Morgunblaðið - 06.11.1992, Síða 41

Morgunblaðið - 06.11.1992, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1992 41 Minning Guðmundur Matthías- * son frá Ospaksstöðum Fæddur 1. apríl 1897 Dáinn 8. október 1992 Uppundir hvelfíng Helgafells hlýlegum geislum stafar frænda sem þangað fór í kvöld fagna hans liðnir afar situr að teiti sveitin öll saman við langeld skrafar meðan oss hina hremmir fast helkuldi myrkrar grafar. (Jón Helgason.). Við hjónin dvöldum norður í Húnavatnssýslu þegar við fréttum að Guðmundur vinur okkar væri búinn að fá hvíldina. Atvikin höguðu því þannig að við áttum ekki hægt um vik að fylgja honum hinsta spölinn á annan veg en að láta hugann leita til kveðju- stundarinnar. Ég veit að dauðinn var kærkominn þessum háaldraða heiðursmanni, því síðustu mánuðina lá hann rúmfastur í sjúkrahúsi, heilsan þrotin aðeins bið að lífið fjaraði út. Á fögrum degi liðu svo síðustu andvörpin inn í kyrrð og fegurð haustsins, jafnhliða því sem björkin fellir bliknuð lauf til foldar og móðir jörð býr sig undir komu veturs konungs. Það getur tæpast talist sorg þeg- ar gamall maður kveður, en það er mikill söknuður þegar góðir vinir kveðja. En þegar minningarnar eru hlýjar og bjartar þá ylja þær manni um hjartaræturnar þegar þær eru rifjaðar upp. Þegar ég og fjölskylda mín kynntumst Guðmundi Matt- híassyni fýrst var hann kominn yfír sextugt. Kynni okkar hófust á þann veg að vinur minn og starfsbróðir á BSR, Ingimar Einarsson, er kvæntur dóttur hans Mattheu. Þau hjón er ég búinn að þekkja í 45 ár og á þau kynni hefur enginn skuggi fallið. Ingimar er bráðgreindur heiðursmaður, vinsæll og vel met- inn, heimili þeirra hjóna er til fyrir- myndar, Matthea fyrirmyndar hús- móðir, gestrisni og frjálslyndi ræður þar ríkjum og hjónin eru samvalin með að gera öllum gott. Máltækið segir: „Margt er líkt með skyldum" og á það sannarlega við um þau feðgin Guðmund og Mattheu. Guðmundur var einstaklega gestrisinn, vinsæll, vinmargur og viðmótsþýður, naut þess að veita öðrum og rétta þeim hjálparhönd sem áttu í vök að verjast. Hann naut þess lika að þiggja boð hjá vinum og vandamönnum, spjalla saman, lyfta glasi og vera með í glensi og gríni. Hann var einstakur hófsmaður á vín og tóbak, en hafði gaman af að smakka vín, skála og reykja góðan vindil, hrókur alls fagnaðar og dansmaður mikill. Ég sem þessar línur rita átti oft sam- leið með Guðmundi á mörgum gleði- stundum, en aldrei skyldi maður sjá hann undir áhrifum víns, þó maður vissi að hann væri hreifur. Hann sat veislur frá byijun til enda þó þær yrðu í lengra lagi, lyfti glasi manna fyrstur og drakk skilnaðar- skál með reisn. Síðustu veislu hjá Guðmundi sátum við hjónin þegar hann varð níræður, þá fór lítið fyr- ir því að sæust lát á reisn og risnu þessa háaldraða höfðingja. Guðmundur var myndarmaður, þéttur á velli og þykkur undir hönd, kráftalega vaxinn, búinn miklu lík- amsþreki og átti létta og lipra lund. Hann var ein af hetjum hversdags- lífsins sem lét ekki baslið smækka sig, sótti á brattann þó móti blési, gat bognað undan þyngstu byrðum en rétti sig við þegar áfanga var náð. Ævistarfið var helgað helstu atvinnuvegum þjóðarinnar, sjávar- útvegi og landbúnaði. Búskap stundaði hann bæði vestur á Skóg- arströnd og á Óspaksstöðum í Hrútafirði. Eftir rúmlega tuttugu ára búskap á Óspaksstöðum varð hann fyrir þeirri sorglegu lífsreynslu að missa eiginkonu sína Jóhönnu Guðnadótt- ur á besta aldri, 56 ára, en þá voru börnin