06.11.1992, Page 40
40 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1992 Sölvi Jónsson vél- virki - Minning' Fæddur 18. janúar 1954 Dáinn 28. október 1992 Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem) Erfitt er að sætta sig við af hveiju Sölvi vinur okkar var tekinn svo snögglega á brott frá eiginkonu og ungum bömum. Við spyrjum okkur: Hvers vegna? Hver er tilgangurinn? En fáum eng- in svör. Við verðum að trúa og hugga okkur við að allt hafi sinn tilgang og að okkur öllum sé ætlað ákveðið hlutverk. í hjörtum okkar eigum við og varðveitum minningu um góðan vin. Við biðjum Guð að veita Erlu, bömunum og öðrum ástvinum styrk í þessari miklu sorg. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Elsku Erla og böm. Við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Bolli, Ásta og Vignir Þór. í dag verður til moldar borinn vinur minn og mágur, Sölvi Jóns- son. Ekki grunaði mig frekar en aðra þegar við hittumst nokkrum dögum fyrir andlátið, að það yrði í síðasta sinn sem við ræddum sam- an, þessi lífsglaði drengur sem alla ævi átti í erfiðleikum með að vera alvarlegur. Gamansemin var hans vopn og vörn í lífinu, og jafnvel dauðinn sigraði ekki brosið hans. Það læddist að mér ískaldur ótti þegar ég frétti að Sölvi hefði verið fluttur meðvitundarlaus á spítala og sá ótti reyndist á rökum reistur, því hann var allur innan tveggja sólarhringa. Kynni okkar hafa staðið í tæp 25 ár og aldrei hefur failið á vin- áttu okkar nokkur skuggi. Sölvi var aðeins 13 ára þegar við hittumst fyrst, en ég litlu eldri, 18 ára. Eflaust hefur hann litið upp til þessa tilvonandi mágs síns, sem átti alla þessa bíla sem tíðum gistu bílskúrinn í Hlíðargerðinu, þar sem í sífellu var verið að gera við og endurbæta. Ekki dugði Sölva lengi að vera bara áhorfandi að þessu, hann vildi taka þátt í verklegum framkvæmdum og hjálpa til, og þannig var Sölvi til síðasta dags. Það var sama hver í fjölskyldunni eða vinahópnum réðst í fram- kvæmdir, alltaf var hann mættur, fjörugur, verklaginn og duglegur. Það sama var upp á teningnum í vinnunni, hann var alls staðar eftir- sóttur sökum dugnaðar og ósér- hlífni. Sölvi lærði vélvirkjun, en fór ungur til sjós og starfaði framan af bæði á millilandaskipum og físki- skipum. Síðar kom hann í land og starfaði hjá Vélsmiðjunni Gjörva hf. til dauðadags. Sölvi var næstelstur bama þeirra hjóna Ingibjargar Skúladóttur og Jóns Jónssonar fískifræðings, en þau eiga auk Sölva þijár dætur; Ragnheiði, sem er gift undirrituðum og eiga þau þijú böm, Björgu Krist- ínu, sem gift er Elíasi Héðinssyni og eiga þau einnig 3 börn og Þur- íði, sem gift er Hans Ulrik Glaeser en þau eiga 2 börn. Sölvi var tví- kvæntur. Fyrri kona hans var Hall- dóra Bachmann Sigurðardóttir og áttu þau saman börn, þau Gunn- laugu Ragnheiði, Sigurð ívar og Halldór. Seinni kona Sölva er Erla Bragadóttir og áttu þau saman tvo drengi, þá Jón Trausta og Sölva Frey, en Erla er nú þunguð af þriðja barni þeirra. Bömum sínum var Sölvi einstakur faðir, því hann var sérstök barnagæla, ekki bara við sín eigin börn heldur öll sem hann komst í kynni við. Þegar fjölskyldan kom saman hópaðist allur krakka- skarinn að Sölva og beið eftir ein- hveiju sprelli eða gamanmáli, sem sjálfsagt þótti að Sölvi hefði á tak- teinum fyrir þau. Þrátt fyrir að