Morgunblaðið - 06.11.1992, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1992
49
Hver er hlutur Landsímans í þjón-
ustu- og- skemmtinúmerunum?
Frá Jóhanni F. Guðmundssyni:
I ÉG LEYFI mér að beina eftirfar-
' andi spurningum til Ólafs Tómas-
sonar, póst- og símamálastjóra:
j 1. Tekin hafa verið í notkun síma-
" númer sem kallast þjónustu- og
skemmtiefni, þ. á m. stjörnuspár og
I kynlífsfræðsla. Verð er kr. 39,90
" til 69,90 á mínútu. Hver annast
eftirlit f.h. Landsímans með því
efni sem þarna er borið fram? Hafa
Landsímanum borist kvartanir
vegna þess?
2. Er hægt að koma í veg fyrir
notkun heimilissímans og á ég þar
sérstaklega við forvitin böm og
unglinga, sem lesa og heyra um
ginnandi tilboð, en gera sér ekki
ljóst að símareikningurinn getur
orðið svo hár, að ofviða verður fyr-
ir foreldrana að greiða hann? Nefna
má sem dæmi að kynlífsfræðslan
kostar rúmar 8.000 krónur skv.
blaðinu Símatorgið.
3. Eru hringingar utan af landi
I með utanbæjarálagi?
4. Eru fyrirtæki og stofnanir
einnig varnarlaus gagnvart því að
) starfsfólk og aðrir noti síma þeirra
til þess að afla sér þeirra upplýs-
inga sem hér er talað um?
| 5. Er ekki hætta á því að ungt
fólk taki stjörnuspárnar alvarlega
og þá sem leiðsögn fyrir líf sitt
þannig að kristin trú og siðgæðisvit-
und verði að víkja fyrir því sem þar
er fram borið? Er eðlilegt að Land-
síminn eigi þar hlut að máli?
6. Nýlega birtist í Morgunblaðinu
grein með yfirskriftinni „Emm að
gefa dreifikerfi símans nýtt líf‘. Því
er spurt: Er dreifikerfi Landsímans
lasburða, Qárvana, kannski í andar-
slitrunum eins og fyrirsögn fréttar-
innar ber með sér?
7. í greininni kemur fram að
Miðlun og hollenskt fyrirtæki eiga
saman „Islensku símaþjónustuna"
með jafnri eignaraðild. Er við hæfí
að Landsíminn innheimti fyrir hinn
erlenda aðila þessi símgjöld? Er
samið til margra ára?
8. Hveijar eru tekjur Landsímans
áætlaðar vegna þessarar starfsemi?
9. Hver er hlutur Landsímans af
hverri mínútu?
10. Hafa kvartanir borist frá sím-
notendum vegna fleiri skrefagjalda
að undanfömu?
Nýlega hefur verið borið út blað-
ið Símatorgið. 1. tbl. 1992 útg.
Teleworld Island með uppl. um
þessa starfsemi, þ. ám. samkeppni
um hvert sé gáfnaljós Bylgjunnar
fyrir kr. 39,90!!! mínútuna, með lof-
orðum um glæsilega vinninga. Þeir
vita hvernig á að standa að mark-
aðssetningu, bara að gáfnaljósin
sem þeir uppgötva velti þeim ekki
úr sessi!
Og nú bætast fleiri flokkar við.
Stjörnuklúbbur Bylgjunnar,
Stjömuspá Bylgjunnar, Leikir og
verðlaun á Bylgjunni. Mér kemur í
hug leikurinn með erindinu kunna:
„Fram fram fylking, forðum okkur
hættu frá, því ræningjar oss vilja
ráðast á.“
Það er hætt við að freisting skap-
ist hjá ungu fólki til þess að fara
á bak við foreldra, sem ekki geta
komið í veg fyrir notkun símans
vegna ýmissa aðstæðna.
Felst ekki í þessu hætta á því
að tortryggni, reiði og erfíðleikar
verði ,til innan ijölskyldunnar, sem
þarf og á að vera sterkasta stoð
þjóðfélagsins?
Dýrasta eign þjóðarinnar er æska
hennar og margt er gert til þess
að varðveita hana og styrkja inn á
veg framtíðar, jafnframt vitum við
að hún verður fyrir hrikalegri
áreitni í ýmsum myndum og er
ekki þar á bætandi.
í gegnum hávaða og trölladans
heimsins heyrist rödd kærleikans,
kalla til allra sem byggja þetta land.
„Ég er vegurinn, sannleikurinn
og lífið.“ Og á þann boðskap kostar
ekkert að hlusta.
Megi Guð varðveita unga fólkið.
Æskuskarann á íslands strönd?
eins og sr. Friðrik orti.
Með bestu kveðju og þakklæti
fyrir væntanleg svör yðar.
í fyrsta sinn á íslandi
DANIEL HECHTER nlkislϚur
frá kr. 6.500 og leðurbelti.
Langur laugardagur á morgun.
Opid frá kl. 10—17.
snyrtivörukynning frá kl. 13—17.
10% kynningarafsláttur.
SIGURBOGINN
Laugavegi 80, sími 611 330.