uppkomin og flutt að heim- an. Eftir það hætti hann búskap, flutti til Reykjavíkur og átti þar heima í tæp fjörutíu ár. Hér í borg vann hann lengst af hjá Landsíman- um, allt til þess er hann varð nær áttræður. Hann keypti sér íbúð hér í borg, var efnalega sjálfstæður og þurfti ekki til annarra að leita. Hann safn- aði ekki veraldarauði, var alltaf frekar veitandi en þiggjandi, enda var það samkvæmt eðli hans. Fyrir rúmum þremur árum varð hann fyrir þeirri þungu sorg að missa eitt af fjórum börnum sínum, son sinn Gísla sem var aðeins um fimmtugt, ,en hin eru öll á lífi. Afkomendur Guðmundar eru í dag alls 21 á lífí. Ekki dreg ég það í efa að hugur hans hafi staðið nær landsbyggðinni og sjónum en dvöl hans hér í borginni þó hann yndi sér hér vel, því hann kunni vel við sig í fjölmenni. Hann var fæddur vestur á Barðaströnd en ólst upp á Breiðafjarðareyjum þar sem land- sýn er sérlega fögur og auðugt líf- ríki í eyjum og sjó. Strax mun sjór- inn hafa heillað hann, enda stund- aði hann sjómennsku á bátum og togurum í áraraðir. Þar mun hann hafa kynnst þrældómi og illum að- búnaði í ríkum mæli, en hann lifði það líka að sjá miklar stökkbreyt- ingar til þess betra í þeim efnum. Guðmundi þótti vænt um land sitt og þjóð og mat mikils framtak og frelsi í athafnalífí og skoðunum. Hann hafði ákveðnar skoðanir í þjóðmálum og þó við værum þar á öndverðum meiði, hafði það engin áhrif á vináttu okkar. Hugur hans reis hæst þegar hann ræddi um atvinnuhætti þjóðarinnar og mögu- leika sem ekki væri farið að nýta. Með huga og hendi vann hann sín verk, sannur sonur lands og þjóðar. Guðmundur var heimilisvin- ur okkar hjóna og barna okkar í áratugi. Á þau kynni féll enginn skuggi. Alltaf þegar Guðmundur leit inn til okkar birti yfir þó bjart væri fyrir. Hlýja brosið og létti hlát- urinn smitaði frá sér. Hann ræddi við bömin, ekki með tæpitungu heldur eins og við fullorðið fólk. Þau hændust að honum, hann fræddi þau um eitt og annað, sagði þeim sögur úr sínu lífi og annarra, frásagnaglaður og hress í tali, upp- byggjandi fyrir alla sem á hann hlýddu. Vináttan er einn af þeim sterku þáttum sem gefa lífinu gildi, ef hún er sönn og einlæg, hún er sú kær- leikskeðja sem ekki brestur þó sitt- hvað á móti blási. Þannig var vin- átta Guðmundar Matthíassonar. Nú er þessi öldungur horfinn okkur sjónum og ég vona að hann njóti sín vel undir hvelfíngu Helga- fells sem hann hafði í augsýn á uppvaxtarámm sínum. Ekki efast ég um viðtökurnar, ég sé hann í anda við háborðið, kneifa mjöðinn og skrafa létt við frændur og vini sem á undan eru gengnir. Við hjónin og bömin kveðjum látinn vin með söknuði og trega. Birtan og ylurinn frá kyndli minn- inganna mun verða okkur leiðarljós á ókomnum árum. Hann helgaði ævina þeim ákveðna ásetningi „að vera í lífinu sjálfum sér trúr“. Blessuð sé hans minning. Jakob Þorsteinsson. Valný Tómasdótt- ir - Minningarorð Vantaði mynd Með grein Drífu um Konráð Gíslason sem birtst í Morgunblaðinu sl. miðvikudag átti að birtast mynd. Er hún birt hér með og hlutaðeig- andi beðnir velvirðingar. Hinn 4. nóvember sl. fór fram útför frú Valnýjar Tómasdóttur, og af því tilefni langar mig að minnast hennar nokkrum orðum. Við vorum nágrannakonur á Kvisthaganum um alllangt skeið, þótt við byggjum hvor í sínum enda götunnar, ég ásamt foreldr- um mínum á Kvisthaga 1, en Valný ásamt Hjalta, eiginmanni sínum, og börnum þeirra á Kvisthaga 21. Mig minnir það hafi verið fyrir tilstilli konu af