við teljum öll missi okkar mikinn, þá er hann hjóm eitt miðað við missi Erlu og bamanna, sem nú standa uppi án maka, fyrir- vinnu og föður. Ég bið góðan guð að styrkja ást- vini hans í sorg 'sinni, minningin um þennan góða dreng lifir eftir í hjörtum okkar. Fari Sölvi í friði. Brynjólfur Þór Brynjólfsson. í dag er borinn til hinstu hvílu samstarfsmaður okkar og vinur, Sölvi Jónsson. Það er sárt til þess að hugsa að ungur maður er kallað- ur svo skyndilega burt. Við sem eftir stöndum skiljum ekki tilgang æðri máttarvalda. Á einu auga- bragði er höggvið stórt skarð í hóp vinnufélaga. Hann er tekinn í burt frá ungri yndislégri konu og böm- um, sem missa ekki bara góðan föður, heldur einnig besta leikfélag- ann. Sölvi hóf störf hjá fyrirtæki okk- ar, Gjörva hf., árið 1986. Við vissum að þar var á ferð duglegur maður sem ávallt var léttur í lund og ósér- hlífínn. Við áttum því láni að fagna að njóta krafta hans og starfsvilja sem einkenndi hann svo mjög. í sumarferðum okkar og á gleði- stundum var hann ávallt hrókur alls fagnaðar. Mánudagurinn 25. október byijaði eins og flestir aðrir vinnudagar, en það sama verður ekki sagt um endi þessa örlagaríka dags, sem var sá síðasti sem Sölvi var með okkur. Það em öll orð fá- tækleg þegar slíkir atburðir gerast. Elsku Erla, við biðjum góðan Guð að veita þér og bömum ykkar, for- eldrum, systkinum og tengdafólki allan þann styrk sem hann einn hefur yfir að ráða. Við munum geyma minningu um góðan dreng í hjarta okkar. Freyja, Helgi, Bogga og Villi. Með þessum línum viljum við kveðja elskulegan bróður, Sölva Jónsson vélvirkja, sem lést í Borgar- spítalanum 28. október sl. langt um aldur fram. Bróðir okkar fæddist 18. janúar 1954, annar í röðinni af fyómm börnum þeirra Ingibjargar Skúla- + Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, JAKOBÍNU J. WALDERHAUG frá Lónkoti. Sérstakar þakkir til starfsfólks sjúkra- hússins á Siglufirði fyrir góða umönnun í veikindum hennar. Börn, tengdabörn og barnabörn. Konan mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURBJÖRG GlSLADÓTTIR, Vogatungu 31, andaðist 19. október í Hátúni 10. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki í Hátúni 10 fyrir hjúkrun og alúð. Sólon Lárusson, Ragnar L. Sólonsson, Gisli Grétar Sólonssoh, Nella Sólonsdóttir, Einar Sólonsson, Theodór J. Sólonsson, Louisa Sampsted, Guðrún Árnadóttir, Floyd A. Beatty, Katrin Hallgrímsdóttir, Elín Haraldsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, KOLFINNA BJÖRK BOMBARDIER, Garðavegi 5, Keflavík, sem lést 27. október, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 7. nóv- ember kl. 14.00. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á líknarfélagið Heilavernd. Minn- ingarkort fást í Apóteki Keflavíkur. Kjartan Hafsteinn Kjartansson, ^ Hafdís Lára Kjartansdóttir, Vilhjálmur Árni Kjartansson, Maria Ósk Kjartansdóttir. + Ástkær systir okkar, GUÐRÚN ANDRÉSDÓTTIR, Hellukoti, Stokkseyri, verður jarðsungin frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn 7. nóvember kl. 13.30. Margrét Andrésdóttir, Jórunn Andrésdóttir og aðrir vandamenn. + Eiginkona mín, HELGA SVEINSDÓTTIR, Grjótá, Fljótshlfð, verður jarðsungin frá Hlíðarendakirkju laugardaginri 7. nóvember kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Þorbjörn