Morgunblaðið - 19.11.1992, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 19.11.1992, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍr mLMTL'DA.GLUt 19. NÓVEMBER 1992 C 3 Flug Flugleiðum færð sam- bönd okkar á silfurfati - segir Halldór Sigurðsson stjómarformaður Atlantsflugs FORSVARSMENN Atlantsflug-s áttu fund með Halldóri Blöndal sam- gönguráðherra síðastliðinn mánudag vegna þeirrar alvarlegu stöðu sem flugfélagið er í. Að sögn Halldórs Sigurðssonar, stjómarform- anns Atlantsflugs var fundurinn á jákvæðum nótum. Halldór sagði að stjórnvöld væra að færa Flugleiðum viðskiptasambönd Atlants- flugs á silfurfati með óraunhæfri kröfu um eiginfjárstöðu flugfé- laga. Halldór Blöndal samgönguráðherra vildi ekki tjá sig um hvað hefði farið fram á fundinum. Eigendur Boeing 727 vélar sem Atlantsflug hefur haft á leigu und- anfama mánuði fóru með vélina frá íslandi sl. laugardag til Shannon flugvallar á Irlandi. Atlantsflug hefur nú enga vél og sagði Halldór Sigurðsson stjómarformaður fé- lagsins að það réðist á allra næstu dögum hvort félagið yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Halldór sagði að ljóst væri að ekki næðist inn hluta- fé til að uppfylla skilyrði um nægi- lega eiginfjárstöðu til rekstrar í þijá mánuði án tillits tii tekna. Tölu- verðar skuldir hvíla á félaginu og em lánadrottnar flestir erlendir, þ.á.m. Baii-bankinn og kaupleigu- fyrirtækið LAS, eigendur Boeing 727 vélarinnar sem Atlantsflug leigði. Þeir hafa engu að síður heit- ið 30 milljón kr. hlutafé inn í félag- ið að því tilskildu að íslenskir aðilar leggi fram ijármuni. Halldór sagði að íslensk stjórn- völd væm að færa Flugleiðum við- skiptasambönd Atlantsflugs á silf- urfati með óraunhæfri kröfu um eiginfjárstöðu flugfélaga. Benti hann á og vísaði í útreikninga fé- lagsins að ef sama krafa væri gerð til nokkurra stærstu fyrirtælq'a landsins væri ekkert þeirra nógu burðugt til að halda úti starfsemi. Eigið fé íslenskra sjávarafurða væri 657 milljónir kr., en fyrirtækið þyrfti samkvæmt reglugerðinni að Hlutabréf Mest selst í Haraldi Böðvars- synihf. Engar meiriháttar gengisbreytingar HLUTABRÉFAVIÐSKIl’TI á Verðbréfaþingi og Opna tilboðsmarkaðnum vikuna 11-17. nóvember voru alls fyrir um 7,7 miiyónir króna og þar af seldust hlutabréf í Haraldi Böðvarssyni hf. fyrir 5,3 mil^jónir króna á genginu 3,10 sem er 0,70 hærra gengi en frá síðustu sölu. Minni- háttar viðskipti áttu sér stað I 8 öðrum hlutafélögum. Síðastliðna viku seldust hlutabréf í Eimskip fyrir 407 þúsund á genginu 4,35 og 4,30, Sjóvár/Almennum fyrir 555 þúsund á genginu 4,30, Flug- leiðum fyrir 290 þúsund á 1,45, Olís fyrir 171 þúsund á 1,90, Marel fyrir 173 þúsund á 2,4, Eignarhaldsfélagi Iðnaðar- bankans fyrir 314 þúsund á 1,4, Útgerðarfélagi Akur- eyringa fyrir 349 þúsund á 3,68 og í Olíufélaginu fyrir 142 þús- und á genginu 4,7. Engar meiriháttar gengis- breytingar áttu sér stað í hluta- bréfaviðskiptum fyrmefndra 8 hlutafélaga í vikunni. eiga 3.054 milljónir kr. Samtök ís- lenskra fiskframleiðenda ætti 797 milljónir kr. en þyrftu að eiga 3.044 milijónir. Halldór sagði að ekki væri loku fyrir það skotið að félagið sækti um flugrekstrarleyfi þegar hinn svokallaði „þriðji pakki“ í flugi inn- an Evrópu kæmist á 1993, en sam- kvæmt honum yrðu það einvörð- ungu nýir flugrekstraraðilar sem þyrftu að sýna fram á eiginfjárstöðu sem dygði til þriggja mánaða rekst- urs án tillits til tekna. Því væri hins vegar ekki að neita að félagið hefði nú þegar misst viðskiptavild og -samninga og það kæmi ekki í ljós fyrr en á reyndi hvort unnt yrði að hefja á ný flugrekstur. „Það er útséð með að það næst ekkert hlutafé inn ef ekki fást flug- rekstrarleyfí. Ef miða á við rekstur- inn í fyrra þá eru þetta 125-150 milljónir kr. Ef við reiknum með þeim rekstri sem fyrirhugaður var á næsta ári þá er um 330 milljónir kr. að ræða,“ sagði Halldór. Atíantsflug skuldar Flugmála- stjöm farþegaskatta, en þá fjár- muni fær félagið greidda eftir á frá ferðaskrifstofum sem það hefur flogið fyrir. Atlantsflug greiddi 4,9 milljónir í farþegaskatta vegna flugs fyrir Flugferðir-Sólarflug og hefur félagið farið fram á það við samgönguráðuneytið sú upphæð SÖLUAÐILAR: E. TH. MATHIESEN HF. PENNINN SF., HALLARMÚLA 2 E.TH.MATHIESENHF. BÆJARHRAUN110 ■ HAFNARFIROI ■ SÍMI651000 verði endurgreidd, þar sem greiðsl- ur hafí ekki borist frá Flugferðum- Sólarflugi. Ráðuneytið hefur hafnað því. Halldór sagði að enn ættu eftir að berast reikningar, m.a. vegna yfírflugsgjalda og eldsneytis. „í níu mánaða uppgjöri var tap hjá okkur, en í fyrra var hagnaður. Árið er ekki búið fyrir öll venjuleg fyrir- tæki en það er búið fyrir okkur.“ ATLANTSFLUG — Tvísýnt er nú um framtíð Atlantsflugs. Flugfélagið leitar eftir nýju hlutafé til að treysta eigið fé fyrirtækisins sem er forsenda þess að flugrekstrarleyfí fáist. Hins vegar segja for- svarsmenn fyrirtækisins útséð um að félaginu takist að afla nýs hluta íjár ef flugrekstrarleyfíð liggur ekki fyrir. Félagið er því í eins konar sjálfsþeldu. Með varaaflgjafa frá Nýherja þarftu ekki að óttast að rafmagnsleysi, spennufall eða aðrar rafmagnstruflanir eyðileggi tölvuna eða gögnin. Varaaflgjafinn er nauðsynlegt öryggistæki sem tekur sáralítið pláss. Hafðu samband og við metum hvaða varaaflgjafi hentar þínu tölvukerfi, þér að kostnaðarlausu. Verd frá kr. 24.487.- NÝHERJI TOLVULAGNIR Armúía m * ska 67 ao 70 LATUM GÆÐIN GERA GAGN Hagstæð fyrirgreiðsla til iðnfyrirtækja sem vilja koma á vottuðum gæðakerfum IÐN LANASJOÐUR VÖRUPRÓUNAR- OG MARKAÐSDEILD A B A / 8fA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.