Seyðisfirði, sem móðir mín þekkti, og bjó í sama húsi og Valný á tímabili, sem kynni okkar Valnýjar hófust. Fyrir ein- hverra hluta sakir þurfti móðir mín á aðstoð að halda við hrein- gerningar og hafði henni þá verið sagt að valný tæki slíkt að sér. Ég minnist þess líka að Valný að- stoðaði við framreiðslustörf í ferm- ingarveizlu minni, sem var haldin heima, og fórst það allt vel úr hendi, eins og hennar var von og vísa. Hlaðborðið í eldhúsinu bar smekkvísi Valnýjar vitni, og hún virtist njóta þess að vinna að þessu fyrir okkur. Það varð líka til þess að leitað var til hennar þegar haldnar voru veizlur heima. Hjálp- semi hennar var einstök og hún alltaf boðin og búin, hvenær sem á þurfti að halda. Valný var ákaflega barngóð, og var greinilegt að hún naut þess að hafa ungu kynslóðina í kringum sig, ef ekki barnabörnin þá börn vinafólks síns. Góð vinátta myndaðist því ekki aðeins milli hennar og móður minnar, heldur einnig milli mín og hennar, enda Valný trygg og góð vinkona þeirra sem henni kynntust, og aldrei skorti umræðuefnin. Hlýleiki og hugulsemi voru ekki síður ein af aðaleinkennum í fari Valnýjar og gerði það að verkum að fólk laðaðist að henni, svo og góð kímnigáfa. Þegar aldurinn færðist yfir fór Valný að kenna lasleika, enda fékk ég fréttir af því þegar ég hitti hana á förnum vegi og spjallaði við hana að gömlum sið. Hún hafði samt þurft að þola önnur og verri áföll í lífínu en það, þar sem hún m.a. sá á bak Tómasi, syni sínum, sem lézt af slysförum langt um aldur fram. Það fór ekki framhjá manni hvaða áhrif slíkt áfallt hafði á Valnýju, eins tilfinningarík kona og hún var í eðli sínu. Að leiðarlokum fyllist hugur minn þakklæti í hennar garð fyrir góða viðkynningu og vel unnin verk fyrir mig og foreldra mína, og bið henni blessunar Guðs í nýj- um heimkynnum. Börnum hennar og öðrum aðstandendum votta ég innilega samúð mína. Blessuð sé minning Valnýjar Tómasdóttur. Guðbjörg Snót Jónsdóttir. Minning * Guðmundur Arsæll * * Arsælsson, Olafsvík Fæddur 16. október 1913 Dáinn 1. nóvember 1992 Ég ætla að minnast með örfáum orðum míns ágæta vinar, Guðmund- ar Ársæls Ársælssonar, sem lést í Ólafsvík 1. nóvember. Guðmundur fæddist í Straum- fjarðartungu í Miklaholtshreppi, Staðarsveit, sonur Þorbjargar Guð- mundsdóttur, ljósmóður í Ólafsvík, og Ársæls Þorsteinssonar. Hann var elstur systkina sinna. Eftir lifa Berg- þór, Ingibjörg og Oddgeir, en látinn er Sigurður. Guðmundur ól mestallan sinn aldur í Ólafsvík. Hann hóf sambúð með Þórunni Gunnlaugsdóttur og átti með henni þijú börn. Ernu sem nú er látin og Þorbjörgu. Einnig misstu þau ungan son. Þau slitu samvistir. Guðmundur vann bæði til sjós og lands. Einnig var hann mikið í vega- vinnu á sínum yngri árum. Stundum var farið á vetrarvertíðir á Suður- nes, þá aðallega til Sandgerðis. Oft minntist hann þess tíma. Stafaði Ijóma af minningunum og gleði- glampi kom í augun. Ein vetrarvertíð í Sandgerði varð sérlega örlagarík í lífí Guðmundar. Þá var þar sem ráðskona á mötu- neyti glæsileg ung kona, Guðríður Guðleifsdóttir frá Langstöðum í Flóa. Tókust með þeim ástir og stofnuðu þau heimili sitt í Ólafsvík 1945. Mik- ill gæfumaður var Guðmundur að fá slíkan lífsförunaut sem Guðríði. Slík- ur persónuleiki er vandfundinn. Lundin einstaklega létt og eðlisgæði mikil. Guðríður ól honum sex börn sem öll komust til fullorðinsára. En þau eru: Sigríður, Guðleifur, Stein- þór, Oddgeir, Lovísa og Svanhildur. Óll eiga þau maka og