Jónsson. / + Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vináttu vegna andláts mannsins míns, föður okkar, tengdaföður og afa, HINRIKS EIRÍKSSONAR. Sérstakar þakkir til Ó. Johnson og Kaaber hf. og hjúkrunarfólks Landakotsspítala. Kristín Jónsdóttir, Þórhildur Hinriksdóttir, Þórður Sigurjónsson, Sigurjón Þórðarson, Ólöf Dís Þórðardóttir, Finnur Dór Þórðarson, Harpa Rún Þórðardóttir. Lokað Verslunin verður lokuð frá hádegi í dag, föstudag, vegna jarðarfarar HALLDÓRU HAFLIÐADÓTTUR. Fiskverslun Hafliða Baldvins, Hverfisgötu 123. dóttur og Jóns Jónssonar fískifræð- ings. Nokkurra vikna gamall fluttist hann í nýja húsið í Hlíðargerði þar sem við systkinin ólumst upp. Á þessum árum var hverfið barn- margt, mikið um að vera og margt brallað. Við minnumst þegar Sölvi bróðir og Gústi á 13 keyptu sér litla sýningarvél með afborgunum og ráku bíó hverfisins í stóra bílskúrn- um hans pabba og mamma poppaði ofan í liðið. Ekki var Sölvi bróðir mikið fyrir bókina en var ekki hár í loftinu þegar áhugi hans á samsetningu hluta kom í ljós og urðu þá sérstak- lega leikföngin okkar illilega fyrir barðinu á honum. Sölvi bróðir kynntist sjónum strax í æsku með pabba og að lok- inni skólagöngu varð sjómennska hans aðalstarf. Hann fór í land 1986 og starfaði þar hjá vélsmiðj- unni Gjörva. Það er skarð fyrir skildi þegar þúsundþjalasmiðurinn er allur. Varla kom upp það tækni- eða véla- vandamál innan fyölskyldunnar eða hjá vinum og kunningjum að Sölvi bróðir væri ekki kallaður til. Þrátt fyrir langan og erfiðan vinnudag var hann ætíð boðinn og búinn til aðstoðar. Sölvi bróðir kvæntist Halldóru Sigurðardóttur 1975. Börn þeirra eru Gunnlaug Ragnheiður, Sigurð- ur ívar og Halldór Andri. Þau slitu samvistir. Eftirlifandi eiginkona hans er Erla Bragadóttir og eru börn þeirra Jón Trausti og Sölvi Freyr. Sigurð- ur ívar ólst upp á heimili þeirra. Sölvi bróðir var glaðlyndur, spaugsamur og yfírleitt með bros á vör. Hann var besti vinur barnanna okkar. Ragnheiður, Björg og Þura. Kveðja frá vinnufélögum Það var okkur vinnufélögum Sölva víðs fjarri, þegar við yfirgáf- um vinnustað okkar mánudaginn 26. október sl. að við ættum ekki eftir að hittast á þessu jarðríki en máltækið segir, að það ráði enginn sínum næturstað. Sú spuming verður þó alltaf áleitin hver sé tilgangur lífsins. Er þetta skóli okkar, sem eftir lifum? Er sorgin einn af þeim þáttum lífs- ins sem þroskar okkur til dáða? Eru menn kallaðir til annarra starfa á besta aldri í miðju lífsstarfi frá eig- inkonu og bömum? Við vinnufélagar Sölva minnumst margra góðra samvemstunda með þeim hjónum og bömum þeirra í sumarferðum Gjörva og var þar oft glatt á hjalla. Sölvi var ekki að gera vandræði út af smámunum. Honum tókst allt- af að líta á spaugilegu hliðina á öllum málum, því það var grunnt í grínið og gamansemina. Hann var líka orðheppinn og í kringum hann skapaðist mjög skemmtilegur andi. Við vinnufélagar Sölva sendum Erlu, bömunum, foreldram og öðr- um ástvinum, okkar dýpstu samúð- arkveðjur. F.h. samstarfsmanna og fjöl- skyldna. Marteinn Karlsson. ERFIDRYKKJUR ^ Verð frá kr. 850- P E R L a n sími 620200 Séifræðingar í Mómnskrrvf ingiim við öll Indvilæi'i J> blómaverkstæði WNNA Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 19090

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.