GOODfYEAR
VETRARHJÓLBARÐAR
VELVAKANDI
MYNDARLEGT
FRAMTAK
Birgir Lámsson, Ránargötu 30
Reykjavík:
ÉG VIL koma á framfæri kæm
þakklæti til Víking Bmgg á
Akureyri fyrir myndarlegt
framtak er þeir héldu Október-
| bjórhátíð á Akureyri og í
Reykjavík um daginn.
Þetta er að mínu mati eitt
myndarlegasta framtak ís-
lensks iðnfyrirtækis til að
kynna íslenskan iðnað sem lagt
hefur verið í um árabil og veit
ég að margir em mér sammála.
Eitt langar mig að vita og
vil ég beina spumingu minni
til Víking Brugg og/eða ÁTVR.
Verður Októberbjórinn áfram
til sölu í verslunum ÁTVR og
á veitingastöðum eða er þetta
aðeins tímabundin framleiðsla
sem heyrir þessum mánuði til?
Ég spyr vegna þess að Okt-
óberbjórinn er eitthvað það
mesta sælgæti í bjór sem rekið
hefur á fjömr mínar hér á landi.
Önnur spuming: Þarf maður
kannski að hamstra bjórinn ef
hann verður tekinn úr sölu í lok
| mánaðarins?
EYRNALOKKUR
LAFANDI gullhúðaður eyma-
lokkur með hjartalöguðum gul-
brúnum steini tapaðist laugar-
dagskvöldið 24. október í Mið-
bænum. Finnandi er vinsamleg-
ast beðinn að hringja í síma
75788 eða 43142 eftir kl. 20.
Fundarlaun.
GÓÐUR
ÞÁTTUR
Nína Haraldsdóttir:
SIGURGEIR Guðjónsson var
með mjög góðan tónlistarþátt
á Aðalstöðinni á kvöldin sem
I gaman var að hlýða á. í þessum
þætti var ýmiss konar músík
sem var mjög vel valin. Ég
I vona að Sigurður verði fenginn
" til að vera með þáttinn á ný
því það er mikil eftirsjá að hon-
um.
GLERAUGU
GLERAUGU töpuðust 15.
október sl. í neðra Breiðholti
eða við verslunarmiðstöðina í
Mjódd. Finnandi er vinsamleg-
ast beðinn að hringja í síma
670305 eða 71614.
GLERAUGU í hulstri fundust
í Ráðhúsinu fyrir nokkru. Upp-
lýsingar í síma 30815.
SPORÖSKJULÖGUÐ kven-
gleraugu með gylltri rönd töp-
uðust í Miðbæ Reykjavíkur að-
faranótt laugardagsins 30'.
október. Finnandi er vinsam-
legast beðinn að hringja í síma
27557.
LÍTIL gleraugu með gullum-
gjörð töpuðust, ef til vill við
JL-húsið. Finnandi er vinsam-
legast beðinn að hringja í síma
610969.
HJÓL
SVART átján gíra JASS-
VOLTAGE fjallahjól var tekið
við Hraunbæ 50 um mánaða-
mótin september/október. Þeir
sem kynnu að hafa séð hjólið
vinsamlegast hafi samband í
síma 673243. Fundarlaun.
TÝNDLÆÐA
LÆÐAN Marína á heima í
Mosfellsbæ en hvarf sunnudag-
inn 18. október. Hún er með
rauða ól um hálsinn og hefur
það sérkenni að vera með svart-
an lítinn blett rétt við nefið.
Vinsamlegast látið vita í síma
668237 ef einhver hefur orðið
var við hana.
I JÓHANN F. GUÐMUNDSSON
' Látrarströnd 8, Seltjamamesi
Pennavinir
Tékknesk stúlka um tvítugt með
áhuga á bókalestri, íþróttum, tónlist
o.fl.:
Jitka Klecova,
Barakova 1204,
Kostelec nad Orlici,
517 41,
Czechoslovakia.
Frá Alsír skrifar 31 árs hótel-
starfsmaður með áhuga á ferðalög-
um, tónlist, fiskveiðum o.fl.: •
M. Kemmeche Boualem,
Hotel des Sables D’or,
Zeralda,
Algeria.
LEIÐRÉTTINGAR
Rangt
föðurnafn
Þau leiðu mistök urðu við birtingu
fréttar á bls. 4 í gær, að föðumafn
Báru Gunnarsdóttur, sem lézt af
slysförum, misritaðist. Em aðstand-
endur beðnir velvirðingar á þessum
mistökum.
GOODfYEAR
60 ÁR Á ÍSLANDI
Sjöfn stjórnaði
fundi
Vegna fréttar í blaðinu s.l. mið-
vikudag um að Katrín Fjeldsted
hefði fyrst kvenna stjórnað borgar-
ráðsfundi skal tekið fram að Sjöfn
Sigurbjörnsdóttir þáverandi borgar-
fulltrúi Alþýðuflokksins stjómaði
fundi í borgarráði Reykjavíkur 24.
apríl 1979.
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
HEKLA
FOSSHÁLSI 27
SÍMl 695560 674363
Snyrtifræðingur
kynnir nýju haust-
og vetrarlitina
í dag
kl. 14-18
Gjafa-og
snyrtivörubúðin
Stigahlíð