börn. Afkom- endahópur Guðmundar og Guðríðar er orðinn allstór. Auk þess ólu þau upp dótturdóttur sína, Guðríði, dóttur Sigríðar. Árið 1977 urðu þau fyrir þeirri erfíðu lífsreynslu að missa son si’nn Oddgeir á sviplegan hátt, tæplega þrítugan að aldri. Varð hann mikill harmdauði öllum er hann þekktu. Ef við lítum yfír farinn veg fínnum við hvað við höfum tengst samferða- fólki okkar mismikið. Sumum tengist maður í örstutta stund, öðrum mun dýpra og um lengri veg. Það fínn ég er ég lít til baka til þess tíma sem ég bjó í Ólafsvík. Guðmundur, eða Gvendur Sæli eins og hann var ávallt kallaður, og fjölskylda hans er m.a. það fólk sem ég tengdist sterkum vináttuböndum. Þegar maður elst upp í litlu þorpi eins og Ólafsvík tekur maður eftir því hvað sumt fólk setur meiri svip á samfélag sitt en aðrir. Þannig var með Gvend Sæla. Ekki að hann hafi verið í félagsstarfí eða öðru slíku, heldur var það hans sérstaki per- sónuleiki sem gerði það að verkum að hann verður minnisstæðari en margur annar frá árum mínum i Ólafsvík. Guðmundur var mikið náttúrubarn og þekkti fjöllin í kring eins og fíng- urna á sér, enda hafði hann gengið á þau öll. Hann hafði mjög gaman af að fara í berjamó, og síðast nú í haust fór hann á gamlar beijaslóðir. Gott var að geta leitað til hans þeg- ar farið var til beija, hann þekkti bestu beijastaðina. Hann stundaði sjóböð reglulega í mörg ár og var það ekki á færi nema hraustustu manna, eins og Gvendur var. Einnig hafði hann gaman af að kanna lífríki fjörunnar og voru þær margar ferð- imar þangað. Guðmundur hafði mikla ánægju af tónlist þó sérstaklega harmon- ikkutónlist. Haukur Morthens og Raggi Bjarna voru í hávegum hafðir og sönglaði hann oft með. Heyrði maður þá hvernig röddin varð léttari og lundin bljúgari. Einnig minnist ég þess er ég „stökk yfír“ að ekki ósjaldan var setið við eldhúsborðið með spil í hönd. Gvendur hafði gaman af að spila, bæði vist og manna. Var þá mikií alvara í loftinu og oft hiti í leiknum. Ekki átti Gvendur gott með að tapa, en því ánægðari var hann er hann vann, og hló ánægjulegum hlátri sig- urvegarans. Oft hafði Gvendur gaman af því þegar við Lolla vorum að hafa okkur til á böllin á laugardagskvöldum. Fann maður þá hve gjaman hann hefði viljað vera á okkar aldri. Stund- um fengum við hann til að skutla okkur á samkunduna. Guðmundur hafði mjög gaman af að umgangast unga fólkið og náði oft góðu sám- bandi við það. Hann var svo einstak- lega ungur í anda alia tíð að maður hugsaði ekki til þess að hann væri kominn á efri ár, „unglingurinn sjálf- ur“. En nú hefur hann kvatt þetta líf.og verður tómlegra að koma í heimsókn til Ólafsvíkur en áður. Ég vil þakka Guðmundi Ársæli Ársælssyni samfylgdina og votta Guðríði og 'börnum hennar og að- standendum öllum samúð mína. Helga Gunnarsdóttir. + I tilefni andláts og jarðarfarar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HÓLMFRÍÐAR BENEDIKTSDÓTTUR frá Braut, Húsavík, viljum við þakka öllum þeim mörgu, nær og fjær, sem sýndu okkur hlýhug og henni virðingu með nærveru sinni, blómum og kveðjum. Guð blessi ykkur öll. .. Aðstandendur. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför föðursystur okkar, ÞÓREYJAR JÓIMSDÓTTUR, Moldnúpi. Sérstakar þakkir til starfsfólks og vistmanna Kirkjuhvols og Sjúkra- húss. Suðurlands. Guðjón Einarsson, Sigríður Einarsdóttir, Eyþór Einarsson, Baldvin Einarsson, Guðrún Einarsdóttir, Sigurjón Einarsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.