Morgunblaðið - 06.11.1992, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 06.11.1992, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1992 Það koma ekki skyndibita- pakkar, segir konan mín. Hún var gripin um daginn. HÖGNI IIRKKKVÍSI BREF TIL BLAÐSINS Aðalstræti 6 101 Reylyavík - Sími 691100 - Símbréf 691222 Ógeðfelld fréttamennska Frá Gunnlaugi Þórðarayni: UPP Á síðskastið hafa tilteknir Qöl- miðlar reynt að gera æsifréttir vegna ætlaðra mistaka nokkurra embættis- manna í starfi. Seinasta dæmi þessa er að Stöð 2 hugðist fyrir nokkru úthrópa einn embættismann fyrir seinagang í starfi. Embættismaður þessi fékkst við hin viðkvæmu og erfiðu fíkniefnamál. Hann var mjög heiðvirður og vandur að virðingu sinni í hvívetna og mun það hugsan- lega hafa átt einhvem þátt í að málin gengu hægar en ella. Hann var afskaplega fáliðaður og því hlóð- ust mál upp hjá embætti hans. Eitt þeirra var hið svokallaða málningar- dósamál, en það mál var lengi í at- hugun hjá saksóknara, eftir að lög- reglurannsókninni lauk. Dómarinn fékk það til meðferðar á miðju ári 1990, þá sem sakadómari. Þá stóð réttarfarsbreytingin fyrir dyrum og átti án efa sinn þátt í að málið hlaut að tefjast frekar, þar sem öll saka- dómsembætti voru lögð niður. Af frásögn þeirri, sem Stöð 2 helg- aði aðalfréttum þriggja kvölda í röð um málið, mátti ráða að einhver annarleg öfl væru að verki og ættu þátt í að málið hefði ekki fengist afgreitt. Án þess að leita neinna skýringa á ástæðum þess.að meintur dráttur varð á meðferð þessa tiltekna máls, virðist það eitt hafa vakað fyr- ir fréttastofu Stöðvar 2 að gera rann- sókn málsins sem tortryggilegasta í fréttatímum sínum þrjú kvöld í röð. Smekkleysan náði hámarki, er Stöð 2 birti mynd af landabréfi Hítardals- vatns og umhverfis og upplýsti, að fréttamaður Stöðvar 2 hefði spurt dómsmálaráðherra hvort ekki yrði gerð rannsókn út af dauðsfalli dóm- arans. Reyndar baðst fréttastjóri Stöðvar 2 afsökunar á þeirri svívirðu kvöldið eftir, en sú beiðni var léttvæg. Mig furðar að engir skuli hafa látið van- þóknun sína í ljós á þeirri ógeðfelldu fréttamennsku sem þama var höfð í frammi. Visst áhyggjuefni er að frétta- mennska Stöðvar 2 og annarra ábyrðgarlítilla fjölmiðla einkennist í vaxandi mæli af æsifréttamennsku og jafnvel óbeinum hótunum i frétta- umbúðum. Því má ekki gleyma að menn sem fást við rannsókn og dómsmeðferð i fíkniefnamálum eru í meiri háska en í öðrum lögfræðistörfum og Ijóst er að menn sem fást við slík mál í ára- Frá Sveini Magnússyni: OFT heyrir maður þessi orð, verslið í heimabyggð, styrkið ykkar heima- "byggð. Og það er það sjálfsagt rök- rétt, svo langt sem það nær. Við skulum skoða þetta aðeins nánar. Ég ætla að segja það strax að ég er þessu ekki sammála að öllu leyti. Mun ég nú leitast við að gera grein fyrir skoðunum mínum á þessum málum. Það mun þá naumast verða gert með neinni tæpitungu. Um þessi mál verður að tala af fullri hrein- skilni, hvort sem mönnum líkar betur eða verr. Enginn skyldi láta heigulshátt, undirlægjuhátt, auðmýkt eða til- beiðslu annarra sjónarmiða aftra sér frá að hugsa, tala og taka sjálfstæða afstöðu til þessara mála, ekki síst er það varðar bókstaflega tilveru þeirra til að lifa mannsæmandi lífi. En afstaðan verður að byggjast á heilbrigðu máli studdu öruggum rök- um og staðreyndum. Heilbrigt mat, sjálf undirstaða og forsenda afstöð- unnar, verður ekki framkvæmd með neinum öruggari ráðum en beitingu kaldrar skynsemi. Umfram allt án tilfínninga en í samráði við samvisku hvers manns, sem aldrei þagnar, heldur spyr sjálfan sig: Er ég að gera rétt? Sá sem á og rekur verslun reynir að afla þeirrar vöru sem hann þarf til framleiðslu sinnar á sem hagkvæ- mustu verði, hvar sem hann getur fengið vöruna, og við skulum ætla að hann geri það ef hann ætlar að láta verslunina ganga vel, selja sem ódýrasta vöru og um leið hagstæð- asta fyrir sinn viðskiptavin. Þá fer vel. En sá sem rekur heimili verður líka að hugsa um að fá allt það hrá- tugi hljóta að þreytast í þeim störf- um. Þessi aðför Stöðvar 2 er smánar- blettur á starfsemi hennar. GUNNLAUGUR ÞÓRÐARSON Bergstaðastræti 74a, Reykjavlk efni sem hann þarf til að framfleyta sér og sinni fjölskyldu á sem hag- stæðastan hátt. Hann hlýtur að reyna að fá allt það sem hann getur fengið fyrir sem minnstan pening til að heimilið geti borið sig. Hann gerir nákvæmlega það sama og sá gerir sem rekur sína verslun. Hann spyr sig: Hvar get ég fengið mest fyrir mín laun? Það hlýtur að vera jafn rökrétt hjá honum eins og hinum. Hann getur ekki staðið fyrir framan sína fjölskyldu og sagt: Við verðum að skera niður hjá okkur svo hinir geti haldið sínum verslunum gangandi. Bara af því að þeir búa í sama byggðarlagi en geta ekki boðið okkur sína vöru á sama verði og stór- markaðirnir í nágrannabyggðunum. Á meðan öllum er frjálst að versla hvar sem þeir telja heppilegast þá gera þeir það. Meðan húsmæðurnar sem fara oftast með fjármál heimil- anna í innkaupum telja að það sé heppilegra að versla í stórmörkuðun- um þá verður svo að vera. Svo ein- falt er það. Við sitjum að þessu leyti öll við sama borð sem betur fer. Stórmarkaðimir eru komnir til að vera. Það eru breyttir tímar og við verðum að aðlagast þeim. Hvort þeir eru betri eða verri verður tíminn að leiða I Ijós. Óöryggi í atvinnumálum og samdráttur á öllum sviðum kemur við alla, hvar sem þeir standa í þjóð- félaginu. Meiri álögur kalla á að fólk verður að velta nánast hverri krónu á milli fingra sér og reyna að fá sem mest fyrir hana. Hverjum er um að kenna ætla ég ekki að leggja dóm á, en þetta eru því miður staðreyndir engu að síður. SVEINN MAGNÚSSON Ægisbyggð 20, Ólafsfirði —- Verslun í heimabyggð Víkveqi skrifar Kunningjakona Víkverja átti leið í Gjaldheimtuna nú á dögun- um, þar sem hún var að greiða opin- ber gjöld. Hún greiddi með ávísun og sem hún afhendir ávísunina ber þar að starfsmann, sem vinnur hjá stofnuninni, og þegar hann sér ávís- unina, segir hann: „Já, ég get svo sem tekið ávísunina, en á ég ekki að taka þig líka?“ Hvort sem þetta átti að vera brandari eða ekki, fannst konunni þetta síður en svo hlægilegt. Opin- ber embættismaður, sem þannig svarar viðskiptavinum Gjaldheimt- unnar, þekkir ekki sinn vitjunartíma og þyrfti svo sannarlega að fara í námskeið í almennum mannasiðum. xxx á er það skjalfest í íslenzkri pólitík, í fyrsta sinn í sögunni, að félögum í stjórnmálasamtökum, Kvennalistanum, er heimilt að hafa eigin skoðanir og greiða atkvæði samkvæmt samvizku sinni. Ástæða er til þess að gleðjast yfir þessum þáttaskilum, þegar slíkt er samþykkt á fjölmennum fundi. Nú þarf enginn að fara í grafgötur um að Kvenna- listinn ætlar að virða þessi ákvæði stjórnarskrárinnar, að þingmenn hafi heimild til að fara eftir samvizku sinni. Inn á borð Víkvérja barst nýlega lítill pési, sem ber nafnið „Pass- port to Iceland" og er gefínn út í sama broti og íslenzka vegabréfið. Þetta er nokkuð óvenjulegt upplýs- ingarit um land og þjóð og er einnig skemmtilegur minjagripur um heim- sókn til íslands. „Passinn" eins og hann mun hefndur á meðal ferða- skrifstofufólks er gefinn út af Ice- land Review og litprentaður með mörgum myndum. Hann mun nú hafa verið gefmn út á ensku og þýzku, en fyrirhugað mun vera að gefa hann út á fleiri tungumálum. „Passinn" er frumleg og skemmmtileg útgáfa af kynningar- riti, sem gaman getur verið að gefa ferðamönnum,* sem til landsins koma, enda hefur Víkveiji heyrt af því að fyrirtæki kaupi mörg hver nokkurt magn af honum til þess að geta gefið gestum, sem heimsækja þau, og ennfremur hefur hann verið settur inn í svokallaða ráðstefnu- pakka, þ.e. í gögn sem dreift er á ráðstefnum, sem hér eru haldnar. Sem dæmi um notkun „passans" má geta þess að fyrir nokkrum mánuðum bauð Magnús Gústafsson, forstjóri Coldwater Corporation í Bandaríkjunum, nokkrum viðskipta- vinum til íslands. Hann pantaði passa handa öllum gestum sínum og var böggull með þeim sendur vestur um haf og beið hans á Kennedyflugvelli. Þannig fengu allir þátttakendurnir í þessari íslandsferð „passann" um leið og þeir stigu upp í Flugleiðaþotuna og gerði hann mikla lukku meðal Bandaríkjamann- anna. xxx Víkveija hefur verið bent á að einn alvarlegur hængur sé á notkun „græna kortsins“. I raun er í gildi tvenns konar kerfí sem að- gangur að strætisvagnakerfínu, kortið og svo miðakerfið gamla, sem nú er notað fyrir öryrkja og gamal- menni og hentar þeim, sem nota vagnana lítið. En ungir öryrkjar fá ekki græna kortið, heldur gömlu miðana, sem eru ódýrari. Þetta getur verið mjög sárt fyrir þetta unga fólk, sem vill hafa kort eins og hinir jafn- aldrarnir, sem eru heilir heilsu. Þennan misbrest þarf yfirstjórn strætisvagnanna að leiðrétta, svo að ungu fólki sé ekki mismunað. Það er ekki aðeins fjárhagslegur þáttur, sem spilar inn í þetta mál, heldur einnig tilfinningalíf þessa unga fóiks. Ci « « « « « (! I í í \

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.